Morgunblaðið - 09.10.2001, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.10.2001, Blaðsíða 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001 25 OKTÓBER f a t a s k á p u r i n n - é g - p i s t l a r - s t j ö r n u s p á - t í s k a NýttLíf09.tbl.24.árg.20 0 1 V e r ð k r. 8 9 9 .- m . v s k GLÍMAN VIÐ SÖKNUÐINN - missti konu og dóttur með 9 mánaða millibili TILBRIGÐI VIÐ TRÚBOÐASTELLINGU Vinkonur Við hvað ertu hrædd? „FEMINISMI ER SJÚKDÓMUR“ - segja konur í Tékklandi HÁIR HÆLAR - þjáninganna virði? Lífsreynsla listamanns - Sigurlaugur Elíasson á Sauðárkróki MD-87-þota frá SAS-flugfélaginu og þýsk fjögurra sæta einkaflugvél af Cessna-gerð rákust saman á Linate- flugvelli í Mílanó snemma í gær- morgun, með þeim afleiðingum að allir sem voru um borð í vélunum, 114 manns, létu lífið. Ítalska innan- ríkisráðuneytið útilokaði í gær að um hryðjuverk hefði verið að ræða og sagði „mannleg mistök“ að öllum líkindum hafa valdið slysinu, auk þess sem slæmt skyggni hefði verið á flugvellinum vegna þoku. SAS-þotan, með 104 farþega og sex manna áhöfn innanborðs, var að búa sig undir flugtak þegar hún lenti í árekstri við Cessna-vélina. Þotan þeyttist út af flugbrautinni við áreksturinn, rann áfram yfir grasbala og lenti á farangursbygg- ingu. Við það brotnaði þotan í þrennt og kviknaði í þúsundum lítra eldsneytis, sem voru í tönkum henn- ar, með þeim afleiðingum að gífur- legt eldhaf myndaðist. Þrátt fyrir að slökkvilið hafi komið skjótt á vett- vang tók rúmar tvær klukkustundir að ráða niðurlögum eldsins. Um 20 flugvallarstarfsmenn voru við störf í byggingunni sem þotan skall á og voru fjórir þeirra taldir af síðdegis í gær. Í tilkynningu ítalska innanríkis- ráðuneytisins segir að þýska flug- vélin, sem mun hafa komið frá Frankfurt á sunnudag og var á leið til Parísar í gærmorgun, hafi verið á rangri flugbraut. Báðir flugmenn hennar, sem voru Þjóðverjar, létust og einnig farþegarnir tveir, sem voru ítalskir. Cessna-vélin hafði fengið heimild til að aka í flugtaks- stöðu en fór ranga leið þangað. Haft var eftir einum af stjórnendum flug- vallarins, Osvaldo Gammino, að flugbrautarratsjá flugvallarins hafi verið óvirk er slysið varð. Að sögn Gammino var ratsjáin, sem er notuð til að fylgjast með umferð um flug- og akstursbrautir flugvallarins í slæmu skyggni og í myrkri, tekin úr notkun fyrir helgi vegna viðhalds. Linate-flugvelli var lokað strax eftir slysið og átti ekki að opna hann fyrr en á miðnætti í nótt. Einnig var öllum vegum í nágrenni flugvallar- ins lokað fyrir almennri umferð og aðeins hleypt um þá sjúkrabílum og bifreiðum björgunarsveita. Hlutabréf í SAS lækkuðu eftir slysið SAS-vélin var á leið til Kaup- mannahafnar og talið var í gær að á annan tug Dana hefði verið um borð. 64 farþeganna voru ítalskir ríkis- borgarar og norskir fjölmiðlar skýrðu frá því að ekki færri en fimm Norðmenn hefðu verið í vélinni. Samkvæmt upplýsingum frá Flug- leiðum benti ekkert til þess að Ís- lendingar hefðu verið um borð. Slysið í Mílanó í gær var það fjórða í sögu SAS þar sem manntjón hefur orðið. Í janúar 1969 biðu 15 manns bana er DC-8 þota félagsins fórst undan ströndum Los Angeles. Þá létust 42 er Caravelle-þota fé- lagsins fórst í janúar 1960 í aðflugi að flugvellinum í Ankara í Tyrk- landi. Í júlí 1948 létust og allir 32 farþegar DC-6 flugvélar SAS sem fórst við Northwood í Bandaríkjun- um. Hlutabréf í flugfélaginu lækk- uðu um leið og fregnir tóku að ber- ast af slysinu í gærmorgun. Mannskæður árekstur tveggja flugvéla á Linate-flugvelli í Mílanó á Ítalíu Reuters Ítalskir slökkviliðsmenn að störfum við brak SAS-þotunnar á Linate-flugvelli í Mílanó í gær. Að minnsta kosti 118 létu lífið í slysinu Mílanó. AFP, AP. HOLLENSKU björgunarliði tókst í gær að lyfta rússneska kjarnorku- kafbátnum Kúrsk upp á yfirborð sjávar og byrjað var að draga hann í átt að Kólaskaga. Búist var við að björgunarprammi kæmi með kaf- bátinn til hafnar í Roslyakovo í fyrramálið, svo fremi sem veður héldist hagstætt. Kúrsk sökk í Barentshafi í ágúst í fyrra. Öll áhöfnin, 118 manns, fórst. Undirbúningur björgunar- innar hafði staðið í rúma fjóra mán- uði, en aðgerðirnar í gær gengu að sögn mjög vel. Tvö hollensk björgunarfélög, Mammoet og Smit International, unnu saman að því að ná kafbátn- um af hafsbotni. Til stóð að draga Kúrsk upp á yfirborðið um miðjan september, en aðgerðunum var nokkrum sinnum frestað vegna veðurs. Kafarar gátu loks um helgina fest 26 stálkapla, sem þurfti til að lyfta kafbátnum, en hann vegur um 20.000 tonn. Það tók 15 klukkustundir að draga bát- inn upp að yfirborðinu og hann var síðan festur við björgunarpramma, sem hélt strax af stað í átt að landi. Engin merki um leka frá kjarnakljúfum Óttast hafði verið að geislun frá kjarnakljúfum kafbátsins gæti stefnt björgunarliðinu í hættu, en vel var fylgst með magni geislunar og ekki fundust nein merki um leka. Eftir að komið verður með Kúrsk til hafnar í Roslyakovo, ná- lægt Múrmansk, verða lík áhafn- arinnar flutt til greftrunar. Á þriðja tug Granit-stýriflauga verð- ur einnig fjarlægður áður en kaf- báturinn verður fluttur í þurrkví í Snezhnogorsk, þar sem rannsókn verður hafin á orsökum slyssins. Kúrsk lyft upp á yfirborðið Murmansk. AFP, AP. ÞRÍR vísindamenn, tveir Bretar og einn Bandaríkjamaður, voru í gær tilnefndir til Nóbelsverðlauna í læknisfræði fyrir rannsóknir sínar á sviði frumulíffræði. Verðlaunahafarnir eru Bret- arnir Timothy Hunt og Paul M. Nurse, sem starfa við krabba- meinsrannsóknastofnanir í Hert- fordshire og London, og Banda- ríkjamaðurinn Leland H. Hartwell, forstöðumaður Fred Hutchinson- krabbameinsrannsóknastöðv- arinnar í Seattle. Munu þeir deila verðlaunafénu, 10 milljónum sænskra króna (um 96 milljónum íslenskra króna). Að sögn úthlutunarnefndar Nób- elsverðlaunanna á sviði læknis- fræði varpa rannsóknir þremenn- inganna ljósi á það hvernig litningagallar myndast í krabba- meinsfrumum og segir í áliti nefnd- arinnar að uppgötvanir vísinda- mannanna geti lagt grunninn að nýjum aðferðum til að lækna krabbamein. „Flest rannsóknasvið líffræðilegrar læknisfræði munu njóta góðs af þessum tímamótaupp- götvunum,“ segir í nefndarálitinu. Nóbelsverðlaunin í læknisfræði Þrír tilnefndir Stokkhólmi. AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.