Morgunblaðið - 18.09.2001, Blaðsíða 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 15
ÁSLANDSSKÓLI var formlega af-
hentur Íslensku menntasamtök-
unum á sunnudag, en af því tilefni
var opið hús í skólanum fyrir gesti
og gangandi. Börn úr skólanum
sungu nýjan skólasöng eftir Ás-
laugu Brynjólfsdóttur skólastjóra
auk þess sem þau fluttu leikrit undir
stjórn Herdísar Egilsdóttur, sem er
einn ráðgjafa skólans. Þá flutti séra
Gunnþór Ingason blessunarorð.
Í fréttatilkynningu frá Hafn-
arfjarðarbæ segir að skólanefnd
bæjarins hafi samþykkt einróma á
fundi á fimmtudag að ráðning Ás-
laugar sem skólastjóra væri í fullu
samræmi við rekstrarsamning
Hafnarfjarðarbæjar og Íslensku
menntasamtakanna. Vonast sé til að
friður og sátt skapist nú um skóla-
starf í Áslandi. Börn úr Áslandsskóla flytja nýjan skólasöng eftir Áslaugu Brynjólfsdóttur skólastjóra við afhendingu skólans.
Afhendingu
skóla fagnað
Hafnarfjörður
ÍBÚI við Fjólugötu í Reykjavík hef-
ur kært framkvæmdir að næturlagi
við norður-suðurbraut flugvallarins í
Vatnsmýri. Segir í kæru hans að
hann telji að þessar framkvæmdir
brjóti í bága við Lögreglusamþykkt
Reykjavíkur og reglugerð um há-
vaða nr. 933 frá árinu 1999.
Íbúinn bendir á að byggingarstað-
urinn sé inni í miðri miðborgarbyggð
og allt að 15.000 manns búi á áhrifa-
svæði framkvæmdanna, sem valdi
verulegum hávaða. Er þess óskað að
næturvinnu við framkvæmdirnar
verði hætt þegar í stað.
Unnið allan sólarhringinn
Í rökstuðningi með kærunni segir
að framkvæmdum við norður-suður-
braut flugvallarins hafi í vor verið
flýtt um eitt ár, frá 2002 til 2001.
Flýtingin fari í bága við frummat
Skipulagsstofnunar á umhverfis-
áhrifum og sé í ósamræmi við fram-
kvæmdaleyfi Borgarskipulags sem
byggist á umhverfismatinu.
Hvorki Borgarskipulag eða önnur
yfirvöld í Reykjavík hafi veitt sér-
stakt leyfi fyrir flýtingu fram-
kvæmdanna né samþykkt að unnið
sé allan sólarhringinn sjö daga í viku.
Þá hafi Lögreglustjórinn í Reykjavík
ekki veitt sérstaka undanþágu vegna
framkvæmda að næturlagi.
Tvær kvartanir
borist á árinu
Í umsögn umhverfis- og heilbrigð-
isnefndar Reykjavíkurborgar til
Lögreglustjórans í Reykjavík segir
að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur sé
ekki leyfisveitandi fyrir fram-
kvæmdir við flugvöllinn eða hafi eft-
irlit með framkvæmdunum. Því hafi
eftirlitið ekki upplýsingar um vinnu-
tíma á flugvallarsvæðinu. Hins vegar
hafi embættinu borist tvær kvartan-
ir vegna hávaða frá framkvæmdun-
um á þessu ári.
Í umsögninni segir að í skýrslu um
mat á umhverfisáhrifum fram-
kvæmdanna og úrskurði Skipulags-
stofnunar hafi verið talið að óþæg-
indi vegna hávaða frá framkvæmd-
unum væru innan viðunandi marka.
Heilbrigðiseftirlitið eigi að fylgja því
eftir að reglugerðnr. 933 um hávaða
sé framfylgt en til að staðfesta hvort
um brot á henni sé að ræða þyrfti há-
vaðamælingar og er embættið reiðu-
búið til að framkvæma þær verði
óskað eftir því.
Íbúi ósáttur við framkvæmdir við norður-suðurbraut Reykjavíkurflugvallar
Vatnsmýrin Kærir hávaða
að næturlagi
ÞAÐ var glatt á hjalla í Grafarvogi á
laugardag þegar Grafarvogsdagur-
inn var haldinn hátíðlegur í fjórða
sinn. Er talið að á fjórða þúsund
manns hafi tekið þátt í hátíðahöld-
unum sem fóru fram víðs vegar um
voginn og hefur mætingin aldrei ver-
ið betri.
Sérstakir heiðursgestir á þessum
degi voru forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson og borgarstjóri,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Var
tekið á móti þeim við Gullinbrú laust
fyrir klukkan tvö þar sem hópur
barna fagnaði þeim með íslenska
fána á lofti. Þaðan var gengið að
byggingarreit nýrrar kirkju við
Spöngina þar sem fram fór helgi-
stund en hálftíma síðar ávörpuðu
heiðursgestirnir hátíðarsamkomu í
Borgarholtsskóla.
Að samkomunni lokinni var geng-
ið fylktu liði úr Borgarholtsskóla að
útisvæði við Gufunesbæinn þar sem
einnig var skipulögð dagskrá. Meðal
annars afhenti borgarstjóri Máttar-
stólpann, sem eru hvatningarverð-
laun Grafarvogs en að þessu sinni
hlaut trimmhópur Fjölnis gripinn,
en í honum eru á milli 50 og 60
manns sem skokka reglulega í Graf-
arvogi.
Að sögn Sigfúsar Sigmundssonar,
verkefnastjóra í Miðgarði – fjöl-
skylduþjónustunni í Grafarvogi – var
til þess tekið hversu góð mætingin
var á hina ýmsu atburði. Til dæmis
hafi um 71-80 manns tekið þátt í
sögugöngu um Grafarvoginn og hef-
ur þátttakan aldrei verið betri.
Morgunblaðið/Golli
Þrátt fyrir sólskin var svolítið kalt í veðri en Grafarvogsbúar létu það ekkert á sig fá heldur fylktu liði á hátíðina og sumir fengu skreytingu á nebbann.
Börnin fögnuðu Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra við Gullinbrú á laugardag.
Hátíðarstemning á hverfishátíð
Grafarvogur