Morgunblaðið - 26.07.2001, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 26.07.2001, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ                               !   " # $    %   &  '   (   #  $ $ &   BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÞVÍ hefur verið haldið fram að fimmta hvert banaslys á Íslandi tengist ölvunarakstri á einn eða annan hátt auk þess sem stóran hluta alvarlegra slysa megi rekja til þess að ökumaður var drukkinn. Líklega hefði mátt koma í veg fyrir marga harmleiki götunnar ef tekist hafi að stöðva ökumennina áður en slys hlutust af. Því miður virðist sem sumir veigri sér við að tilkynna til lög- reglu ef þeir verða þess varir að ölvaður maður sest upp í bíl. Þetta á sérstaklega við ef hinn ölvaði er fjölskyldumeðlimur eða vinnufélagi en þá vilja margir loka augunum og telja að þeim „komi ekki við“ hvað aðrir aðhafist. Slík viðhorf eru ekki aðeins ámælisverð heldur beinlínis stórhættuleg. Þegar rætt er um ölvunarakstur kemur fyrst upp í hugann alvarleg umferðar- slys. Færri gera sér grein fyrir þeirri fjárhagslegu áhættu sem fylgir því að aka undir áhrifum áfengis eða sitja sem farþegi í bíl með ölvuðum ökumanni. Tjón, sem verður á ökutæki þess sem ekur undir áhrifum áfengis, verður hann iðulega að ber sjálfur. Í umferð- arlögunum er svo fyrir mælt að vá- tryggingafélag, sem greitt hefur bætur vegna tjóns af völdum öku- tækja þar sem ökumaður var undir áhrifum áfengis eignast endur- kröfurétt á hendur þeim sem tjóni olli af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi. Dómsmálaráðherra skipar nefnd þriggja manna sem kveða á um hvort og þá að hve miklu leyti beita skuli endurkröfum. Á árinu 2000 bárust nefndinni samtals 107 slík mál til úrskurðar en af þeim málum samþykkti nefndin endurkröfu, að öllu leyti eða hluta, í 98 tilfellum. Hæsta endurkrafan nam 5 millj- ónum króna.Af þeim 77 tilfellum, þar sem mælt var með endurkröfu vegna ölvunar ökumanns, mældust 62 þeirra í efri mörkum hvað varð- ar áfengismagn í blóði sem þýðir að þeir töldust óhæfir til að aka. Athygli vekur að karlar voru í miklum meirihluta þeirra sem end- urkrafðir voru vegna ölvunarakst- urs. En það eru ekki aðeins öku- mennirnir sjálfir sem þurfa að gjalda fyrir ölvunarakstur. Ef sannað þykir að farþegar hafi vitað af ölvun ökumanns getur bótarétt- ur þeirra skerst eða fallið alveg niður. M.ö.o: Sá sem lendir í um- ferðarslysi sem ölvaður ökumaður veldur getur átt á hættu að fá eng- ar slysabætur. Í því sambandi má geta þess að fyrir nokkrum árum féll Hæstaréttardómur sem sýkn- aði tryggingafélag af bótakröfu manns sem slasaðist í bílveltu eftir að hafa tekið sér far með ölvuðum ökumanni. Í dómi Héraðsdóms segir að farþeganum hafi hlotið að vera það ljóst að ökumaður var undir áhrifum áfengis. Og með því að taka þátt í ökuferðinni hafi hann tekið verulega áhættu og sýnt af sér stórkostlegt gáleysi sem leiði til þess að hann hafi fyrirgert bóta- rétti sínum. Ölvaðir ökumenn hætta því ekki aðeins sínu eigin lífi og limum svo ekki sé talað um samferðamenn þeirra í umferðinni, heldur taka þeir stórkostlega fjárhagslega áhættu með slíkri háttsemi. Þess má geta að ökumenn, 25 ára eða yngri, voru 47% þeirra sem end- urkrafðir voru á árinu 2000. Tvö af umferðarheitunum í Þjóð- arátaki VÍS gegn umferðarslysum eru eftirfarandi: Ég heiti því að aka aldrei undir áhrifum áfengis. Ég heiti því að setjast aldrei upp í bíl með drukknum ökumanni. Vátryggingafélag Íslands heitir á alla ökumenn að tileinka sér þessi umferðarheit og taka þannig beinan þátt í því að fækka umferð- arslysum. ÁSGEIR BALDURS, markaðsstjóri Vátryggingafélags Íslands hf. Ölvunarakstur – óþörf áhætta Frá Ásgeiri Baldurssyni: LESA má í Lúkasarguðspjalli 14. kafla og versum 25 og 26: „Mikill fjöldi fólks var honum (þ.e. Jesú) samferða. Hann sneri sér við og sagði við þá: „Ef einhver kemur til mín og hatar ekki föður sinn og móður, konu og börn, bræður og systur og enda sitt eigið líf, sá getur ekki verið lærisveinn minn.““ Þýð. 1981. Sjálfsagt finnst fleirum en mér þetta vera hörð orð og lítt samræm- anleg kærleiksboðskap Jesú Krists. Ég fór að athuga aðrar biblíuþýð- ingar, hvort þessi texti væri alls staðar eins þýddur, svo reyndist ekki vera. Í biblíuútgáfunni 1859 er textinn þannig þýddur: „Honum varð samferða mikill fjöldi fólks, snerist hann þá við þeim og tók svo til orða: „Ef sá er nokkur, sem til mín kemur og metur ekki minna föð- ur sinn og móður, konu, börn, bræð- ur og systur og jafnvel sitt eigið líf, hann kann ekki minn lærisveinn að vera.““ Leturbreyting S.J. Þessi texti er í algerri samhljóman við það sem Jesús segir í Matteusarguð- spjalli 10:37: „Sá sem ann föður eða móður meir en mér, er mín ekki verður, og sá sem ann syni eða dótt- ur meir en mér, er mín ekki verður.“ Þýðing 1981. Það sem Jesús er að segja í báðum þessum textum er það, að honum ber fyrsta sætið. Kveðjur og blessunaróskir. SÓLEY JÓNSDÓTTIR, Sjónarhæð, Hafnarstræti 63, Akureyri. Til athugunar Frá Sóleyju Jónsdóttur:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.