Morgunblaðið - 31.08.2001, Síða 16

Morgunblaðið - 31.08.2001, Síða 16
HALDIN var árleg guðsþjónusta í kirkjunni á Skálmarnesmúla í Múla- hreppi, Austur-Barðastrandarsýslu, 18. ágúst síðastliðinn og voru kirkju- gestir rúmlega 30. Múlahreppur, sem fór í eyði árið 1975, tilheyrir nú Reykhólahreppi. Burtfluttir íbúar hreppsins og af- komendur þeirra hafa margir hverj- ir haldið tryggð við heimaslóðirnar og hefur kirkjunni meðal annars ver- ið haldið við. Sá siður hefur skapast á undanförnum árum að messa einu sinni á sumri og hefur séra Bragi Benediktsson á Reykhólum predik- að og þannig var einnig nú. Eftir messu var kirkjugestum boðið kaffi á bænum Firði. Messað á Skálmarnesmúla Ljósmynd/Finnbogi Jónsson LANDIÐ 16 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ Cider vinegar diet formúla FRÁ Apótekin Ofurmegrun með GMP gæðastimpli 100% nýting/frásog H á g æ ð a fra m le ið sla OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-18 Laugard. kl. 10-14 Við Fellsmúla Sími 588 7332 www.heildsoluverslunin.is - trygging fyrir l águ verði! Olíufylltir rafmagnsofnar Ofn 1500W Kr. 7.950,- stgr. Ofn 2000W Kr. 8.950,- stgr. Ofnarnir eru með thermostati, skiptanlegu hitaelementi og rakakerfi. Hægt er að setja ilmefni í rakakerfið. w w w .d es ig n .is © 2 0 0 1 D V R 0 7 1 RAUÐI kross Íslands fékk afhentan 20. sjúkrabílinn frá IB-innflutnings- miðlun á Selfossi samkvæmt sér- stökum samningi um smíði og af- hendingu sjúkrabílanna. Rauði krossinn gerði þennan afhending- arsamning eftir opið útboð innan EES og Norður-Ameríku. Eftir er að afhenda einn bíl sam- kvæmt þessum samningi en gerður hefur verið annar samningur við IB- innflutningsmiðlun á Selfossi um afhendingu 5 – 8 bíla næsta hálfa árið. Það er sjúkrabílasjóður sem fjár- magnar kaupin á sjúkrabílunum og reksturinn en það eru Rauði kross- inn og heilbrigðisráðuneytið sem greiða í sjóðinn. Nýr sjúkrabíll með öllum búnaði kostar um 11 milljónir króna. Afhending bílsins fór fram á Sel- fossi í nýjum húsakynnum IB- innflutningsmiðlunar ehf. að Foss- nesi 14, við nýtt hringtorg við inn- komu að bænum. Ingimar Baldvinsson, framkvæmdastjóri IB- innflutningsmiðlunar, sagði við af- hendinguna að sjúkrabílarnir væru fluttir inn sérmerktir fyrir verk- efnið, með styrkingum og öflugu rafkerfi sem þyldi aukið álag. Hann afhenti Tómasi Þóri Jóns- syni, formanni Rauðakrossdeildar Árnesinga, bílinn og einnig afhenti hann tölvukubb til að setja í bílinn en hann eykur afl bílsins um 40 hestöfl sem kemur sér vel þegar bíllinn þarf að erfiða upp brekkur eða vera fljótur í förum. Tómas færði bílinn Andrési Valdimarssyni, sýslumanni Árnesinga, sem færði hann til Þrastar Brynjólfssonar yf- irlögregluþjóns með góðum óskum ásamt tölvukubbnum góða. IB ehf. afhenti Rauðakrossdeild Árnesinga fyrsta sjúkrabílinn 1998 en fyrirtækið sér um alla breyt- ingavinnu sem gerð er á bílnum og fær til þess nokkra samstarfsaðila um einstök verkefni, innréttingar, framdrifs- og undirvagnsbreyt- ingar, rafmagns- og ljósabúnað og málun. Ingimar segir þetta sam- starf hafa gengið mjög vel sem sannist best á árangri þeirra í þeim tilboðum sem þeir hafa gert í útboð- um innan EES. IB ehf. flytur einnig inn og annast umsjón með breyt- ingum og smíði á slökkvibifreiðum. Tuttugasti sjúkra- bíllinn afhentur Morgunblaðið/Sig.Jóns Frá afhendingu tuttugasta sjúkrabílsins til Rauða krossins. Ingimar Baldvinsson framkvæmdastjóri, annar frá vinstri, og Tómas Þórir Jóns- son, formaður Rauða kross deildar Árnesinga, ásamt sýslumanni, yf- irlögregluþjóni og sjúkraflutningamönnum. Selfoss KRÖFUR vegna gjaldþrots fyrir- tækisins Clicon sem starfaði á Sauð- árkróki nema alls rúmlega 70 millj- ónum króna en stærstu kröfuhafar eru Byggðastofnun sem gerir rúm- lega 40 milljóna kröfu í þrotabúið og sveitarfélag Skagafjarðar sem gerir kröfu upp á 7,6 milljónir, samkvæmt upplýsingum Stefáns Ólafssonar, skiptastjóra þrotabúsins. Clicon var stofnað á Sauðárkróki í árslok 1998 en starfsemin fólst í að sauma töskur utan um GSM-síma úr fiskroði og leðri. Þegar mest var störfuðu 17 manns hjá fyrirtækinu en það hætti allri starfsemi í mars á þessu ári. Að sögn Gunnars Sigurðssonar, fyrrum stjórnarformanns fyrirtæk- isins, seldi sænskt fyrirtæki sem einnig hét Clicon megnið af fram- leiðslu Clicon á Íslandi en lítill hluti framleiðslunnar fór á innanlands- markað. Sænska fyrirtækið varð síð- an gjaldþrota á seinni hluta síðasta árs og við það missti Clicon á Íslandi alla sölusamninga erlendis. Upp úr áramótum fór Clicon í til- raunasamstarf við önnur fyrirtæki og að sögn Gunnars var það farið að skila árangri, en í of litlum mæli og því þótti ekki lengur rekstrargrund- völlur fyrir fyrirtækið. „Þessi mark- aður er mjög erfiður og hefur orðið enn erfiðari eftir að fyrirtækið hóf starfsemi, með kröfu um sífellt lægra verð erlendis frá,“ segir Gunn- ar. Þótti allfýsilegur kostur Theódór Agnar Bjarnason, for- stjóri Byggðastofnunar, segir kröfu stofnunarinnar vegna gjaldþrots Cli- con nema um það bil 40 milljónum króna en Byggðastofnun veitti fyr- irtækinu tvisvar sinnum lán. „Lánin voru veitt eftir öllum reglum og sam- kvæmt ítarlegum upplýsingum. Upphaflega voru lánin samtals 33 milljónir en þar sem þau voru greidd út í erlendri mynt hafa þau hækkað í 40 milljónir vegna gengisbreytinga. Um er að ræða veðkröfu en lánið var dekkað af veði sem metið var fullgott á sínum tíma í vélum og tækjum og það var á fyrsta veðrétti.“ Theódór bendir á að til þess að fá lán hjá Byggðastofnun þurfi fyrir- tæki að hafa undir höndum fullgott veð fyrir þeim lánum sem stofnunin veitir. „Eftir því sem mér sýnist hef- ur þeim skilyrðum verið fullnægt í þessu tilfelli. Lánveitingin hefur ver- ið flokkuð eftir réttu kerfi inn í lána- kerfi stofnunarinnar. Því reikna ég fastlega með að Byggðastofnun geti fengið þá peninga sem hún lánaði fyrirtækinu til baka. Byggðastofnun vinnur að því að gæta sinna hags- muna í málinu eins og hver annar lánveitandi,“ segir Theódór. Þegar hann er spurður um á hvaða forsend- um Byggðastofnun hafi veitt lán til fyrirtækisins segir Theódór að um hafi verið að ræða fyrirtæki sem fékkst við nýsköpun sem fjölmargir aðilar, einstaklingar og fyrirtæki á Norðurlandi tóku saman höndum um að stofna. „Þetta þótti allfýsileg- ur kostur en markaðsskilyrði erlend- is hafa valdið því að tekjurnar hafa ekki verið sem skyldi. Þetta leit þó vel út á sínum tíma og hefði getað orðið kraftmikið fyrirtæki með þýð- ingu fyrir byggðina á Norðurlandi.“ Skagafjörður hefur tapað stórum upphæðum Sveitarfélag Skagafjarðar átti þriðjungshlut í Clicon og að sögn Margeirs Friðrikssonar, fjármála- stjóra sveitarfélagsins, hefur sveit- arfélagið tapað stórum upphæðum vegna gjaldþrotsins en það var stærsti einstaki hluthafinn í fyrir- tækinu. „Sveitarfélagið átti upphaflega sex milljónir í hlutafé í fyrirtækinu og gerir nú kröfur upp á 7,6 milljónir vegna gjaldþrotsins. Ég tel afar litl- ar líkur á að við fáum þetta fé greitt,“ segir Margeir. Byggðastofnun langstærsti kröfuhafinn Skagafjörður Kröfur vegna gjaldþrots Clicon á Sauðárkróki nema rúmlega 70 milljónum HOLLENSKIR ferðamenn sem gistu á Gistiheimilinu Brekkubæ fyrir skömmu greindu frá því að þeir hefðu fundið flöskuskeyti við höfnina á Búðum. Skeytið var í kókflösku og í því var kveðja frá Kolbrúnu 9 ára og Gísla 7 ára. Í bréfinu biðja þau um að vera látin vita þegar skeytið finnst en hvorki heimilisfang né sími er gefið upp í bréfinu. Hjónin sem fundu skeytið heita Kwaak og netfang þeirra er p.dries@hccnet.nt ef sendendur skeytisins lesa þessa frétt. Búðir á Snæfellsnesi Flöskuskeyti í höfninni Hellnar/Snæfellsbær UMHVERFISÁTAK stendur nú yfir til 2. september nk. og er einkum verið að höfða til fyr- irtækja og stofnana í Borgarnesi um að þau gefi sér tíma til að fegra og bæta umhverfi sitt og stuðla þannig að fallegri ásýnd bæjarins. Síðastliðinn laugardag lögðu bæjarfulltrúar sitt af mörkum og tóku þátt í tiltekt og fegrun um- hverfis í bænum. Meðal annars komu þeir fyrir fjórum bekkjum, slitu upp mikið af njóla víðsvegar um bæinn og gróðursettu tré og blóm. Á meðfylgjandi mynd má sjá bæjarfulltrúana gróðursetja tré í brekkunni fyrir neðan Hamravík við þjóðveg 1. Bæjarfull- trúar í um- hverfisátaki Morgunblaðið/Guðrún Vala Borgarnes Súrefnisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi olía

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.