Morgunblaðið - 31.08.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KA bíður enn um sinn
eftir sæti í efstu deild / C2
Fjölnismenn
gefast ekki upp / C1
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
KRÓKABÁTURINN Ási SH-314
náðist á flot seinnipartinn í gær eftir
að hafa strandað um fimmleytið í
gærmorgun þegar hann sigldi á
brimbrjótinn við Suðureyri. Við
ásiglinguna kom gat á bátinn. Björg-
unarsveitarmenn frá Suðureyri náðu
í tvo menn um borð á slöngubát
skömmu eftir strandið og björguðu
þeim í land.
Það var björgunarskip Ísfirðinga,
Gunnar Friðriksson, sem dró bátinn
síðan á flot á flóði en báturinn stóð
nánast á þurru rétt fyrir hádegi, á
fjöru, að sögn Eggerts Stefánssonar
björgunarsveitarmanns sem staddur
var um borð í Gunnari Friðrikssyni.
Björgunarsveitarmenn frá Suður-
eyri og Ísafirði unnu við að þétta bát-
inn og dæla úr honum sjó og setja
belgi framan í hann til að reyna að
halda honum á floti. Auk þess fluttu
björgunarmenn um tveggja tonna
afla bátsins í land.
Morgunblaðið/Halldór
Unnið að dælingu á sjó úr Ása SH. Í bakgrunni er björgunarskipið Gunnar Friðriksson.
Náðist af
strandstað
í Súgandafirði
ÞRJÁTÍU og sjö starfsmönnum
Skinnaiðnaðar hf. á Akureyri hefur
verið sagt upp störfum. Alls er um
34 stöðugildi að ræða. Í tilkynningu
frá fyrirtækinu segir að uppsagn-
irnar taki gildi frá 1. september en
uppsagnarfrestur er frá einum og
upp í þrjá mánuði. Alls vinna um
120 manns hjá fyrirtækinu.
Starfsmönnum fyrirtækisins var
tilkynnt um uppsagnirnar á fund-
um sem haldnir voru í gær. Ástæð-
ur uppsagnanna eru sagðar ákveðin
óvissa sem ríkir á helstu mörk-
uðum fyrir fullunnin skinn, svo og
óvissa um hráefnisöflun á haust-
dögum.
Að sögn Ormars Örlygssonar,
framkvæmdastjóra Skinnaiðnaðar
hf., fara um 98% af framleiðslu
Skinnaiðnaðar til útflutnings.
Helstu útflutningsmarkaðir eru í
Suður-Evrópu, Bandaríkjunum, á
Norðurlöndunum og í Suðaustur-
Asíu. Ormarr segir að menn hafi
einkum horft til Asíumarkaðarins
en að ekkert verði flutt út þangað í
haust. Þá hefur Finnlandsmarkað-
ur brugðist.
Langmestur útflutningur Skinna-
iðnaðar er til Ítalíu. Um 40% fram-
leiðslunnar eru flutt út þangað í ár.
Mest er flutt út af mokkaskinnum.
Þá framleiðir fyrirtækið einnig
skrautgærur.
Ormarr segist engu vilja spá um
frekari horfur í rekstri. Hann segir
óvissuástand á erlendum mörkuð-
um meginástæðuna fyrir uppsögn-
unum. Að hans sögn hefur rekst-
urinn gengið erfiðlega eftir að
markaður með mokkaflíkur hrundi
árið 1998 eftir mjög góð ár þar á
undan. Allt hráefni er keypt inn á
haustin og hrundi markaðurinn
strax í kjölfarið.
Skinnaiðnaður hf. segir
upp 37 starfsmönnum
Ástæða uppsagna óvissa á
erlendum mörkuðum
STJÓRN Byggðastofnunar sam-
þykkti á fundi sínum í gær að taka að
sér að veita bakábyrgð fyrir við-
skiptabanka sem veita afurðalán til
sláturleyfishafa vegna sauðfjárslátr-
unar. Að sögn Theodórs Bjarnason-
ar, forstjóra Byggðastofnunar, var
þetta samþykkt einróma á fundinum
og segir hann það vera mjög áríðandi
fyrir stofnunina að koma að þessu
máli. „Þarna tekst okkur að sinna
nýjum verkefnum sem voru komin í
óefni. Þetta er að sjálfsögðu mikið
landsbyggðarmál og snertir hag
sauðfjárbænda á öllu landinu.“
Theodór segir að ábyrgð Byggða-
stofnunar fyrir afurðalánunum geri
viðskiptabönkunum kleift að lækka
verulega vexti af afurðalánum og það
lækki kostnað sláturleyfishafa af
slátruninni í heild til verulegra hags-
bóta fyrir sauðfjárbændur. Að sögn
Theodórs er þarna um að ræða áætl-
aðan sparnað sem nemur á bilinu 60–
70 milljónum á ársgrundvelli.
Afurðalánin geta numið 75% af
heildsöluverðmætinu og segir Theo-
dór að ábyrgð Byggðastofnunar geti
hæst náð því marki, sem er áætlað
samtals um 1,5 milljarðar. „Þessar
ábyrgðir eru mestar í nóvember og
síðan lækka þær. Þetta verður fram-
kvæmt í nánu samstarfi við við-
skiptabankana, fyrst og fremst
Landsbankann og Búnaðarbank-
ann,“ segir Theodór.
Finna þarf lausn á
vanda loðdýrabænda
Annað sem rætt var á fundinum
eru málefni loðdýraræktunar. Að
sögn Theodórs er um að ræða veru-
legan fjárhagsvanda hjá 16–17 loð-
dýrabúum sem finna þurfi flöt á.
„Það hefur mikið verið rætt um
vandamál loðdýrabænda og það er
mikill áhugi hjá Byggðastofnun að
vera aðili að lausn þess vanda.“
Theodór segir vanda loðdýra-
bænda hafa skapast vegna þess hve
verð á skinnum hafi verið lágt und-
anfarin ár og því hafi skilaverð eng-
an veginn dugað til þess að standa
undir rekstri búanna. Því hafa lausa-
skuldir hlaðist upp og segir Theodór
að sá vandi verði ekki leystur nema
til komi langtíma aðgerðir hjá öllum
hagsmunaaðilum.
Byggðastofnun
samþykkir ábyrgð
fyrir afurðalánum
Í GÆRMORGUN handtók lög-
reglan í Reykjavík tvo unga
menn í og við húsnæði líffræði-
skorar Háskóla Íslands við
Grensásveg. Í húsleit sem gerð
var í kjölfarið fundust skjávarpi
og tölva sem stolið var úr hús-
næði Landsvirkjunar, annars-
vegar í Höfða og hins vegar við
Grensásveg. Málin teljast upp-
lýst.
Lögreglan handtók annan
manninn fyrir utan hús líf-
fræðiskorar um kl. 5.30 í gær-
morgun. Félagi hans fannst eft-
ir að hafa falið sig á 3. hæð
hússins. Mennirnir höfðu brot-
ið rúðu til að komast inn. Þeir
höfðu reynt að losa skjávarpa
úr einni kennslustofunni þegar
lögreglu bar að garði.
Innbrot
upplýst
INNFLUTNINGUR á krókódílum
hefur staðið til á Húsavík um nokk-
urt skeið og að sögn Reinhards
Reynissonar bæjarstjóra Húsavíkur
er um þessar mundir verið að vinna
í að útvega þau gögn sem landbún-
aðarráðuneytið hafi beðið um
vegna hugsanlegs innflutnings.
„Við vorum búin að spyrjast fyrir
um hvað við þyrftum að leggja
fram til þess að fá leyfi fyrir inn-
flutningnum og fengum frá ráðu-
neytinu spurningar í nokkuð mörg-
um liðum sem við erum að vinna í
að fá svör við áður en við getum
formlega vænst þess að fá efnislega
afstöðu til þess. Spurningarnar
varða meðal annars sjúkdóma í
dýrunum. Við vorum ekki búin að
setja okkur neina tímaáætlun hvað
þetta varðar en erum að vinna
þetta í rólegheitunum,“ sagði Rein-
hard.
Hann telur líklegt að fáist leyfi til
að flytja dýrin inn verði stofnað
hlutafélag um starfsemina. Ætlunin
sé að flytja inn nokkur dýr og ala
þau í affallstjörnum frá orkuveit-
unni. Hugmyndin er að krókódíl-
arnir verði eins konar lífrænar
sorpkvarnir sem taki við matar-
úrgangi frá fiskeldi, fiskvinnslu og
kjötvinnslu í bænum en hugmyndin
er fengin frá Colorado-fylki í
Bandaríkjunum þar sem krókódílar
búa við óvenjuleg veðurfarsleg skil-
yrði.
Krókódíla-
innflutning-
ur enn í
skoðun
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Þetta skilti sem er að finna rétt
sunnan Húsavíkur og svipar til
umferðarskiltis gefur til kynna
að krókódíla sé að vænta í bæinn
innan skamms.