Morgunblaðið - 31.08.2001, Page 14

Morgunblaðið - 31.08.2001, Page 14
AKUREYRI 14 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ SKEMMTIFERÐASKIPIÐ Amst- erdam frá Rotterdam í Hollandi kom til Akureyrar í vikunni en þetta var jafnframt síðasta skemmtiferðaskipið sem heimsækir bæinn á þessu sumri. Alls voru komur skemmtiferðaskipa 28 í sum- ar, sem er svipaður fjöldi og í fyrra. Amsterdam er jafnramt næst- stærsta skipið sem kom til Akureyr- ar að þessu sinni, um 61.000 brúttó- tonn að stærð og 238 metra langt. Um borð eru rúmlega 1.270 farþeg- ar og 660 manna áhöfn. Skipið hélt frá Akureyri til Reykjavíkur en fer þaðan til Grænlands, St. John og New York. Morgunblaðið/Kristján Farþegar á skemmtiferðaskipinu Amsterdam stíga á land á Akureyri. Síðasta skemmti- ferðaskipið BORUN eftir heitu vatni hefst í Laufáslandi í Grýtubakkahreppi nú um mánaðamótin. Að sögn Guð- nýjar Sverrisdóttur sveitarstjóra verður boruð 300 metra djúp hola gegnt bænum Skarði en við ár- bakka Fnjóskár hefur fundist yf- irborðsvatn sem er rúmlega 20 gráðu heitt jafnt að sumri sem vetri. Ræktunarsamband Flóa og Skeiða hefur verkið með höndum en kostnaður við það er áætlaður um 2,5 milljónir króna. Guðný sagði að samkvæmt rannsóknum lofi efnainnihald vatnsins sem þarna er nokkuð góðu. „Þarna vilja menn gera enn eina tilraun og ef ekkert kemur út úr því spyr maður sig hvort búið sé að fínkemba svæðið. Ég hef hins vegar alltaf haldið því fram að það sé heitt vatn í hreppn- um og ef við ekki finnum það, höf- um við bara ekki leitað nógu vel.“ Guðný sagði að heitt vatn hefði fundist allt í kringum Grýtubakka- hrepp og því hljóti að finnast vatn í hreppum. „Hitastrýturnar góðu á botni Eyjafjarðar tilheyra Grýtu- bakkahreppi en ég á þó ekki von á að við förum að beisla þær, enda strýturnar friðaðar.“ Nánast enginn árangur af borunum til þessa Guðný sagði að ef fyndist nýt- anlegt vatn í Laufáslandi væri lítið mál að leggja leiðslu í gegnum sveitina og norður til Grenivíkur. Hún vonast því eftir niðurstöðu sem fyrst. Fram til þessa hefur leit eftir heitu vatni í hreppnum gengið illa. Haustið 1998 voru boraðar 18 rannsóknarholur 50–80 metra djúp- ar víðs vegar í sveitarfélaginu en að mati jarðfræðinga Orkustofnunar var árangurinn ekki nógu góður. Árið eftir voru gerðar viðnámsmæl- ingar í hreppnum á vegum Orku- stofnunar en ekkert kom út úr þeim mælingum. Hola sem boruð var um einn km sunnan við Grenivík gefur um 20 gráðu heitt vatn. Vatnið er notað í sundlaugina en er jafnframt hitað enn frekar með varmadælu. „Þetta er eina hitaveita staðarins og þessi hola virðist ekki geta gefið meira en þetta.“ Borun eftir heitu vatni að hefjast í Grýtubakkahreppi „Alltaf haldið því fram að hér sé heitt vatn“ SANDBLÁSTUR og málmhúðun hf. á Akureyri hafa keypt fyrirtækið Damstahl hf. af Damstahl a/s í Dan- mörku og taka kaupin gildi á morg- un, 1. september. Damstahl hf. verður svo sameinað dótturfyrirtæki Sandblásturs og málmhúðunar, Ferro Zink hf. í Hafnarfirði. Sandblástur og málm- húðun á einnig Straumrás hf. á Ak- ureyri. Eftir kaupin verður þannig til sterk samstæða fyrirtækja í stál- sölu og sölu á tengdum vörum. Áætl- uð velta Sandblásturs og málmhúð- unar og dótturfyrirtækja á þessu ári er áætluð um 700 milljónir króna. Sandblástur og málmhúðun var stofnað árið 1960 af Jóhanni Guð- mundssyni og bræðrum ásamt Jóni E. Aspar, en það er nú í eigu fjög- urra sona Jóhanns auk stofnandans, Jóns. Fyrir 10 árum stofnaði félagið fyrirtækið Ferro Zink í Hafnarfirði til að annast stálsölu og aðra þjón- ustu á höfuðborgarsvæðinu og hefur það styrkt stöðu sína umtalsvert á markaði fyrir stál og stálvörur á síð- ustu árum. Betri þjónusta og aukin samkeppnishæfni Damstahl á yfir tveggja áratuga sögu á Íslandi, en það sérhæfir sig í sölu á ryðfríu stáli og tengdum vörum. Markaður fyrir slíkar vörur er hlutfallslega stór á Íslandi vegna mikils sjávarútvegs og vinnslu úr sjávarfangi. Þá er mikil framleiðsla á búnaði úr ryðfríu stáli hér á landi sem seldur er um allan heim. Samhliða kaupum Sandblásturs og málmhúðunar á Damstahl hf. var samið um samstarf milli Sandblást- urs og málmhúðunar og Damstahl a/s um sölu á vöru og þjónustu. Vonir standa til að hið nýja sam- einaða fyrirtæki muni veita enn betri þjónustu en áður, en á lager verður ávallt breið vörulína af stáli, málm- um og tengdum vörum. Þá mun fyr- irtækið kappkosta að bæta þjónustu sína hvað varðar afhendingartíma og sérþjónustu. Til lengri tíma litið mun sameiningin hafa í för með sér aukna samkeppnishæfni Sandblásturs samstæðunnar á stálmarkaði. Starfsemi Damstahl hf. og Ferro Zink verður flutt í sameiginlegt hús- næði sem fyrst. Framkvæmdastjóri hins nýja sameinaða fyrirtækis verð- ur Steinn Eiríksson sem verið hefur framkvæmdastjóri Damstahl, en Steingrímur Pétursson er fram- kvæmdastjóri Sandblásturs og málmhúðunar. Sandblástur og málmhúðun kaupa fyrirtæki í Danmörku Damstahl hf. verður samein- að Ferro Zink BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur sam- þykkt að ganga til samninga við Ís- lenska aðalverktaka um byggingu fjölnota íþróttahúss á félagssvæði Þórs við Skarðshlíð. Stefnt er að því hefja jarðvegsvinnu strax í haust og ljúka framkvæmdum í desember á næsta ári og að þá strax geti knatt- spyrnumenn og frjálsíþróttafólk far- ið að sprikla í húsinu. Liðirnir gervi- gras og búnaður voru teknir út úr tilboði ÍAV og á að bjóða gervigrasið út sérstaklega. Kostnaður við bygg- ingu hússins er áætlaður rúmar 400 milljónir króna og heildarkostnaður við verkið rúmar 450 milljónir króna. Tilboð ÍAV fékk hæstu einkunn matsnefndar sem fór yfir þau átta tilboð sem bárust í verkið. Auk ÍAV koma VA arkitektar ehf. og VSÓ ráðgjöf ehf. í Reykjavík að hönnun hússins. Fjölnota húsið verður um 116 metra langt og 81 metra breitt, eða um 9.400 fermetrar og með einangr- uðu þaki. Í húsinu verður aðstaða til knattspyrnuiðkunar og fyrir frjálsar íþróttir. Knattspyrnuvöllurinn verð- ur 106 x 68 metrar, fimm metra breið hlaupabraut verður meðfram norð- urhlið hússins, fjögra metra breitt stökksvæði við austurgaflinn og að- staða fyrir allt að 700 áhorfendur við suðurhlið hússins. Hæð undir burð- arvirki í mæni er 13,5 metrar. Búningsaðstaða verður í kjallara Hamars og er gert ráð fyrir að byggður verði rúmlega 50 fermetra neðanjarðartengigangur austur úr Hamri sem tengist við suðurhlið fjöl- notahússins. Samkvæmt hugmynd- um ÍAV er hægt að koma fyrir 314 bílastæðum á lóðinni, 139 stæðum umfram það sem deiliskipulag svæð- isins gerir ráð fyrir. Ráðgert er að nota það efni sem til fellur við uppgröft vegna fjölnota- hússins til uppfyllingar á malarvelli félagsins. Þannig verði á félagssvæð- inu heilt samfellt grassvæði sunnan við Hamar og væntanlegt fjölnota- hús, með þremur grasvöllum. Jarðvegsvinna vegna byggingar fjölnota íþróttahússins á að hefjast í haust Samsett mynd af félagssvæði Þórs eftir að íþróttahúsið er risið. Hér sér í vesturgafl hússins, en til hægri er Hamar, félagsheimili Þórsara. Afstöðumynd af Þórssvæðinu eftir að húsið verður komið á sinn stað. Húsið í notkun í lok næsta árs STANGAVEIÐIFÉLAGIÐ Flúðir, Akureyri og Veiðifélag Fnjóskár halda sameiginlega veiðidaga fyrir börn og unglinga, félaga, vini og kunningja á morgun laugardag og á sunnudag. Veiðitími er frá kl. 9-13 og 16-21 báða dagana. Áhugasamir mæti í Veiðihúsið Flúðasel með veiðiáhöld en milli kl. 14 og 16 verða grillaðar pylsur og gos fyrir alla. Veiðidagar í Fnjóská LAUFÁSPRESTAKALL: Guðs- þjónusta verður í Svalbarðskirkju næstkomandi sunnudag, 2. septem- ber, kl. 14. Væntanleg fermingarbörn í Svalbarðssókn og foreldrar þeirra eru hvött til að koma til kirkjunnar. Stuttur fundur verður eftir messu. Guðsþjónusta verður í Grenivíkur- kirkju á sunnudag, 2. september, kl. 20.30. Væntanleg fermingarbörn sóknarinnar eru hvött til að koma til kirkju þetta kvöld. Stuttur fundur verður eftir messu. Kirkjustarf BÓKAÚTGÁFAN boki.is hefur ver- ið stofnuð á Netinu, en að henni stendur Vigfús Björnsson. Netútgáfan er ætluð íslenskumæl- andi lesendum um allan heim. Auk bókaútgáfu er þar að finna bóka- kynningar og heimasíðu þar sem m.a. verður kynnt það sem helst er á döfinni hjá útgáfunni. Fyrsta útgáfubók boka.is er „Um uppruna Íslendinga“ eftir Björn O. Björnsson. Um er að ræða mann- fræði- og fornfræðilega könnun á forsögulegum uppruna íslensku þjóðarinnar. Liðin eru 26 ár frá því handritið var skrifað, en í tilkynn- ingu segir að það sé enn í fullu gildi og jafnvel fremur nú en þegar það var skrifað. Síðar eru væntanlegar í bókaher- bergið ýmsar bækur aðrar, s.s. barnabækur og stærri skáldverk. Öllum er frjálst að skoða útgáfubæk- urnar án endurgjalds. Hægt er að fá allt útgáfuefni í lausum síðum á 500 krónur eintakið og einnig með fest- ingu í kjöl og hlífðarplasti yfir for- og baksíðu á 700 kr. Hver útprentun úr eigin prentara kostar 500 kr. Bókaútgáfa á Netinu ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.