Morgunblaðið - 01.08.2001, Qupperneq 50
DAGBÓK
50 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Max-
im Gorkiy kemur og fer
í dag, Dettifoss og
Snorri Sturluson koma
í dag. Polarka, Oceanus
og Adriana fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Bootes og Ostroviets
fóru í gær, Brúarfoss
fer frá Straumsvík í
dag, Kapitan Dropinin
kom í gær.
Viðeyjarferjan. Tíma-
áætlun Viðeyjarferju:
Mánudaga til föstudaga:
til Viðeyjar kl. 13, kl. 14
og kl. 15, frá Viðey kl.
15.30 og kl. 16.30. Laug-
ardaga og sunnudaga:
Fyrsta ferð til Viðeyjar
kl. 13 síðan á klukku-
stundar fresti til kl. 17,
frá Viðey kl. 13.30 og
síðan á klukkustundar
fresti til kl. 17.30.
Kvöldferðir eru föstu-
og laugardaga, til Við-
eyjar kl. 19, kl. 19.30 og
kl. 20, frá Viðey kl. 22,
kl. 23 og kl. 24. Sérferð-
ir fyrir hópa eftir sam-
komulagi. Viðeyj-
arferjan sími 892 0099.
Lundeyjarferðir dag-
lega, brottför frá Við-
eyjarferju kl. 10.30 og
kl. 16.45, með viðkomu í
Viðey u.þ.b. 2 klst., sími
892 0099.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrifstofan
er opin alla miðvikud.
frá kl. 14–17. S.
551 4349. Fataúthlutun
og fatamóttaka er opin
annan og fjórða hvern
miðvikud. í mánuði, frá
kl. 14–17, s. 552 5277.
Sumarlokun í júlí og
ágúst.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað er í síma
Krabbameinsráðgjaf-
arinnar, 800 4040 frá kl.
15–17.
Mannamót
Norðurbrún 1, Furu-
gerði 1 og Hæð-
argarður 31. Fimmtu-
daginn 9. ágúst nk.
verður farið í ferð í
Borgarfjörð um Kalda-
dal að Húsafelli. Ekið
verður að Barnafossum
og Hraunfossum að
Reykholti þar sem
snæddur verður léttur
hádegisverður. Þaðan
verður svo ekið um
Geldingadraga og Hval-
fjörð til Reykjavíkur.
Lagt verður af stað frá
Norðurbrún 1 kl. 8.30
og síðan teknir farþegar
í Furugerði og Hæð-
argarði. Skráning í
Norðurbrún í síma 568-
6960, í Furugerði í síma
553-6040 og í Hæð-
argarði í síma 568-3132.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl. 9–16 al-
menn handavinna og
fótaaðgerð, kl. 9.30
morgunkaffi/dagblöð, kl.
10 banki, kl. 11.15 mat-
ur, kl. 13 spiladagur, kl.
15 kaffi. Vegna mikillar
þátttöku verður önnur
borgarferð farin
fimmtudaginn 16. ágúst,
Ekið um borgina og
nýju hverfin skoðuð.
Kaffi drukkið í Golf-
skála Reykjavíkur,
Grafarholti. Lagt af
stað kl. 13. Skráning í
síma 568-5052 í síðasta
lagi fyrir 13. ágúst. Allir
velkomnir.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–12
opin handavinnustofan,
kl. 13 frjáls spila-
mennska, kl. 13–16.30
opin smíðastofan, kl.
10–16 púttvöllurinn op-
inn.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl
16.30–18.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting
og verslunin opin til kl.
13, kl. 11.30 matur, kl.
13 föndur og handa-
vinna, kl. 15 kaffi.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Félagsheimilið Hraun-
sel verður lokað vegna
sumarleyfa starfsfólks
til 12. ágúst.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin alla virka daga frá
kl. 10–13.
Matur í hádeginu.
Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Hlemmi kl.
9.45.
Miðvikudaginn 1. ágúst
almennur félagsfundur
kl. 17.00. Fundarefni:
Húsnæðismál og önnur
mál. Munið að taka
félagsskírteinin með.
Dagsferð þriðjudaginn
7. ágúst, Hítardalur–
Straumfjörður. Brottför
frá Glæsibæ kl. 9.
Þeir sem hafa skráð sig
vinsamlegast sækið far-
miðann fyrir 4. ágúst.
Leiðsögn Þórunn Lár-
usdóttir. Eigum laus
sæti. Dagsferð 18.
ágúst. Fjallabaksleið
syðri í samvinnu við
FEB og Ferðaklúbbinn
Flækifót. Brottför frá
Glæsibæ kl. 8. Leiðsögn
Pálína Jónsdóttir o.fl.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 f.h. í síma 588-2111.
Upplýsingar á skrif-
stofu FEB kl. 10 til 16 í
síma 588-2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæf-
ingar á vegum ÍTR í
Breiðholtslaug á þriðju-
dögum og fimmtudögum
kl. 9.30. Púttvöllurinn er
opinn virka daga kl. 9–
18, Kylfur og boltar í af-
greiðslu sundlaug-
arinnar til leigu. Allir
velkomnir. Veitingabúð
Gerðubergs er opin
mánudaga til föstudaga
kl. 10–16. Félagsstarfið
lokað vegna sumarleyfa
frá 2. júlí–14. ágúst.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–11
morgunkaffi, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 9–12 hár-
greiðsla, 11.30–13 há-
degismatur, kl. 15–16
eftirmiðdagskaffi.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10–17, kl. 10.30
boccia, kl. 13 félagsvist,
kl. 17 bobb.
Gullsmári Gullsmára 13.
Lokað vegna sum-
arleyfa til 7. ágúst.
Hraunbær 105. Kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 11
banki, kl. 11–12 pútt, kl.
13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir,
hárgreiðsla.
Norðurbrún 1. Fótaað-
gerðastofan opin frá kl.
9–14, en lokuð 16.–20.
júlí. Kl. 13–13.30 bank-
inn, kl. 14 félagsvist,
kaffi og verðlaun. Grill-
veisla verðu haldin
fimmtudaginn 2. ágúst,
húsið opnað kl. 18, mat-
reiðslumenn koma og
grilla á staðnum. Har-
mónikkuleikur, happ-
drætti fylgir að-
göngumiða. Vinsamlega
skráið þátttöku á Norð-
urbrún 1 s. 568-6960
sem fyrst. Allir vel-
komnir.
Vesturgata 7. Kl. 8.25
sund, kl. 9 dagblöð og
kaffi, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 11.45
matur, kl. 14.30 kaffi.
Handavinnustofan opin
án leiðbeinanda til 20.
ágúst.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 almenn
handmennt, kl. 10
morgunstund og fótaað-
gerðir og bókband, kl.
11.45 matur, kl. 13.30
bókband, kl. 13 kóræf-
ing, kl. 14.30 versl-
unarferð, kl. 14.30 kaffi.
Mosfellingar – Kjalnes-
ingar og Kjósverjar 60
ára og eldri.
Komið og takið þátt í
góðri og hollri hreyf-
ingu.
Halldóra Björnsdóttir
íþróttakennari byrjar
með gönguferðirnar
miðvikudaginn 1. ágúst.
Lagt verður af stað frá
Hlaðhömrum kl. 16.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Minningarkort
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs Maríu Jóns-
dóttur flugfreyju eru fá-
anleg á eftirfarandi
stöðum: Á skrifstofu
Flugfreyjufélags Ís-
lands, s. 561-4307/fax
561-4306, hjá Halldóru
Filippusdóttur, s. 557-
3333 og Sigurlaugu
Halldórsdóttur, s. 552-
2526.
Í dag er miðvikudagur 1. ágúst,
213. dagur ársins 2001. Bandadagur.
Orð dagsins: „Þetta hef ég talað við
yður, svo að þér eigið frið í mér. Í
heiminum hafið þér þrenging. En
verið hughraustir. Ég hef sigrað
heiminn.“
(Jóh. 16, 33.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
ÞEIRRI hugmynd var skotið aðVíkverja nýverið hvort ekki
væri ráð að nefna Nesjavallaveg-
inn, sem liggur milli Reykjavíkur
og Nesjavallavirkjunar, öðru nafni
og kalla hann Dyraveg. Fannst
Víkverja ábendingin ekki fráleit
þegar að er gáð og Dyravegur er
að mati hans skemmtilegra nafn og
tilkomumeira en Nesjavallavegur.
Téður Nesjavallavegur var lagð-
ur þegar ráðast átti í gerð orku- og
vatnsnýtingarversins í landi Nesja-
valla utan í Hengilssvæðinu. Er
þetta ágætur vegur, lagður bundnu
slitlagi en nokkuð öldóttur. Ekki
veit Víkverji gjörla hver vann
verkið en nokkurt frumkvæði hef-
ur komið frá yfirvöldum Reykja-
víkurborgar sem stóðu að Nesja-
vallavirkjun eins og kunnugt er.
Vegagerðin hefur eflaust haft
verkið formlega á könnu sinni. Til-
urð vegarins og tilgangur hans
hefur trúlega ráðið mestu um
nafngiftina og enn hlýtur borgin að
eiga þar nokkurn hlut að máli.
Dyravegur var gömul alfaraleið
milli Mosfellssveitar og Árnes-
sýslu. Lá hún um Bolavelli og
norðan undir Lyklafelli um Dyr og
niður að Nesjavöllum en Dyr þess-
ar eru skarð til austurs úr Dyradal
og Dyrafjöll heita fjölbreytilegir
móbergs- og klettaásar norðaustur
úr Henglinum. Nú liggur hinn ný-
legi vegur kannski ekki algjörlega
um sömu slóðir og hinn gamli
Dyravegur en um Dyrnar eigi að
síður og má því allt eins nota það
kennileiti til að nefna veginn eins
og Nesjavelli þar sem vegurinn
kemur inn á Grafningsveginn.
Víkverji ekur þennan veg marg-
oft á hverju ári og þreytist seint á
þessari síbreytilegu leið. Mun hann
fleyta þessari nafngift í umræðu
um Nesjavallaveg og leyfa sér að
tala um Dyraveg svona í tilrauna-
skyni. Væri fróðlegt að vita hvort
þar til bær stjórnvöld, veganafna-
stjórnvöldin, hafa skoðun á þessu
máli. Hver ræður annars nafngift á
vegum? Er þetta kannski allt til-
viljunum háð? Eða sérvisku? Það
hefði nú einhvern tíma þótt verð-
ugt verkefni að koma á stofnun um
veganöfn. Og er áreiðanlega ekki
oft seint.
x x x
OFT verða mönnum á ýmis mis-mæli og kemur það m.a. fyrir
í fréttaútsendingum í útvarpi og
sjónvarpi. Við því er svo sem ekk-
ert að gera, menn tala kannski lítt
undirbúið og þá er ekki alltaf hægt
að gera allt kórrétt. Víkverja
finnst hins vegar miður þegar
fréttamenn flytja texta sinn og
gera sig seka um ambögur sem eru
algjörlega óþarfar. Fréttir sem
þeir semja og lesa inn á band eða
eru í það minnsta undirbúnar eiga
að vera frekar lausar við slíkar
ambögur. Snemma í vikunni mátti
t.d. heyra í fréttum ríkissjónvarps-
ins setningu eins og þessa: Rökin
fyrir því að... eru sú (!). Það er eins
og menn gleymi hvernig setningin
byrjar og skella síðan einhverjum
botni í hana með þessum árangri.
Þetta hlýtur bara að skrifast á
reikning fljótfærni því með því að
lesa textann einu sinni yfir hefði
svona villa verið lagfærð umsvifa-
laust.
x x x
LANDSMENN hafa nú fengiðskattaglaðninginn og kætast
eða gráta eftir atvikum. Víkverja
tókst eftir nokkra stunda að ráða
fram úr upplýsingunum á seðli sín-
um en spyr hvort ekki sé hægt að
gera þetta einfaldara og skýrara.
MIG langar að senda Ragn-
heiði Steindórsdóttur mín-
ar bestu þakkir fyrir lestur
á útvarpssögunni Anna,
Hanna, Jóhanna, sem hún
las á Rás 1. Hún er einstak-
lega skemmtilegur upples-
ari, les dásamlega og hvert
atriði verður svo lifandi.
Hafðu mínar bestu þakkir
fyrir frábæran lestur.
Svava.
Þakkir til
Ragnhildar B.
VIÐ erum gestir sem kom-
um stundum í Dvöl í Kópa-
vogi. Okkur langar að
þakka Ragnhildi B. fyrir
ómetanlegan stuðning og
alla þá gleði sem hún veitti
okkur með sinni kærleiks-
ríku ástúð og blíðu, sem
geislaði alltaf frá henni.
Hún var okkur ómetanleg.
Herti okkur alltaf upp.
Manni fannst allt vera í
lagi, þegar hún birtist ljóm-
andi af gleði og kátínu.
Aldrei hallmælti hún fólki,
tók alltaf upp hanskann
fyrir alla og svona fólk hitt-
ir maður sjaldan á lífsleið-
inni. Við söknum þín, stað-
urinn verður aldrei eins
síðan gleðigjafinn fór og við
sendum þér þakklætis og
ástarkveðjur.
Gestir sem koma í Dvöl.
Tapað/fundið
Grænt peninga-
veski tapaðist
LÍTIÐ grænt peningaveski
týndist nýlega, líklega við
Austurver eða í Fossvogi.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 588-4407.
Brúnn
leðurjakki tapaðist
BRÚNN millisíður leður-
jakki var tekinn í misgrip-
um á Einari Ben. fyrir
stuttu. Í vasanum var Pan-
asonic GSM sími og lyklar.
Góðum fundarlaunum heit-
ið. Vinsamlegast hringið í
síma 699-4252 eða komið
jakkanum til skila á Einar
Ben.
Nýtt reiðhjól
hvarf frá Hringbraut
NÝTT Giant reiðhjól með
tveimur dempurum, silfur-
grátt að lit, hvarf úr portinu
hjá versluninni Nóatún við
Hringbraut, miðvikudags-
kvöldið 25. júlí sl. á milli kl.
21-22. Hjólið var kyrfilega
fest. Upplýsingar í síma
552-0854.
Tarotspil
MAÐUR hafði samband við
Velvakanda og langaði að
vita hvort einhver vissi
hvar væri hægt að læra á
Tarotspil. Upplýsingar í
síma 690-1368.
Gróf hálsfesti tapaðist
GRÓF hálsfesti úr Túrkis-
steinum tapaðist frá Kaffi
List og upp í Hlíðar, aðfara-
nótt föstudagsins 20. júlí sl.
Skilvís finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 551-5251.
Dýrahald
Læða fæst gefins
FJÖGURRA mánaða læða
fæst gefins á gott heimili.
Hún er kassavön. Upplýs-
ingar í síma 554-0902 eða
864-4936.
Persnesk læða
AF sérstökum ástæðum
fæst gefins 1½ árs persn-
esk læða. Upplýsingar í
síma 861-3755.
Páfagaukur flaug
út um gluggann
HVÍTUR lítill páfagaukur
með bláan blett á bakinu
flaug út um glugga í Folda-
hverfi í Grafarvogi, föstu-
daginn 27. júlí sl. Hann er
mjög gæfur. Upplýsingar í
síma 567-5450 eða 899-
8189.
Kisa í óskilum
UNG grábröndótt læða
með bláa hálsól með bjöllu,
fannst við Lyngberg 3 í
Hafnarfirði. Hún hefur ver-
ið að sniglast þar í kring
svolítinn tíma. Upplýsingar
í síma 565-1382.
Títla er týnd
TÍTLA er smávaxin læða
sem týndist aðfaranótt 7.
júlí sl. Hún býr í Þingholts-
stræti 8, en gæti verið kom-
in langt að heiman þar sem
hún hefur verið týnd í rúm-
ar þrjár vikur. Hún er
óvenjuleg á litinn, svört
með ljósum yrjum. Títla
hefur það sérkenni að hálf
hakan er ljós en hálf svört.
Hún er eyrnamerkt með
tölunni 56 en er ólarlaus. Ef
þú telur þig hafa séð hana
vinsamlegast hafðu sam-
band við Sigrúnu s. 695-
4835 eða Guðmund s. 695-
9482.
Fundarlaun.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þakkir til
Ragnheiðar
Steindórsdóttur
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 kleifur, 8 hnöttum, 9
sloka í sig, 10 jurt, 11
smávaxin, 13 uppskrift,
15 soltin, 18 garfar, 21
höfuðborg, 22 skordýrs,
23 dánardægur, 24 aftr-
aðir.
LÓÐRÉTT:
2 gjafmild, 3 mergð, 4
Eistlendinga, 5 kvendýr,
6 greiðsla, 7 gljálaust,
12 greinir, 14 kona, 15
róa, 16 snakilli, 17 gras-
flötur, 18 jurtar, 19 sjúgi,
20 tala.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 horsk, 4 fersk, 7 pútur, 8 remma, 9 nem, 11
röng, 13 ermi, 14 álfur,
15 holt, 17 reim, 20 úði, 22 ýlfur, 23 leður, 24 akarn, 25
afræð.
Lóðrétt: 1 hopar, 2 rotin, 3 korn, 4 form, 5 ræmur, 6
klafi, 10 erfið, 12 gát, 13 err, 15 hnýta, 16 lyfta, 18 eiður,
19 morið, 20 úrin, 21 ilja.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16