Morgunblaðið - 11.08.2001, Blaðsíða 14
AKUREYRI
14 LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TAKIÐ EFTIR! TAKIÐ EFTIR!
Lýsingahönnuður frá LÚMEX verður í verslun okkar
þriðjudaginn 14. ágúst.
Hann veitir faglega ráðgjöf varðandi lýsingahönnun og val á
lampabúnaði fyrir heimili og fyrirtæki.
Pantið viðtalstíma eða lítið við.
Njarðarnes 1 (Norðan við Toyota)
603 Akureyri
STEFNT er að því að hefja kjúk-
lingaslátrun hjá Íslandsfugli í Dal-
víkurbyggð í næstu viku og koma
fyrstu afurðum fyrirtækisins á
markað í kjölfarið. Auðbjörn Krist-
insson framkvæmdastjóri sagði að
þrátt fyrir sviptingar á þessum
markaði fyrir sunnan héldu menn
sínu striki og þessa dagana er unnið
að lokafrágangi á kjötvinnslu og
sláturhúsi félagsins. Yfir 30 manns
eru nú á launaskrá hjá fyrirtækinu.
„Manni sýnist nú að fyrir neyt-
endur sé ekki verra að einhverjir
fleiri aðilar komi að þessu borði,
svona miðað við það sem er að ger-
ast fyrir sunnan,“ sagði Auðbjörn.
Eins og fram hefur komið hefur
Reykjagarður ákveðið að flytja
kjúklingaslátrun og pökkun sína frá
Hellu í kjúklingastöð Ferskra kjúk-
linga í Mosfellsbæ og jafnframt er
verið að skoða sameiningu fyrir-
tækjanna. Ferskir kjúklingar eru
dótturfyrirtæki Móa en Búnaðar-
bankinn er stærsti eigandi Reykja-
garðs.
Peningar þjóðarinnar
notaðir í fákeppni
„Það virðist vera einhver hræðsla
í þessum aðilum gagnvart okkur og
því eru þeir að reyna að sameinast
til að geta tekið betur á móti okkur.
Og þegar fjármálastofnun eins og
Búnaðarbankinn er farin að ganga
fram í málinu hlýtur almenningur
að hugsa sig um, enda er þar verið
að nota peninga þjóðarinnar í fá-
keppni. Janframt er með þessu ver-
ið að færa störf af landsbyggðinni til
höfuðborgarsvæðisins. Það er ekki
laust við að maður velti fyrir sér
hvers konar þjóðfélag þetta sé sem
við búum í. Hvort við séum í sömu
stöðu og var fyrir austan járntjald
fyrir 20 árum, eða hvort þetta sé ís-
lenskur raunvöruleiki í dag.“
Auðbjörn sagði að erfiðlega hefði
gengið að reka þetta stóra og dýra
sláturhús Ferskra kjúklinga í Mos-
fellsbæ. „Til þess að sláturhúsið geti
staðið undir sér þarf öll framleiðsla
á þessu svæði að fara þar í gegn.
Með fákeppni á að reyna að halda
uppi verðinu, til þess að borga þessa
heimskulegu fjárfestingu niður og
um það snýst málið.“
Framleiða um 14
tonn af kjöti á viku
Starfsemi Íslandsfugls er á þrem-
ur stöðum í Dalvíkurbyggð, varp-
stöðin á Árskógsströnd, útungun,
sláturhús og kjötvinnsla á Dalvík og
eldishús á Ytra-Holti.
Ráðgert er að framleiða 700 tonn
af kjúklingum fyrsta árið eða um 14
tonn af kjöti á viku. „Ef okkur geng-
ur vel og markaðurinn tekur við
okkur eins og við vonum er þetta
aðeins byrjunin og við munun þá
stefna að því að auka framleiðsl-
una.“
Framkvæmdastjóri Íslandsfugls segir kjúklingaslátrun hefjast í næstu viku
Ekki verra fyrir neytendur
að fleiri komi að þessu borði
Morgunblaðið/Kristján
Í varpstöð Íslandsfugls á Árskógsströnd.
VEÐRIÐ lék við Akureyringa í
gær og á slíkum stundum leggst
fólk fáklætt út undir vegg og læt-
ur sólina skína á kroppinn, hvort
sem er heima við hús eða í sund-
laugum bæjarins. Þá hefur sund-
laugargarðurinn aðdráttarafl og
þar var hópur ungs fólks við leik.
Veðurspáin fyrir helgina lofar
góðu með hlýnandi veðri og því
má búast við að fjöldi fólks verði
á ferðinni í Eyjafirði, enda ým-
islegt spennandi í boði. Má þar
nefna Fiskidaginn mikla á Dalvík,
handverkshátíðina Handverk
2001 á Hrafnagili í Eyjafjarð-
arsveit og listviðburði í Gilinu á
Akureyri.
Morgunblaðið/Kristján
Það var fjör í sundlaugargarðinum í veðurblíðunni í gær.
Spennandi helgi
framundan
RANNVEIG Helgadóttir opn-
ar myndlistarsýningu í Ket-
ilhúsinu, neðri hæð, í dag laug-
ardaginn 11. ágúst kl. 16.00 og
mun sýningin standa til 26.
ágúst.
Rannveig Helgadóttir er
fædd árið 1971 og stundaði
nám á myndlistabraut
Menntaskólans á Akureyri
þaðan sem hún útskrifaðist
1992. Síðan lauk hún námi í
fagurlistadeild Myndlistaskól-
ans á Akureyri 1995 og námi í
listhönnunardeild sama skóla
árið 1998. Frá 1999 til 2000
stundaði hún nám í kennslu-
fræðum til kennsluréttinda við
Háskólann á Akureyri. Síðasta
einkasýning hennar var í
Turku Academy í Finnlandi sl.
vetur.
Á sýningunni verða ný verk
unnin með blandaðri tækni.
Viðfangsefnið er mandala sem
er reglubundin formgerð unn-
in út frá möndli og myndar
munstur. Orðið mandala kem-
ur úr sanskrít og merkir „heil-
agur hringur“ eða hringur ei-
lífðarinnar.
Allir eru hjartanlega vel-
komnir á sýningu Rannveigar
og aðgangur er ókeypis.
„Heilagar
mandöl-
ur“ í Ket-
ilhúsinu
AKUREYRARKIRKJA:
Sunnudagur 12. ágúst, kvöld-
messa með léttri tónlist kl.
20.30. Sr. Jóna Lísa Þorsteins-
dóttir. Félagar úr Kór Akur-
eyrarkirkju. Inga Eydal syng-
ur einsöng. Organisti: Eyþór
Ingi Jónsson. Komum í kirkj-
una, syngjum saman og njótum
helgihalds og samveru á sum-
arkvöldi. Þriðjudagur 14.
ágúst, morgunsöngur kl. 9.
Fimmtudagur 16. ágúst, kyrrð-
ar- og fyrirbænastund kl. 12.
Bænaefnum má koma til prest-
anna. Eftir stundina er unnt að
kaupa léttan hádegisverð í
safnaðarheimili.
GLERÁRKIRKJA: Kyrrðar-
og helgistund sunnudaginn 12.
ágúst kl. 21.00. Sr. Hannes Örn
Blandon þjónar.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Bænastund laugardaginn 11.
ágúst kl. 20.00. Vakningasam-
koma sunnudaginn 12. ágúst kl.
20.00. Hjónin Rut Rósin-
kransdóttir og Andrés Guð-
bjartsson stofnendur Hósanna-
hópsins munu segja frá starfi
sínu. Fjölbreytt lofgjörðartón-
list og fyrirbænaþjónusta. Allir
hjartanlega velkomnir.
Kirkjustarf
STÆRSTA iðnaðarfyrirtækið í
Ólafsfirði, Tréver ehf., hefur sagt
upp öllu starfsfólki sínu. Að sögn
Önnu Rósu Vigfúsdóttur hjá Tré-
veri er verkefnastaða fyrirtækis-
ins það slæm að eigendurnir telja
ekki lengur grundvöll fyrir rekstri
þess að óbreyttu.
Ekkert hefur verið um stór
verkefni eins t.d. einbýlishús síð-
ustu árin, en Tréver hefur byggt
langflest hús í Ólafsfirði eftir
1960. Að jafnaði hafa um 15
manns verið í vinnu hjá Tréveri og
oft fleiri en 20 á sumrin.
„Starfsmennirnir hafa mislang-
an uppsagnarfrest og munu þeir
vinna hann. Framtíð fyrirtækisins
verður tekin til rækilegrar endur-
skoðunar í haust,“ sagði Anna
Rósa.
Tréver hefur verið að selja tæki
undanfarna mánuði, vörubíla,
steypubíla og gröfur.
Öllu starfsfólki
Trévers sagt upp
Ólafsfjörður
ÞÓREY Eyþórsdóttir opnar
myndlistarsýningu í Deiglunni,
„Frá þræði til heildar“ í dag,
laugardaginn 11. ágúst, kl.
16.00. Þórey hefur dvalið lang-
tímum í Noregi, síðast sem
uppeldis- og sálfræðiráðgjafi í
Vestfold. Í Noregi hefur hún
haldið fjórar einkasýningar og
síðasta sýningin var í Kaup-
mannahöfn á síðasta ári.
Þetta verður 9. einkasýning
Þóreyjar. Þórey rak „Gallerí
allrahanda“ í áratug og list-
kaffihúsið á Hjalteyri. Á sýn-
ingunni í Deiglunni verður lögð
áhersla á þráðinn sem listmiðil.
Sýningin verður opin daglega
frá kl. 14.00–18.00, lokað mánu-
daga. Sýningin stendur til 26.
ágúst.
Þórey sýnir
í Deiglunni
SÖNGVAKA verður í Minjasafns-
kirkjunni á Akureyri mánudags-
kvöldið 13. ágúst kl. 21.00.
Rósa Kristín Baldursdóttir og
Hjörleifur Hjartarson munu fikra
sig áfram í tali og tónum eftir ís-
lenskri tónlistarsögu, taka dæmi af
tvísöng, rímum, veraldlegum þjóð-
lögum, danskvæðum og trúarlegum
söngvum. Þau ljúka síðan dag-
skránni á söngvum frá nítjándu og
tuttugustu öld.
Söngvökur eru hefðbundinn þátt-
ur í sumarstarfsemi Minjasafnsins á
Akureyri.
Söngvaka í
Minjasafns-
kirkju
KAFFISALA verður í sumarbúð-
um KFUM og KFUK við Hólavatn
sunnudaginn 12. ágúst og hefst hún
kl. 14.30 og stendur til kl. 18.
Í sumar hafa 5 hópar drengja og
stúlkna verið á Hólavatni undir
stjórn Önnu Elísu Hreiðarsdóttur,
Hannesar Guðrúnarsonar og sr.
Hildar Sigurðardóttur. Venja er að
starfinu ljúki með kaffisölu sem er
mikilvægur þáttur þess. Kaffisalan
er liður í fjáröflun sumarbúðanna
og gefur hún fólki tækifæri til að
koma að Hólavatni, skoða sumar-
búðirnar sem eru í fallegu um-
hverfi, hittast og spjalla.
Í um 20 ár hefur verið skipulega
unnið að skógrækt í landi sum-
arbúðanna og þar voru gróðursett
um 1.500 lerkitré í sumar.
Kaffisalan hefur oft verið mjög
vel sótt og greinilegt er að margir
líta á það sem fastan þátt að aka
Eyjafjörðinn á sunnudagseftirmið-
degi í ágúst og fá sér kaffi á Hóla-
vatni.
Kaffisala á
Hólavatni ♦ ♦ ♦