Morgunblaðið - 26.07.2001, Blaðsíða 47
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001 47
ÚTSALAN Í FULLUM GANGI
ENN MEIRI
VERÐLÆKKUN
Allt að 70% afs lát tur
LAUGAVEGI, S: 511 1717 - KRINGLUNNI, S: 568 9017
Diesel
Calvin Klein jeans
Kookai
Tark
Imitz
Laura Aime
French
connection
Matinique
Mao
All saints
Morgan
4 you
Parks
Free
Billi bi
Vagabond
Zinda
The Seller
VERÐHRUN
Á ÚTSÖLU
5 0 - 6 0 % A F S L Á T T U R
A F Ö L L U M V Ö R U M
eva
LAUGAVEGI 91
s. 562 0625
GERARD DAREL - DKNY - NICOLE FAHRI - JOSEPH - PAUL ET JOE - TARA JARMON - CUSTO
Verðsprengja:
Dömur: frá:
Bolir 500.-
Buxur 1.500.-
Peysur 1.990.-
Kjólar 1.990.-
Herrar: frá:
Bolir 990.-
Buxur 2.900.-
Jakkaföt 6.900.-
Skyrtur 1.500.-
Skór: frá:
Hælaskór 2.900.-
Sandalar 2.990.-
Stígvél 7.990.-
Götuskór 2.990.-
gs skór
s: 533 1727
Í ÞESSARI viku frumsýnir Filmund-
ur dönsku myndina Blinkende lygter
sem vakti mikla athygli í heimalandi
sínu á síðasta ári og er tvímælalaust
ein af athyglisverðari myndum sem
gerðar hafa verið á Norðurlöndum
undanfarið. Leikstjórinn Anders
Thomas Jensen er
Óskarverðlaunahafi,
aðeins 29 ára gamall,
en hann hefur getið
sér gott orð sem leik-
stjóri stuttmynda og
hlaut myndin Valg-
aften Óskarinn í
flokki leikinna stuttmynda árið 1999.
Fyrst og fremst er hann þó þekktur
sem handritshöfundur, en hann gerði
meðal annars handritið að I Kina spi-
ser de hunde og dogma-myndinni
Mifunes sidste sang. Blinkende lygt-
er er fyrsta myndin í fullri lengd sem
hann leikstýrir.
Dönsk kvikmyndagerð hefur vakið
verðskuldaða athygli á undanförnum
árum og nægir að nefna myndir á
borð við Nattevakten, I Kina spiser
de hunde, Pusher og Festen, að
ógleymdum myndum hins umdeilda
Lars Von Trier. Í þessum myndum er
gjarnan lögð áhersla á dekkri hliðar
mannlífsins, oft á gráglettinn hátt og
er Blinkende Lygter engin undan-
tekning þar á.
Eins og I Kina spiser de hunde er
Blinkende lygter blanda af sót-
svörtum húmor og ofbeldi í stíl sem
gjarnan er kenndur við Tarantino, en
einnig má greina ýmis önnur áhrif,
eins og til dæmis frá vestrahefðinni
og ævintýramyndum.
Myndin segir frá ógæfumönnunum
og smákrimmunum Torkild, Arne,
Peter og Stefan sem hafa þekkst og
unnið saman um árabil að misárang-
ursríkum verkefnum á glæpasviðinu.
Torkild er óneitanlega höfuðpaur
klíkunnar, en hann stendur á ákveðn-
um tímamótum. Hann er orðinn fer-
tugur, kærastan farin frá honum og
því ákveður hann að tími sé kominn til
að breyta til.
Og viti menn, ótrúlegri breytingar
en hann sjálfan hefði órað fyrir eiga
sér stað. Klíkan kemst fyrir misskiln-
ing yfir átta miljónir danskra króna
sem tilheyra öðrum og valdameiri
glæpahring. Torkild og vinir hans sjá
sér nú leik á borði og hyggjast stinga
af með peningana til Barcelona og
byrja nýtt líf. En þar
sem Peter verður
fyrir skoti á flóttan-
um neyðast þeir til að
fela sig í yfirgefnu
húsi á Jótlandi með-
an hann er að jafna
sig. Að því kemur að
þeir þurfa að réttlæta veru sína í hús-
inu og taka þeir til bragðs að þykjast
hafa fest kaup á því í þeim tilgangi að
breyta því í hótel. Vinirnir þurfa að
finna sér eitthvað að gera í einangr-
uninni og komast þeir smám saman
að því að hótelhugmyndin er kannski
ekki svo galin. Þeir taka einnig upp á
ýmsu sérkennilegu til þess að slá á
leiðindin og víkka jafnframt sjón-
deildarhringinn, horfa meðal annars
á alla Matador-þættina og lesa bækur
skáldkonunnar Tove Ditlevsen, svo
eitthvað sé nefnt.
Aðalleikararnir í myndinni eru
ekki af verri endanum. Søren Pil-
mark er í hlutverki Torkilds, en hann
er íslenskum sjónvarpsáhorfendum
að góðu kunnur úr dönsku gæðasjón-
varpsefni á borð við Taxa, Edder-
koppen og Riget. Íslandsvinurinn Ul-
rich Thomsen leikur kókaínfíkilinn
Peter og ættu margir að muna eftir
honum úr Nattevagten og Festen.
Mads Mikkelsen fer á kostum í hlut-
verki byssubrjálæðingsins Arne en
hann lék meðal annars í Pusher og
síðast en ekki síst Nikolaj Lie Kaas
úr I Kina spiser de hunde og Idiot-
erne sem leikur átvaglið Stefan. Það
er því óhætt að segja að valinn maður
sé í hverju rúmi.
Blinkende lygter verður sýnd
fimmtudagskvöldið 26. júlí á hinum
hefðbundna Filmundartíma og stað,
kl. 22:30 í Háskólabíói og endursýnd
mánudagskvöldið 30. júlí á sama
tíma.
Það er valinn maður í hverju rúmi í Blinkende lygter.
Smákrimmar
glápa á Matador
Filmundur sýnir krimmann Blinkende lygter