Morgunblaðið - 26.07.2001, Page 43
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001 43
FYRIR skömmu fór fram lands-
mót UMFÍ á Egilsstöðum. Ég
hafði frétt af þessu móti. Ég hélt
að það væri bara frjálsíþróttamót
og datt ekki í hug að þar yrði
keppt í skotfimi. Ég komst fyrst
að því í dag, 14. júlí, að keppt hefði
verið í skotfimi þegar ríkisútvarpið
sagði frá því að þar hefði verið
keppt í tveimur uppáhaldsgreinum
mínum. Enskri keppni og staðlaðri
skammbyssu.
Ensk keppni er besta grein mín
og hefur verið það í marga ára-
tugi. Ég er Íslandsmeistari og bik-
armeistari í enskri keppni og hef
oft verið Íslands- og bikarmeistari
einnig í staðlaðri skammbyssu. Ég
vann síðustu bikarmeistaramót
Skotíþróttasambands Íslands í
báðum þessum greinum í maí
2001.
Mér hefur verið sagt að félags-
menn innan UMFÍ megi keppa á
mótum bæði innan UMFÍ og ÍSÍ,
t.d. félagsmenn Skotfélags Kópa-
vogs sem er í UMSK en að félags-
menn sem bara eru í félagi í ÍSÍ
megi ekki keppa á mótum innan
UMFÍ. Sé þetta rétt þá er hér
mikið hneyksli á ferðinni og enn
eitt ruglið í íþróttahreyfingunni.
Þeir sem fyrir slíku standa ættu
að skammast sín og forseti Íslands
ætti ekki að leggja blessun sína yf-
ir slíkt landsmót. Hvers virði eru
úrslit úr íþróttakeppni þegar
íþróttamönnum er mismunað með
þessum hætti á landsmóti?
Í marga áratugi hef ég reynt að
taka þátt í öllum skotmótum á Ís-
landi í enskri keppni og staðlaðri
skammbyssu. Ég tel ámælisvert að
hvorki Skotíþróttasamband Ís-
lands né UMFÍ skuli hafa séð sér
fært að tilkynna öllum skotfélög-
um á landinu um þetta fyrirhugaða
landsmót í skotfimi. Félagsmenn
mega, með eins mánaðar fyrirvara,
skipta um félag og hefðu því getað
tekið þátt ef þeir hefðu fengið til-
kynningu um landsmótið nógu
snemma.
Öll skotfélög fari í UMFÍ
Til að fyrirbyggja svona útilok-
unaraðferðir í framtíðinni legg ég
til að öll skotfélög landsins sæki
um og gerist aðilar að héraðssam-
bandi innan UMFÍ. Hér á landi á
að gilda nokkuð sem heitir jafn-
ræðisregla og íþróttahreyfingin á
að vera öllum opin.
Með íþróttakveðju.
CARL J. EIRÍKSSON,
formaður Skotíþróttafélagsins
Baldurs,
Hlégerði 47, Kópavogi.
UMFÍ útilokar kepp-
endur í fremstu röð
Frá Carli J. Eiríkssyni:
NÝVERIÐ heyrði ég einn af ráð-
herrum vorum halda því fram í út-
varpsviðtali að við græddum ekki
nóg á útlendu ferðamönnunum, og
raunar ekki á þeim innlendu held-
ur. Ráðherrann spurði hvort það
væri t.a.m. nokkur hemja að láta
fólk horfa ókeypis á Gullfoss og
Geysi, Ásbyrgi og Þingvelli. Ættu
menn ekki að borga fyrir þá nátt-
úru sem þeir fengju að njóta?
Við þessa ræðu minntist ég þess
að eitt sinn ætlaði ég, ásamt sam-
ferðafólki að skoða gil nokkurt á
Írlandi. Upp í gil þetta lá mjór
vegarspotti þar sem hestakerrur
voru á ferð fram og aftur fullar af
fólki. Reyndi maður að ganga upp í
gilið yrði maður að vaða aur og
hrossatað upp fyrir skóvarp og
ætti auk þess á hættu að verða fyr-
ir einhverjum vagninum. Eina leið-
in til þess að komast klakklaust
þarna upp eftir virtist því sú að
kaupa sér þangað far með vagni.
Og enda þótt verðið á túrnum hefði
verið himinhátt, gerðum við það.
Í kerrunni ofan eftir sátu auk
okkar dönsk hjón og önnur ensk.
Þeim varð tíðrætt um það gjald
sem þau höfðu orðið að greiða fyrir
komast upp í gilið og urðu brátt á
einu máli um að á þetta landi
skyldu þau aldrei framar stíga
fæti.
En lítum nú í eigin barm. Hvern-
ig á að búa svo um hnúta að fyrsta
heimsókn ferðamanns hingað til
lands verði ekki jafnframt sú síð-
asta? Sé það rétt að margir þeirra
leiti hér á vit óspilltra auðna til
þess að freista þess að hverfa,
a.m.k. um stundarsakir, aftur til
náttúrunnar, hljótum við að spyrja:
Hvernig yrði slíkum gestum við ef
þeim yrði gert að taka upp budd-
una þegar þeir ætluðu sér að leiða
augum foss, fjall eða sólsetur?
STEFÁN SIGURKARLSSON,
fv. lyfsali,
Breiðagerði 17, Reykjavík.
Um ferðamál
Frá Stefáni Sigurkarlssyni:
Álfaheiði Kópav. - einbýli.
Mikið endurn. einb. 180 fm m. innb.
25 fm bílsk.
Nýl. baðherb., nýl. málað, nýjar þakrennur, nýl. gler að hluta
og fl. 4 svefnherb. Góð stofa og borðstofa. Nýl. 16 fm
timburverönd í suður. Frábærl. skipul. hús á einstakl.
góðum stað í suðurhl. Kópav. Örstutt í skóla og þjónustu.
Skipti á sérhæð í nágr. mögul. Áhv. 10,7 m. húsbr. og
byggsj. V. 21,9 millj.
Fasteignasalan Valhöll
sími 588-4477
Falleg, björt og vel skipulögð 102 fm
4-5 herb íbúð á mjög góðum stað í
vesturbænum. 3 svherb og 2 stofur.
Fallegt baðherb. Þvhús innan íb. Nýjir
gluggar og gler. Fallegt útsýni. Suðursv.
V. 13,9 m. Áhv, 7,3 m. Eign sem vert er
að líta á. 6630 Allar nánari upplýsingar
á Valhöll.
Melhagi - mjög góð
- fráb. staðsetn.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Mjög falleg og björt risíbúð í miðborg-
inni. Stór stofa, 2 herb., stórt baðherb.
og eldh. með nýl. innr. Parket á gólfum.
Glæsilegt útsýni úr íbúðinni til norðurs
og suðurs. Áhv. húsbr. 3,6 m. V. 8,5 m.
Íbúðin verður til sýnis í kvöld
milli kl. 19 og 21. Verið velkomin.
Lindargata 14
Opið hús í kvöld milli kl. 19 og 21
Útsýni úr íbúð
VEÐUR mbl.is