Morgunblaðið - 09.10.2001, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 09.10.2001, Qupperneq 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SÁDI-arabíski útlaginn Osama bin Laden hvatti múslíma út um allan heim til að rísa upp og heyja „heilagt stríð“ gegn Bandaríkjunum í ræðu sem sjónvarpað var tveimur og hálfri klukkustund eftir að árásirnar á Afg- anistan hófust á sunnudag. Bin Laden lauk lofsorði á hryðjuverkamennina, sem gerðu árásirnar á World Trade Center og höfuðstöðvar bandaríska varnarmálaráðuneytisins 11. septem- ber, án þess þó að lýsa því afdrátt- arlaust yfir að hann hefði staðið fyrir hryðjuverkunum. Hann sagði að Bandaríkjamenn gætu ekki gert sér vonir um frið fyrr en þeir flyttu her- sveitir sínar frá Arabíuskaga og frið- ur ríkti í Palestínu. Ari Fleischer, talsmaður Banda- ríkjaforseta, sagði að ræðan væri „áminning“ um hvers vegna þurft hefði að grípa til aðgerða gegn hryðjuverkastarfsemi í heiminum. Ekki er vitað hvenær Osama bin Laden flutti ræðuna, en hún var tekin upp á myndband og sýnd á arabísku fréttasjónvarpsstöðinni al-Jazeera í Katar. Fulltrúi bin Ladens er sagður hafa afhent fréttamanni sjónvarps- stöðvarinnar í Kabúl upptökuna á sunnudag. Að sögn sjónvarpsstöðvar- innar er það „tilviljun“ að upptakan var afhent sama dag og árásirnar á Afganistan hófust. Lofaði Guð fyrir hryðjuverkin Bin Laden sagði að íslamskar „framvarðasveitir“ hefðu gert árás- irnar í Bandaríkjunum 11. septem- ber. „Framvarðasveitirnar sem eyði- lögðu Bandaríkin voru undir handleiðslu Guðs og við biðjum hann að hefja þá upp og hleypa þeim í para- dís.“ „Ég sver við Guð að Bandaríkin og þeir sem þar búa geta ekki látið sig dreyma um frið fyrr en friður ríkir í Palestínu og hersveitir trúleysingj- anna fara frá landi Múhameðs,“ sagði hann og skírskotaði til Arabíuskaga og hernáms Ísraela. Hreyfing bin Ladens, al-Qaeda, hefur hingað til ekki lagt mikla áherslu á uppreisn Palestínumanna og talið er að hún hyggist nú reyna að notfæra sér þann mikla stuðning sem Palestínumenn njóta meðal múslíma út um allan heim. „Þessir atburðir hafa skipt heims- byggðinni í tvennt, hina trúuðu og hina trúlausu,“ sagði bin Laden og skoraði á múslíma að rísa upp og verja trú sína. „Hér höfum við Banda- ríkin, sem urðu fyrir höggi frá Guði þar sem þau eru einna veikust fyrir. Stórfenglegustu byggingar þeirra voru lagðar í rúst, Guði sé lof fyrir það. Hér höfum við Bandaríkin, sem hafa fyllst ótta frá norðri til suðurs, frá vestri til austurs, Guði sé lof fyrir það. Það sem Bandaríkjamenn þola núna er smávægilegt á við það sem við höfum mátt þola í fjölmörg ár.“ Bin Laden sakaði einnig „trúlausu“ þjóðirnar um tvískinnung, sagði þær fordæma árásir á Vesturlönd en gefa engan gaum að drápum á Palestínu- mönnum eða dauðsföllum af völdum viðskiptabannsins á Írak. Talin hafa verið flutt fyrir nokkrum dögum Nokkrir af helstu samstarfsmönn- um bin Ladens stóðu við hlið hans þegar hann flutti ræðuna, þeirra á meðal egypski læknirinn Ayman Zawahiri, sem nokkrir telja stjórna al-Qaeda á bak við tjöldin. Zawahiri er fyrrverandi leiðtogi Jihad-samtak- anna í Egyptalandi sem hafa barist gegn þarlendum stjórnvöldum í þrjá áratugi. Hann flutti einnig stutt ávarp fyrir ræðu bin Ladens og hvatti músl- íma til að heyja „heilagt stríð“ gegn Bandaríkjunum. Hermt er að bin Laden þjáist af nýrnasjúkdómi og hann virtist hafa grennst talsvert frá því í janúar, en þá voru teknar síðustu myndirnar af honum sem hægt er að dagsetja ná- kvæmlega. Al-Jazerra er gervihnattastöð, sem nær til tugmilljóna múslíma, og talið er að ræðan geti haft mikið áróðurs- gildi fyrir bin Laden og hreyfingu hans. Mohammed Sayed Said, stjórn- málafræðingur í Kaíró, kvaðst þó telja að mörgum hófsömum múslím- um ofbyði hrósyrðin um hryðjuverka- mennina og fögnuðurinn yfir ódæðinu í Bandaríkjunum. „Fólk mun líta á þetta sem nokkurs konar játningu og fyllast viðbjóði.“ Osama bin Laden hvetur múslíma til uppreisnar Segir að Banda- ríkin geti ekki vænst friðar fyrr en friður ríki í Palestínu Dubai, Washington. AFP, Los Angeles Times. AP Osama bin Laden (annar frá vinstri) á upptöku sem arabísk sjónvarpsstöð sýndi á sunnudag. Við hlið hans eru egypski læknirinn Ayman Zawahiri (annar frá hægri) og tveir óþekktir samstarfsmenn þeirra. VIÐBRÖGÐ á Vesturlöndum við þeim tíðindum, að Bandaríkjamenn og Bretar hefðu hafið hernaðarað- gerðir gegn Afganistan, voru al- mennt á einn veg í gær, að óhjá- kvæmilegt hefði verið að til tíðinda drægi. Buðust mörg ríki til að veita Bandaríkjamönnum aðstoð í barátt- unni gegn hryðjuverkum. Jafnvel stjórnvöld í Peking lýstu stuðningi sínum við aðgerðirnar en Kínverjar og Bandaríkjamenn hafa um langa hríð eldað grátt silfur í utanríkis- málum. Í yfirlýsingu rússneska utanrík- isráðuneytisins sagði að sá tími væri runninn upp þegar hryðjuverka- menn fengju að finna til tevatnsins. Sagði Vladímír Pútín Rússlandsfor- seti að árásirnar væru „fyrirsjáan- leg“ afleiðing hryðjuverkanna í New York og Washington í síðasta mán- uði og lýsti hann þeirri sannfæringu sinni, að Bandaríkjamenn myndu gera hvað eina til að tryggja að sem minnst mannfall yrði í röðum sak- lausra borgara. Rússar hafa boðið Bandaríkjun- um að fljúga um lofthelgi sína með þær flugvélar sem falið er það verk- efni að varpa matvælum og lyfjum til Afgana, sem um sárt eiga að binda vegna átakanna í Afganistan. Gennadí Seleznjov, forseti dúmunn- ar, neðri deildar rússneska þingsins, lýsti hins vegar þeim ótta sínum í gær að aðgerðirnar yrðu til að valda óstöðugleika í þessum heimshluta en bæði Úsbekistan og Tadjíkistan, sem landamæri eiga að Afganistan, teljast til áhrifasvæðis Rússa. Kínversk stjórnvöld sögðust styðja aðgerðir gegn hryðjuverkum þó að þau gerðu ýmsa fyrirvara. Fólu þeir m.a. í sér að allt yrði gert til að koma í veg fyrir mannfall í röðum saklausra borgara, að að- gerðunum yrði stillt í hóf og að markmið þeirra væru skýr. Vilja Kínverjar ennfremur að allar frek- ari aðgerðir verði bornar undir sam- þykkt Öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna. Frakkar ætla að taka þátt í hernaðaraðgerðunum Ríki Evrópusambandsins stóðu fast að baki Bandaríkjamönnum og sögðu frönsk stjórnvöld að her landsins myndi taka þátt í aðgerð- unum í Afganistan á næstu dögum. Buðu þau Bandaríkjamönnum jafn- framt að fljúga óhindrað um loft- helgi Frakklands. Sömu sögu má segja um stjórnvöld í Þýskalandi og Ítalíu. Í Japan sagði forsætisráðherrann Junichiro Koizumi að þjóð sín styddi þessar aðgerðir af fullum heilindum og John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, bauð Bandaríkjamönnum frekari aðstoð. Jóhannes Páll II. páfi lýsti hins vegar áhyggjum sín- um og bað menn um að fara að öllu með gát. Ástand á mörkuðum vestanhafs og í Evrópu var með ágætu móti í gær þó að augljóst væri að fjár- festar væru uggandi um hverjar af- leiðingar hernaðaraðgerðanna gætu orðið. Sögðu fréttaskýrendur að stöðugleikinn skýrðist af því að flestir hefðu átt von á þessum að- gerðum og þær hefðu því ekki kom- ið á óvart. Þess væri ekki að vænta að hrun yrði á mörkuðum nú í lík- ingu við það sem varð þegar í kjöl- far hryðjuverkaárásanna í Banda- ríkjunum 11. september síðast- liðinn. Kínverjar og Rússar lýsa stuðn- ingi við að- gerðirnar Evrópuþjóðirnar bjóða Bandaríkja- mönnum aðstoð sína París, Moskvu, Peking, London. AFP. LOFTÁRÁSIRNAR á stöðvar tal- ibana í Afganistan ollu viðbrögðum af ýmsu tagi í löndum múslíma og í óeirðum á Gaza-ströndinni, þar sem fólk hafði safnast saman til að mótmæla árásunum, féllu tveir Pal- estínumenn. Í Pakistan mótmæltu þúsundir manna, kveikt var í skrif- stofum Sameinuðu þjóðanna og fleiri húsum. Einn maður féll í átökum við lögreglu í borginni Quetta, einnig voru mótmæli í Bangladesh. Forseti landsins, Perwez Musharraf, sagði hins veg- ar að stuðningur stjórnar sinnar við aðgerðirnar í Afganistan end- urspeglaði vilja meirihluta Pakist- ana. Nokkur hundruð herskárra múslíma efndu til mótmæla við sendiráð Bandaríkjanna í Djak- arta, höfuðborg Indónesíu, í gær og var lögregla með mikinn viðbúnað á götum borgarinnar. Krafist var heilags stríðs gegn Bandaríkjunum og þau kölluð Hinn stóri Satan. „Hætta er á heimsstyrjöld milli múslíma og vestrænna þjóða,“ sagði háttsettur trúarleiðtogi. Í Írak fordæmdu stjórnvöld harkalega og skilyrðislaust aðgerð- ir Bandaríkjamanna og Breta, víða annars staðar var lýst stuðningi eða hlutleysi. Oft var orðalag hóg- vært og lögð áhersla á að þess yrði gætt að óbreyttum borgurum í Afganistan yrði hlíft. Sérfræðingar sögðu að mikið ylti á því hvort verulegt mannfall meðal óbreyttra borgara yrði í árásunum, ef svo færi gæti komið til heiftarlegra mótmæla í mörgum múslímalönd- um. Í Kúveit var lýst yfir fullri sam- stöðu með vesturveldunum og sama var að segja um yfirlýsingu Sameinuðu arabísku furstadæm- anna, einnig sögðu egypsk stjórn- völd að Bandaríkjamenn hefðu rétt til að svara árásunum á New York og Washington 11. september. For- sætisráðherra Tyrklands, Bülent Ecevit, sagðist vona að aðgerðirnar stæðu ekki lengi yfir og mannfall yrði lítið. En berjast yrði gegn hryðjuverkum sem væru eins og hver önnur farsótt sem yrði að „út- rýma í eitt skipti fyrir öll“. Talsmenn múslímaklerka og bókstafstrúarmanna, frá Indónesíu til Norður-Afríku, fordæmdu nær alls staðar aðgerðirnar á sunnudag. Jamil Abu-Baker, talsmaður Bræðralags múslíma í Jórdaníu, sagði að markmiðið væri augljós- lega að ráðast gegn „endurreisn Íslams og múslíma. Ísraelum verði einnig refsað Sýrlenskur embættismaður, Mo- hammed Kheir, sakaði Bandaríkja- menn um tvöfalt siðferði. „Banda- ríkjamenn ráðast gegn Osama bin Laden án þess að sýna okkur sann- anir en sannanirnar fyrir því sem Ísraelar eru að gera Palestínu- mönnum eru ljósar öllum sem horfa á sjónvarp,“ sagði hann. Líbanon er hersetið af Sýrlend- ingum. Upplýsingamálaráðherra Líbana, Ghazi Aridi, sagði að arab- ar spyrðu hvort Ísraelar fremdu ekki líka hryðjuverk. Ef menn gagnrýndu Bandaríkjamenn merkti það ekki að verið væri að verja bin Laden og stefnu hans en hann bætti við að bin Laden ætti sér stuðning meðal almennings, þar ríkti sú tilfinning að „stefna Bandaríkjamanna eigi sök á því sem gerst hafi og er að gerast“. Stjórn Jórdaníu sendi frá sér yf- irlýsingu þar sem sagði að hún styddi alþjóðlegar aðgerðir gegn hryðjuverkum en lagði áherslu á að saklausir borgarar mættu ekki týna lífi. Einnig yrði að takast á við „helstu ástæðu örvæntingarinnar í okkar heimshluta og það merkir að fundin verði réttlát lausn á Palest- ínuvandanum“. Andlegur leiðtogi Írans, Ajatoll- ah Ali Khamenei, fullyrti að raun- verulegt markmið Bandaríkja- manna væri „útþensla“. Hann sagði Bandaríkjamenn aldrei bregðast við hryðjuverkum af hálfu „zíonista“ þ.e. Ísraela. Utanríkis- ráðherra landsins, Kamal Khar- azzi, lýsti áhyggjum sínum yfir því að miklar hernaðargerðir gegn Afganistan myndu „ekki útrýma hermdarverkum, heldur gætu þær breitt þau enn frekar út“. Mótmæli víða í múslímaríkjum Bókstafstrúarmenn stóryrtir en ríkisstjórnir styðja yfirleitt aðgerðirnar með fyrirvara Damaskus, Djakarta. AP, AFP. Reuters Stuðningsmenn talibana í Peshawar í Pakistan brenna bandarískan fána í gær. Ráðist gegn hryðjuverkamönnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.