Morgunblaðið - 10.08.2001, Qupperneq 31
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2001 31
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
Trésmiðir
og menn vanir byggingarvinnu óskast til
starfa á höfuðborgarsvæðinu við margvísleg
verkefni. Upplýsingar í síma 896 2330, Þorvald-
ur eða 899 5631, Sigurður.
Grunnskóli Vesturbyggðar
Kennarar
Grunnskóli Vesturbyggðar óskar eftir tveimur
kennurum í Bíldudalsskóla. Um er að ræða
kennslu á unglingastigi, bæði almenna kennslu
og raungreinakennslu.
Upplýsingar veitir Ragnhildur Einarsdóttir í
símum 456 1637 og 456 1665.
Góður járnsmiður
Járnsmiðju Óðins ehf. vantar vana járnsmiði
í vinnu sem fyrst. Öll aðstaða ný og mjög góð.
Vélakostur góður, flestar vélar nýlegar. Vinnum
eingöngu við sérsmíði. Vinna á verkstæði og
við uppsetningar, mjög fjölbreytt verkefni.
Nauðsynlegt er að viðkomandi geti unnið eftir
teikningum og sé sjálfstæður og vandvirkur í
vinnubrögðum. Góður starfsandi, allt fjöldskyldu-
menn og er vinnustaðurinn reyklaus. Við þurfum
að bæta tveimur góðum smiðum við í hópinn.
Allar upplýsingar veitir Óðinn Gunnarsson, Járn-
smiðju Óðins, Smiðjuvegi 4b, 200 Kópavogur.
Heppuskóli Hornafirði
Heppuskóli, 8. - 10. bekkur.
Laus staða umsjónarkennara. Vel búinn skóli
með góðri vinnuaðstöðu fyrir nemendur og
kennara.
Upplýsingar gefa skólastjóri í s. 478 1348,
478 1321, 895 6921, gudmundur@heppuskoli.is
og aðstoðarskólastjóri í s. 478 1348 og
478 2136, magnus@heppuskoli.is .
Í boði er húsnæði með niðurgreiddri húsaleigu
og greiddur er flutningsstyrkur.
Umsóknarfrestur er til 14. ágúst.
Skólaskrifstofa Hornafjarðar.
Leikskólakennara og leið-
beinendur athugið
Námskeið í kennsluaðferðum og hugmyndafræði Montessori og Global Education verður
haldið 13.-14. ágúst, 2001. Öll Montessori náms- og kennslugögn tiltæk á staðnum. Verð 6000
kr. með morgunverði, hádegisverði og kaffi. Kennari: Gale Keppler frá Bandaríkjunum. Tak-
markaður fjöldi þátttakenda – hafið samband strax!
Lausar stöður við leikskólann í Áslandi. Enn eru nokkrar lausar stöður við leikskólann.
Áhugasamir hafið samband sem fyrst. Starfsfólk leikskólans getur án endurgjalds fengið
bandaríska vottun eftir tveggja ára reynslu af ofangreindum aðferðum.
Íslensku menntasamtökin ses
Tilkynnið skráningu eða leitið frekari upplýsinga í síma
565 9711 eða 891 9088
Upplýsingar einnig veittar á heimasíðu okkar: www.ims.is
FRÉTTIR
næði fyrir bíla og nú þurfti bara að
fylla það af gömlum góðum bílum.
Ástmar fékk vélstjóraréttindi í vor
og nú hafði hann ágætis tekjumögu-
leika til að láta drauma sína rætast.
En eftir aðeins fáa daga á sjó fórst
báturinn, Una Í Garði, og Ástmar
bróðir með honum.
Fréttirnar af slysinu voru okkur
öllum þungar og var það sérstaklega
erfitt að vera hér vestan hafs, svo
langt frá öllum heima. Eftir að hafa
misst elsta bróður minn, Skarphéðin,
af slysförum fannst mér þetta bara
ekki geta verið að gerast aftur. Þegar
ég var að undirbúa ferðina heim fór
ég út í skúr til að ná í varahlutina sem
Ástmar hafði pantað og voru það
þyngstu spor sem ég hef gengið. En
minningin um góðan dreng lifir og ég
er svo þakklátur fyrir að hafa haft
hann í tuttugu ár. Elsku mamma,
pabbi, Björn Árni og Kristbjörg,
megi Guð vera með ykkur í þessari
miklu sorg. Elsku Ástmar, takk fyrir
að hafa verið svo góður við litlu
frænku þína þegar hún var hjá ykkur
í sumar. Takk fyrir að hafa verið svo
góður við börnin mín. Takk fyrir að
hafa verið litli bróðir minn. Takk fyr-
ir allt saman, Ástmar minn, þín verð-
ur sárt saknað. En við huggum okkur
við að það verða endurfundir, megi
góði Guð geyma þig.
Þinn bróðir,
Þórður Jörgen (Doddi).
Þótt þú sért dáinn, litli bróðir
minn, munu minningar lifa áfram,
næstu ár mun ég standast eða fella
áskoranir sem við skelltum hvor á
annan. Í dag fell ég á einni, ég sagðist
sjá til þess að ef ég lifði þig myndi ég
láta spila „Wake me up before you go
go“ í kveðjuathöfninni þegar fólkið
gengi út. Í dag vinnur þú, því ég gat
ekki staðið við þessa bón þína, eitt
núll fyrir þér. Við reiknuðum með að
við yrðum orðnir gamlir og skrýtnir
kallar þegar að þessari stund kæmi.
Við áttum eftir að gera svo margt, þú
fékkst aldrei litlu frændurna eða
frænkurnar lánaðar til að dæla í þau
sælgæti og æsa þau upp, skila þeim
þannig að við yrðum nokkra daga að
róa þau aftur. Fyrir ári keypti ég
Tottenham-barnatreyju til að gefa
frumburðinum þínum þegar hann
kæmi. Ég vona þó að ófæddu börnin
mín njóti hennar þótt ekkert muni
bæta það að kynnast ekki Ástmari
frænda og látunum sem hann lofaði
okkur.
Takk fyrir að vera til í rétt rúm
tuttugu ár, Lilli minn, takk fyrir allar
minningarnar, þegar þú lærðir að
reima, þegar ég var hjá þér er þú
vaknaðir eftir bílslysið, þegar ég fékk
að ná í bílinn þinn úr tollinum, öll
ferðalögin okkar og milljón fleiri.
Eina huggun mín er sú að þú ert á
góðum stað, örugglega þeim besta í
heimi. Ef hann er það ekki nú þegar
verðið þið bræður mínir, sá litli og sá
stóri, búnir að gera staðinn að
draumastað von bráðar. Þú varst
bara 8 ára þegar stóri bróðir okkar
dó, þá sagðirðu: „Ég öfunda svo
pabba því bræður hans dóu svo ungir
(nokkurra daga), hann kynntist þeim
aldrei og þess vegna var það ekki
eins sárt þegar þeir dóu.“ Seinna átt-
aðirðu þig á því að sama hversu sárs-
aukinn var mikill, þegar hann dó, var
það þess virði að kynnast Skarpa
bróður. Í dag er sársaukinn aftur svo
mikill en samt myndi ég bera hann
þúsundfaldan fyrir lífið sem ég fékk
með þér. Hver minning um þig er
þess virði að ég gráti fyrir hana, þú
varst mér svo mikið, Lilli minn.
Þinn litli bróðir,
Björn Árni.
Þá grét Jesús, Gyðingarnir sögðu:
Sjá hversu hann hefur elskað hann.
(Jóhannes 11:35-36).
Elsku Ástmar, þú varst tekinn allt
of fljótt frá okkur aðeins rúmlega tví-
tugur. Ég get varla trúað þessu. Þeg-
ar ég hugsa til baka þegar ég kynnt-
ist bróður þínum honum Dodda fyrir
átján árum, þú bara 2 ára svo sætur
með rauðu derhúfuna þína. Mér þótti
strax svo vænt um þig. Þér fannst
svo gaman að fara að rúnta með okk-
ur Dodda og á kvöldin þegar við átt-
um að passa þig og við nenntum ekki
að hafa þig vakandi lengur fórum við
bara að rúnta með þig settum hitann
í botn og þú sofnaðir strax. Já, það er
nú búið að hlæja mikið af þessu. Ég
man líka hvað þér þótti gott að koma
upp í til min á morgnana þegar Doddi
var farinn í vinnuna og við kúrðum
okkur saman áður en ég þurfti að
fara með þig á leikskólann. Svo þegar
ég og Doddi eignuðumst Sævar og ég
gerðist dagmamma varst þú auðvitað
í pössun hjá mér og man ég í eitt sinn
sem oftar var ég með uppáhaldsmat-
inn þinn, bjúgu þú borðaðir svo mikið
að þú varðst veikur á eftir og hefur
aldrei getað borðað bjúgu síðan og
auðvitað kenndir þú mér alltaf um
það. Svo var það þegar ég var að
þeyta rjóma í hrærivélinni og þú
hafðir aldrei séð annað eins tækni-
undur því þú hélst að allur þeyttur
rjómi kæmi beint úr rjómasprautu.
Það var svo gaman að fá þig í heim-
sókn fyrir þremur árum þegar þú
varst að jafna þig eftir slysið sem sú
lentir í, þú komst út til okkar í heim-
sókn og notaðir tækifærið og keyptir
Corvettuna þína og við vorum orðin
svo spennt að fá þig í heimsókn aftur
í haust, þú ætlaðir að skoða annan
gamlan bíl og svo auðvitað fara að
borða á Taco Bell. Elsku Ástmar
minn, það væri hægt að halda lengi
svona áfram því við eigum bara góðar
minningar um þig sem við munum
geyma og deila með allri fjölskyld-
unni. Við vitum að Skarphéðinn,
bróðir þinn, hefur verið fyrstur til að
taka á móti litla bróður sínum sem
honum þótti svo vænt um með út-
breiddan faðminn. Elsku tengdafor-
eldrar, Björn Árni og Kristbjörg, það
er erfitt að vera svona langt í burtu
þegar svona mikil sorg knýr dyra
einmitt þegar fjölskyldan á að vera
öll saman, en við fáum ekki öllu ráðið,
og er hugurinn ávallt hjá ykkur. Ég
bið góðan Guð að hjálpa okkur og
styrkja í þessari hræðilegu sorg.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Takk fyrir allar samverustundirn-
ar, elsku Ástmar.
Kimberly og Sævar.
Fleiri minningargreinar um Ást-
mar Ólafsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
HIN árlega sumarferð framsóknar-
manna verður farin laugardaginn 11.
ágúst nk. Farið verður um Suður-
land. Lagt er af stað frá BSÍ kl. 08:00
og er Hveragerði fyrsti áfangastað-
ur. Þar verður Garðyrkjuskóli ríkis-
ins skoðaður undir leiðsögn. Eftir að
hafa skoðað sýninguna í Ljósafoss-
virkjun verður áð í Grímsnesinu þar
sem snæddur verður hádegisverður.
Fólk er beðið að taka með sér nesti.
„Eftir hádegisverðinn munum við
aka í Skálholt, Laugarás og Skeið og
áfram til Fljótshlíðar þar sem við
munum meðal annars skoða um-
merki Suðurlandsskjálftans á sl. ári.
Síðan verður ekið til Víkur í Mýrdal
þar sem boðið verður upp á kaffihlað-
borð í veitingaskálanum í Vík. Um
hálfsex verður ekið eins og leið liggur
að Laugarvatni þar sem Ólafur Örn
Haraldsson þingmaður Reykvíkinga
býður okkur í heimsókn á heimili for-
eldra sinna og býður upp á léttar
veitingar. Áætluð heimkoma til
Reykjavíkur er kl. 22:00.
Verð er kr. 3.800 og innifalið er
akstur, fararstjórn og kaffihlaðborð í
Vík. Miðapantanir eru í síma 552-
4020,“ segir í fréttatilkynningu.
Fararstjórar verða Ólafur Örn
Haraldsson og Pálmi Eyjólfsson.
Sumarferð framsóknar-
félaganna í Reykjavík
HÓPUR tónlistarmanna frá Hörða-
landi í Noregi heldur tónleika í
Reykholtskirkju í kvöld, föstudags-
kvöld, kl. 21. Hópinn skipa þjóðlaga-
og kvæðasöngkonan Reidun Horvei,
Frank Henrik Rolland, leikur á
harðangursfiðlu og Sigbjörn Apel-
and á orgel. Þau hafa það að mark-
miði að vekja áhuga á þjóðlagatónlist
og gera hana aðgengilega sem flest-
um og hafa starfað lengi að því að
halda við þjóðlagahefð Hörðalands
með því að iðka hana og kynna innan
lands sem utan.
Á tónleikunum verður flutt dag-
skrá sem listamennirnir kalla „Nør-
ing“. Einnig verða íslensk lög og
kvæði á dagskránni.
Tónleikarnir standa í eina klukku-
stund og er aðgangseyrir 500 kr.
Hópurinn mun að þessu sinni
einnig halda tónleika á Hólahátíð.
Tónlist frá
Hörðalandi í
Reykholtskirkju
LÝST er eftir vitnum að umferðar-
óhappi er varð á Reykjanesbraut til
suðurs skammt norðan gatnamóta
Stekkjarbakka, miðvikudaginn 8.
ágúst kl. 12.53. Þarna varð árekstur
blárrar Toyota Yaris-fólksbifreiðar
og grárrar Kia Pride-fólksbifreiðar.
Ökumenn greinir á um aðdraganda
óhappsins. Þeir sem upplýsingar
geta veitt um mál þetta eru vinsam-
lega beðnir um að hafa samband við
lögregluna í Reykjavík.
Miðvikudaginn 8. ágúst sl. var ek-
ið utan í bifreiðina PE-344 sem er af
gerðinni Daihatsu Carade, grá að lit,
þar sem hún stóð mannlaus og kyrr-
stæð við Endurvinnsluna í Knarrar-
vogi. Tjónvaldur eða vitni að óhapp-
inu eru beðin að hafa samband við
lögregluna í Reykjavík.
Lýst eftir tjón-
valdi og vitnum
UM HELGINA efnir Útivist til ár-
legrar fjölskylduhelgar í Básum á
Goðalandi og er brottför á föstudags-
kvöldinu 10. ágúst kl. 20 frá BSÍ, en
miðar eru seldir á skrifstofunni á
Hallveigarstíg 1.
Að venju er fjölbreytt dagskrá
fyrir unga sem aldna. Leikir, göngu-
ferðir, pylsugrill, kvöldvaka og
margt fleira. Auk þessa er Fimm-
vörðuhálsganga um helgina og
sunnudaginn 12. ágúst kl. 10.30 verð-
ur genginn 6. áfangi Reykjavegar-
ins, frá Vatnsskarði í Bláfjöll.
Fjölskylduhelgi
í Básum
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦