Morgunblaðið - 26.07.2001, Side 14
AKUREYRI
14 FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
eftir 1 dag
Þú og ég
Allar nánari upplýsingar veittar á
Fasteignasölunni Byggð,
Strandgötu 29, 600 Akureyri.
Símar 462 1744 og 462 1820.
Opið virka daga frá 9-12 og 13-17.
Hafnarstræti 92
Til leigu er 58 fm verslunarhúsnæði í Bautahúsinu á Akureyri, þar
sem nú er rekin herrafataverslun. Húsnæðið leigist frá 1. ágúst
nk. Góð staðsetning, rétt við göngugötuna.
Til leigu
Brauðbörnin eru í sumarskapi. Nú fylgir boðsmiði
íFjölskyldu-oghúsdýragarðinnmeðöllumBrallara-
brauðum:Pyslu-hamborgara-og samlokubrauðum.
Halli og Brauðbörnin bjóða þér að koma og
skemmta þér í frábærum leiktækjum og heilsa upp
áölldýrin ígarðinum.Láttusjáþig félagi!
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er opinn alla daga frá kl. 10-18.
Sumarglaðningur fylgir öllum Brallarabrauðum í júlí
Boðsmiði í Fjölskyldu- oghúsdýragarðinn
X
Y
Z
E
T
A
/
S
ÍA
FRAMKVÆMDIR við nýbygging-
ar Háskólans á Akureyri við Sól-
borg hafa legið niðri undanfarna
mánuði, eða frá því að verktakafyr-
irtækið SJS verktakar var úr-
skurðað gjaldþrota fyrir miðjan
apríl nú í vor.
SJS verktakar unnu við að reisa
nýbyggingu HA og skildu við það
verk óklárað en áætlað er að um
tveimur þriðju hlutum verksins sé
lokið.
Stærstur hluti húsnæðisins var
tekinn í notkun síðasta haust en
frágangi innanhúss er ólokið, með-
al annars þar sem aðstaða kennara
og afgreiðsla skólans verður og all-
ur frágangur utanhúss er einnig
eftir.
Töf á framkvæmdum komið
sér illa fyrir skólann
Þá á alveg eftir að steypa upp
sérhæft húsnæði fyrir verklega
kennslu í hjúkrun og iðjuþjálfun en
samkvæmt útboði átti það húsnæði
að verða tilbúið til notkunar í októ-
ber nú í haust.
Ólafur Búi Gunnlaugsson fram-
kvæmdastjóri HA sagði að þessi
töf á framkvæmdum hafi vissulega
komið sér illa fyrir skólann. Hann
sagði að koma hafi þurft ýmissi
starfsemi fyrir hér og þar til
bráðabirgða. Í gær, miðvikudag,
var gengið frá samningum við
verktaka um að ljúka framkvæmd-
um við skrifstofu- og kennsluhús-
næði skólans og er byggingastjórn
í höndum Tréverks á Dalvík.
Ólafur Búi sagði óvíst hvenær
hægt yrði að taka þann hluta hús-
næðis sem ólokið er í notkun en þó
ekki síðar en næsta sumar. Fram-
kvæmdir við húsnæðið fyrir verk-
lega kennslu í hjúkrun og iðjuþjálf-
un verða hins vegar boðnar út að
nýju með haustinu.
Hluti verksins
aftur í útboð
Fyrstu nýbyggingar Háskólans á
Akureyri, alls um 1.550 fermetrar
að stærð, voru formlega opnaðar af
Birni Bjarnasyni menntamálaráð-
herra í byrjun október á síðasta ári
en alls munu nýbyggingarinnar
verða rúmlega 2.100 fermetrar
þegar áfanganum lýkur. Tilboð
SJS verktaka í framkvæmdirnar,
sem boðnar voru út árið 1999, var
það lægsta og hljóðaði upp á tæpar
250 milljónir króna.
Einnig ólokið við fjölbýlishús
með stúdentaíbúðum
SJS verktakar unnu einnig við
að byggja 7 hæða fjölbýlishús með
29 stúdentaíbúðum við Drekagil,
fyrir Félagsstofnun stúdenta á
Akureyri, steinsnar frá háskóla-
svæðinu á Sólborg. Í húsinu, sem
er samtals um 2.200 fermetrar að
stærð, eru 14 þriggja herbergja
íbúðir, jafnmargar tveggja her-
bergja íbúðir og ein einstaklings-
íbúð og þá er kjallari í húsinu.
Framkvæmdum við fjölbýlishúsið
var ólokið að utan þegar SJS verk-
takar voru lýstir gjaldþrota. Ólafur
Búi sagði að unnið væri að því að
ljúka framkvæmdum utanhúss en
áætlaður kostnaður við það verk er
á annan tug milljóna króna.
Morgunblaðið/Kristján
Ólafur Búi Gunnlaugsson framkvæmdastjóri Háskólans á Akureyri í
grunninum þar sem húsnæði fyrir verklega kennslu í hjúkrun og iðju-
þjálfun á að rísa. Framkvæmdum við húsið átti að vera lokið í október
nk. en bjóða þarf verkið út að nýju með haustinu.
Ekkert verið unnið við nýbyggingar HA eftir gjaldþrot verktakans í vor
Fram-
kvæmdir að
hefjast á ný
EINKAHLUTAFÉLAGIÐ Himir á
Akureyri hefur sótt um leyfi til þess
að byggja 4.000 fermetra verslunar-
húsnæði með bílakjallara við Hafn-
arstræti, sunnan gamla hitaveitu-
hússins sem rifið var á dögunum. Að
auki er gert ráð fyrir að byggja íbúð-
ir ofan á hluta húsnæðisins.
Gert er ráð fyrir að matvöruversl-
un verði í stærstum hluta húsnæð-
isins og hefur helst verið rætt um
Hagkaup í því sambandi. Finnur
Árnason framkvæmdastjóri Hag-
kaupa sagði að komið hafi til tals að
færa verslunina á Akureyri í fyrir-
hugaða byggingu. Málið sé í skoðun
en engin ákvörðun liggi fyrir á þess-
ari stundu. Finnur vildi að öðru leyti
ekki tjá sig um málið.
Einnig er gert ráð fyrir að smærri
sérverslanir verði í minni rýmum í
húsinu. Þá verða íbúðir byggðar ofan
á austurhluta hússins og er þegar
mikill áhugi fyrir þeim, enda stað-
setning spennandi á miðbæjarsvæð-
inu, rétt við Pollinn.
Að sögn Páls Alferðssonar bygg-
ingaverktaka á Akureyri og fram-
kvæmdastjóra Himis hefur verið
fjallað um fyrirliggjandi tillöguteikn-
ingar að húsnæðinu í umhverfisráði,
þar sem þær hafi fengið jákvæðar
undirtektir. Páll sagði málið ekki
frágengið, það væri í vinnslu í bæj-
arkerfinu og að gera þurfi breytingu
á deiliskipulagi svæðisins.
Húsnæðið í notkun vorið 2003
Þar er þó gert ráð fyrir bygginga-
reitum í fyrirliggjandi deiliskipulagi
og m.a. eru núverandi bílastæði á
svæðinu á byggingareitum.
Gangi hugmyndir félagsins hins
vegar eftir er stefnt að því að hefja
framkvæmdir snemma á næsta ári
og taka húsnæðið í notkun vorið
2003.
Himir ehf. á húseignir á Akureyri,
m.a. það húsnæði sem Bónus er í við
Langholt og Skipagötu 12.
Hagkaup sækir um leyfi til byggingar í miðbæ Akureyrar
Vill byggja 4 þús. fm
verslunarhúsnæði
Frumtillögur að verslunarhúsnæði í miðbæ Akureyrar.
Frumtillögur að verslunarhúsnæði í miðbæ Akureyrar sem kynntar
hafa verið í bæjarkerfinu, séð frá norðri til suðurs.
TVÖ tilboð bárust í endurbætur á
Hafnarstræti/göngugötu á Akureyri.
Tilboðin voru opnuð í gær og voru
bæði langt yfir kostnaðaráætlun.
G. Hjálmarsson hf. bauð tæpar 49
milljónir króna í verkið, sem er um
133% af kostnaðaráætlun, en GV
gröfur ehf. bauð rúmar 64 milljónir
króna, sem er um 175% af kostnað-
aráætlun, sem hljóðaði upp á tæpar
37 milljónir króna.
Guðmundur Guðlaugsson deildar-
stjóri framkvæmdadeildar Akureyr-
arbæjar sagði það hafa komið sér
mjög á óvart hversu mikill munur
var á tilboðunum.
Bæði tilboð-
in langt yfir
kostnaðar-
áætlun
Tvö tilboð í endur-
bætur göngugötunnar