Morgunblaðið - 01.08.2001, Side 53

Morgunblaðið - 01.08.2001, Side 53
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 53 „ÉG var að segja Róberti frá teiknimyndasöguhetjunni Jonah Hex sem var lítt þekktur kúreki en við bræðurnir héldum mikið upp á,“ útskýrir gítarleikarinn Ragnar Emilsson. „Þá samdi Róbert eitt lag honum til heiðurs í kúrekastíl og við ákváðum að hafa tónlist sveitarinnar alla í þeim anda, með þessum kúreka- undirtón.“ En umræddur Róbert er einnig gítarleikari og sonur Reynis rak- ara á Akureyri. Hinir kúrekarnir, sem skipa bandið, eru bassaleik- arinn Jóhann Ásmundsson og trommuleikarinn Helgi Svavar Helgason. Þeir halda tónleika á Vídalín Austurstræti í kvöld og hefjast þeir kl. 22.30. Mest í gamni gert „Þetta er djass með kántríáhrif- um mætti segja,“ heldur Ragnar áfram. „Heyrast munu kántrístef og kántrí„lick“ frá gíturunum, og stundum notum við rennihólk eins og blúsaranir voru með og er upphaflega flöskustútur sem not- aður var til að ná þessu stálgítar- eða blúskántríhljómi. En þetta er samt djass og við spilum djass- standarda inni á milli en reynum að gefa þeim öllum einhvers kon- ar villtavestursmeðferð,“ segir Ragnar og viðurkennir að þetta hljóti nú að vera nýjung í tónlist- arflórunni á Íslandi. „Á dagskránni eru tvö frum- samin lög, nokkrir standardar og síðan lög eftir bassaleikarann Mark Johnsson sem hefur samið lög í þessum kúrekastíl og hefur haft í bandinu sínu gítarleikara á borð við Bill Frisell, John Scho- field og Pat Matheny,“ útskýrir Ragnar og segir þá Róbert munu skipta sólóunum bróðurlega á milli sín, „eða stundum flippum við báðir út í einu“. Ragnar vill taka það fram að dagskráin sé samansett með það í huga að vera skemmtileg og að tónleikarnir verði síður en svo al- varlegir. „Við höfum samt æft dagskrána sérstaklega fyrir þessa tónleika og lagt mikið í hana og menn mega ekki vera með fýlu- svip á tónleikunum,“ segir gít- arleikarinn að lokum og lofar að hann og hinir kúrekarnir í band- inu verði skælbrosandi í kvöld. Morgunblaðið/Billi Þeir eru sallarólegir kúrekar norðursins; Jóhann, Ragnar, Helgi Svavar og Róbert eru Jonah Hex. Kántrídjass í kúrekastíl Jonah Hex leikur á Vídalín í kvöld TOPP 20 mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.