Morgunblaðið - 27.10.2001, Side 1

Morgunblaðið - 27.10.2001, Side 1
246. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 27. OKTÓBER 2001 TALSMENN talibana tilkynntu í gær, að þeir hefðu handtekið og tek- ið af lífi Abdul Haq, fyrrum frægan skæruliðafor- ingja í stríðinu við Rússa og mikilvægan leið- toga stjórnar- andstöðunnar í landinu. Sökuðu þeir hann um njósnir og að hvetja til upp- reisnar gegn tal- ibanastjórninni með aðstoð Banda- ríkjamanna. Bakhtar, fréttastofa talibana- stjórnarinnar, sagði fyrst, að Haq hefði fallið í skotbardaga, en síðar, að hann hefði verið handtekinn og tekinn af lífi ásamt tveimur manna sinna í Kabúl. Sagt var, að fundist hefðu á honum mikilvæg skjöl, sem sýndu fyrir hverja hann hefði unnið, og gervihnattasími. Um hann hefði hann haft samband við bandarískar þyrlur, sem hefðu reynt að lenda til að bjarga honum, en orðið frá að hverfa. Haq var ein af mestu hetjum Afg- ana í stríðinu við Rússa en hefur ekki haft nein afskipti af afgönskum mál- efnum síðan 1992 og búið erlendis. Ættingjar hans segja, að honum hafi snúist hugur er hann frétti, að talib- anar hefðu líflátið konu hans og son. Vildi semja við hófsama talibana Haft er eftir sumum heimildum, að hann hafi komið til Afganistans sl. sunnudag, en aðrar segja, að hann hafi komið þangað 21. september ásamt 100 mönnum til að semja við ættbálkahöfðingja og hófsama talib- ana um andstöðu við Kabúlstjórnina og notið við það stuðnings banda- rísku og pakistönsku leyniþjónust- unnar. Afganska fréttastofan AIP sagði í gær, að hermenn talibana sætu enn um 50 fylgismenn Haqs í Azro í Log- ar-héraði. Haq studdi Mohammed Zaher Shah, fyrrverandi konung Afganistans, og er dauði hans áfall fyrir alþjóðlegar tilraunir til að koma saman nýrri stjórn í stað talibana- stjórnarinnar. Talibanar handtóku mikilvægan andstöðuleiðtoga Sakaður um njósnir og líflátinn í Kabúl Kabúl. AP, AFP. Abdul Haq BRESKA stjórnin tilkynnti í gær, að 200 breskir sérsveitamenn væru til- búnir til aðgerða í Afganistan og unnt að flytja þangað aðra 600 með litlum fyrirvara. Talið er, að farið verði að beita sérsveitunum af fullum krafti innan skamms. Breskir embættismenn og hernað- arsérfræðingar sögðu, að skotmörk sérsveitanna yrðu fyrst og fremst birgðastöðvar og herstöðvar talibana og leiðtogar þeirra og al-Qaeda- hryðjuverkasamtakanna. Sögðu þeir, að hernaðurinn gæti staðið mánuðum saman og hugsanlega fram á vor. Bandarískar orrustu- og sprengju- flugvélar héldu uppi hörðum árásum á Kabúl í gær og fréttir eru um, að að- albirgðastöð Rauða krossins í borg- inni hafi orðið fyrir sprengju í annað sinn. Rauði krossinn fordæmdi þess- ar árásir í gær og benti á, að húsin hefðu verið auðkennd með rauðum krossum. Þá fordæmdi Rauði kross- inn einnig, að talibanar skyldu hafa rænt birgðastöð samtakanna í Mazar- i-Sharif. Peter Kessler, talsmaður Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær, að talibanar hefðu rænt skrifstofur og birgða- stöðvar samtakanna í Kandahar. Bin Laden með efni til að smíða kjarnorkusprengju? Breska dagblaðið The Times hafði í gær eftir leyniþjónustuheimildum, að Osama bin Laden og al-Qaeda hefðu komist yfir efni til að smíða kjarn- orkusprengju og líklega fengið það frá Pakistan. Segir blaðið, að þessi vitneskja sé hugsanlega skýringin á því hve fljótt var ákveðið að reyna að hafa hendur í hári hans þótt það Rauði krossinn fordæmir árás á birgðastöð í Kabúl í annað sinn Búist við hernaði sér- sveita innan skamms Reuters Þessi mynd, sem Al-jazeera-sjónvarpsstöðin í Qatar birti, sýnir birgðastöð Rauða krossins í Kabúl eftir loft- árásir í gær. Hún varð einnig fyrir sprengjum fyrr í mánuðinum. Kabúl, Washington, London. AP, AFP þýddi, að fyrst yrði að steypa talib- anastjórninni í Afganistan. Stjórnvöld í Pakistan sögðu í gær, að tveir pakistanskir kjarnorkuvís- indamenn hefðu verið teknir til yfir- heyrslu en haft er eftir heimildum, að þeir hafi aðstoðað talibanastjórnina í Afganistan í vísindalegum efnum. Fullyrt var í Pakistan í gær, að starfsmaður í banka í Karachi hefði sýkst af miltisbrandi eftir að hafa handleikið grunsamlegt bréf. Bank- inn var ekki nefndur á nafn, aðeins, að um væri að ræða útibú stórrar, al- þjóðlegrar fjármálastofnunar. ABC-sjónvarpsstöðin bandaríska sagði í gær og hafði eftir þremur ólík- um heimildum, að rannsóknir á milt- isbrandsgróum, sem send voru Tom Daschle, forseta öldungadeildarinn- ar, sýndu, að í þeim væri svifefni, sem eru einkennandi fyrir sýklavopna- framleiðslu Saddams Husseins Íraks- forseta. Ekki er þó útilokað, að þessi efni hafi verið notuð annars staðar.  Ekki hugmynd/24 BJÖRGUNARMENN komust í gær á slysstaðinn í St. Gotthards-jarð- göngunum í Sviss og virðist nú ljóst, að slysið kostaði 11 manns lífið. Í fyrradag var jafnvel óttast, að tugir manna hefðu farist í um 100 bílum en björgunarmenn töldu 23 bíla á slysstaðnum í gær, þar af 13 flutningabíla. Hafði flestum þeirra, sem í þeim voru, tekist að forða sér. Talið er, að göngin verði lokuð umferð í tvo eða þrjá mánuði. Myndin var tek- in á slysstaðnum í gær. Reuters Jarðgangaslysið í Sviss kostaði 11 manns lífið WOLFANG Schüssel, kanslari Austurríkis, sagði í gær að hlutleys- isstefna væri fyrirbrigði sem til- heyrði liðinni tíð og ætti engan veginn við í nú- tímanum. Kansl- arinn lét þessi orð falla í sjónvarps- ávarpi á þjóðhá- tíðardegi Austur- ríkismanna en 26. október 1955 voru samþykkt lög um „ævarandi hlutleysi“ Austurríkis. Kanslarinn sagði hlutleysisstefn- una „gamaldags hefð“ og líkti henni við önnur rótgróin austurrísk fyrir- brigði á borð við Mozart-kúlur og Lippizaner-hestakynið fræga. Hún væri hins vegar í engu samræmi við þann flókna veruleika, sem við blasti við upphaf 21. aldarinnar. Á þjóðhátíðardaginn er jafnan fagnað sérstaklega hlutleysi Austur- ríkis, sem lýst var yfir 1955 þegar gengið var frá samkomulagi um brotthvarf herja bandamanna, sem höfðu hersetið landið frá lokum síð- ari heimsstyrjaldar. Umræður um gildi hlutleysis hafa aukist mjög eftir árás hryðjuverka- manna á Bandaríkin 11. fyrra mán- aðar. Stjórnmálamenn og sérfræð- ingar hafa deilt um hversu langt Austurríkismenn geti gengið í stuðn- ingi við þá alþjóðlegu baráttu, sem hafin er gegn hryðjuverkaógninni, án þess að kasta hlutleysinu. Íhaldsmenn og Frelsisflokkurinn eru í stjórn og þeir hafa verið áfram um að styðja Bandaríkjamenn í stríði því sem þeir hafa lýst yfir gegn hryðjuverkamönnum. Stjórnin hefur á hinn bóginn ekki þann stuðning á þingi sem nauðsynlegur er til að fá breytt stjórnarskrá landsins. Hlutleysi á ekki lengur við Vín. AFP. Wolfgang Schüssel

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.