Morgunblaðið - 26.07.2001, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 26.07.2001, Qupperneq 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001 25 MORTÉL Sjá nánar í sjónvarpsþættinum Kokkur án klæða Klapparstíg 44 sími: 562 3614 ÞÓRÐUR Ingvarsson sýnir tölvu- prentmyndir á Mokka. Sumar setur hann undir gler, aðrar eru prentaðar á striga. Á síðustu árum hefur graf- íktæknin tekið byltingarkenndum stakkaskiptum með tilkomu tölvunn- ar. Það er augljóst að hin nýja tækni mun ekki hafa minni áhrif á grafíklist framtíðarinnar en hún hefur þegar haft á grafíska hönnun. Spurningin er aðeins hvenær grafíkpressur verða almennt komnar í beint sam- band við tölvuna svo hægt verði að stjórna prentferlinu með hnappa- borðinu. Þetta er auðvitað þegar komið í allri almennri prentun, en grafíkverkstæðin eiga örugglega eft- ir að stíga skrefið til fulls áður en langt um líður. Vandinn við þessa nýju tæknibylt- ingu er einna helst sá að það er svo auðvelt að drukkna í óendanlegu for- ritaflóði hennar. Persónuleg afstaða listamannsins verður hreint auka- atriði eða hverfur undir þykku lagi af tæknibrellum sem finna má í forrit- um á borð við þau sem Þórður notar. Það eru forritin Photoshop, Illustrat- or og Poser, að viðbættum 3d Studio Max, Ray Eream Studio, Bryce og Macromedia, og undirforritum þeirra svo sem Flash, Director og Freehand, svo þau helstu séu nefnd. Það er ljóst á sýningu Þórðar að útkoman er misjöfn vegna þeirrar of- uráherslu sem listamaðurinn leggur á tæknifágun verka sinna, beinlínis á kostnað innihaldsins. Það er synd vegna þess að svo virðist sem Þórði sé mikið niðri fyrir og hafi mjög sterka þörf fyrir að tjá sig um lífið og tilveruna. Alvara þessarar tjáþarfar vill hins vegar hverfa í hafsjó graf- ískra útúrdúra og sértækra smá- tákna. Allsherjarhreingerningar á öllum brellum er þörf ef Þórður á að geta sannað sig sem tölvulistamaður. Tölvuprentaðir draumar MYNDLIST M o k k a , S k ó l a v ö r ð u s t í g Til 1. ágúst. Opið daglega frá kl. 10 til 23:30. Sunnudaga frá kl. 14 til 23:30. TÖLVUGRAFÍK ÞÓRÐUR INGVARSSON Halldór Björn Runólfsson. „Listamaðurinn leggur ofuráherslu á tæknifágun,“ segir í gagnrýni. ÞÓR Breiðfjörð Kristinsson syng- ur á tónleikum í Stykkishólms- kirkju kl. 20.30 í kvöld. Þór Breið- fjörð, sem er ættaður úr Hólminum, hefur dvalist síðastliðin fimm ár í Bret- landi, þar sem hann nam við Arts Educational London School og lauk post graduate námi í söngleikjum. Hann hefur síðan leikið í söng- leikjum þar ytra eins og Jesus Christ Superstar og Les Miser- ables. Þór Breiðfjörð vakti fyrst athygli þegar hann söng hér heima í Hárinu, og síðar hlutverk Júd- asar í Jesus Christ Superstar. Hann starfaði sem lagasmiður og stúdíótónlistarmaður hér heima og var um tíma í hljómsveitinni Zölku. Frá því að leið hans lá í leikhúsin á West End hefur hann verið forfallaleikari og síðar leikari og söngvari í stórum hlutverkum í þekktum söngleikjum. Í vor lék hann hlutverk Jehóva í nýjum söngleik, Roll over Jehova, og nú síðast fór hann með aðalhlutverkið í hinum langlífa söngleik Ken Hills, Phantom of the Opera. Á efnisskránni eru lög úr söng- leikjum sem Þór hefur leikið í ásamt nokkrum vel þekktum lög- um úr sígildum verkum eins og West Side Story og My Fair Lady. Ingibjörg Þorsteinsdóttir verður meðleikari Þórs á tónleikunum í Stykkishólmskirkju. Hún er píanó- kennari að mennt, en lauk fram- haldsnámi í píanóleik frá Guildhall School of Music and Drama í London. Hún er nú skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar í Stykkishólmi. Úr Hólm- inum á West End Þór Breiðfjörð Kristinsson Geisladiskahulstur aðeins 500 kr. NETVERSLUN Á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.