Morgunblaðið - 01.08.2001, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 51
DAGBÓK
Nýbýlavegi 12,
Kópavogi,
s. 554 4433.
Bolir
frá kr. 990. Stórar stærðir.
Stuttbuxur
frá kr. 990.
St. 38—56
SUÐUR spilar þrjú grönd
eftir innákomu vesturs á
spaða:
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♠ 43
♥ DG1097
♦ Á2
♣ ÁD73
Suður
♠ ÁD2
♥ 83
♦ KG954
♣ KG2
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 lauf
1 spaði 2 hjörtu Pass 2 grönd
Pass 3 grönd Allir pass
Út kemur spaðagosi og
suður fær fyrsta slaginn á
drottninguna. Hvernig er
best að spila? Sagnhafi telur
á fingrum sér upp í átta
örugga slagi og þarf að búa
til einn á hjarta eða tígul. Það
er fljótséð að ekki vinnst tími
til að vinna slag úr hjartalitn-
um, svo böndin berast að tígl-
inum. Og þá vaknar kannski
spurningin hvort rétt sé að
taka ásinn og svína gosanum,
eða taka tvo efstu fyrst. Sem
er í sjálfu sér áhugavert við-
fangsefni, en snertir ekki
þetta spil með beinum hætti.
Norður
♠ 43
♥ DG1097
♦ Á2
♣ ÁD73
Vestur Austur
♠ KG1098 ♠ 765
♥ Á5 ♥ K642
♦ D1076 ♦ 83
♣ 98 ♣ 10654
Suður
♠ ÁD2
♥ 83
♦ KG954
♣ KG2
§
Þetta er spil sem þarf að
nálgast eins og kötturinn
heitan grautinn – í stað þess
að ráðast til atlögu strax eru
slagirnir fjórir á lauf teknir.
Grauturinn kólnar á meðan.
Vestur má missa hjarta-
fimmuna í þriðja laufið, en
það síðasta ræður hann ekki
við. Hann verður að henda
spaða og þá er hægt að sækja
slag á hjarta í rólegheitum.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
LJÓN
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert kraftmikill og litríkur
einstaklingur og hefur alla
þá eiginleika til að bera sem
prýða góðan foringja.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er hverjum manni nauð-
synlegt að vera einn með sjálf-
um sér öðru hverju og láta
aðra um að halda um stjórn-
völinn. Hafðu engar áhyggjur
á meðan.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Allir hlutir þurfa sinn undir-
búning því flas er ekki til fagn-
aðar. Varastu að láta tilfinn-
ingarnar hlaupa með þig í
gönur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Með örlítilli fyrirhyggju ættir
þú að geta sveigt atburða-
rásina þér í hag. Gættu þess
þó að missa ekki yfirsýnina.
Sinntu ástvinum þínum af al-
úð.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Allt hefur sinn stað og stund
undir sólinni og nú þarftu ekki
annað en grípa tækifærið þeg-
ar það gefst. Farðu þér samt í
engu óðslega.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Forvitni þín leiðir þig inn á
áhugaverðar brautir svo þú
skalt vera jákvæður og und-
irbúa þig og taka vel á móti því
sem á fjörur þínar rekur þar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Tillitssemin er gulls ígildi og
þú ættir að minnast þess þeg-
ar þér finnst ekkert ganga
upp hjá þér og allt vera öðrum
að kenna.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Sá sem þú síst áttir von á
skýtur nú upp kollinum og
réttir fram sáttarhendi. Taktu
boðinu og þú munt sjá áhrifa-
mátt fyrirgefningarinnar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Allir geta á sig blómum bætt.
Þú ert hugrakkur og skalt
taka þeim áskorunum sem þú
færð og læra eitthvað nýtt
sem víkkar út sjóndeildar-
hringinn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Vertu ekkert að velta þér upp
úr fortíðinni en reyndu heldur
að losna við reiðina því aðeins
þá ertu fær um að halda áfram
til framtíðar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er gaman að njóta augna-
bliksins þegar allar aðstæður
eru réttar. Láttu það eftir þér
að vera þú sjálfur því það gef-
ur mestu lífsfyllinguna.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þótt rómantíkin blómstri nú í
lífi þínu máttu ekki alveg
gleyma þínum gömlu og góðu
vinum. Þiggðu því heimboð
þeirra þegar þau bjóðast.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hefur fært miklar fórnir
fyrir aðra og þótt svo virðist
að það hafi þótt sjálfsagt
muntu fljótt sjá að annað er
raunin og þér verður ríkulega
launað.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
Kvöldvers
Sólin til fjalla fljótt
fer að sjóndeildarhring,
tekur að nálgast nótt,
neyðin er allt um kring.
Dimmt er í heimi hér,
hættur er vegurinn;
ljósið þitt lýsi mér,
lifandi Jesús minn.
Hallgrímur Pétursson
Frammistaða Braga Þor-
finnssonar (2.292) á EM
einstaklinga í Ohrid í
Makedóníu var afburðagóð.
Hann náði sínum fyrsta
áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli enda fékk
hann 6 vinninga af 13
mögulegum í sterkasta
móti sem hann hefur tekið
þátt í. Hann
hefði jafnvel
getað fengið
fleiri vinninga
miðað við
tækifærin sem
gáfust. Staðan
er dæmi um
slíkt þar sem
hann hafði
hvítt gegn hol-
lenska stór-
meistaranum
Dimitry Rein-
derman
(2.539). 43.
Kh2? Hvítur
gat komist hjá
þráskák með því að leika
43. Kh1! Svartur stendur
þá frammi fyrir óyfirstíg-
anlegum erfiðleikum. Besta
tilraunin er 43. ...Dxd1+
44. Kh2 Dd4 en eftir 45.
Dg5+ Kh8 46. Dc1! getur
svartur ekki komið í veg
fyrir með góðu móti að
hvítur veki upp nýja
drottningu. Eftir textaleik-
inn tryggir svartur sér
jafntefli. 43. ... De5+! 44.
Kg1 De1+ 45. Kh2 Dg3+
og jafntefli samið.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Átt-ræður er í dag, 1.
ágúst, Halldór M. Ólafsson,
fyrrverandi vörubifreiða-
stjóri frá Ísafirði, nú búsett-
ur í Hafnafirði. Hann held-
ur upp á daginn með
eiginkonu sinni, Elísabetu
Jónsdóttur, hjá börnum
þeirra og fjölskyldum í Nor-
egi.
Hlutavelta
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 5.371 kr. og afhentu
Blindrafélaginu peningana. Þær heita Anna Monika,
Valdís Björk og Stacy Alla.
Ljósmynd/Arnaldur Halldórsson
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags-
blað. Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100,
sent í bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
90 ÁRA AFMÆLI. Ámorgun, fimmtudag-
inn 2. ágúst, verður níræður
Úlfar Þórðarson augnlækn-
ir, Bárugötu 13, Reykjavík.
Úlfar fagnar þessum tíma-
mótum með því að taka á
móti vinum og vandamönn-
um í Valsheimilinu á Hlíð-
arenda á afmælisdaginn kl.
17–20.
NORÐURLANDAMÓTIÐ í svif-
drekaflugi var í fyrsta sinn haldið á
Íslandi nú í júlímánuði. 23 keppend-
ur voru skráðir til leiks. Áætlað var
að keppa á Búrfelli, en sökum veðurs
á Suðurlandi keppnishelgina var
keppnin færð á Norðurland og end-
aði í Fnjóskadal. Verkefnið (þrautin)
var 30 km flug norður dalinn.
Aldrei áður hafði verið flogið
þessa leið á svifdreka, þannig að
þetta var bæði spennandi og
skemmtileg keppni.
Úrslit í einstaklingskeppni:
1. Árni Gunnarsson, Ísland (259
stig) 2. Jón Sveinsson, Ísland (234
stig) 3. Lars Lauridsen, Danmörk
(224 stig) 4. Lárus Halldórsson, Ís-
land (219 stig) 5. Charles Gjorup,
Danmörk (198 stig).
Ísland vann einnig í liðakeppninni
en þar giltu þær reglur að efstu
fimm frá hverju landi voru í liðinu.
Þeir sem einnig voru í íslenska lið-
inu voru Sveinbjörn Sveinbjörnsson
(189 stig) og Friðrik Andersen (155
stig).
Árni Gunnarsson, nýbakaður
Norðurlandameistari.
Ísland Norðurlanda-
meistari í svifdrekaflugi
FORSALA aðgöngumiða á menning-
ar- og fjölskylduhátíðina Galdrastef á
Ströndum sem haldin verður í Bjarn-
arfirði á Ströndum dagana 10.–12.
ágúst nk. er hafin. „Hægt er að nálg-
ast miða á eftirfarandi stöðum: Ísa-
fjörður: Vesturferðir ehf. Hólmavík:
Galdrasýning á Ströndum. Akureyri:
Upplýsingamiðstöð ferðamála. Egils-
staðir: Upplýsingamiðstöð ferðamála.
Einnig er hægt að nálgast miða á
Netinu á http://www.midasala.is. All-
ar upplýsingar um menningarhátíð-
ina Galdrastef á Ströndum er að finna
á heimasíðu Galdrasýningar á
Ströndum. http://www.vestfirdir.is/
galdrasyning,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
„Það sem hæst ber á Galdrastefi á
Ströndum eru án efa stórtónleikar
hljómsveitarinnar Sigur Rós sem far-
ið hefur sigurför um heiminn með
sína einstöku tónlist að undanförnu.
Sigur Rós mun tjalda öllu sínu besta,
strengjasveitinni ásamt Steindóri
Andersen kvæðamanni. Þetta verða
einu tónleikar sveitarinnar á Íslandi
það sem af er ári. Hátíðin verður til-
einkuð minningu þeirra sem brenndir
voru á báli á 17. öld fyrir galdur.
Táknræn minningarathöfn verður
haldin eftir tónleika Sigur Rósar á
föstudagskvöldinu,“ segir þar jafn-
framt.
Fleiri tónlistarmenn koma fram á
laugardeginum s.s. Megas, Hilmar
Örn Himarsson, Gulli kuklari, Andrea
Gylfa og Eddi Lár og fleiri. Flutt
verður sérsamið tónverk Hilmars
Arnar fyrir hátíðina þar sem túlkaðir
verða 1.000 ára galdraatburðir í
Bjarnarfirði með tónlist og flugeld-
um. Aðgöngumiðaverð kr. 5.000. For-
sölumiðaverð kr. 4.000. Fjölskyldutil-
boð – ókeypis fyrir 12 ára og yngri.
Sérstakt Tilberaklúbbsverð er kr.
2.500. Hægt er að ganga í Tilbera-
klúbbinn á heimasíðu Galdrasýningar
á Ströndum. http://www.vestfirdir.is/
galdrasyning/tilberakl.html Tjald-
svæði eru innifalin í miðaverði,“ segir
í fréttatilkynningu.
Galdrastef á Ströndum
AÐRA helgi í ágúst næstkomandi
munu niðjar Katrínar Jónsdóttir f,
29. mars 1855, og Sveins Arnfinns-
sonar f, 29. apríl 1850, ábúenda á
Torfastöðum í Grafningu um ára-
bil, halda ættarmót í veitinga-
staðnum Fossbúanum að Skógum
undir Eyjafjöllum og þar í grennd.
Gert er ráð fyrir að þeir móts-
gestir sem lengst hyggjast dvelja
á staðnum byrji að koma þegar á
föstudeginum, en laugardaginn 11.
ágúst verður aðaldagur ættar-
mótsins.
Setning verður kl. 14:30 en eftir
það verður fjölbreytt dagskrá
fram á kvöld.
Niðjamót Katrínar og
Sveins frá Torfastöðum
HÓPUR karla, sem greinst hafa
með krabbamein í blöðruhálskirtli,
stendur fyrir rabbfundi í húsi
Krabbameinsfélagsins við Skógar-
hlíð 8 í Reykjavík í dag.
Fundurinn hefst kl. 17 og er
boðið upp á kaffi og meðlæti.
Fundurinn er óformlegur þar sem
menn miðla af reynslu sinni af
meðferð krabbameinsins. Hópur-
inn hefur staðið fyrir fundum sem
þessum fyrsta miðvikudag í mán-
uði.
Rabbað um
krabbamein í
blöðruhálskirtli
FRÉTTIR
„SÍÐUSTU ábúendur í Vatnskoti í
Þingvallasveit voru álitnir galdra-
menn síns tíma, en voru í reynd
frumkvöðlar og uppfinningamenn.
Símon Daníelsson, bóndi í Vatnskoti,
var jafnvígur á tré og járn, gerði við
klukkur, og framleiddi niðursuðu-
mat fyrir fjölskyldu sína og ná-
grannabændur. Teknar hafa verið
saman heimildir, bæði ljósmyndir og
ritað mál, varðandi Vatnskot og af-
komendur Símonar og settar á netið.
Bent er á slóðina http://fashiontv.is.“
Síðasti bóndinn í
Þjóðgarðinum á
Þingvöllum