Morgunblaðið - 10.08.2001, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2001 37
GÁMAHÚS BYGGINGAKRANAR STEYPUMÓT
Til sölu eða leigu LIEBHERR
71 EC turnkrani árgerð 2000
með öllum fylgibúnaði.
Til afhendingar strax.
Hagstætt verð!
BYGGINGA-
KRANAR
STEFÁN Kristjánsson var í 1.–2.
sæti fyrir lokaumferðina á Inline
Czechia skákmótinu í Olomouc í
Tékklandi. Hann þurfti að fá 1½
vinning úr tveimur síð-
ustu umferðunum til að
ná AM-áfanga og í
næstsíðustu umferð
lagði hann Danann
Peter Husted (2176). Í
lokaumferðinni mætti
hann alþjóðlega meist-
aranum Sergey Kasp-
arov, sem er stiga-
hæstur keppenda með
2.494 skákstig. Kasp-
arov þessi var búinn að
gera fjölda stuttra
jafntefla í mótinu og al-
mennt var talið að byði
Stefán honum jafntefli
mundi hann taka því,
en þar með væri Stefán
búinn að tryggja sér
sinn annan alþjóðlega titiláfanga og
vantaði þá einungis einn áfanga í
viðbót til þess að verða alþjóðlegur
meistari. Þetta gekk eftir, Kasparov
sættist á jafntefli og Stefán fékk
áfangann. Glæsilegur árangur hjá
Stefáni og góð viðbót við uppörv-
andi árangur íslenskra skákmanna
undanfarna mánuði.
Páll A. Þórarinsson, sem teflir á
mótinu ásamt Stefáni, tapaði fyrir
pólska FIDE-meistaranum Marcin
Szymanski (2362), hefur 3½ vinning
og er í 9. sæti.
Róbert Harðarson sem teflir í
Valoz Cup sigraði Tékkann Jiri
Jirka (2292) í 10. umferð, hefur 6
vinninga og er í 4.-5. sæti.
Þeir Jón Viktor Gunnarsson og
Sigurbjörn Björnsson tefla í Price-
net Cup. Jón Viktor sigraði Þjóð-
verjann Reinhard Blodig (2238),
hefur 5½ vinning og er í 5. sæti.
Sigurbjörn tapaði fyrir Tékkanum
Jakub Krejci (2319), hefur 4 vinn-
inga og er í 10. sæti.
Þau þrjú mót sem nefnd hafa ver-
ið hér að ofan eru öll lokuð 12
manna mót, en auk þess fer fram
opið skákmót og þar eru 4 Íslend-
ingar meðal þátttakenda. Átta um-
ferðum af níu er lokið. Ingvar Þór
Jóhannesson er efstur Íslending-
anna með 5 vinning, Ólafur Kjart-
ansson og Dagur Arngrímsson hafa
fengið 4½ vinning og Guðmundur
Kjartansson hefur 3 vinninga.
Arnar Gunnarsson
sigraði sterkan
stórmeistara
Norðurlandamótið í skák stendur
nú yfir í Bergen í Noregi. Þrír ís-
lenskir skákmenn taka þátt í
mótinu, Þröstur Þórhallsson, Sævar
Bjarnason og Arnar Gunnarsson.
Fimm umferðum er lokið. Arnar
sigraði hinn sterka stórmeistara,
Nikola Mitkov (2547) frá Makedón-
íu í fimmtu umferð. Arnar hafði
betra tafl allan tímann, en stór-
meistarinn varðist vel og Arnar
þurfti að tefla af nákvæmni til að
sigra. Mitkov er þriðji stigahæsti
keppandi mótins. Þröstur Þórhalls-
son sigraði heimamanninn Geir S.
Tallaksen (2239) glæsilega. Arnar
og Þröstur hafa 3½ vinning og eru í
10.–24. sæti. Sævar Bjarnason tap-
aði fyir Norðmanninum Carl F.
Ekeberg (2117) og er í 38.–56. sæti
með 2½ vinning.
Þótt um Norðurlandamót sé að
ræða er mótið opið öllum. Efstur er
ísraelski stórmeistarinn Arthur
Kogan (2517) með fullt hús. Næstir
koma stórmeistararnir Vladimir
Georgiev (2584) frá Búlgaríu og
Evgenij Agrest (2529) frá Svíþjóð.
Sjötta umferð var tefld í gær.
Þröstur mætti þá Svíanum Pontus
Carlsson (2330), Arnar mætti
danska alþjóðlega meistaranum
Steffen Pedersen (2453) og Sævar
mætti Norðmanninum Per Ofstad
(2205).
Gamlir titiláfangar
í fullu gildi!
Frá 1. júlí í ár breyttust titilregl-
ur FIDE þannig að gildistími titil-
áfanga er ekki lengur sex ár, heldur
ótakmarkaður. Þessi breyting er
afturvirk þannig að
allir gamlir áfangar
eru nú í fullu gildi.
Fróðlegt væri að
vita hvernig áfanga-
málin standa hjá ís-
lenskum skákmönnum
eftir þessi tíðindi. Eig-
um við einhvern skák-
mann sem hefur náð
þremur áföngum og
getur þar með sótt um
alþjóðlegan meistara-
titil?
Meðal þeirra sem
líklega eiga gamla
AM-áfanga eru: Davíð
Ólafsson, Jón Krist-
insson, Þröstur Árna-
son og Róbert Harð-
arson. Auk þess átti Dan heitinn
Hansson fjölda áfanga sem hefðu
dugað til að sækja beint um alþjóð-
legan meistaratitil samkvæmt nýju
reglunum.
SKÁK
O l o m o u c ,
T é k k l a n d i
OLOMOUC-
SKÁKHÁTÍÐIN
1.–9. 8. 2001
Daði Örn Jónsson
Stefán Krist-
jánsson náði
AM-áfanga
Stefán Kristjánsson