Morgunblaðið - 01.08.2001, Síða 17
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 17
R A F T Æ K J A V E R S L U N
HEKLUHÚSINU • LAUGAVEGI 172 • 105 REYKJAVÍK • S ÍMI 590 5090
BYLTINGAKENND
ÞVOTTAVÉL
Ný þvottavélalína frá Hotpoint
HAGNAÐUR Íslandsbanka hf. nam
1.655 milljónum króna á fyrri hluta
ársins og er það 121% aukning miðað
við sama tímabil í fyrra. Í fyrra hafði
hagnaður félagsins dregist saman um
48% frá árinu áður. Hagnaður á
hverja krónu hlutafjár nam nú 17 aur-
um en var 8 aurar í fyrra. Arðsemi
eigin fjár reyndist 28,3% en var 16,4%
á sama tímabili síðasta árs.
„Þetta er að okkar mati gott upp-
gjör sem staðfestir styrk bankans.
Augljóst er að áhrif af sameiningu á
síðasta ári eru að skila sér núna af
miklum krafti,“ segir Valur Valsson,
forstóri Íslandsbanka, og vísar til
sameiningar Íslandsbanka hf. og
FBA hf. á fyrra hluta ársins 2000.
Valur segir að hagræðingar í kjölfar
sameiningarinnar hafi skilað sér auk
þess sem stærðin ein og sér hafi gefið
bankanum mikinn styrk og tækifæri
til að bæta reksturinn og það sé að
skila sér. „Okkur hefur tekist að
halda kostnaði niðri og umsvifin hafa
verið meiri en við áætluðum í upphafi
árs.“
Vaxtatekjur hærri og
minni kostnaður
Í fréttatilkynningu segir að afkom-
an í heild sé í takt við áætlun og því er
ekki talin ástæða til endurskoðunar á
áætlun um 3,5 milljóna króna hagnað
af árinu í heild. Tekjur ársins verði
umfram áætlun en á móti aukist
framlag í afskriftareikning. Helstu
frávik á fyrri árshelmingi séu að
vaxtatekjur hafi verið meiri en ráð
var fyrir gert. Þá hafi aðrar rekstr-
artekjur verið lægri, kostnaður minni
og framlög í afskriftareikning meiri
en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Rekstur fyrirtækjasviðs bankans
skilaði rúmlega milljarði króna í
hagnað fyrir skatta og hagnaður úti-
búasviðs var tæpur milljarður. Mark-
aðsviðskipti skiluðu 187 milljónum
fyrir skatta en hagnaður af fjárstýr-
ingu og stöðutöku nam 405 milljón-
um. Eignafjármögnun Glitnis skilaði
223 milljónum fyrir skatta.
Þá varð 20 milljóna króna tap af
rekstri einkafjármála og eignastýr-
ingar.
Raunhækkun útlána engin
Útlán Íslandsbanka námu í lok
tímabilsins 262 milljörðum króna og
höfðu aukist um 15,8% frá áramótum
eða 35 milljónir króna. Valur segir
stærstan hluta þessarar aukningar
vera vegna gengisbreytinga íslensku
krónunnar og verðbólgunnar innan-
lands.
„Þegar gengisbreyting verður þá
hækka í krónutölum útlán sem eru í
erlendri mynt hjá okkur. Sama gerist
þegar verðbólga er meiri en áður, þá
hækka öll lán sem eru verðtryggð.
Þegar tekið er tillit til þessa og þess
að við erum í vaxandi mæli að lána fé
til útlanda, til erlendra fyrirtækja, þá
kemur í ljós að raunaukning útlána
hér innanlands var engin á þessu
tímabili,“ segir Valur.
Því er lýst yfir í afkomutilkynningu
að bankinn áformi að leggja niður
verðbólgureikningsskil frá og með
árinu 2002.
Um þau áform segir Valur að í vax-
andi alþjóðavæðingu fyrirtækja skipti
það töluverðu máli að reikningsskil
séu sambærileg við það sem gerist er-
lendis, að erlendir fjárfestar geti met-
ið íslensk fyrirtæki á sama grunni og
þeir meta erlend fyrirtæki.
„Við vitum til þess að það hefur átt
sér stað athugun á þessum málum af
hálfu fjármálaráðuneytisins og ger-
um því ráð fyrir að það verði gerðar
breytingar á skattalögum í sambandi
við þetta mál.“
Valur gerir ráð fyrir því að fleiri
fyrirtæki hafi áhuga á að fylgja Ís-
landsbanka eftir hvað þetta varðar.
Þá segir hann ljóst að með aflögn
verðbólgureikningsskila muni hagn-
aður fjármálastofnana og einhverra
fleiri fyrirtækja aukast en skatt-
greiðslur þessara fyrirtækja muni
jafnframt aukast. Hagnaður annarra
muni minnka og skattgreiðslur þeirra
að sama skapi.
Í tilkynningunni segir að hefði
verðbólgureikningsskilum ekki verið
beitt í árshlutauppgjörinu hefði hagn-
aður félagsins fyrir skatta numið
2.900 milljónum króna en hagnaður
fyrir skatta nam nú 2.200 milljónum.
Hagnaður Íslandsbanka 1.655 milljónir
Sameining að
skila árangri
5
C1
:.11
3"4"$!1%&
3"4"1* 2
5&$ "&("4"$!1%&
&"&&$! &"&$!1%&
5&$ "&&$! &"&$!1%&
6%&&$! &"&1* 2
7&"' ")"# !& #"&&$ !
"
8" ($& &
#1
&#$ "&($&&9#%'
5""%&#:& & !""
;!""&
5""%&
&
;!% 2 &
< #9
'<
>@ 5
0-:
H.:H C
-
& $' $ #1
&
< #1
& %#" !(. /
3"4"'%%&
5""%&
%!& ;"&# '""#1* 2
-
● GUÐMUNDUR Guðmundsson, for-
stöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Bún-
aðarbankans – verðbréfa, segir að
bankinn hafi átt viðræður í síðustu
viku við starfsmenn Verðbréfaþings
varðandi mál Búnaðarbankans –
verðbréfa og viðskiptin með hluta-
bréf Útgerðarfélags Akureyringa 29.
júní sl. Bankinn sendi síðan í kjölfar-
ið bréf til Verðbréfaþingsins á föstu-
dag.
Verðbréfaþing tók þá ákvörðun að
lækka gengi bréfa í ÚA úr 4,0, sem
var lokaverð dagsins 29. júní, í 3,2. Í
kjölfarið óskaði VÞÍ skýringa á við-
skiptum bankans með bréf ÚA þann
dag.
Að sögn Ragnars Þ. Jónassonar,
lögfræðings hjá Verðbréfaþinginu,
verður málið á dagskrá á stjórn-
arfundi 9. ágúst nk. og verður nið-
urstöðu að vænta í málinu á þeim
fundi.
Búnaðarbankinn bíður
eftir ákvörðun VÞÍ
● NORRÆNA bankasamsteypan
Nordea hefur keypt sænska bank-
ann Postgirot Bank. Kaupverðið
samsvarar um 40 milljörðum ís-
lenskra króna.
Nordea samanstendur af finnsk-
sænska MeritaNordbanken, Uni-
bank í Danmörku og Kreditkassen í
Noregi.
Með kaupunum fær Nordea að-
gang að 1,3 milljónum viðskiptavina
Postgirot-bankans. „Yfirtakan á
Postgirot veitir okkur tækifæri til að
styrkja stöðu okkar sem fjár-
málastofnun í forystuhlutverki á
Norðurlöndunum og Eystrasalts-
svæðinu,“ segir Thorleif Krarup, for-
stjóri Nordea, í fréttatilkynningu.
Nordea kaupir
Postgirot-bankann
STUTTFRÉTTIR