Morgunblaðið - 01.08.2001, Side 1
173. TBL. 89. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 1. ÁGÚST 2001
VLADÍMÍR Kramník, rússneski
heimsmeistarinn í skák, kvaðst í
gær hlakka til hólmgöngunnar við
Fritz hinn djúpúðga, öflugustu
skáktölvu í heimi. Fer einvígið fram
í Bahrain í október og er verðlauna-
féð rúmlega 100 milljónir ísl. kr.
„Ég er viss um, að einvígið mun
vekja mikla athygli, enda er það
ekki á mörgum sviðum, sem menn
geta keppt við tölvur. Mig óar hins
vegar við því, að Fritz skuli geta
velt fyrir sér fjórum milljónum
leikja á einni sekúndu. Hún dugir
mér varla fyrir einn leik,“ sagði
Kramník á blaðamannafundi í
London í gær. Sagðist hann þó
vona, að mannlegt innsæi yrði vél-
inni yfirsterkara.
Einvígið, sem er á vegum Brain
Games Network, hefst í borginni
Manama í Bahrain 12. október og
verða tefldar átta skákir á átta dög-
um. Er það auglýst sem „síðasta
tækifæri mannsins“ til að sigra vél-
ina en unnið hefur verið að hugbún-
aði Fritz samfleytt í fjögur ár.
Hægt verður að fylgjast með ein-
vígisskákunum á Netinu.
Einvígið er nokkurs konar fram-
hald á viðureign Garrís Kasparovs,
fyrrverandi heimsmeistara, við
tölvuna Djúpblá í New York 1997
en þá tapaði hann eins og kunnugt
er.
Kramník fær 100 millj. kr. í sinn
hlut sigri hann hinn djúpúðga Fritz
og raunar bróðurpartinn af því, 60
millj. kr., þótt hann tapi. Fritz fengi
þá 40 millj. en það fé verður notað
til að efla skákiðkun evrópskra ung-
menna.
„Sálarlaus óskapnaður“
Kramník segist vera farinn að
búa sig undir glímuna þótt hann viti
ekki almennilega hvernig hann eigi
að standa að því. Fritz sé alveg
óskrifað blað, hann viti ekkert um
skákstílinn hans, sem líklega sé
enginn, og engin hætta sé á, að
hann fari á taugum.
„Þetta er tölva, tilfinninga- og
sálarlaus óskapnaður, og mér heyr-
ist allir vera vissir um, að ekki
nokkur maður geti staðist henni
snúning. Mig langar til að sýna
fram á annað,“ sagði Kramník.
Einvígi milli Kramníks og Fritz hins djúpúðga í Bahrain í október
„Síðasta tækifæri manns-
ins“ til að sigra vélina
AP
Heimsmeistarinn í skák, Vlad-
ímír Kramník, á blaðamanna-
fundinum í London í gær.
London. AFP.
Jamal Salim, var einnig felldur.
Læknar á sjúkrahúsinu í Nablus
staðfestu að átta Palestínumenn
væru látnir, þ. á m. tveir bræður,
Ashraf og Bilal Khader, fimm og átta
ára. Þeir voru á götunni fyrir framan
Hamas-skrifstofurnar er eldflauga-
árásin var gerð og að sögn lækna lét-
ust þeir af völdum sprengjubrota.
Fimmtán aðrir slösuðust, þ. á m.
móðir drengjanna.
Ísraelskar herþyrlur skutu að
ÁTTA féllu, þar á meðal tveir dreng-
ir, þegar ísraelskar herþyrlur skutu
eldflaugum inn á skrifstofur Hamas-
samtakanna í bænum Nablus á Vest-
urbakkanum í gær. Þá féllu tveir
Palestínumenn á Gaza-svæðinu, var
annar skotinn af ísraelskum her-
mönnum en svo virðist sem hinn hafi
orðið fórnarlamb innbyrðis átaka
meðal Palestínumanna. Skammt frá
Betlehem var Palestínumaður, sem
grunaður var um samstarf við Ís-
raela, myrtur af tveimur grímu-
klæddum mönnum.
Gærdagurinn var sá blóðugasti í
tvo mánuði í átökunum fyrir botni
Miðjarðarhafs. „Ísraelar hafa farið
langt yfir öll strik,“ sagði Sheik
Ahmhed Yassin, andlegur leiðtogi
Hamas-samtakanna. „Það mega
Ísraelar vita, að þeir munu gjalda
þessa, og blóð okkar er ekki ódýrt.“
Samtökin hafa framið fjölda
sprengjutilræða er beinst hafa gegn
Ísrael síðan uppreisn Palestínu-
manna (intífata) hófst fyrir tíu mán-
uðum. Í yfirlýsingu frá skrifstofu Ar-
iels Sharons, forsætisráðherra
Ísraels, sem gefin var út í gær, sagði
að herinn hefði „ráðist gegn hópi
háttsettra Hamas-leiðtoga sem hafa
framið hryðjuverk og voru að leggja
á ráðin um fleiri“.
Meðal þeirra sem féllu í árásinni
var Jamal Mansour, einn stofnenda
samtakanna og helsti leiðtogi þeirra.
Ísraelar og palestínsk yfirvöld höfðu
oft handtekið hann og hafði hann alls
setið meira en fimm ár í ísraelskum
fangelsum. Talið er að Mansour hafi
verið meginskotmark Ísraela, en
annar háttsettur leiðtogi Hamas,
minnsta kosti tveimur eldflaugum
inn um glugga á skrifstofum Hamas
á þriðju hæð í sjö hæða byggingu.
Skömmu eftir árásina fóru Palest-
ínumenn þúsundum saman um götur
Nablus og Ramallah og kröfðust
hefnda.
Þetta er önnur eldflaugaárásin
sem Ísraelar gera á Palestínumenn á
tveimur dögum. Á mánudag réðust
þeir á höfuðstöðvar palestínsku lög-
reglunnar í Gaza-borg.
Átta falla í þyrlu-
árás Ísraelshers
Nablus á Vesturbakkanum, Kaíró, Washington. AP, AFP.
Reuters
Palestínumenn flytja lík fórnarlambs úr skrifstofubyggingu Hamas-
samtakanna í Nablus, sem Ísraelsher gerði árás á í gær.
MANNRÉTTINDADÓMSTÓLL
Evrópu úrskurðaði í gær að sú
ákvörðun tyrkneskra stjórnvalda að
banna starfsemi flokks hreintrúar-
manna hefði ekki brotið gegn evr-
ópskum mannréttindaákvæðum.
Komst meirihluti dómsins að þeirri
niðurstöðu að bannið hefði verið
nauðsynleg ráðstöfun til að tryggja
framgang lýðræðisins.
Necmettin Erbakan, leiðtogi tyrk-
neska Velferðarflokksins, og tveir
félagar þeirra samtaka höfðuðu mál
til að fá hnekkt banni sem tyrknesk
stjórnvöld lögðu við starfsemi
flokksins árið 1998.
Fjórir af sjö dómurum Mannrétt-
indadómstólsins studdu málstað yf-
irvalda í Tyrklandi. Sagði í niður-
stöðu meirihlutans að hvorki hefði
verið brotið gegn funda- né félaga-
frelsi með þeirri ákvörðun að banna
starfsemi Velferðarflokksins. Þvert
á móti bæri að líta svo á að þessi
gjörningur hefði verið fallinn til að
bregðast við bráðum vanda í því
skyni að „verja lýðræðið“.
Talsmenn Velferðarflokksins
gagnrýndu niðurstöðu dómstólsins
harðlega. Fram til þessa hefði dóm-
stóllinn haft það til viðmiðunar hvort
samtök á borð við Velferðarflokkinn
hefðu tengst ofbeldisverkum en nú
þætti sýnilega nóg að byggja viðlíka
ákvarðanir á grunsemdum. Dómur-
inn hefði með þessu traðkað á mál-
frelsinu, því sama frelsi og honum
væri gert að vernda.
Stjórnarskrárdómstóll Tyrklands
úrskurðaði árið 1998 að banna bæri
starfsemi Velferðarflokksins og
leysa hann upp. Flokkurinn væri
miðstöð þeirrar baráttu sem háð
væri í því skyni að grafa undan hinu
veraldlega lýðræði í þeim tilgangi að
gera Tyrkland að íslömsku ríki.
Úrskurður Mannréttindadómstóls Evrópu
Rétt að banna flokk
hreintrúarmanna
Strassborg. AP.
SÉRSVEIT rússnesku öryggislög-
reglunnar frelsaði í gær um 30
manns, sem tveir vopnaðir Tsjetsj-
enar höfðu tekið í gíslingu í rútu í
Stavropol-héraði í suðurhluta Rúss-
lands. Gíslatökumennirnir höfðu
krafist þess að fimm landar þeirra
yrðu látnir lausir úr rússneskum
fangelsum. Annar þeirra var skotinn
til bana í aðgerð öryggislögreglunn-
ar, en rússneskar fréttastofur sögðu
hinn hafa særst.
Um 40 manns voru í rútunni þegar
Tsjetsjenarnir tóku hana í gíslingu
um klukkan sjö í gærmorgun að
staðartíma. Að sögn lögreglunnar
var tólf farþegum fljótlega sleppt,
þar á meðal 26 ára gömlum manni
sem hafði hlotið skotsár. Rútunni var
ekið í átt að flugvelli í heilsulindar-
bænum Mineralnye Vody, en bifreið-
in var stöðvuð skammt frá flugvall-
arsvæðinu.
Mannræningjarnir hótuðu að
byrja að taka gíslana af lífi á mið-
nætti í nótt, yrðu fimm félagar þeirra
ekki látnir lausir úr fangelsi. Kröfð-
ust þeir þess einnig að fá þyrlu, vopn
og skotfæri.
Sérsveit öryggislögreglunnar lét
til skarar skríða undir kvöld. Hand-
sprengjur voru sprengdar í grennd
við rútuna og sérsveitarmenn skutu
annan mannræningjann til bana
þegar hann leit út um glugga til að
grennslast fyrir um upptök hávað-
ans. Öryggislögreglan réðst til inn-
göngu í rútuna og hermt var að hinn
Tsjetsjeninn hefði særst. Báðir
gíslatökumennirnir munu hafa borið
sprengiefni innanklæða.
Gíslarnir sluppu allir heilir á húfi,
en nokkrir munu hafa skorist á gler-
brotum úr rúðum rútunnar.
Stavropol-hérað liggur að
Tsjetsjníu, þar sem rússneski herinn
hefur barist við aðskilnaðarsinnaða
skæruliða frá því í október 1999.
Tsjetjsneskir hryðjuverkamenn hafa
oft látið að sér kveða í Stavropol.
Reuters
Rússneska öryggislögreglan ræðst til atlögu við gíslatökumennina ná-
lægt heilsulindarbænum Mineralnye Vody í gær.
Gíslataka í suðurhluta Rússlands
Sérsveit frelsar
um 30 manns
Mineralnye Vody. AFP, AP.