Morgunblaðið - 26.07.2001, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001 27
Verðhrunið hefst í dag.
Allt á 50% afslætti
ENDALAUST kem-
ur þetta land, Taíland,
þér á óvart. Við nýjar
forsendur í íslensku
efnahagslífi er ljósara
en nokkru sinni, hve
litla íslenska krónan
hefur hér mikinn
kaupmátt. Það kemur
ferðamanni frá Íslandi
vel, þegar kaupmáttur
krónunnar á Vestur-
löndum hefur rýrnað
um 25–40% á einu ári.
Hér getur Íslending-
urinn gist á mjög
þokkalegum, heimilis-
legum gististöðum fyr-
ir aðeins kringum
1.000 krónur á dag, sem er um
þriðjungur verðs á farfuglaheimili í
Reykjavík eða einn fimmti verðs á
sveitahóteli. Þú getur borðað góða
tvíréttaða máltíð fyrir um 200 krón-
ur og bjórinn kostar um kr. 80–100,
jafnvel á skemmtistöðunum. Hér
kostar bensínlítrinn aðeins um 30
krónur, startgjald með leigubíl er 70
krónur. Og þú ekur langar leiðir
milli borgarhverfa fyrir um 200
krónur. Sem þumalputtareglu má
miða við, að íslenska krónan hafi
enn fimmfaldan kaupmátt hér mið-
að við Ísland.
Efnahagsbatinn
hægur hér
Chakri-ættin hefur farið óslitið
með konungsvaldið í Taílandi frá því
á seinni hluta 18. aldar. Þjóðin átti
því láni að fagna að eiga marga kon-
unga, sem voru frábærir stjórnend-
ur í skjóli menntunar sinnar og
mannkosta, svo sem Chulalongkorn,
sem var eins konar endurreisnar-
maður með þjóð sinni. Sennilega
nýtur enginn þjóðhöfðingi heimsins
í dag annarrar eins virðingar eins
og núverandi konungur, Bumiphol,
sem setið hefur á veldisstóli í rúma
hálfa öld sem Rama níundi, er enn
virkur og óstöðvandi í viðleitni sinni
að halda uppi hefðum og menningu
þjóðarinnar og setja niður deilur
milli átakahópa þjóðfélagsins. Sam-
heldni þjóðarinnar um menningar-
lega sögu sína og þjóðleg gildi er í
beinu samhengi við takmarkalausa
virðingu þegnanna fyrir konungi
sínum og skoðunum hans jafnt og
lotningu fyrir lífsspeki
og kenningum Búdda.
Mikil uppsveifla
hafði verið í taílensku
efnahagslífi, eins og
annarsstaðar í löndum
Suðaustur-Asíu um all-
langt skeið með hag-
vexti sem nam oftast
um 7–9% árlega. En
fjárfestingin var of
hröð, framkvæmdir
ekki í takt við eigið
fjármagn, skuldir uxu
með aukinni vaxta-
byrði, og þenslan fór
úr böndunum. Af þessu
súpa Taílendingar enn
seyðið, og hægt miðar í
framfaraátt. Útlendingar fleyta hins
vegar rjómann af ástandinu með
hagstæðum innkaupum á fram-
leiðsluvörum, og ferðamenn
blómstra hér og geta leyft sér að
lifa lúxuslífi fyrir minna fé en þekk-
ist nokkurs staðar í heiminum í dag.
Ár eftir ár er Bangkok valin besta
hótelborg heimsins af ferðamönn-
um, enda er fjölbreytnin ótrúleg og
gæði í sérflokki. Á það ekki síst við
um frábæra þjónustu með bros á
vör, sem kemur Vesturlandabúa
þægilega á óvart, vönum önugu
starfsfólki, er oft leysir störf sín
með augljósri vanþóknun.
Fantasía – glæsilegasta
sýning heimsins í dag
Á Phuket-eyju undan vestur-
strönd Suður-Taílands býðst gest-
um og gangandi nú að líta sýningu,
sem verðlaunuð hefur verið sem
besta framlag í heiminum í dag á
sviði þjóðlegrar menningar. Skrifari
þessa bréfs hefur átt þess kost áður
að sjá hana, en ekki látið af því
verða fyrr en nú. Er skemmst frá
því að segja, að svo undrandi og
heillaður varð hann, að hann minn-
ist ekki um daga sína annars eins og
er nú að fara annað kvöldið í röð til
að fullvissa sjálfan sig um að sýn-
ingin hafi verið raunveruleg en ekki
aðeins fagur draumur. Sjálfur sýn-
ingarsalurinn, sem rúmar á annað
þúsund áhorfendur, er tæknilega
betur búinn en nokkurt leikhús sem
um getur til þessa. Fjöldi leikara og
dansara í litríkum þjóðlegum bún-
ingum er á fjórða hundrað, auk 30
fíla, einnig skrautlega búnum í
skrúðgöngu, leikandi hvers konar
listir, auk fleiri dýrategunda, fugla
sem fljúga um loftið, að ógleymdum
fagurbúnum mannverum, sem komu
svífandi ofan úr loftinu eins og guð-
legar verur. Í heild er sýningin
glæsilegasta fljöllistasýning sem vit-
að er um í heiminum til þessa dags,
en öll byggð á þjóðlegum grunni
aldagamallar menningar taílensku
þjóðarinnar, tengd saman með tón-
list og dönsum frá fortíð til nútíðar á
meistaralegan hátt. Því miður
þekkja fæstir Íslendingar enn lítið
til taílenskrar menningar, nema
sukksins á börum Pattaya, sem gefa
aðra mynd og öllu neikvæðari af
sögu og ótrúlega glæstri menningu
þessarar þjóðar, sem tókst að halda
sjálfstæði sínu í baráttu þúsund ára.
Allt umhverfið í Kamala, þar sem
sýningin Fantasía fer fram er heill
ævintýraheimur, svo snilldarlega úr
garði gerður að ekki á sér hlið-
stæðu. Bréfritari fullyrðir, að sýn-
ingin er toppur hverrar Taílands-
ferðar og ein og sér ferðarinnar
virði, þótt fólk komi langt að. Hún
er líka til þess fallin að sýna heim-
inum fyrir hvað taílenska þjóðin
stendur og að Taíland er ein feg-
ursta perlan í ferðaheiminum.
Þar sem krónan hefur
fimmfaldan kaupmátt
Ingólfur
Guðbrandsson
Höfundur er forstjóri Heimsklúbbs
Ingólfs.
Taíland
Ferðamenn blómstra
hér, segir Ingólfur
Guðbrandsson, og geta
leyft sér að lifa lúxuslífi
fyrir minna fé en
þekkist nokkurs staðar
í heiminum í dag.
LESENDUR Síma-
skrár hafa margir veitt
athygli orðinu „veit“
fyrir aftan nafn fjöl-
margra tannlækna á
gulu síðum skrárinnar
aftast í aðalbókinni.
Eins og auglýst er í
upphafi flokksins tann-
læknastofur á gulu síð-
unum gefur „veit“ til
kynna að viðkomandi
tannlæknar ástundi
virka endurmenntun í
endurmenntunarkerfi
Tannlæknafélags Ís-
lands, en VEIT stendur
einmitt fyrir „Virk end-
urmenntun íslenskra
tannlækna“ og var kerfið tekið í notk-
un í janúar 2000.
Enda þótt VEIT sé ungt kerfi á
vegum félagsins hafa flestir ef ekki
allir starfandi tannlæknar ástundað
virka endurmenntun um árabil þótt
ekki hafi verið haldið utan um það
með formlegum hætti innan félags-
ins. Tannlæknar vita að til þess að
geta veitt sjúklingum sínum ávallt
fyrsta flokks þjónustu verða þeir að
afla sér reglulega endurmenntunar,
bæði hér á landi og erlendis. Það gera
þeir með því að sækja námskeið, ráð-
stefnur og þing hér innanlands, bæði
á vegum Tannlæknafélags Íslands og
ýmissa þjónustuaðila, en einnig og
ekki síður til nágrannalandanna og
vestur um haf. Tannlæknafélög víða
um heim gangast fyrir mjög öflugum
námskeiðum sem íslenskir tannlækn-
ar sækja reglulega.
Mikill tími
Í VEIT fá tannlæknar eina einingu
fyrir hverja klukkustund sem
ástunduð er. Til að mynda gefur
heilsdagsnámskeið sex einingar þeg-
ar búið er að draga frá kaffi og mat-
artíma. Einnig er unnt að fá metinn
lestur fræðilegra greina í viður-
kenndum vísindatímaritum sem fjöl-
mörg gefa kost á slíku mati með
krossaprófi aftan við faggreinar. Þarf
þá viðkomandi að leysa prófið og
senda til síns félags sem gefur ein-
ingar í staðinn. Það hefur í raun verið
ótrúlegt að fylgjast með því hversu
mikla endurmenntun íslenskir tann-
læknar stunda. Á fyrsta ári VEIT
(árið 2000) stunduðu sumir tann-
læknar endurmenntun í sem svarar
hátt í hundrað klukkustundir og sum-
ir meira. Voru þess jafnvel dæmi að
þeir sem elstir eru í félaginu og löngu
hættir að starfa sem tannlæknar hafi
stundað endurmenntun í meira en
tuttugu klukkustundir.
Verða mun fleiri
Endurmenntunarkerfi þurfa að
slíta barnsskónum og tannlæknar að
tileinka sér þau vinnubrögð að halda
til haga staðfestingum á því að þeir
hafi sótt námskeið eða lesið faggrein-
ar sem gefa einingar í VEIT. Þessum
upplýsingum heldur skrifstofa Tann-
læknafélagsins til haga og stjórn end-
urmenntunarkerfisins metur eining-
ar og færir inn í einingasafn
viðkomandi tannlækna. Merkingarn-
ar í Símaskrá 2001 gefa enn ekki
raunsanna mynd af
endurmenntunarmál-
um íslenskra tann-
lækna. Margir ástund-
uðu á síðasta ári mjög
virka endurmenntun án
þess að tilkynna það til
félagsins og óskuðu eft-
ir því við starfsmenn
Símaskrár að þeir yrðu
merktir með „veit“, en
það er skilyrði Símans
að hver og einn tann-
læknir tilkynni það
sjálfur. Tannlækna-
félagið getur ekki gert
það fyrir hönd tann-
lækna. Án efa verða
mun fleiri tannlæknar
merktir „veit“ við næstu útgáfu
Símaskrár.
Bestu tannlækningar
Tannlækningar á Íslandi eru með-
al þeirra bestu sem veittar eru í
heiminum. Íslenskir tannlæknar
standa í fremstu víglínu hvað varðar
gæði lækninganna og tækjakost sem
notaður er. Tannlæknar hér á landi
fylgjast vel með öllum nýjungum í
greininni en tileinka sér þær ekki
fyrr en fullvíst er um ágæti þeirra.
Þess öryggis njóta sjúklingar þeirra.
Með því að hlýða á fyrirlestra er-
lendra fræðimanna á sviði tannlækn-
inga á ársþingum og námskeiðum á
vegum Tannlæknafélagsins og á árs-
þingi alþjóðasamtaka tannlækna
(FDI) í París í lok síðasta árs hef ég
sannfærst um að margir íslenskir
tannlæknar eiga fullt erindi í hóp al-
þjóðlegra fyrirlesara og gætu miðlað
mjög af þekkingu sinni og reynslu
meðal kollega víða um lönd.
Bolli
Valgarðsson
Heilsa
Tannlækningar á Ís-
landi, segir Bolli Val-
garðsson, eru meðal
þeirra bestu sem veittar
eru í heiminum.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Tannlæknafélags Íslands.
Endurmennt-
un tannlækna
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Oxygen face