Morgunblaðið - 09.10.2001, Síða 29
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2001 29
Dada Satyatmakananda er indverskur jóga
munkur sem hefur dvalist hérlendis síðan í sumar-
byrjun á vegum Ananda Marga hreyfingarinnar.
Hann helgaði ungur lífi sínu kennslu á jóga
og hugleiðslu, og hefur komið víða við á
viðburðaríkum 38 ára ferli sínum sem kennari.
Hann mun halda fyrirlestur um gildi jóga í daglegu lífi.
Fyrirlesturinn verður haldinn í veitingasalnum Litlu Brekku,
Bankastræti 2 (gegnt Lækjarbrekku) nk. þriðjudag kl. 20:00.
Aðgangur er ókeypis.
Jóga í daglegu lífi
SAMKÓP, Samtök foreldra-félaga og foreldraráða viðgrunnskólana í Kópavogi,eru 10 ára um þessar
mundir. Á aðalfundi SAMKÓPS í
kvöld kl. 20.00 verður tímamótunum
fagnað í Smáraskóla. Eftir að hafa
legið í dvala um hríð voru samtökin
endurreist árið 1999 til að stuðla að
markvissara og öflugra foreldra-
starfi við grunnskóla Kópavogs.
Foreldrum á að gefast tækifæri til
að láta rödd sína heyrast í samtök-
unum og ná þannig fram markmið-
um sínum sem eru skv. 2 gr laga
samtakanna: a) að standa vörð um
réttindi barna til menntunar og
þroska, b) að beita sér fyrir auknum
áhrifum foreldra á skólastarf c) að
stuðla að skipulegu samstarfi aðild-
arfélaganna d) að vera sameiginleg-
ur málsvari foreldra gagnvart
stjórnvöldum.
SAMKÓP hefur beitt sér fyrir
ýmsum málum er tengjast grunn-
skólanum; innan stjórnar, á fulltrúa-
ráðsþingum, í skólanefnd og for-
varnarnefnd, á ráðstefnum og innan
skólanna sjálfra og meðal foreldra-
félaga og foreldraráða. Einnig hefur
stjórn SAMKÓP staðið að nám-
skeiðum m.a. um hlutverk foreldra-
ráða og foreldrafélaga, en samtökin
telja mjög mikilvægt að styðja við
bakið á foreldrarstarfi. Í lögum
SAMKÓPS segir að samtökin skuli
ná markmiðum sínum m.a. með um-
ræðu um skóla- og uppeldismál, en
regluleg fulltrúaráðsþing eru einn
helsti vettvangur þess.
Gildi skólafærninámskeiða
og forvarnarstarfs
„SAMKÓP hefur undanfarið lagt
áherslu á móttöku nýrra grunn-
skólanemenda og foreldra þeirra,“
segir Rúnar Þórisson formaður
samtakanna, „eða að allir skólar í
Kópavogi bjóði upp á skólafærni-
námskeið fyrir foreldra sex ára
barna um upphaf skólagöngu og
uppeldismál.“ Samtökin telja slík
námskeið grunnforsendu þess að
foreldrastarf fái dafnað í grunnskól-
anum og að skapa megi góð tengsl
og samstarf nemenda, starfsfólks
skólans og foreldra þegar í upphafi.
„Við höfum hvatt alla aðila skóla-
samfélagsins til að líta á þetta mál í
víðu samhengi og skorað á skóla-
yfirvöld og skólana í Kópavogi að
taka mál þetta til skoðunar og sjá til
þess að markmiðum aðalnámskrár
er lúta að samskiptum heimila og
skóla verði náð.“
Núna halda flestir grunnskólar í
Kópavogi skólafærninámskeið.
Reynslan af námskeiðunum þykir
hafa sýnt aukinn áhuga og virkni
foreldra í skólastarfi og vaxandi
meðvitund skóla og starfsmanna um
foreldrasamstarf. Margar rannsókn-
ir um þessi mál hafa leitt í ljós, að í
skólum þar sem samstarf við for-
eldra er samfellt og gott, verði
námsárangur, agi og líðan nemenda
betri.
SAMKÓP hefur markvisst unnið
að því að foreldrasamningar verði
teknir upp í öllum grunnskólum
Kópavogs, en foreldrasamningurinn
er forvarnarverkefni sem beinist að-
allega að foreldrum barna í
6.-8.bekk grunnskóla. Öflugt sam-
starf foreldra innbyrðis og við skól-
ann er mikilvægur liður í forvarn-
arstarfi. „Verulegur árangur hefur
náðst við að koma á foreldrasamn-
ingum í grunnskólum Kópavogs,“
segir Rúnar, „núna hefur samningn-
um verið komið á í öllum 7. bekkjum
í Kópavogi, 80% af 6. bekkjum.“
Það er ekki nokkur vafi í huga
Rúnars að árangurinn af forvarn-
arstarfinu verði orðinn sýnilegur
eftir tvö til þrjú ár. „Samtökin hafa
einning unnið að því að kynna for-
eldraröltið og mikilvægi þess,“ segir
hann, en foreldrarölt er sjálfboða-
liðastarf foreldra og skipulagt af for-
eldrafélagi í viðkomandi skóla.
Samband foreldra og kennara
Grunnur að góðu skólastarfi ligg-
ur ekki síst í hugarfari starfsmanna
skólanna og í vel hæfum og mennt-
uðum kennurum. Aukið foreldra-
starf er m.a. háð kjarsamningum við
kennara og því fjármagni og þeim
tíma sem ætlaður er til foreldrasam-
starfs. „Í ljósi nýgerðra kjarasamn-
inga má gera þær væntingar að for-
eldrastarf aukist og að skólinn eigi
meira frumkvæði í því starfi,“ segir
Rúnar, en í stefnuyfirlýsingu
Launanefndar sveitarfélaganna og
Kennarasambands Íslands kemur
fram að aðalmarkmið samningsaðila
eru betri skóli og árangursríkara
skólastarf. Lögð er sérstök áhersla á
hlutverk bekkjarkennarans og á að
foreldrasamstarf muni verða aukið.
Í því samhengi má sjá fyrir sér auk-
ið samstarf og upplýsingastreymi
foreldra og kennara m.a. varðandi
nám barnanna. „Það má sjá fyrir sér
skipulagðari og reglubundnari við-
töl, þar sem kennarar hafi aukið
frumkvæði að því að hafa samband
við foreldra,“ segir Rúnar, og að
vegna almennrar tölvueignar og
notkunar komi tölvusamskipti að
góðu gagni. Þar er hægt að setja inn
áætlanir um heimanám, skilaboð um
frammistöðu nemandans og annað
það sem gæti stutt við nám
barnanna og samskipti kennara og
foreldra.
Greinarmunur á námsvanda
og hegðunarvanda
Í lögum um námsskrár og
kennsluskipan stendur m.a. að í öllu
skólastarfi skuli tekið mið af mis-
munandi persónugerð, þroska. hæfi-
leikum, getu eða áhugasviðum nem-
enda. „Þó eru þeir margir sem
fullyrða að í skólasamfélaginu sé að
finna brotalöm í greiningu og þjón-
ustu við nemendur og foreldra
barna með sérþarfir,“ segir Rúnar,
og að hluti skýringar sé sennilega
fjárhagslegur og/eða faglegur. „Í
kjölfar rannsóknar á sérkennslu í
grunnskólum Reykjvavíkur er í
skólum borgarinnar lögð áhersla á
að greinarmunur sé gerður á þjón-
ustu við nemendur með námsvanda
og nemendur með hegðunarvanda.
SAMKÓP hefur margsinnis lagt
fram fyrirspurn í skólanefnd Kópa-
vogs, um hvort sérkennslukvóta
skólanna væri að stórum hluta varið
til að leysa agamál innan skólanna
en ekki til eiginlegrar sérkennslu-
þjónustu,“ segir hann, og að fyrir
hálfu ári hafi verið ákveðið að gera
úttekt á þeim málaflokki en hún hafi
enn ekki verið gerð. „Öllum er ljóst
að aukin þjónusta í þessum efnum
fæst ekki ókeypis né án faglegs
metnaðar. Sveitarfélög þurfa að bú-
ast við auknum útgjöldum, ekki síst í
ljósi nýrrar skólastefnu mennta-
málaráðherra, þar sem segir að það
skuli „meta líkur á námsörðugleik-
um nemenda þegar í upphafi skóla-
göngu og bregðast við áður en í
óefni er komið.““
Upphafs- og lokatími skóladags
Mikil umræða hefur verið í skóla-
samfélaginu í Kópavogi undanfarið
um upphafs- og lokatíma skóladags
grunnskólanna í Kópavogi og yfir-
lýsta stefnu og tilmæli skólayfir-
valda um samræmingu í þeim efn-
um. „Það er stórt hagsmunamál að
mismunandi upphafs- og lokatími
skóladags skapi ekki ójöfnuð hvað
varðar gjald vegna dægradvalar,“
segir Rúnar. „Stjórn SAMKÓPS
hefur gert könnun á því hvað for-
eldrar greiða fyrir dvöl barna sinna í
dægradvöl/frístund og er um tölu-
verðan mismun á upphæðum að
ræða. Til að koma í veg fyrir slíkan
ójöfnuð lagði fulltrúi SAMKÓP í
skólanefnd fram á sínum tíma til-
lögu þess efnis að foreldrum sem
eiga börn í dægradvöl verði ekki
skylt að greiða fyrir hana fyrr en
eftir kl. 13.15.“ Tillagan náði ekki
fram að ganga. Skólayfirvöld hafa
lagt mikið kapp á að samræma upp-
hafstíma skóladags, en samtökin
hafa bent á að það eitt tryggi ekki
jöfnuð milli foreldra vegna dægra-
dvalar barna þeirra.
Fulltrúi foreldra
verði launaður
Rúnar segir að stjórn SAMKÓPS
hafi ítrekað óskað eftir því að skóla-
yfirvöld í Kópavogi veittu samtök-
unum stuðning; að þau yrðu studd
með föstu fjárframlagi, en því hefur
jafnan verið hafnað. „Það hefur líka
verið bent á, að eðlilegt væri að for-
eldrar og börn þeirra hefðu fulltrúa
sem væri launaður starfsmaður bæj-
arins,“ segir Rúnar og að ekki hafi
verið tekið undir það. „Það er með
ólíkindum að þrátt fyrir vilja for-
eldra til starfa og skýr ákvæði um
hlutverk og þátttöku þeirra í skóla-
samfélaginu, eru þau einu aðilar
þess sem ekki hafa fastan rekstr-
argrundvöll, starfsmann eða að-
stöðu,“ segir hann. „Þeir sem bera
ábyrgð í skólamálum í Kópavogi
verða að fara að gera upp við sig
hvort hafa eigi virkt foreldrastarf
eður ei.“ Með föstu fjárframlagi
gætu samtökin með markvissum
hætti sinnt hlutverki sínu, að mati
Rúnars, auk þess sem meiri stöð-
ugleiki skapaðist í starfsemi þeirra.
Foreldrar/ Grunnur að góðu skólastarfi liggur ekki síst í hugarfari starfsmanna skólanna og í vel hæfum og mennt-
uðum kennurum. Samtök foreldrafélaga og foreldraráða við grunnskólana í Kópavogi leggja til að fulltrúi foreldra
verði launaður, það auki líkur á árangri. Samtökin standa vörð um réttindi barna til menntunar og þroska.
Viljinn
til að skapa
samstarf
Flestir grunnskólar í Kópavogi
halda skólafærninámskeið.
Foreldrasamningar í grunnskólum
verða æ algengari.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ekki er nokkur vafi um árangur í hugum foreldra í forvarnarstarfinu í
grunnskólum Kópavogs, að mati Rúnars.
Foreldrar skólabarna í Kópa-
vogi komu fram með margar
hugmyndir og ábendingar um
skólasamfélagið á síðasta full-
trúaþingi SAMKÓPS, „Sýn for-
eldra á skólastarfið“, sem mun
hafa áhrif á vinnu samtakana á
næstunni. Þar kom m.a. eftirfar-
andi fram að:
ástæða þykir til að virkja
foreldra betur en gert er í sam-
starfi heimila og skóla
brýn þörf sé á að aðilar
skólasamfélagsins vinni betur
saman
breyta þurfi hugarfari og
móta skýra stefnu í skólamálum,
hvetja þurfi til umræðu í
þjóðfélaginu um málefni fjöl-
skyldunnar
fá faglærða og vel launaða
kennara
hlúa betur að hegðunar-
mynstri barna
fá mötuneyti og viðunandi
mataraðstöðu
lengja skóladaginn og
skapa skilyrði fyrir heilstæðan
skóla
takmarka fjölda nemenda í
bekk
sinna sköpunarþætti í námi
betur
efla þarf forvarnir
fá aukið fjármagn til skóla-
starfs
„Sýn foreldra á
skólastarfið“