Morgunblaðið - 31.08.2001, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 31.08.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR mun af- greiða umsóknir sem berast um húsbréfalán til sjóðsins samkvæmt því brunabótamati sem í gildi er á þeim degi sem umsókn berst. Það þýðir að þeir sem sækja um hús- bréfalán fyrstu tvær vikurnar í september eiga möguleika á hærra húsbréfaláni en ella, þar sem reglu- gerðarbreyting félagsmálaráðherra um viðmiðun við 85% af brunabóta- mati í stað 65% tekur gildi 1. sept- ember, en endurmat brunabóta- matsins, sem almennt þýðir lækkun þess, tekur ekki gildi fyrr en 15. september. Samkvæmt upplýsing- um félagsmálaráðuneytisins er tímasetning á gildistöku reglugerð- arinnar sett að ósk Íbúðalánasjóðs. Hallur Magnússon, sérfræðingur í stefnumótun og markaðsmálum hjá Íbúðalánasjóði, sagði að Íbúða- lánasjóður myndi afgreiða umsókn- ir eftir því brunabótamati sem í gildi væri þegar umsóknirnar kæmu inn til þeirra. Þær umsóknir sem myndu berast til Íbúðalána- sjóðs á þessum tveimur vikum yrðu afgreiddar eftir því brunabótamati sem væri í gildi. Í einhverjum til- fellum væri það brunabótamat sem myndi lækka eftir 15. september og í öðrum tilvikum myndi það hækka. Það þýddi að í einhverjum tilvikum fengju aðilar lægra lán eftir 15. september en ella og í einhverjum tilvikum hærra lán. Aðspurður hvort Íbúðalánasjóður teldi tryggingar fyrir lánum sínum nægilega góðar ef lánað væri 85% af brunabótamati, sem síðan ætti eftir að lækka við endurmatið, sagði Hallur að mat þeirra og stjórnar sjóðsins hefði verið að óhætt hefði verið að fara í 100% af brunabóta- mati hér á höfuðborgarsvæðinu tryggingarinnar vegna, þar sem ekki væri lánað nema 65 til 70% af kaupverði sem lægi nálægt mark- aðsverði. Lækkun brunabótamats- ins 15. september næstkomandi breytti í raun og veru ekki mark- aðsverðmæti íbúða og því væri auk- in tapáhætta hverfandi. Kærufrestur vegna endurmats brunabótamatsins rennur út 15. september næstkomandi og tekur þá endurmatið gildi nema það hafi verið kært til Fasteignamatsins og ekki tekist að afgreiða kæruna fyrir þann tíma. Ef ekki er búið að af- greiða kæruna gildir eldra bruna- bótamat þar til niðurstaða liggur fyrir varðandi kæruna. Aðspurður hvernig Íbúðalána- sjóður myndi taka á slíkum málum þar sem endurmat hefði verið kært og niðurstaða lægi ekki fyrir 15. september, sagði Hallur að afstaða Íbúðalánasjóðs væri sú að umsóknir yrðu afgreiddar eftir því bruna- bótamati sem gilti þegar umsóknin kæmi inn svo fremi sem umsóknin væri fullgild. Dagsetningin samkvæmt ósk Íbúðalánasjóðs Ingi Valur Jóhannsson, deildar- stjóri í félagsmálaráðuneytinu, sagði að tímasetning á gildistöku reglugerðarinnar væri sett að ósk Íbúðalánasjóðs. Aðspurður hvort það væri við- unandi af hálfu ráðuneytisins að þeir sem sæktu um lán á tímabilinu 1.–15. september fengju hærra lán en þeir sem sæktu eftir þann tíma, sagðist Ingi Valur ekki hafa neina skoðun á því, en þegar reglugerðin hefði verið í smíðum hefði Íbúða- lánasjóður viljað hafa þetta með þessum hætti. Íbúðalánasjóður óskaði eftir að reglugerð um 85% lán gilti frá 1. september Möguleiki á hærra húsbréfa- láni 1. til 15. september HAUKUR Ingibergsson, forstjóri Fasteignamats ríkisins, segir að brunabótamat íbúða í Víkurási sem sagt var frá í Morgunblaðinu í fyrra- dag, sé frá því áður en endurmat fór fram. Eftir endurmatið sé mat á íbúðunum, sem allar eru af sömu stærð, á bilinu frá 5,9 upp í 6,2 millj- ónir króna, en áður var matið frá 5,8 milljónum kr. og upp í 8,3 milljónir kr. Guðrún Árnadóttir, formaður Félags fasteignasala, segir frá því í Morgunblaðinu á miðvikudag að sex sambærilegar íbúðir í fjölbýlishúsi í Víkurási sem byggðar séu af Bygg- ung og allar séu af sömu stærð með sambærilegum innréttingum séu með mismunandi brunabótamati frá 5,8 milljónum upp í 8,3 milljónir. Haukur sagði að þessar tölur um brunabótamat á íbúðunum væru frá því áður en endurmat á brunabóta- mati íbúðanna hefði farið fram. Eftir endurmatið væru íbúðirnar í fjórum tilvikum metnar á 5,9 milljónir kr. og í einu tilviki á 6,2 milljónir kr. Haukur sagði að þessi dæmi um mismunandi mat á sambærilegum eignum undirstriki þá þörf sem hafi verið á því að samræma brunabóta- mat í landinu. Brunabótamat í Víkurási Tölur áður en endurmat fór fram HÚSAFRIÐUNARNEFND ríkisins hefur lýst yfir áhyggjum af því að brunabótamat ýmissa gamalla og friðaðra húsa kunni að vera of lágt með hliðsjón af raunverulegum end- urbyggingarkostnaði þeirra, að því er fram kemur í bréfi nefndarinnar til Fasteignamats ríkisins. Að mati nefndarinnar er slík nið- urstaða til þess fallin að hindra varð- veislu byggingararfs þjóðarinnar með því að draga úr viðleitni fasteignaeig- enda til að halda við gömlum og frið- uðum húsum og endurbæta þau. „Um leið og Húsafriðunarnefnd vekur athygli Fasteignamats ríkisins á mikilvægi þess að gömul og friðuð hús séu rétt virt til brunabótamats hvetur nefndin eigendur gamalla og friðaðra húsa, sem of lágt kunna að hafa verið metin að teknu tilliti til viðhalds og endurbóta, til að nýta sér kæruúrræði laga nr. 6/2001 um skráningu og mat fasteigna og fá brunabótamat endur- skoðað,“ segir ennfremur. Húsafriðunarnefnd Brunabóta- mat friðaðra húsa kann að vera of lágt ♦ ♦ ♦ 26 PUNDA hængur veiddist í Laxá í Aðaldal fyrir nokkrum dögum og hafa þá tveir slíkir veiðst í ánni í sumar, báðir á Nesveiðum, og eru saman stærstu laxar vertíðarinnar hér á landi. Að þessu sinni var það vel þekktur bandarískur veiðimað- ur, Art Lee, sem veiddi laxinn, sem var leginn hængur, á Presthyl og notaði hann fluguna Governer númer 4, að sögn Stefáns Skafta- sonar í Straumnesi. Sonur hans, Steingrímur, var með Lee og vigtaði laxinn lifandi í háfnum. Var hann slétt 13 kg eftir að þyngd háfsins hafði verið dregin frá. Sagði Stefán að laxinn hefði verið óður, strikað og stokkið um allt og því tapað úthaldinu fljótt og Lee hefði aðeins verið um stund- arfjórðung að sigra fiskinn. Ekki var tekin mynd af laxinum, að sögn Stefáns Skaftasonar. Íslendingar veiða nú í Nesi og fyrstu þrjá dagana veiddu þeir 37 laxa, bæði á flugu og spón. Stærst var 18 punda hrygna sem fór í klak, einnig fallegur hængur, 16–17 punda. Annars voru laxarnir flestir smálaxar. Síðan dofnaði yfir veið- inni og var lítil veiði á miðvikudag, en svo glæddist aftur í gær og í gærmorgun veiddist m.a. 20 punda hængur á Núpafossbrún á flugu. Fullt af laxi í Flekkunni „Þetta hefur verið viðunandi í Flekkudalsá í sumar. Það eru komnir um 115 laxar úr ánni, en hún hefur oft verið erfið í sumar vegna vatnsleysis. Það er fullt af laxi í ánni og fastagestir okkar hafa orð á því. Það var lokað fyrir maðkveiði í sumar og ekki verið að slátra fjölda laxa. Það skilar sér. Menn hefðu þó veitt meira í sumar ef þeir hefðu smækkað flugurnar. Ég hef oftar en einu sinni heyrt í mönnum sem hafa talað um að lax- inn taki ekki, en þeir hafa ekki far- ið niður fyrir tíurnar í flugustærð. Ég hef þá sagt þeim að setja undir míkrótúpur og öngla niður í 16–18 og þá hefur farið að ganga eitthvað hjá þeim,“ sagði Ómas Blöndal Sig- geirsson, einn leigutaka Flekku- dalsár í Dölum, í samtali við Morgublaðið. Svalbarðsá miklu betri en í fyrra Holl fluguveiðimanna sem lauk nýverið 6 daga veiðum í Svalbarðsá í Þistilfirði fékk 28 laxa og voru þá komnir 140 laxar úr ánni, en allt síðasta sumar veiddust þar aðeins 92 laxar. Af þessum 28 löxum voru tveir 16 punda, einn 15 punda og einn 14 punda en aðrir smærri. Nokkrum hrygnum í vænni kantinum var sleppt, að sögn Jörundar Mark- ússonar, leigutaka árinnar. Tals- vert er af laxi, mest í ofanverðri ánni, og nokkuð er um nýgenginn smálax. Annar 26 punda hængur úr Laxá í Aðaldal Enn finnast stórlaxar í Norðurá í Borgarfirði. Þennan veiddi Jens P. Clausen á Kálfhylsbroti fyrir skömmu, en hann var rétt tæp 16 pund, en 97 sentímetra langur og hefði trúlega vegið 18–19 pund nýgenginn. Laxinn tók mjög smáa Black Brahan. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? SIGURÐUR Guðmundsson land- læknir segir nokkuð mikið um að fólk með alvarlega sjúkdóma sæki í hjálækningar og í mörgum tilvikum sé það af hinu góða. Skottulækning- ar segir hann hins vegar bannaðar með lögum og alvarlegt mál þegar fólki er jafnvel valdið skaða, það fé- flett eða haldið frá hefðbundnum lækningum. Mömmur athugið Í Fréttablaðinu á miðvikudaginn var lítil auglýsing undir yfirskrift- inni „Mömmur athugið“ þar sem lof- að er undraverðum árangri með óhefðbundnum aðferðum ef börn pissa undir. Maðurinn sem býður upp á þjónustuna er titlaður reiki- meistari og svæðanuddari í síma- skrá. Aðspurður vildi hann ekki gefa upp hvaða aðferðum hann beitti í meðferð sinni. „Ég vil eiginlega ekki láta þetta fara neitt lengra eins og er því ég er að þróa þetta,“ sagði hann en tiltók að ekki væri um handayfirlagningu eða eitthvað slíkt að ræða. „Þetta er áþreifanlegt, ég meðhöndla þau, eins og maður fer í nudd eða annað sem er áþreifanlegt,“ bætti hann við og sagði að lyf sem gefin væru við vandanum hefðu ekki gagnast börn- um sem til hans hafi verið leitað með. „Ég mundi segja að næstum öll börn sem hafa komið til mín hafi fengið lækningu,“ sagði maðurinn og bætti aðspurður við að þau væru um 150 talsins. Sigurður Guðmundsson land- læknir segir mjög alvarlegt ef ein- staklingar sem ekki eru til þess bær- ir lofi lækningu og falli það undir skottulækningar sem séu bannaðar með lögum. Hann segir ekki nokkra spurningu að ómarkviss eða úr lofti gripin meðferð geti valdi töluverðum skaða þegar börn eiga í hlut. „Þegar um jafn erfitt tilfinninga- legt vandamál eins og þetta er að ræða getur það verið hættulegt. Enda allt annars eðlis en þegar fást á við bólu á fingri eða brotinn putta, þarna er verið að beita einhvers kon- ar aðferðum sem tengjast mjög til- finningum barna,“ sagði hann. Sumar hjálækningar gera gagn Landlæknir segir að gerð sé ský- laus krafa um að hjálækningar valdi ekki skaða og að gripið sé til aðgerða ef grunur er um að slíkt eigi sér stað. Hann segir að þetta mál verði skoðað sérstaklega en upp hafi kom- ið mál þar sem starfsemi hafi verið stöðvuð og rifjaði í því sambandi upp mál hjóna sem á síðasta ári buðu upp á huglægar ristilskoðanir. Muninn á hjálækningum og hefð- bundum lækningu segir landlæknir í grófum dráttum vera að hefðbundn- ar lækningar hafi verið prófaðar og staðfestar með vísindalegum aðferð- um en hinar nánast aldrei. Hann segir jafnframt sjálfsagt að styðja við bakið á þeim tegundum hjálækn- inga sem gert hafi gagn og vísar þar t.a.m. til nálastungumeðferða. „Oft á tíðum veita þeir sem stunda hjálækningar líka fólki nærveru. Þetta eru mannleg samskipti, það er samhygð og samúð sem þarna er til staðar og ég held að það sé mjög af hinu góða. Því hefur enda vissulega verið haldið fram, kannski að ein- hverju leyti með réttu, að á nútíma sjúkrahúsum sé kannski ekki alltaf nægilega mikill tími til að sinna þessum nærveruþætti þótt starfs- fólk geri auðvitað sitt besta. Hjá- læknar geta oft fyllt í þetta gat,“ sagði hann en áréttaði jafnframt að gæta þyrfti þess að fólk væri ekki prettað. Reikimeistari og svæðanuddari meðhöndlar börn sem væta rúm Óhefðbundnar aðferð- ir geta valdið skaða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.