Morgunblaðið - 10.08.2001, Side 38
DAGBÓK
38 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Laugarnes og Bitland
koma í dag. Vædderen,
Skógarfoss og Hákon
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Bit-
land kemur í dag.
Mannamót
Félagsstarf aldraðra
Lönguhlíð 3 og Dal-
braut 18–20. Sumarferð
verður þriðjudaginn 14.
ágúst kl. 13.
Farið verður á Reykja-
nes. Sæfiskasafnið í
höfnum skoðað, einnig
jarðsögusafnið Svarts-
engi. Kaffiveitingar í
Bláa lóninu. Upplýs-
ingar og skráning í
Lönguhlíð s. 552-4161
og Dalbraut 18 s.
588-9533.
Aflagrandi 40. Kl. 14
bingó. Rjómavöfflur
með kaffinu.
Árskógar 4. Kl. 13–
16.30 opin smíðastofan.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9–16 almenn
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 9.30 kaffi/
dagblöð, kl. 11.15 mat-
ur, kl. 13 frjálst að spila
í sal, kl. 15 kaffi.
Fimmtudaginn 23.
ágúst kl. 8 verður skoð-
unarferð, Hrauneyj-
arfossvirkjun og ná-
grenni. Heimsækjum
Þjóðveldisbæinn, Vatns-
fellssvæðið, Hrauneyj-
arfossvirkjun og Sult-
artangastöð, komið við
hjá Hjálparfossi. Há-
degisverður, kjöt og
kjötsúpa, snæddur í
Hálendismiðstöðinni.
Hlýr klæðnaður og
nesti. Upplýsingar og
skráning í síma 568-
5052 eigi síðar en
mánudaginn 20. ágúst.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl.10 verslunin opin,
kl.11.30 matur, kl. 13
„opið hús“, spilað á spil.
Kl. 15 kaffi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin alla virka daga frá
kl. 10–13. Matur í há-
deginu. Dagsferð 18.
ágúst. Fjallabaksleið
syðri í samvinnu við
FEB og Ferðaklúbbinn
Flækifót. Brottför frá
Glæsibæ kl. 8. Leiðsögn
Pálína Jónsdóttir o.fl.
Dagsferð 28. ágúst.
Veiðivötn – Hrauneyjar.
Brottför frá Glæsibæ
kl. 8. Leiðsögn Tómas
Einarsson. Silfurlínan
er opin á mánudögum
og miðvikudögum frá
kl. 10 til 12. f.h. í síma
588-2111.
Upplýsingar á skrif-
stofu FEB kl. 10 til 16 í
síma 588-2111.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Púttæfingar í dag á
Hrafnistuvelli kl. 14 til
16. Morgungangan
verður á morgun, laug-
ardag, rúta frá Firð-
inum kl. 9.50 og kl. 10
frá Hraunseli. Félags-
heimilið Hraunsel verð-
ur opnað aftur eftir
sumarfrí starfsfólks á
mánudaginn 13. ágúst
með félagsvist kl. 13.30
og kynningarfund Prag-
fara kl. 15. Þorsteinn
Magnússon kynnir ferð-
ina og tekur við loka-
greiðslum.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–11
morgunkaffi, kl. 9–12
hárgreiðsla, kl. 9–12
sjúkraböðun, kl. 9.30
gönguhópur, kl. 11.30–
13 hádegisverður, kl. 14
brids, kl. 15–16 eft-
irmiðdagskaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæf-
ingar á vegum ÍTR í
Breiðholtslaug á þriðju-
dögum og fimmtudög-
um kl. 9.30. Púttvöll-
urinn er opinn virka
daga kl. 9–18, kylfur og
boltar í afgreiðslu sund-
laugarinnar til leigu.
Allir velkomnir. Veit-
ingabúð Gerðubergs er
opin mánudaga til
föstudaga kl. 10–16.
Félagsstarfið lokað
vegna sumarleyfa frá 2.
júlí–14. ágúst.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 9 al-
menn handavinna, búta-
saumur, kl. 10–12 pútt.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
baðþjónusta og hár-
greiðsla, kl. 11 leikfimi.
Mosfellingar – Kjalnes-
ingar og Kjósverjar 60
ára og eldri. Halldóra
Björnsdóttir íþrótta-
kennari er með göngu-
ferðir á miðvikudögum,
lagt af stað frá Hlað-
hömrum: Ganga 1: létt
ganga kl. 16 til 16.30.
Gönguhópur 2: kl.
16.30.
Norðurbrún 1. Kl. 10
ganga. Hárgreiðslu-
stofan verður lokuð frá
10. júlí til 14. ágúst.
Vesturgata 7. Kl. 9
dagblöð, kaffi, fótaað-
gerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15 almenn handa-
vinna, kl. 11.45 matur,
kl. 13.30 sungið við flyg-
ilinn, kl. 14.30 kaffi og
dansað í aðalsal, við
lagaval Halldóru,
rjómaterta með kaffinu.
Handavinnustofan opin
án leiðbeinanda til 20.
ágúst. Hálfsdagsferð
miðvikudaginn 15.
ágúst, lagt af stað kl.
13, ekið um Hellisheiði
og Grímsnes að Ljósa-
fossvirkjun. Þar verður
skoðuð tréútskurð-
arsýning á vegum Þjóð-
minjasafns Íslands. Ek-
ið um Grafning til
Þingvalla að Hótel Val-
höll. Glæsilegt kaffi-
hlaðborð. Fræðslu-
fulltrúi Þjóðgarðsins,
Einar A. E. Sæmunds-
son, tekur á móti hópn-
um. Fræðsla um stað-
hætti og
Þingvallakirkja skoðuð.
Leiðsögumaður Nanna
Kaaber. Upplýsingar og
skráning í síma 562-
7077. Ath. Takmark-
aður sætafjöldi.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi
og fótaaðgerð, kl. 11.45
matur, kl. 13.30 bingó,
kl. 14.30 kaffi.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13 kl. 10 á laugar-
dögum.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur
verður á morgun kl. 21 í
Konnakoti, Hverfisgötu
105, Nýir félagar vel-
komnir. Munið gönguna
mánu- og fimmtudaga.
Kiwanisklúbburinn
Geysir í Mosfellsbæ
heldur spilavist í kvöld
kl. 20.30 í félags-
heimilinu Leirvogs-
tungu. Kaffi og með-
læti.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (ca.
16–25 ára) að mæta
með börnin sín á laug-
ardögum kl.15–17 á
Geysi, Kakóbar, Að-
alstræti 2 (Gengið inn
Vesturgötumegin). Opið
hús og kaffi á könnunni,
djús, leikföng og dýnur
fyrir börnin.
Minningarkort
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis
fást á skrifstofu end-
urhæfingardeildar
Landspítalans Kópavogi
(fyrrverandi Kópavogs-
hæli), síma 560-2700, og
skrifstofu Styrkt-
arfélags vangefinna, s.
551-5941, gegn heim-
sendingu gíróseðils.
Félag MND-sjúklinga
selur minningarkort á
skrifstofu félagsins á
Norðurbraut 41, Hafn-
arfirði. Hægt er að
hringja í síma 565-5727.
Allur ágóði rennur til
starfsemi félagsins.
Landssamtökin Þroska-
hjálp.
Minningarsjóður Jó-
hanns Guðmundssonar
læknis. Tekið á móti
minningargjöfum í síma
588-9390.
Minningarsjóður
Krabbameinslækninga-
deildar Landspítalans.
Tekið er við minning-
argjöfum á skrifst.
hjúkrunarforstjóra í
síma 560-1300 alla virka
daga milli kl. 8 og 16.
Utan dagvinnutíma er
tekið á móti minning-
argjöfum á deild 11-E í
síma 560-1225.
Hrafnkelssjóður (stofn-
aður 1931) minningar-
kort afgreidd í símum
551-4156 og 864-0427.
Í dag er föstudagur 10. ágúst, 222.
dagur ársins 2001. Lárentíusmessa.
Orð dagsins: Sá sem treystir á auð
sinn, hann fellur, en hinir réttlátu
munu grænka eins og laufið.
(Orðskv. 11, 28.)
Víkverji skrifar...
STÓRSTÍGAR framfarir hafa aðmörgu leyti orðið í þjónustu við
ferðalanga víða um landið. Ekki er
nóg með það að sprottið hafi upp
veitingastaðir, gistihús og hótel,
heldur má nú finna söfn af ýmsum
toga þar sem áður var kannski helst
ein olíusjoppa. Þessi söfn eru snar
þáttur í að gefa gestkomandi kost á
að átta sig á fortíð viðkomandi staðar
og mikilvægi. Víkverji var nýlega á
ferð um landið og fór þá meðal ann-
ars í Löngubúð á Djúpavogi, safn um
franska sjómenn á Fáskrúðsfirði,
hús Gunnars Gunnarssonar á
Skriðuklaustri og Síldarminjasafnið
á Siglufirði. Óhætt er að mæla með
þeim öllum. Eitt vakti hins vegar at-
hygli Víkverja og það var skortur á
lesefni um það, sem fyrir augu bar.
Vissulega voru upplýsingar um hina
ýmsu muni, en oft vaknar forvitni
manna og löngun til að vita meira.
Erlendis og hér heima sjá umsjón-
armenn safna sér oft og tíðum leik á
borði og reka litlar bókabúðir sam-
hliða safninu. Það er hins vegar glat-
að tækifæri að hafa ekki á boðstólum
bækur við kringumstæður þar sem
líklegra er að þær verði keyptar en
ella. Það hljóta að vera fáanlegar
bækur um frönsku sjómennina á Ís-
landi, þótt hið vandaða rit Elínar
Pálmadóttur, Fransí, biskví, sé upp-
selt. Hvað um til dæmis fræga skáld-
sögu Pierre Loti? Þá má spyrja: Af
hverju er ekki hægt að kaupa eina
einustu bók eftir Gunnar Gunnars-
son á Skriðuklaustri?
x x x
Á Skriðuklaustri vekur athyglisérstakt áróðursherbergi
Landsvirkjunar. Fyrirtæki styrkja
iðulega ýmislegt á sviði menningar
og ekki að undra að þau vilji fá eitt-
hvað fyrir sinn snúð. Víkverja skilst
að um þessar mundir segi fræðin að
styrktaraðilar listviðburða eigi ekki
að láta glenna nafn sitt upp um alla
veggi heldur vekja á sér athygli svo
lítið beri á, ef svo má að orði komast.
Herbergi Landsvirkjunar líkist helst
lítilli heilaþvottastöð og þar vantar
ekki ítarefnið. Segir þar meðal ann-
ars eitthvað á þá leið að náttúran sé
sífelldum breytingum undirorpin og
kennileyti komi og fari. Maðurinn sé
snar þáttur af náttúrunni og athafna-
semi hans í náttúrunni geti ekki ver-
ið annað en náttúruleg.
x x x
ÞAÐ færist stöðugt í aukana aðskilti sýni hvar sé að finna
merka staði, hvort sem þeir teljast
sögulegir eða einstök náttúrufyrir-
bæri. Oft vantar hins vegar nánari
skýringar á því fyrirbæri, sem bent
er á. Þegar komið er á Kirkjubæj-
arklaustur er til dæmis þokkalega
vel merkt leiðin að kirkjugólfinu,
sem er í túninu rétt austan Kirkju-
bæjarklausturs og skammt frá Hild-
ishaug. Hægt er að leggja við girð-
ingu og síðan er gengið eftir slóða
meðfram túni að kirkjugólfinu. Ætla
mætti að það blasti við að ástæða
væri til þess að útlista þetta fyrir-
bæri með einhverjum hætti á staðn-
um. Þar er hins vegar aðeins að finna
lítið skilti þar sem segir kirkjugólf á
tveimur málum. Ekkert um það að
nú geti að líta jökul- og brimsorfinn
stuðlabergsflöt, þar sem sjáist ofan á
blágrýtissúlur og engu sé líkara en
flöturinn hafi verið lagður af manna
höndum þótt náttúran hafi verið ein
að verki og aldrei hafi staðið þarna
kirkja. Án slíkra upplýsinga ypptir
ferðalangurinn einfaldlega öxlum
þegar að þessu friðlýsta náttúrufyr-
irbæri er komið. Þörfin á því að koma
fyrir upplýsingum um staði á borð
við kirkjugólfið sprettur ekki síst af
því að erlendir ferðamenn eru nú
orðnir svo margir að ósjaldan velti
Víkverji því fyrir sér hvort hann væri
ekki lengur á íslensku málsvæði. Í
það minnsta er lágmark þegar sáldr-
að er niður merkjum um merka staði
að láta ástæðuna fljóta með.
KVEÐJA til bílstjóra
hvítrar Toyota Corolla.
Það sem þú gerðir á
Reykjanesbrautinni við
Straum þriðjudagsmorg-
uninn 7. ágúst sl. um kl.
8.40 var heimskulegt og
hefði getað kostað
mannslíf. Þú varst hepp-
inn að bíllinn sem þú
mættir og þvingaðir út af
brautinni var léttur og
bílstjórinn vel vakandi.
Þú hefðir getað mætt
miklu þyngra farartæki
sem ekki hefði getað vikið
og þá er ekki að vita
hverjar afleiðingarnar
hefðu orðið. Þú græddir
aðeins nokkra metra á
þessum framúrakstri því
ég náði þér aftur á ljós-
unum í Hafnarfirðinum.
Með ósk um að þú látir
þér þetta að kenningu
verða því nóg er af dauða-
slysunum samt.
Ökumaður í næsta bíl.
Tapað/fundið
Eldrautt hjól hvarf
úr Ljósheimum
NÝTT reiðhjól hvarf frá
Ljósheimum 3, Rvík, í
júní síðastliðnum. Um er
að ræða 26 tommu karl-
mannsreiðhjól af gerðinni
GT, eldrautt að lit. Þeir,
sem geta gefið upplýsing-
ar um hvar hjólið er nið-
urkomið, eru vinsamlega
beðnir um að hringja í
síma 568-2453 eða í síma
898-0026.
Kannast einhver
við myndina?
ÞESSI mynd fannst fyrir
utan Suðurlandsbraut 6
mánudaginn 30. júlí sl. Ef
einhver kannast við hana
getur sá hinn sami haft
samband í síma 695-0076.
Dýrahald
Týra er týnd
LÆÐAN okkar hún Týra
týndist um helgina í Vest-
urbænum í Reykjavík.
Hún er grá og hvít, frekar
smágerð læða. Hún var
með tvær ólar, aðra rauða
og hina græna. Á annarri
ólinni er hún með tvær
bjöllur, nafnspjald og
segullykil til að komast
inn um kattarlúguna.
Týra er eyrnamerkt með
númerinu R-410.
Síminn heima hjá Týru
er 551-4152 eða 865-3361.
Hefur einhver
séð Snúð?
ÞETTA er Snúður, öðru
nafni Gorbasjov. Hann
hvarf frá Laugarnesvegi
fyrir a.m.k. mánuði. Hann
er með bláa hálsól og
eyrnamerktur. Ef ein-
hver hefur orðið hans var
vinsamlegast hringið f.h. í
síma 588-2580 og e.h. í
síma 581-3051. Hann er
stærri en á myndinni því
hún er tekin þegar hann
var yngri.
Kötturinn Kolur
er týndur
KÖTTURINN Kolur
hvarf frá Rauðagerði í
Reykjavík þann 21. júlí sl.
Hann er eyrnamerktur
R-8169. Hans er sárt
saknað af allri fjölskyld-
unni. Ef einhver veit um
ferðir hans vinsamlega
hafið samband í síma 588-
5590 eða 691-6252.
Kisinn minn
er týndur
HANN heitir Gæi og er
eyrnamerktur K 1012.
Hann hvarf frá Háaleitis-
braut fyrir 4 vikum. Hans
er mjög sárt saknað. Ef
einhver veit um kisann
minn vinsamlegast hafið
þá samband við Siggu í
síma 823-5073 eða skilið
honum í Kattholt.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Háskaakstur
LÁRÉTT:
1 kaupstaður, 8 líffæri, 9
rusl, 10 fita, 11 fleina, 13
hæðin, 15 ferlíkis,
18 lævísa, 21 litla tunnu,
22 éta, 23 púkinn, 24
kartaflan.
LÓÐRÉTT:
2 grasgeiri, 3 níska, 4
augabragð, 5 Asíubúi, 6
öðlast, 7 kvenmannsnafn,
12 eyktamark, 14 andi, 15
hindrun, 16 klöguðu, 17
brotsjór, 18 rændu, 19
lífstímann, 20 korns.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 nepja, 4 skort, 7 totta, 8 ótrúr, 9 náð, 11 rönd,
13 grær, 14 ýsuna,
15 flær, 17 töng, 20 hal, 22 gutla, 23 ævina, 24 rámum, 25
trana.
Lóðrétt: 1 nýtur, 2 pútan, 3 aðan, 4 slóð, 5 orrar, 6 tórir,
10 ámuna, 12 dýr, 13 gat,
15 fögur, 16 æstum, 18 örina, 19 glata, 20 harm, 21 læst.
K r o s s g á t a 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16