Morgunblaðið - 26.07.2001, Page 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001 39
DJASSKVINTETTINN Jump
Monk heldur tónleika á efri hæð Húss
málarans, (áður Sólon Íslandus)
fimmtudagskvöldið 26. júlí.
Djasskvintettinn Jump Monk er
samstarfsverkefni saxófónleikaranna
Ólafs Jónssonar og Hauks Gröndal.
Þeir hafa leikið mikið saman í hinum
ýmsu hljómsveitum undanfarin ár.
Ólafur útskrifaðist frá Berklee Coll-
ege of Music í Boston vorið1992 en
Haukur hefur, eftir að hafa lokið námi
frá Tónlistarskóla FÍH 1997, verið
búsettur í Kaupmannahöfn þar sem
hann nemur við Rytmisk Musikkon-
servatorium. Aðrir meðlimir hljóm-
sveitarinnar eru Tómas R. Einarsson
bassaleikari og Matthías Hemstock
trommuleikari. Fimmti meðlimur
hljómsveitarinnar er píanóleikarinn
Davíð Þór Jónsson. Hann lauk prófi
frá Tónlistarskóla FÍH sl. vor og
hlaut hæstu einkunn sem gefinn hef-
ur verið á lokaprófi frá skólanum.
Á efnisskrá hljómsveitarinnar er
einungis tónlist samin af píanóleikar-
anum og tónsmiðnum Thelonius
Monk. Þeir félagar hafa farið víðreist
um landið undanfarna viku og leikið
þessa efnisskrá á Akureyri, Mývatni,
Neskaupstað, Höfn í Hornafirði og
Hellu.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 og er að-
gangseyrir 1.000 krónur.
Jump Monk
í Húsi
málarans
„UNDANFARIN ár hefur Ung-
mennasamband Borgarfjarðar stað-
ið fyrir kvöldgöngum um Borgar-
fjarðarhérað. Göngurnar eru ætlað-
ar öllum vel göngufærum og má
segja að aldur þátttakenda hafi verið
frá fjögurra ára og upp í óráðinn ald-
ur. Göngurnar hafa það að markmiði
að hvetja til útiveru og hreyfingar
sem og í leiðinni að fræða þátttak-
endur um landið, söguna og mann-
lífið fyrr og nú. Í hverri göngu er far-
ið með leiðsögumanni sem þekkir
viðkomandi svæði mjög vel. Í flest-
um tilfellum eru það bændur sem
búa í nágrenni þess svæðis sem
skoðað er hverju sinni.
Víða hefur verið farið um héraðið
enda gengið annan hvern fimmtudag
Gengið á Eldborg
á hverju sumri. Fyrsta gangan er
farin um miðjan maí en sú síðasta
mun verða í lok september.
Næsta ganga verður farin
fimmtudaginn 26. júlí upp á Eldborg
í Hnappadal (þjóðvegur 54 – Snæ-
fellsnes). Eldborg er óvenju form-
fagur gígur er rís um 60 m yfir
hraunið í kring. Eldborgin var frið-
lýst árið 1974 vegna fegurðar og sér-
stöðu sinnar.
Reynt verður að sameinast í bíla á
planinu fyrir utan Íþróttamiðstöð
Borgarness og lagt af stað þaðan
kl.19:30. Lagt verður upp frá
Snorrastöðum kl 20:00 undir leið-
sögn Hauks Sveinbjörnssonar bónda
þar á bæ,“ segir í tilkynningu frá
Ungmennasambandi Borgarfjarðar.
SÝNINGU Eggerts Péturssonar í
i8galleríi, Klapparstíg 33, lýkur
laugardaginn 28. júlí nk. i8gallerí er
opið þriðjudaga til laugardaga frá
13:00 til 17:00.
Sýningu lýkur
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Grunnskólinn
í Ólafsvík
Fjölbrautaskóli Vesturlands,
Snæfellsbæ
Vegna forfalla vantar grunn- eða framhalds-
skólakennara til starfa næsta skólaár. Um er
að ræða 1 stöðugildi. Kennslugreinar eru
stærðfræði og raungreinar í efstu bekkjum
grunnskólans og í Fjölbrautaskóla Vesturlands
í Snæfellsbæ.
Gott húsnæði, húsnæðisfríðindi og flutnings-
styrkur er í boði fyrir réttan aðila.
Umsóknir sendist undirrituðum sem jafnframt
gefa allar frekari upplýsingar.
Sveinn Þór Elinbergsson, skólastjóri,
s. 895 2651 og 462 1213,
Elfa Eydal Ármannsdóttir, aðstoðarskólastjóri,
s. 436 1150 og 436 1606.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu
við Ráðhústorg á Akureyri ca 100 fm íbúð
á annarri hæð (áður Læknastofan). Gott skrif-
stofuhúsnæði í hjarta bæjarins. Áhugasamir
hafi samband við augl.deild Mbl. merkt:
„TORG“.
KENNSLA
Listahús Veru
býður upp á námskeið í olíumálun í ágúst frá
kl. 10—17. Örfá pláss laus á námskeið (blóm)
4., 5., 11. og 12. ágúst og 8.—9. ág. (villt dýr).
Hringið í síma 565 9559 eða 897 4541.
Kennari er Anthony Goldthorpe frá Englandi.
TIL SÖLU
Selás — Einbýli
Til sölu fallegt einbýli á einni hæð við Þingás,
samtals 220 fm, þar af 48 fm bílskúr, 4 svefn-
herbergi, 2 stofur, arinn. Skipti möguleg á
minni eign í sama hverfi.
Áhugasamir leggi inn nafn og síma á auglýsinga-
deild Mbl. merkt: „Þingás — 11449" fyrir 30. júlí.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í kvöld kl. 20.00.
Vitnisburðir. Ræðumaður:
Halldór Lárusson.
Fjölbreyttur söngur. Kaffi að
lokinni samkomu. Allir velkomnir.
www.samhjalp.is .
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Samkoma kl. 20.00.
Lofgjörð, fyrirbænir og Högni
Valsson predikar.
Allir hjartanlega velkomnir.
„Drottinn veitir lýð sínum styrk-
leik, Drottinn blessar lýð sinn
með friði.“
Samfylkingin á Hólmavík
og Drangsnesi
Þeir munu snæða hádegisverð í Café Riis og þeir sem vilja hitta þá að
máli eru velkomnir þangað.
Þeir sem óska sérstaklega eftir viðtölum við þá Össur og Karl
vinsamlega hringið í síma 868-6984.
www.samfylking.is
Samfylkingin, Austurstræti 14, 4. hæð. Sími 551 1660.
Skráið ykkur á póstlista Samfylkingarinnar:
samfylking@samfylking.is
Föstudaginn 27. júlí verða Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingarinnar, og Karl V. Matthíasson,
alþingismaður, á ferð um Hólmavík og Drangsnes. Þeir
heimsækja fyrirtæki og stofnanir og hitta sveitarstjórnar-
menn að máli.
BÓKAVARÐAN, sem er verslun
með fornbækur og menning-
arsetur, opnaði heimasíðu nú á dög-
unum. Það var Davíð Oddsson for-
sætisráðherra sem opnaði síðuna í
heimkynnum verslunarinnar á
Vesturgötu. Eigendur búðarinnar
eru feðgarnir Bragi Kristjónsson
og Ari Gísli Bragason og fylgdust
þeir kampakátir með Jóni Erni
Guðbjartssyni umsjónarmanni
markaðs og tölvumála aðstoða
Davíð við að opna heimasíðuna.
Bókavarðan selur bækur á öllum
aldri auk blaða og tímarita. Til
gamans má geta að elsta bókin sem
nú er að finna í versluninni er frá
árinu 1628. Það er frönsk sögubók,
útgefin í París og fjallar hún um
rómverska keisaraveldið.
Á nýopnaðri heimasíðu versl-
unarinnar er að finna mikinn fróð-
leik, svo sem upplýsingar um hvaða
bækur er hægt að finna í versl-
uninni og má þar nefna héraðssögu,
ættfræði, landakort, gamalt prent
og norræn fræði. Slóð heimasíð-
unnar er bokavardan.is.
Morgunblaðið/Ásdís
Bókavarð-
an opnar
heimasíðu
♦ ♦ ♦
KÍNVERSKA félagsmálaráðuneyt-
ið hefur nú formlega staðfest sam-
komulag milli Íslands og Kínverska
alþýðulýðveldisins. Samkomulagið
hefur þegar tekið gildi.
Í Morgunblaðinu á sunnudag var
greint frá því að ein af meginfor-
sendum þess að samkomulagið hefði
náðst, væri að Kínverjar hefðu ný-
lega gerst aðilar að Haag-samningn-
um frá 1993 um vernd barna og sam-
vinnu um ættleiðingu barna, sem
Íslendingar gerðust aðilar að á síð-
asta ári. Samkvæmt upplýsingum
frá dómsmálaráðuneytinu bíða mörg
kínversk börn ættleiðingar.
Samningur
um ættleiðing-
ar frá Kína
genginn í gildi