Morgunblaðið - 01.08.2001, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 29
Mikill afsláttur!
Sumarútsalan er
í fullum gangi.
Komdu og gerðu góð kaup!
Stendur til 3. ágúst.
inniskór í
miklu úrvali
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 553 2300
Ráðgjöf á fimmtud. kl. 14-18 og laugard. kl. 10-14.
Skóbúðin
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Jóhanni
Óla Guðmundssyni:
„Í framhaldi af viðtali við Margeir
Pétursson í Morgunblaðinu þriðju-
daginn 31. júlí og til áréttingar því
sem undirritaður rakti í ýtarlegu
viðtali í sama blaði sunnudaginn 29.
júlí um málefni Frumafls og Lyfja-
verslunar Íslands óskast eftir-
greindu komið á framfæri:
Sú spurning verður æ áleitnari
hvenær stjórn Lyfjaverslunar Ís-
lands hefði átt að tilkynna Verð-
bréfaþingi Íslands um fyrirhuguð
kaup Lyfjaverslunar á Frumafli.
Eins og rakið er hér á eftir hófust
óformlegar viðræður við einstaka
stjórnarmenn Lyfjaverslunar fyrir
rúmlega einu og hálfu ári og sextán
mánuðir eru nú liðnir síðan aðal-
fundur Lyfjaverslunar Íslands sam-
þykkti breytingar á tilgangi félags-
ins til þess að unnt væri að útvíkka
starfsemi þess. Hálft ár er síðan
stjórnarmenn Lyfjaverslunar Ís-
lands staðfestu löngu gerðan samn-
ing um kaup á Frumafli með und-
irritun sinni. Rétt væri að
Verðbréfaþing Íslands rannsakaði
ofan í kjölinn eftirgreinda atburða-
rás og legði mat á það hvort og þá
hvenær eðlilegt hefði verið að Lyfja-
verslun Íslands tilkynnti um breytt-
an starfsgrundvöll og í kjölfarið
gerða samninga við Frumafl. Verð-
bréfaþingi verður send formleg
beiðni um slíka athugun.
Júní 1998
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið og fjármálaráðuneytið
ákveða að hefja undirbúning að út-
boði á hjúkrunarheimili með einka-
framkvæmdarsniði.
Janúar 1999
Niðurstöður forvals kynntar. Þrír
aðilar voru taldir hæfir og var boðin
þáttaka í útboðinu, a) Securitas og
og ÍAV, b) Nýsir hf. og Ístak og c)
Sjómannadagsráð og Hrafnista.
September 1999
Tilboð opnuð. Securitas og ÍAV
með lægsta verð en jafnframt hæstu
einkunn fyrir bæði áformaða þjón-
ustu og aðbúnað.
Janúar 2000
Samningsígildi í formi viljayfirlýs-
ingar undirritað á milli heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytisins ann-
ars vegar og Securitas og ÍAV hins
vegar.
Janúar 2000
Óformlegar viðræður um hugsan-
lega aðkomu Lyfjaverslunar Íslands
að Sóltúnsverkefninu.
Janúar-mars 2000
Teknar ákvarðanir á grundvelli
samkomulegs aðila og var ákveðið að
skipta rekstri Securitas upp í tvö
fyrirtæki, Frumafl og Securitas.
Mars 2000
Samkomulag milli aðila um kaup
Lyfjaverslunar Íslands á Frumafli
með fyrirvara um endanlegan frá-
gang samnings seljanda um Sól-
túnsmálið við ríkisvaldið. Verðlagn-
ing á Frumafli ákveðin.
Mars 2000
Aðalfundur Lyfjaverslunar Ís-
lands samþykkir breytingu á til-
gangi félagsins og útvíkkun á starf-
semi þess til samræmis við
samkomulag aðila.
Apríl 2000
Samningur milli Öldungs hf. og
ríkisvaldsins undirritaður.
Júlí 2000
Verðlagning komin í skriflegt
samningsuppkast frá Lyfjaverslun
Íslands.
Október 2000
Stefnumótafundur Frumafls,
stjórnar og forstjóra Lyfjaverslunar
Íslands byggður á kaupum Lyfja-
verslunar Íslands á Frumafli. Þess-
um fundi var stýrt af rekstrarráð-
gjafa.
Október 2000
Sami hópur ferðast til Svíþjóðar
til að kynna sér einkarekstur á heil-
brigðissviði. Órofa samstaða allra
aðila um framtíðarsýn til Lyfjaversl-
unar Íslands með verkefni og við-
skiptavild Frumafls að leiðarljósi.
23. janúar 2001
Stjórn Lyfjaverslunar Íslands
undirritar svokallað „minnisblað“
þar sem þegar ákveðin kaup á
Frumafli, með tilgreindu verði og
öðrum aðalatriðum samningsskil-
mála, eru staðfest með undirritun
allra stjórnarmanna Lyfjaverslunar
Íslands.
24. janúar 2001
Þríhliða samkomulag undirritað
milli Aðalsteins Karlssonar, fyrir
hönd seljenda A. Karlssonar, Jó-
hanns Óla Guðmundssonar sem selj-
anda Frumafls og stjórnar Lyfja-
verslunar um kaup Lyfjaverslunar á
Frumafli, byggt á „minnisblaði“ frá
deginum áður.
Apríl 2001
Ný stjórn Lyfjaverslunar Íslands
kjörin á aðalfundi.
Júní 2001
Verðbréfaþingi Íslands tilkynnt
um Frumaflsmálið.
Júní 2001
Boðað til hluthafafundar í Lyfja-
verslun Íslands.
10. júlí 2001
Hluthafafundur riftir kaupum á
Frumafli og kýs nýja stjórn Lyfja-
verslunar Íslands.
Framangreint tekur af öll tvímæli
um það að langt er síðan munnlegir
og síðar skriflegir samningar voru
gerðir um kaup Lyfjaverslunar á
Frumafli. Samkomulag varð um
verð Frumafls fyrir sextán mánuð-
um. Ýmsir sérfræðingar hafa verið
fengnir til að meta verðmæti Frum-
afls og þess samnings sem gerður
var um rekstur Sóltúnsheimilisins.
Mat Búnaðarbankans byggir m.a. á
röngum forsendum varðandi láns-
fjárvexti, sem seljandi ber alla
ábyrgð á, og annarri ávöxtunarkröfu
en stjórn Lyfjaverslunar hafði sam-
þykkt og er því greinilega gert í
þeim tilgangi að meta Frumafl sem
lægst. Mat bankans er því ómark-
tækt. Lyfjaverslun Íslands réð Guð-
mund Sveinsson endurskoðanda til
þess að meta verðmæti Frumafls.
Hann bendir á að samkvæmt viða-
mikilli úttekt á Sóltúnssamningnum
sem Ríkisendurskoðun vann fyrir
Alþingi og var lögð fram í mars sl.,
sé núvirkt verðmæti Sóltúnssamn-
ingisins 580 milljónir króna. Þegar
litið er til þess að gera má ráð fyrir
allt að um 20 sambærileg heimili
þurfi að byggja á næstu 10 árum er
tæpast óraunhæft markmið að setja
Frumafli, sem bauð lægsta verðið
annars vegar en bestu þjónustuna
og aðbúnaðinn hins vegar, að ná að
minnsta kosti 2,5% hlutdeild í þeim
útboðum sem fram undan eru.
Það er því bjargföst trú undirrit-
aðs að samkomulag um kaup Lyfja-
verslunar Íslands á Frumafli annars
vegar og kaupverð hins vegar hafi
verið eðlilegt og til mikilla hagsbóta
fyrir starfsemi Lyfjaverslunar og
um leið hinn almenna hluthafa þess.
Gagnrýni mín á óskiljanlegan felu-
leik gagnvart Verðbréfaþingi Ís-
lands stendur sömuleiðis óhögguð.
Þrætur um málefni Frumafls og
Lyfjaverslunar Íslands munu ekki
verða útkljáðar í fjölmiðlum. Í fyrr-
greindu viðtali við Morgunblaðið
rakti ég atburðarás sem vafalaust
verður skoðuð nánar af þar til bær-
um aðilum á næstu vikum og mán-
uðum. Ég hef í þessari greinagerð
áréttað aðalatriði málsins, annars
vegar um vanefndir á gerðu sam-
komulagi og hins vegar um forsend-
ur fyrir verðmati á Frumafli. Það er
eðlilegt að ágreiningi í jafnumfangs-
miklu máli sem þessu verði skotið til
dómstóla og ég mun að sjálfsögðu
leita réttar míns í þeim farvegi.
Umræðu um meint siðleysi mitt í
viðskiptum vísa ég til föðurhúsanna
og tel hana ómaklega og gerða í
þeim tilgangi að slá ryki í augu al-
mennings og tilraun til að draga at-
hygli frá aðalatriðum og staðreynd-
um þessa máls.
Reykjavík, 31. júlí 2001,
Jóhann Óli Guðmundsson.“
Yfirlýsing frá Jóhanni Óla Guðmundssyni
Málefni Frumafls og
Lyfjaverslunar Íslands
strets-
gallabuxur
tískuverslun
v. Nesveg, Seltjarnarnesi.
sími 561 1680.
Kringlunni - sími 588 1680.