Morgunblaðið - 01.08.2001, Qupperneq 15
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 15
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tækifæri á síðustu sætunum til Benidorm
24. ágúst í eina eða 2 vikur á einn vinsælasta sólarstaðinn við
Miðjarðarhafið. Þú bókar núna og 3 dögum fyrir brottför segjum við
þér hvar þú gistir og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra
Heimsferða allan tímann.
Verð kr. 39.985
Verð á mann miðað við hjón með
2 börn, 2–11 ára, flug, gisting,
skattar, vikuferð 24. ágúst.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 49.930
Verð á mann miðað við 2 í íbúð,
vikuferð.
Stökktu til
Benidorm
24. ágúst
frá kr. 39.985
ÓLAFUR Jón Arnbjörnsson, skóla-
meistari Fjölbrautaskóla Suður-
nesja, segist vera bjartsýnn á að
stækkun skólans um 2.500 fermetra
geti hafist fyrir áramót. Skólinn er í
dag 5.700 fermetrar.
„Það er kannski fullsnemmt að
segja nákvæmlega til um hvenær
hafist verður handa við verkið en
sveitarfélagið og ríkisvaldið eru að
ganga frá samningnum. Vonandi
verður byggingartíminn sem styst-
ur og þá geri ég mér vonir um að
hægt verði að taka viðbygginguna í
notkun innan tveggja ára. Þó er
ekki búið að teikna húsið enda ekki
búið að ákveða hvort um alútboð
verður að ræða.“
Ólafur segir að allt of þröngt hafi
verið um nemendur og starfsmenn
skólans hingað til.
„Hluti af þessu er að lagfæra þá
aðstöðu sem fyrir er. Þarna yrði því
mjög góð aðstaða fyrir raungreina-
kennslu, setustofa fyrir nemendur,
anddyri og vinnuaðstaða fyrir kenn-
ara.“
Hann segir að enn fremur sé með
þessu verið að undirbúa skólann
fyrir fjölgun nemenda á komandi
árum.
„Í dag stunda hátt í 1.000 nem-
endur nám við skólann, þar af um
750 í dagskóla. Á svæðinu er um
gríðarlega fjölgun að ræða. Við höf-
um mestar áhyggjur af því að eftir
tvö ár koma inn árgangar sem eru
20–25% fjölmennari en þeir sem eru
í dag á Suðurnesjum og þannig
verður það næstu tíu árin.“
Unnið að undir-
búningi stækkunar
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
NÝR tímatökubúnaður hefur nú
verið settur upp í gokart-
brautinni hjá Reisbílum í Reykja-
nesbæ. Tímatökubúnaðurinn sam-
anstendur af skynjurum sem sett-
ir eru í allar körturnar og á
einum stað í brautinni.
Þegar akstur hefst, skráir
tímatökubúnaðurinn hversu
marga hringi hver karta ekur,
hraðann og meðalhraðann. Eftir
aksturinn fá ökuþórarnir út-
prentað blað með tímunum sínum
á og geta borið þá saman við
tíma keppinauta sinna og annarra
sem settir hafa verið á brautinni.
Meira spennandi
Stefán Guðmundsson hjá Reis-
bílum segir, að með tilkomu hins
nýja tímatökubúnaðar í brautinni
hafi aksturinn orðið meira spenn-
andi, því nú séu ökuþórarnir eig-
inlega alltaf í harðri keppni við
annað hvort félaga sína eða þá
áður setta tíma í brautinni.
„Það er oft handagangur í
öskjunni hér þegar hópar koma
inn eftir að hafa ekið í brautinni
og fara að skoða og bera saman
tímana. Oftar en ekki endar það
með að farið er aftur út á braut-
ina til að reyna að gera enn bet-
ur,“ sagði Stefán.
Brautarmetið í Reisbílabraut-
inni er nú 36,81 sek. og hefur
Stefán heitið hverjum þeim er
það slær fríum akstri í 50 skipti, í
10 mínútur í hvert sinn. Verð-
mæti verðlaunanna er um 100
þúsund krónur.
Morgunblaðið/Júlíus
Stefán Guðmundsson við stjórntölvu tímatökubúnaðarins.
Nýr tímatökubúnaður
í gokart-brautinni
Ytri-Njarðvík
„ÞETTA hefur smátt og smátt ver-
ið að vinda upp á sig. Við erum
komin með nokkrar tegundir í
áfengisverslanirnar og eigum auk
þess ýmsa aðra viðskiptavini,“ segir
Björk Guðjónsdóttir sem rekur vín-
heildsöluna Vínheima ehf. í Kefla-
vík. Vínheimar eru eina vínheild-
salan utan höfuðborgarsvæðisins.
Grunnur fyrirtækisins Vínheima
ehf. er í áfengisumboðum sem Hall-
dór Leví Björnsson ritstjóri kom
sér upp. „Ég hafði víninnflutning að
áhugamáli í mörg ár. Við stofnuðum
formlegt fyrirtæki um starfsemina
þegar Björk og eiginmaður hennar
keyptu sig inn í hana,“ segir Hall-
dór.
Björk er bæjarfulltrúi í Reykja-
nesbæ og vildi komast í vinnu sem
hún gæti stundað með stjórnmál-
unum og taldi best að vera með
sjálfstæða starfsemi. „Við ákváðum
að kaupa okkur inn í fyrirtækið
með Halldóri og sjá hvað við gæt-
um gert með því að leggja í það
vinnu,“ segir Björk.
Ólíkt öðrum viðskiptum
Árin fimm sem fyrirtækið hefur
starfað hafa verið notuð til að
byggja starfsemina upp hægt og
bítandi. Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins er að sjálfsögðu stærsti við-
skiptavinurinn og hafa Vínheimar
komið nokkrum tegundum þangað
inn.
Björk tekur undir að viðskiptin
við áfengisverslunina séu ólík flest-
um öðrum viðskiptum vegna þess
stranga laga- og reglugerðaramma
sem ríkir um þau. Miklar breyt-
ingar hafa þó orðið á fyrirkomulagi
víninnkaupa ríkisins og segir Hall-
dór að þær hafi verið til bóta. Tæki-
færi bjóðist til að koma nýjum teg-
undum í hillur verslananna til
reynslu og þær sem nái að sanna
sig á reynslutímanum komist inn í
búðirnar.
Vínheimar selja einnig vín til
veitingastaða, aðallega þó á Suð-
urnesjum og á Keflavíkurflugvelli.
Segja Björk og Halldór að hörð
samkeppni sé milli víninnflytjenda
um veitingahúsin og þau hafi
ákveðið að halda sér til hlés í henni.
Vínheimar leggja megináherslu á
innflutning léttvína og þá frá nýja
heiminum svokallaða, Chile og
Bandaríkjunum. Einnig eru þau að
byrja með vín frá Spáni. Þau eru
meðal annars með Santa Ines,
rauð- og hvítvín, frá Chile sem vak-
ið hefur athygli að undanförnu. Þá
eru þau með umboð fyrir eina
þekktustu rauðvínstegund landsins,
Bichot Saint-Emilion, sem lengi var
á nánast hverju einasta veitingahúsi
landsins.
Halldór Leví Björnsson og Björk Guðjónsdóttir við vínkynningu heildsölunnar Vínheima.
Áhugamál þeirra varð
að atvinnufyrirtæki
Eina vínheildsalan utan höfuðborgarsvæðisins
Keflavík
MENNINGAR- og fjöl-
skylduhátíðin Ljósanótt í
Reykjanesbæ verður stærri í
sniðum og fjölbreyttari en á síð-
asta ári. Hátíðin verður haldin
laugardaginn 1. september
næstkomandi.
Ljósanótt var haldin í fyrsta
skipti síðastliðið haust. Frum-
kvæðið hafði Steinþór Jónsson
hótelstjóri sem útbjó lýsingu á
Bergið í Keflavík sem útilista-
verk. Í tengslum við vígslu
verksins var efnt til menningar-
dagskrár. Um 10 þúsund manns
mættu. „Það var gaman að því
hvað þetta tókst vel í fyrra með
góðri hjálp bæjarbúa þótt und-
irbúningstíminn hafi verið stutt-
ur,“ segir Steinþór.
Ýmsar uppákomur
Ljósanóttin, sem haldin verð-
ur 1. september, verður mun
stærri í sniðum og fjölbreyttari
en í fyrra þótt ákveðin grunn-
atriði verði þau sömu. Þannig
mun Steinþór kveikja á ljósun-
um sem lýsa upp Bergið klukk-
an tíu um kvöldið og vígja um
leið minnismerki sjómanna sem
flutt verður af holtinu niður á
bakkann við Bergið. Þá verður
flugeldasýning.
Fjöldi listviðburða verður í
bænum, íþróttir og ýmislegt
fyrir börnin auk fjölda upp-
ákoma af ýmsu tagi. Verslanir
verða opnar þennan laugardag
og veitingastaðirnir með sérstök
tilboð.
Dagskráin er að taka á sig
mynd en enn er að bætast við.
Steinþór segir að fólk, félög og
fyrirtæki séu sífellt að hafa
samband við sig því allir hafi
áhuga á að taka þátt í Ljósa-
nóttinni. Þannig hafi spunnist
margt í kringum þessa hug-
mynd enda eigi Ljósanóttin að
vera vettvangur hugmyndaflugs
bæjarbúa.
Viðameiri og fjöl-
breyttari Ljósanótt
Reykjanesbær