Morgunblaðið - 31.08.2001, Qupperneq 16
HALDIN var árleg guðsþjónusta í
kirkjunni á Skálmarnesmúla í Múla-
hreppi, Austur-Barðastrandarsýslu,
18. ágúst síðastliðinn og voru kirkju-
gestir rúmlega 30.
Múlahreppur, sem fór í eyði árið
1975, tilheyrir nú Reykhólahreppi.
Burtfluttir íbúar hreppsins og af-
komendur þeirra hafa margir hverj-
ir haldið tryggð við heimaslóðirnar
og hefur kirkjunni meðal annars ver-
ið haldið við. Sá siður hefur skapast á
undanförnum árum að messa einu
sinni á sumri og hefur séra Bragi
Benediktsson á Reykhólum predik-
að og þannig var einnig nú.
Eftir messu var kirkjugestum
boðið kaffi á bænum Firði.
Messað á
Skálmarnesmúla
Ljósmynd/Finnbogi Jónsson
LANDIÐ
16 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Cider vinegar
diet formúla
FRÁ
Apótekin
Ofurmegrun
með GMP gæðastimpli
100% nýting/frásog
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18
Laugard. kl. 10-14
Við Fellsmúla
Sími 588 7332
www.heildsoluverslunin.is
- trygging fyrir l
águ verði!
Olíufylltir
rafmagnsofnar
Ofn 1500W Kr. 7.950,- stgr.
Ofn 2000W Kr. 8.950,- stgr.
Ofnarnir eru með thermostati,
skiptanlegu hitaelementi og rakakerfi.
Hægt er að setja ilmefni í rakakerfið.
w
w
w
.d
es
ig
n
.is
©
2
0
0
1
D
V
R
0
7
1
RAUÐI kross Íslands fékk afhentan
20. sjúkrabílinn frá IB-innflutnings-
miðlun á Selfossi samkvæmt sér-
stökum samningi um smíði og af-
hendingu sjúkrabílanna. Rauði
krossinn gerði þennan afhending-
arsamning eftir opið útboð innan
EES og Norður-Ameríku.
Eftir er að afhenda einn bíl sam-
kvæmt þessum samningi en gerður
hefur verið annar samningur við
IB- innflutningsmiðlun á Selfossi
um afhendingu 5 – 8 bíla næsta
hálfa árið.
Það er sjúkrabílasjóður sem fjár-
magnar kaupin á sjúkrabílunum og
reksturinn en það eru Rauði kross-
inn og heilbrigðisráðuneytið sem
greiða í sjóðinn. Nýr sjúkrabíll með
öllum búnaði kostar um 11 milljónir
króna.
Afhending bílsins fór fram á Sel-
fossi í nýjum húsakynnum IB-
innflutningsmiðlunar ehf. að Foss-
nesi 14, við nýtt hringtorg við inn-
komu að bænum. Ingimar
Baldvinsson, framkvæmdastjóri IB-
innflutningsmiðlunar, sagði við af-
hendinguna að sjúkrabílarnir væru
fluttir inn sérmerktir fyrir verk-
efnið, með styrkingum og öflugu
rafkerfi sem þyldi aukið álag.
Hann afhenti Tómasi Þóri Jóns-
syni, formanni Rauðakrossdeildar
Árnesinga, bílinn og einnig afhenti
hann tölvukubb til að setja í bílinn
en hann eykur afl bílsins um 40
hestöfl sem kemur sér vel þegar
bíllinn þarf að erfiða upp brekkur
eða vera fljótur í förum. Tómas
færði bílinn Andrési Valdimarssyni,
sýslumanni Árnesinga, sem færði
hann til Þrastar Brynjólfssonar yf-
irlögregluþjóns með góðum óskum
ásamt tölvukubbnum góða.
IB ehf. afhenti Rauðakrossdeild
Árnesinga fyrsta sjúkrabílinn 1998
en fyrirtækið sér um alla breyt-
ingavinnu sem gerð er á bílnum og
fær til þess nokkra samstarfsaðila
um einstök verkefni, innréttingar,
framdrifs- og undirvagnsbreyt-
ingar, rafmagns- og ljósabúnað og
málun. Ingimar segir þetta sam-
starf hafa gengið mjög vel sem
sannist best á árangri þeirra í þeim
tilboðum sem þeir hafa gert í útboð-
um innan EES. IB ehf. flytur einnig
inn og annast umsjón með breyt-
ingum og smíði á slökkvibifreiðum.
Tuttugasti sjúkra-
bíllinn afhentur
Morgunblaðið/Sig.Jóns
Frá afhendingu tuttugasta sjúkrabílsins til Rauða krossins. Ingimar
Baldvinsson framkvæmdastjóri, annar frá vinstri, og Tómas Þórir Jóns-
son, formaður Rauða kross deildar Árnesinga, ásamt sýslumanni, yf-
irlögregluþjóni og sjúkraflutningamönnum.
Selfoss
KRÖFUR vegna gjaldþrots fyrir-
tækisins Clicon sem starfaði á Sauð-
árkróki nema alls rúmlega 70 millj-
ónum króna en stærstu kröfuhafar
eru Byggðastofnun sem gerir rúm-
lega 40 milljóna kröfu í þrotabúið og
sveitarfélag Skagafjarðar sem gerir
kröfu upp á 7,6 milljónir, samkvæmt
upplýsingum Stefáns Ólafssonar,
skiptastjóra þrotabúsins.
Clicon var stofnað á Sauðárkróki í
árslok 1998 en starfsemin fólst í að
sauma töskur utan um GSM-síma úr
fiskroði og leðri. Þegar mest var
störfuðu 17 manns hjá fyrirtækinu
en það hætti allri starfsemi í mars á
þessu ári.
Að sögn Gunnars Sigurðssonar,
fyrrum stjórnarformanns fyrirtæk-
isins, seldi sænskt fyrirtæki sem
einnig hét Clicon megnið af fram-
leiðslu Clicon á Íslandi en lítill hluti
framleiðslunnar fór á innanlands-
markað. Sænska fyrirtækið varð síð-
an gjaldþrota á seinni hluta síðasta
árs og við það missti Clicon á Íslandi
alla sölusamninga erlendis.
Upp úr áramótum fór Clicon í til-
raunasamstarf við önnur fyrirtæki
og að sögn Gunnars var það farið að
skila árangri, en í of litlum mæli og
því þótti ekki lengur rekstrargrund-
völlur fyrir fyrirtækið. „Þessi mark-
aður er mjög erfiður og hefur orðið
enn erfiðari eftir að fyrirtækið hóf
starfsemi, með kröfu um sífellt
lægra verð erlendis frá,“ segir Gunn-
ar.
Þótti allfýsilegur kostur
Theódór Agnar Bjarnason, for-
stjóri Byggðastofnunar, segir kröfu
stofnunarinnar vegna gjaldþrots Cli-
con nema um það bil 40 milljónum
króna en Byggðastofnun veitti fyr-
irtækinu tvisvar sinnum lán. „Lánin
voru veitt eftir öllum reglum og sam-
kvæmt ítarlegum upplýsingum.
Upphaflega voru lánin samtals 33
milljónir en þar sem þau voru greidd
út í erlendri mynt hafa þau hækkað í
40 milljónir vegna gengisbreytinga.
Um er að ræða veðkröfu en lánið var
dekkað af veði sem metið var fullgott
á sínum tíma í vélum og tækjum og
það var á fyrsta veðrétti.“
Theódór bendir á að til þess að fá
lán hjá Byggðastofnun þurfi fyrir-
tæki að hafa undir höndum fullgott
veð fyrir þeim lánum sem stofnunin
veitir. „Eftir því sem mér sýnist hef-
ur þeim skilyrðum verið fullnægt í
þessu tilfelli. Lánveitingin hefur ver-
ið flokkuð eftir réttu kerfi inn í lána-
kerfi stofnunarinnar. Því reikna ég
fastlega með að Byggðastofnun geti
fengið þá peninga sem hún lánaði
fyrirtækinu til baka. Byggðastofnun
vinnur að því að gæta sinna hags-
muna í málinu eins og hver annar
lánveitandi,“ segir Theódór. Þegar
hann er spurður um á hvaða forsend-
um Byggðastofnun hafi veitt lán til
fyrirtækisins segir Theódór að um
hafi verið að ræða fyrirtæki sem
fékkst við nýsköpun sem fjölmargir
aðilar, einstaklingar og fyrirtæki á
Norðurlandi tóku saman höndum
um að stofna. „Þetta þótti allfýsileg-
ur kostur en markaðsskilyrði erlend-
is hafa valdið því að tekjurnar hafa
ekki verið sem skyldi. Þetta leit þó
vel út á sínum tíma og hefði getað
orðið kraftmikið fyrirtæki með þýð-
ingu fyrir byggðina á Norðurlandi.“
Skagafjörður hefur tapað
stórum upphæðum
Sveitarfélag Skagafjarðar átti
þriðjungshlut í Clicon og að sögn
Margeirs Friðrikssonar, fjármála-
stjóra sveitarfélagsins, hefur sveit-
arfélagið tapað stórum upphæðum
vegna gjaldþrotsins en það var
stærsti einstaki hluthafinn í fyrir-
tækinu.
„Sveitarfélagið átti upphaflega
sex milljónir í hlutafé í fyrirtækinu
og gerir nú kröfur upp á 7,6 milljónir
vegna gjaldþrotsins. Ég tel afar litl-
ar líkur á að við fáum þetta fé greitt,“
segir Margeir.
Byggðastofnun
langstærsti
kröfuhafinn
Skagafjörður
Kröfur vegna gjaldþrots Clicon á Sauðárkróki nema rúmlega 70 milljónum
HOLLENSKIR ferðamenn sem
gistu á Gistiheimilinu Brekkubæ
fyrir skömmu greindu frá því að
þeir hefðu fundið flöskuskeyti við
höfnina á Búðum. Skeytið var í
kókflösku og í því var kveðja frá
Kolbrúnu 9 ára og Gísla 7 ára. Í
bréfinu biðja þau um að vera látin
vita þegar skeytið finnst en hvorki
heimilisfang né sími er gefið upp í
bréfinu. Hjónin sem fundu skeytið
heita Kwaak og netfang þeirra er
p.dries@hccnet.nt ef sendendur
skeytisins lesa þessa frétt.
Búðir á Snæfellsnesi
Flöskuskeyti í höfninni
Hellnar/Snæfellsbær
UMHVERFISÁTAK stendur nú
yfir til 2. september nk. og er
einkum verið að höfða til fyr-
irtækja og stofnana í Borgarnesi
um að þau gefi sér tíma til að
fegra og bæta umhverfi sitt og
stuðla þannig að fallegri ásýnd
bæjarins.
Síðastliðinn laugardag lögðu
bæjarfulltrúar sitt af mörkum og
tóku þátt í tiltekt og fegrun um-
hverfis í bænum. Meðal annars
komu þeir fyrir fjórum bekkjum,
slitu upp mikið af njóla víðsvegar
um bæinn og gróðursettu tré og
blóm. Á meðfylgjandi mynd má
sjá bæjarfulltrúana gróðursetja
tré í brekkunni fyrir neðan
Hamravík við þjóðveg 1.
Bæjarfull-
trúar í um-
hverfisátaki
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Borgarnes
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi olía