Morgunblaðið - 01.08.2001, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 9
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Útsala Peysur og
buxur
í fríið
Ný sending af gallabuxum
fyrir verslunarmannahelgina
Lokað laugardaginn 4. ágúst
Nýi Kays pöntunarlistinn kominn
Nýjasta vetrartískan á alla fjölskylduna
Frábær tilboð — Pantanasími 555 2866
Rýmingarsalan
á fullu í versluninni
Vetrarvörurnar
nýkomnar Austurhrauni 3, Hf.,
sími 555 2866
Mæður með börn á brjósti
Medela brjóstadælur,
frystipokar,
hjálparbrjóst,
mexikanahattar,
hlífar fyrir sárar
geirvörtur o.fl.
og apótek um land allt. http://ymus.vefurinn.is
Arnheiður hjúkrunar-
fræðingur og brjósta-
ráðgjafaleiðbeinandi
mælir með medela
brjóstagjafa-
hjálpartækjum
Þumalína
Fyrir
helgina
• sundtöskur
• handtöskur
(skjóður)
• ferðatöskur
í ferðalagið
Skólavörðustíg 7
GENGI
GJALDMIÐLA mbl.is
ÁGÆTISVEIÐI hefur verið í Dala-
ánum að undanförnu, einkum var síð-
asta vikan góð, en þá fór saman mikið
vatnsmagn og stórstreymi. Segja
menn að þá hafi „alvöru göngur“,
sem hafi verið allt of fátíðar í um-
ræddum ám síðustu árin, gengið inn
og veiðin tekið mikinn kipp. Hauka-
dalsá er þegar komin yfir heildar-
veiðitölu sína frá síðasta sumri.
„Vikuholl í síðustu viku var með
124 laxa, þetta var hópur duglegra
manna með blandað agn. Núna er
mjög roskið fólk sem veiðir aðeins á
flugu og nýtir tímann lítið. Það er því
minni veiði í bili. En það eru komnir
354 laxar á land og vertíðin er hálfn-
uð. Síðasta sumar, sem var með ein-
dæmum lélegt, gaf aðeins 346 laxa.
Þetta var alveg 7-800 laxa á hér áður
fyrr og mér sýnist að þetta gæti orðið
700 laxa sumar. Það myndi minna á
gamla góða tíma,“ sagði Torfi Ás-
geirsson, umsjónarmaður Hauka-
dalsár í samtali við Morgunblaðið í
gær.
90 laxar á fjórum dögum
Síðasta vika var einnig mjög góð í
Laxá í Dölum, en þá var fjögra daga
holl með 90 laxa, alla á flugu. „Þetta
hefur minnkað nokkuð síðan, enda
minnkandi vatn og vatnshitinn var
kominn í 18 gráður. Það gefur auga
leið að það veiðist ekki eins grimmt
við svoleiðis skilyrði, en þetta er samt
mjög gott á heildina litið. Við erum
komin með 252 laxa á móti 170 á
sama tíma í fyrra. Hún náði 607 löx-
um í fyrra, en hvað gerist nú fer eftir
veðurguðunum. Laxá er afar háð ár-
ferðinu hverju sinni,“ sagði Árni Guð-
björnsson, leiðsögumaður við Laxá í
Dölum, í gærdag. Bæði í Hauku og
Laxá er nær allur laxinn sem veiðist
um þessar mundir nýgenginn 4-6
punda fiskur.
Urmull af bleikju í Skógá
Mikil bleikjuveiði hefur verið í
Skógá undir Eyjafjöllum, en nú í
vikubyrjun var enn beðið eftir fyrsta
laxinum. Edda Dungal, sem var að
veiðum í Skógá um helgina, sagði um
1200 bleikjur komnar í bók. „Mikið af
bleikjunni er smátt, en það er líka
vænn fiskur í bland. Við fengum þó
nokkrar 2 punda og það er mikið af
1-2 punda fiski. Þær stærstu í sumar
voru nokkrar um 5 pund og ein
stærri, ég held 7-8 pund. En það er
enginn lax enn sem komið er, en hann
hlýtur að fara að skila sér. Það var
miklu af gönguseiðum sleppt í ána í
fyrra,“ sagði Edda.
Fréttir héðan og þaðan
281 lax var kominn á land úr Leir-
vogsá í gærmorgun og er með því
besta hérlendis í sumar, því aðeins er
veitt á tvær stangir í ánni og veiði
hófst ekki fyrr en rétt fyrir síðustu
mánaðamót. Auk þess hafa 34 2-4
punda birtingar veiðst.
Óvenjugóð veiði hefur verið í Hlíð-
arvatni í Selvogi, miðað við hvað
menn eru vanir þar syðra í júlí. Að
sögn Hans Ólasonar hjá Stangaveiði-
félagi Hafnarfjarðar, sem ásamt
fleirum, selur veiðileyfi í vatnið, hefur
vakið athygli hve mikið af 3-4 punda
bleikju er í aflanum. „Við erum mjög
spenntir, enda er venjan að veiði fari
batnandi er líður á sumarið,“ sagði
Hans.
Tuttugu laxar hafa veiðst í Laxá í
Nesjum. Er það nokkuð gott, því áin
opnaði seint og hefur ekki verið ýkja
mikið stunduð. Einn sem skrapp eina
morgunstund fékk 13 punda grálús-
ugan fisk.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Verið líf-
legt í
Dölunum
Veiðimaður landar laxi í Reykjadalsá í Reykjadal í Þingeyjarsýslu.
ÖLLU starfsfólki á fréttastofu
Skjás 1 hefur verið sagt upp störf-
um vegna endurskipulagningar á
starfseminni og fyrirhugaðra breyt-
inga á vetrardagskránni. Um er að
ræða fjóra fréttamenn og frétta-
stjóra. Þetta var tilkynnt á fundi
með starfsmönnum í gær.
Í tilkynningu frá Íslenska sjón-
varpsfélaginu kemur fram að fréttir
verða sendar út í september í end-
urskoðaðri mynd, ásamt þættinum
Málinu, þar sem fimm þjóðþekktir
einstaklingar munu tjá skoðanir
sínar á þjóðmálunum.
Árni Þór Vigfússon sjónvarps-
stjóri sagði við Morgunblaðið að
ekki væri útilokað að einhverjir af
þeim fréttamönnum sem hafa starf-
að á Skjá 1 yrðu endurráðnir, ann-
aðhvort í áframhaldandi fréttir eða
aðra dagskrárgerð hjá stöðinni en
óljóst væri um hve margar stöður
væri að ræða.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu seg-
ir ennfremur að dagskrá stöðvar-
innar sé í sífelldri endurnýjun og að
í vetur hefjist sýningar á fimm nýj-
um innlendum þáttaröðum auk
nýrra bandarískra þátta.
„Vinsælustu þættirnir frá síðasta
vetri snúa aftur í nýrri og betri
mynd og uppröðun dagskrárinnar
verður endurbætt. Vægi frétta í
dagskránni verður kynnt betur
samhliða kynningu á vetrardagskrá
SkjásEins.
Stefna SkjásEins hefur frá upp-
hafi verið að færa Íslendingum af-
þreyingu og skemmtun, með sér-
stakri áherslu á innlenda
dagskrárgerð, og í vetur verður
engin breyting þar á,“ segir í til-
kynningu frá Íslenska sjónvarps-
félaginu.
Skjár 1 endurskipuleggur starfsemina
Öllum á fréttastofu sagt upp
BROTIST var inn í þrjá sendi-
bíla fyrir utan fyrirtæki við
Þverholt í Reykjavík um klukk-
an tvö í fyrrinótt og stolið úr
þeim útvörpum og geislaspilur-
um. Að sögn lögreglunnar í
Reykjavík var ekki ljóst hvort
vörur voru teknar úr vöruköss-
um í bílunum. Ekki er vitað
hver var að verki en málið er í
rannsókn.
Hljómtækj-
um stolið úr
sendibílum