Morgunblaðið - 26.07.2001, Blaðsíða 26
UMRÆÐAN
26 FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
!"# $ %
&'(!"##' #
!"'#')
*+
,
" -
% %%
- $
*
& .
" +
0 12
+
12
' + " 12
& + ( 12
0 + 0 12
1 "*" $ " -
) " 12
1 #*"0 $
-
) " 12
1 3*" $
-
) " 12
4
"
5 ++
56.,
7.
!8
.9
6
:
.
;;
79
<=
0 !
NÚ ER nýasta skrípaleiknum lok-
ið í skopleikahúsinu við Austurvöll
sem skrípaleikararnir nefna hið háa
Alþingi. Það sem mesta athygli vakti
var misnotkun þingmanna á skattfé
þjóðarinnar til þess að reisa sér lúx-
usskrifstofur við Austurvöll. Bruðlið
var með ólíkindum, en þingmönnum
er alveg sama. Þjóðin skal borga
brúsann, ekki þeir sjálfir. Þessu síð-
ustu afrek þeirra til að hygla sjálfum
sér og pukka undir sig sýnir að þeir
eru óhæfir til að ráðstafa skattfé
þjóðarinnar.
Hver skrifstofa handa einum þing-
manni kostar „aðeins“ l0 millj. auk
tölvu, sama og þriggja herbergja
íbúð. Þá mun húsnæðið allt kosta 500
millj. á l2 árum. Fyrir þær má kaupa
50 íbúðir og taka l50 til 200 manns af
götunni. Einnig mætti stytta biðlista
svo fólk þurfi ekki að bíða kvalið og
sjúkt mánuðum og jafnvel árum sam-
an eftir að komast í lífsnauðsynlegar
aðgerðir. Einhverjir hrökkva víst
upp af á biðtímanum og
aðrir bíða varanlegt
heilsutjón. En þing-
mönnum er sama. Þeir
eiga næga peninga til að
innrétta skrifstofurnar
sínar. Hvaða máli skipt-
ir þótt nokkrir Íslend-
ingar týni tölunni með-
an þeir bíða?
Á skrifstofunni er lík-
lega fleira en ein lítil
tölva. Þar leynist ef-
laust heimabíó, DVD
tæki, geislaspilari og
aðgangur að breiðvarpi
og fjölvarpi. En skítt
með hvað það kostar,
ekki er það þingmaður-
inn sem borgar, heldur er það skattfé
íslensku þjóðarinnar sem þeir nota
til að hygla sjálfum sér.
Þá má ætla að á skrifstofunni finn-
ist upptökutæki og geislaskrifari svo
listrænir þingmenn geti hljóðritað og
fjölfaldað hugverk sín,
tónsmíðar og hljóð-
færaslátt eins og gítar-
leik og söng, svo og
ódauðlegan kveðskap
þingmanna sem þjóðin
dáir og elskar. Vonandi
var tvísöngur sam-
gönguráðherra og for-
manns samgöngu-
nefndar Alþingis við
eigin gítarundirleik í
Sönghelli hljóðritaður.
Þótti hann undurfagur
og féllu margir við-
staddir í ómegin í sælu-
vímu. Mörg kvæði
þingmanna munu og
geymast í hjörtum Ís-
lendinga meðan land byggist. Lands-
þekkt tónskáld, gítarleikari og vísna-
söngvari leynist meðal hæfileika-
ríkra þingmanna auk síkveðandi
presta og menntaskólakennara og
ekki síst líffræðinga sem skrifað hafa
lærðar bækur um kynlíf silungsfiska.
Hæfileikar þingmanna eru hreint
ótrúlegir. Það er mikið lán fyrir þjóð-
ina að eiga slíka fulltrúa. Ekkert hús-
næði er nógu gott fyrir þá.
Með nýjustu tækni geta þingmenn
fjölfaldað hugverk sín með geisla-
skrifurum og framleitt á l0 millj.
króna skrifstofunum aragrúa geisla-
diska. Að sjálfsögðu á kostnað þjóð-
arinnar og dreift list sinni í kjördæm-
in. Auðvitað láta þeir hið háa Alþingi
borga útsendingarkostnaðinn, eins
og þingmaður nokkur gerði þegar
hann sendi út aragrúa bréfa í eigin
þágu. Þá tæmdist sjálfvirk frí-
merkjavél þingsins.Var þá skorað Ís-
landsmet.
Það eru ekki aðeins lúxususkrif-
stofurnar sem þjóðin skal blæða fyr-
ir. Hafnar eru framkvæmdir við neð-
anjarðarbyrgi við hliðina á
Alþingishúsinu. Þá er rætt um tengi-
byggingu sem eigi er vitað hvert
liggja skal. Kannski út í Tjörn. Þang-
að kunna þá þingmenn að hlaupa í
glæstum sundfötum, hoppa út í og
svamla út í Hólma þar sem við fáum
séð þá í svokölluðum hanaslag innan
um kríur, svartbaka og séraldar
gæsir Reykjavíkurborgar. Ekki ólík-
legt að Ingibjörg Sólrún fjárfesti þá í
kíki. En slíkur slagur þykir ægifag-
ur.
Margar þjóðir hafa innréttað
glæst neðanjarðarbyrgi fyrir vald-
hafa sína og nú vilja þingmenn eitt
slíkt. Því skal byrja og sprengja
klöpp, einkum þegar biðlistar lengj-
ast og börn búa í bílhræjum. Og þar
sem karfinn er flúinn og þorskurinn
týndur er kjörið tækifæri þá að sam-
þykkja snöfurlega tillögu Péturs
Blöndals og hækka laun sín um 50%
og annarra launahæstu embættis-
manna þjóðarinnar, eins og hæsta-
réttardómara, svo þeir falli ekki aft-
ur í þá freistni að krækja sér í
óteljandi kassa af tollfrjálsu brenni-
víni eins og einn þeirra gerði til að
drýgja hörmulega léleg laun sín.
Kostnaður við byrgið er kominn
langt fram úr öllum áætlunum, en
skítt með það hugsa þingmenn.
Skrifstofurnar okkar við Austurvöll
skulu slá öllu við. l0 millj. handa
hverjum þingmanni er skítur á priki.
Fyrir 200l ári sagði vitringur nokkur:
Af ávöxtunum skulið þið þekkja þá.
Miðað við allan vaðalinn sem þjóð-
in fær oft yfir sig mætti halda að
margir þingmenn búi yfir ofvirkri
málstöð í heila sem ofvöxtur hefur
hlaupið í, fyrir eða eftir fæðingu. Það
er þjóðarböl.
Þingmenn telja sig yfir landslög
hafna og geta brotið allar fjárhags-
áætlanir og gengið í vasa skattborg-
aranna er þeir hygla sjálfum sér.
Miðað við glæsiskrifstofurnar sem
hið háa Alþingi hefur reist ástvinum
sínum má ætla að aðrar hallir sem
það hyggst byggja sjálfu sér til lofs
og dýrðar verði þjóðinni dýrar. Sam-
anborið við lúxusinn sem lagður var í
„pínulitlu“ kompurnar við Austurvöll
verður kostnaðurinn ekki minni. Þar
verður eflaust sundlaug, líkamsrækt,
fullkomið upptökustúdío og knatt-
spyrnuvöllur þar sem þjóðin fær séð
þingmenn stunda glæsta knattleiki í
beinni útsendingu.
Þingmenn sýna þjóð sinni mikla
lítilsvirðingu með bruðlinu við Aust-
urvöll. Því eru þeir oft nefndir
skrípaleikara og hið háa Alþingi
skrípaleikhús. Er þar engum um að
kenna nema þeim sjálfum.
Í umboði Alþingis bera þingfor-
setar og forsætisnefnd ábyrgð á
framkvæmdunum við Austurvöll;
öllu bruðlinu, broti fjárhagsáætlana,
misnotkun á skattfé þjóðarinnar og
þar með valdi sínu. Fyrir nokkrum
árum neyddust fjármálaráðherrann
og heilbrigðismálaráðherrann til að
segja af sér vegna misferla og mis-
beitingar á valdi. Þess vegna ætti hið
háa Alþingi að sjá sóma sinn í því að
láta bæði forsætisnefnd og þingfor-
seta segja af sér. Með lögum skal
land byggja, sagði þingmaður einn
fyrir l000 árum.
Eina leiðin til að hindra að þing-
menn eyði milljörðum í glæsihallir
undir sjálfa sig er að fækka þing-
mönnum. Þjóðin hefur ekkert að
gera með 60 skrípaleikara. Við eigum
mörg góð leikhús. Fyrst við sitjum
uppi með þá má leikandi fækka þeim
um helming, helst tvo þriðju. 30 þing-
menn eru miklu meira en nóg. 20
duga.
Lausn á húsnæðis-
vanda Alþingis
Karl
Sigurðsson
Alþingi
Fyrst við sitjum uppi
með þá má leikandi
fækka þeim um helm-
ing, helst tvo þriðju,
segir Karl Sigurðsson.
30 þingmenn eru miklu
meira en nóg. 20 duga.
Höfundur kennir píanóleik við
Tónlistarskóla Garðabæjar.
Meira á netinu
NÝLEGA hafa nokkrir helstu óp-
erusöngvarar Íslands opinberlega
látið í ljós eindregnar óskir um að
hægt verði að sýna óperur í fyr-
irhuguðu Tónlistarhúsi í Reykja-
vík. Óperusöngvararnir hafa stutt
mál sitt gildum rökum og hafa
ýmsir orðið til að taka undir þær.
Á hinn bóginn hefur ekkert heyrst
til þeirra sem helst munu ráða
þessu máli og er þögn þeirra nú
orðin helst til áberandi. Óskandi
væri að fá sem fyrst að líta sjón-
armið menntamálaráðherra,
borgarstjórans í Reykjavík og for-
manns Samtaka um byggingu
tónlistarhúss. Ekki myndi saka ef
stjórn Íslensku óperunnar, tals-
menn Sinfóníunnar og fleiri legðu
orð í belg. Í lýðræðisríkjum eiga
að fara fram opnar umræður um
stórmál eins og þetta.
Árni Tómas Ragnarsson
Ópera í Tón-
listarhúsi?
Höfundur er læknir.
Mörkinni 3, sími 588 0640
G
læ
si
le
g
hú
sg
ög
n
Sérpantanir
Opið virka daga
frá kl. 12-18.
skór í miklu
úrvali
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 553 2300
Ráðgjöf á fimmtud. kl. 14-18 og laugard. kl. 10-14.
Skóbúðin