Morgunblaðið - 10.08.2001, Page 18
ERLENT
18 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EVRAN, nýi samevrópski gjaldmiðillinn, kemur
til sögunnar eftir aðeins tæpa fimm mánuði en al-
menningur í evrulöndunum er þó lítið farinn að
velta fyrir sér umskiptunum. Það sama verður þó
ekki sagt um glæpalýðinn, sem er nú þegar önn-
um kafinn við að reikna út hvernig hann getur
hagnast á breytingunni.
Peningafalsarar og þeir, sem eru í því að
hvítþvo illa fengið fé, eru mjög önnum kafnir um
þessar mundir og líka alls kyns smáglæpamenn,
innbrotsþjófar og aðrir ræningjar. Það er líka
mikið að gera í höfuðstöðvum Europol, Evrópu-
sambandslögreglunnar, þar sem menn hafa aug-
un á kunnum peningafölsurum, fylgjast með pen-
ingaflæði milli landa og láta reglulega frá sér fara
skýrslur til lögreglustöðva og banka.
Innköllunin erfiðust
Um næstu áramót koma 50 milljarðar ein-
stakra mynteininga og 14,5 milljarðar seðla í um-
ferð eða samtals um 65.700 milljarðar ísl. kr.
Verður það mikið vandaverk að koma öllu þessu
fé til skila en líklega verður það enn erfiðara að
safna saman öllum gömlu gjaldmiðlunum í evru-
ríkjunum 12 og raunar víða um heim og koma
þeim til viðkomandi seðlabanka. Það er ekki síst á
þeim vettvangi sem glæpalýðurinn hugsar sér
gott til glóðarinnar.
Willy Bruggeman, sem stjórnar baráttunni
gegn hugsanlegum evrusvindlurum hjá Europol,
segir, að um sé að ræða venjulega svikahrappa og
allt upp í stór og þrælskipulögð glæpasamtök.
6.000 pesetar verða
að 6.000 evrum
„Við höfum þegar fengið fréttir af mönnum,
sem reyna að hafa fé af öldruðu fólki með því að
telja því trú um, að skipti það strax fái það nýju
peningana á betra gengi. Svo má nefna, að nú er
farið að skrá verð í viðkomandi gjaldmiðli og evr-
um og það opnar þjófunum leið. Við getum nefnt
sem dæmi að reikningur á spænsku veitingahúsi
sé til dæmis upp á 6.000 peseta (rúmlega 3.000 kr.
ísl.) en síðan eru stimplaðar inn 6.000 evrur á
greiðslukortið (rúmlega hálf millj. kr.). Talsmað-
ur veitingahússins segir, að um mistök hafi verið
að ræða en því miður er það allt of oft ekki rétt,“
segir Bruggeman.
Bruggeman segir að nokkur fyrirtæki, sem
versla með gjaldeyri, hafi orðið uppvís að því að
breyta hugbúnaðinum og koma örlítilli skekkju
inn í útreikninga. Munar það sáralitlu við ein-
staka afgreiðslu en safnast þegar saman kemur
og vikugróðinn getur verið umtalsverður.
Gömlu seðlarnir falsaðir
Til að gera peningafölsurunum erfiðara fyrir
verður ekkert gefið upp um ýmis einkenni evru-
seðlanna fyrr en á síðustu stundu en menn óttast
hins vegar mest mikið flóð af fölsuðum, gömlum
seðlum.
Bruggeman segir, að glæpamanni, til dæmis í
Moskvu, sem hafi undir höndum 10.000 þýsk
mörk, muni vafalaust finnast það freistandi að
bæta við öðrum 5.000 fölsuðum. Við innköllun
gömlu seðlanna þurfi vissulega að kanna hvort
þeir séu falsaðir en það sé mikið verk og seinlegt.
Þar að auki megi nota gömlu seðlanna í viðskipt-
um í tvo mánuði á næsta ári og það valdi því að
óvenjumikið af seðlum verði í umferð. Meira fé en
ella muni því fara á milli verslana og banka og
ekki muni glæpalýðurinn gráta það.
Svo má líka nefna Pierre frænda og hana Grun-
eldu frænku, sem eiga töluvert af peningum undir
koddanum ef svo má segja, kannski arf, sem þeim
hefur láðst að segja yfirvöldunum frá, eða
greiðslur fyrir svarta vinnu. Margir óttast að fé af
þessu tagi muni vekja óþægilega athygli á þeim
hjá skattyfirvöldum. Við þetta má svo bæta miklu
fjárstreymi frá svokölluðum skattaparadísum.
Mæðir mest
á markinu
Líklega munu gjaldmiðilsskiptin ekki mæða
meira á nokkrum en Winfried Preuss, sem stjórn-
ar baráttunni gegn peningafölsun og fjárglæfrum
hjá þýsku sambandslögreglunni. 40% þýskra
marka eru utan Þýskalands, einkum í Austur-
Evrópu, en segja má, að markið sé helsti gjald-
miðillinn í löndum eins og Kosovo, Svartfjalla-
landi og Bosníu. Þaðan kemur líka mest af föls-
uðum mörkum.
Winfried segir að mjög erfitt sé stunda rann-
sóknir í þessum löndum og þar sé líka mjög auð-
velt að blekkja fólk með fölsuðum seðlum. Sem
dæmi nefnir hann að í einni herferð í Króatíu fyrir
rúmri viku hafi lögreglan gert upptæk fölsuð
mörk fyrir um 900 millj. ísl. kr. að nafnverði og í
Búlgaríu hafa verið falsaðir 500 og 1.000 marka
seðlar, mjög vel gerðir.
Það jákvæða við gjaldeyrisskiptin er að nú
neyðist fólk til að gangast við peningunum sínum
og glæpamennirnir líka. Þá gefst kannski tæki-
færi til að ná til þeirra og fræðast um starfsemina.
Varað við andvaraleysi
og glæpalýð í evrulöndum
AP
Þýskir 20 marka seðlar skoðaðir í útfjólubláu
ljósi. Um 40% af öllum þýskum mörkum eru
utan Þýskalands, einkum í Austur-Evrópu, og
þaðan kemur mest af fölsuðum mörkum.
Gjaldmiðilsskiptin um
næstu áramót í evru-
löndunum eru gífurlega
flókið verkefni.
Haag. AP.
MAUREEN Reagan, dóttir
Ronalds Reagans, fyrrverandi
Bandaríkjaforseta, lést af völd-
um heilaæxlis á miðvikudag.
Hún var sextug að aldri.
Maureen var elsta dóttir
Reagans og fyrstu eiginkonu
hans, leikkonunnar Jane Wy-
man. Hún freistaði þess tvisvar
að ná kjöri á Bandaríkjaþing, en
án árangurs. Síðasta áratuginn
barðist Maureen ötullega fyrir
aukinni vitund um Alzheimer-
sjúkdóminn, sem faðir hennar
þjáist af.
Vísindakirkjan
kærir Frakka
VÍSINDAKIRKJAN svo-
nefnda höfðaði í gær mál gegn
franska ríkinu fyrir mannrétt-
indadómstóli Evrópu. Telur
söfnuðurinn að ný lög um trú-
félög í Frakklandi brjóti gegn
einstaklingsfrelsi.
Lögin heimila dómstólum að
loka sérstrúarsöfnuðum sem
gerst hafa sekir um ákveðin lög-
brot. Vísindakirkjan, sem er
skilgreind sem sértrúarsöfnuð-
ur í Frakklandi, hefur leitt mót-
mæli gegn lögunum og varað
við því að þau veiti dómurum
vald til að taka geðþóttaákvarð-
anir sem skert geti trúfrelsi.
Ýmis ríki, mannréttindasamtök
og önnur trúfélög hafa einnig
lýst áhyggjum af lögunum.
Stuðningsmenn laganna neita
því hins vegar að þeim sé ætlað
að takmarka trúfrelsi, og full-
yrða að þeim sé einungis beint
gegn hópum sem beita þvingun-
um og heilaþvotti til að blekkja
fólk og misnota.
Sprenging í
Feneyjum
SPRENGING varð í helsta
dómshúsinu í Feneyjum
snemma í gærmorgun og telur
lögreglan að um tilræði hafi ver-
ið að ræða. Sprengjan olli tölu-
verðum skemmdum, en ekki
urðu alvarleg meiðsl á fólki.
Sprengingin varð í miðstöðvar-
herbergi dómshússins og fyrst
var talið að gasleki hefði orðið.
Við rannsókn fundust hins veg-
ar leifar af sprengiefni. Silvio
Berlusconi, forsætisráðherra
Ítalíu, var væntanlegur til Fen-
eyja í gærdag, en lögreglan tel-
ur ólíklegt að sprengingin teng-
ist komu hans.
Bosnískir her-
foringjar lýsa
yfir sakleysi
ÞRÍR fyrrverandi yfirmenn í
bosníska hernum kváðust í gær
vera saklausir af ákærum fyrir
stríðsglæpadómstóli Samein-
uðu þjóðanna, en þeim er gefið
að sök að hafa borið ábyrgð á
grimmdarverkum gegn Króöt-
um og Serbum árið 1993.
Þremenningarnir eru fyrstu yf-
irmennirnir í bosníska hernum
sem svara til saka fyrir stríðs-
glæpi í Bosníustríðinu, en dóm-
stóllinn í Haag hefur oft verið
sakaður um að beina spjótum
sínum sérstaklega að Serbum
og Króötum. Mennirnir eru
ákærðir fyrir að bera ábyrgð á
fjöldamorðum, árásum og mis-
þyrmingum á króatískum og
serbneskum stríðsföngum og
óbreyttum borgurum. Saksókn-
arar fullyrða að verstu glæpirn-
ir hafi verið framdir af erlend-
um múslimum, sem kölluðu sig
heilaga stríðsmenn og hlýddu
skipunum þremenninganna.
STUTT
Maureen
Reagan látin
ÍRSKI lýðveldisherinn, IRA, sendi
frá sér yfirlýsingu í gær, þar sem
hann staðfesti að hann væri tilbú-
inn að hefja afvopnun svo að frið-
arferlið á Norður-Írlandi geti
haldið áfram, en einskis var getið
um tímasetningar frekar en í fyrri
yfirlýsingum samtakanna og því
lýstu forystumenn n-írskra sam-
bandssinna tilboð IRA ófullnægj-
andi.
David Trimble, leiðtogi stærsta
sambandssinnaflokksins UUP sem
sagði af sér sem forsætisráðherra
n-írsku heimastjórnarinnar 1. júlí
sl. og kallaði þar með þá pólitísku
kreppu yfir N-Írland sem ekki
hefur fundizt leið út úr ennþá,
sagði í gær að hefji IRA ekki að
afhenda vopn þegar í stað myndi
hann ekki leyfa að hann yrði
endurskipaður forsætisráðherra
heimastjórnarinnar áður en frest-
urinn til þess rennur út nú um
helgina. Heimastjórnin, þar sem
kjörnir fulltrúar n-írskra mótmæl-
enda og kaþólikka sitja við sama
borð, er hornsteinn friðarsam-
komulagsins frá 1998, sem kennt
er við föstudaginn langa. Spáði
Trimble því að brezka stjórnin
muni svipta heimastjórnina völd-
um fyrir laugardagskvöld, er frest-
urinn til að skipa nýjan forsætis-
ráðherra heimastjórnarinnar
rennur út. Sá verður að koma úr
röðum UUP.
Framlengt um sex vikur?
Einn valkostanna sem John
Reid, N-Írlandsmálaráðherra
brezku stjórnarinnar, stendur
frammi fyrir er að svipta heima-
stjórnina völdum í einn dag, en
þar með myndi fresturinn til að
skipa nýja ráðherra sjálfkrafa
framlengjast um sex vikur.
Sá valkostur þykir þó ekki væn-
legur nema einhver teikn berist
um að hreyfing verði í afvopn-
unarmálinu á þessu tímabili.
Frestur til að bjarga n-írsku heimastjórninni rennur út um helgina
IRA
ítrekar
afvopn-
unarvilja
AP
Lífið í Belfast gengur enn sinn vanagang þótt stjórnmálin séu í uppnámi. Hefur ferðamannastraumur til borg-
arinnar ekki verið meiri í annan tíma en nú í sumar en það getur breyst á einni nóttu.
Belfast, Lundúnum. AFP, AP.