Morgunblaðið - 26.07.2001, Blaðsíða 50
kvikmyndir
á mbl.is
Á Fólkinu á mbl.is er tenging við
vefinn kvikmyndir.is þar sem má
finna á einfaldan hátt umfjöllun og
fréttir af nýjustu kvikmyndunum,
myndböndunum og DVD diskunum.
Hægt að skoða myndbrot úr kvik-
myndum sem sniðin eru fyrir mis-
munandi hraðar tengingar.
FÓLK Í FRÉTTUM
50 FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
UNDANFARINN ára-
tug eða svo hefur geiri
raftónlistarinnar farið
ört stækkandi. Ástæður
þessa liggja kannski
hvað helst í almennari
aðgangi að raf- og tölvu-
tólum og hversu einfalt í
notkun þetta er orðið
allt saman. Undirstefn-
ur skipta nú tugum ef
ekki hundruðum og
hugmyndaríkt fólk um
allan heim framleiðir og
fullvinnur tónlist, nán-
ast inni í svefnherberg-
inu sínu. Flestöll raftón-
list lúrir fjarri
mörkuðunum en vinsældavænni
tónlist hefur sannarlega orðið fyrir
áhrifum frá henni og það á marg-
víslegan hátt (gott dæmi væri tvær
síðustu plötur Radiohead).
Fyrirtækið Morr Music, sem á
höfuðstöðvar í tæknóhöfuðborginni
Berlín, er ein þeirra raftónlistarút-
gáfna sem hafa vakið verðskuldaða
athygli að undanförnu. Aðal þeirra
listamanna sem þar gefa út er mel-
ódísk raftónlist, gædd nettum til-
raunablæ. Tónlistin er sveimkennd
bæði og hljómfögur og minnir nokk-
uð á listamenn eins og Brian Eno,
Aphex Twin, Plone, Autechre og
Boards of Canada.
Ólíkt Warp-risanum breska, sem
hefur nokkuð kalda og jaðarvæna
ímynd og gefur út fernt það síðast-
nefnda hér að ofan, einkennist Morr
Music miklu heldur af þessu litla,
sæta og prúða. Tónlistin er hrein og
bein og mætti jafnvel kalla hana
„hlustendavæna úrvinnslu á Warp-
tónlistinni“ þótt það sé vissulega
nokkur einföldun.
Við Íslendingar eigum okkar full-
trúa í þessari listgrein eins og í svo
mörgu öðru en það er hljómsveitin
múm. Í haust er einmitt væntanleg
plata með kvartettinum á vegum
Morr Music og nefnist hún Please
Smile My Noise Bleed. Þar munu
listamenn á vegum Morr Music véla
um nokkur laga múm, jafnframt
sem eitthvað verður um nýtt, frum-
samið efni.
Af athyglisverðu efni frá Morr
Music má nefna breiðskífu Phonem,
Hydro Electric, og nýlega plötu Is-
an, Lucky Cat. Einnig er vert að at-
huga tvöfaldan safndisk frá fyrir-
tækinu sem ber hinn furðulega titil
Putting The Morr back in Morr-
issey.
Morr Music
Arnar Eggert Thoroddsen
FORVITNILEG
TÓNLIST
Isan-liðar hafa mikinn áhuga á blómarækt.