Morgunblaðið - 27.10.2001, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 27.10.2001, Blaðsíða 36
UMRÆÐAN 36 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞRÁTT fyrir að evran hafi verið virk- ur gjaldmiðill nú í tvö og hálft ár verður það fyrst um áramót sem íbúar evrusvæðisins fá gjaldmiðilinn raun- verulega í hendurnar. Það hlýtur að teljast töluverður áfangi í sögu Evrópu þegar peningaseðlar og mynt hins nýja gjald- miðils koma fram á sjónarsviðið og evran tekur við sem lögeyrir í tólf aðildarríkjum. Gömlu gjaldmiðlar að- ildarríkjanna munu svo hverfa úr umferð í síðasta lagi 1. júlí árið 2002. Ráðstefnan á Íslandi Af þessu tilefni stendur fram- kvæmdastjórn Evrópusambands- ins fyrir ráðstefnum um áhrif evr- unnar í öllum aðildarríkjum ESB, ásamt nánustu samstarfsríkjum þess. Ráðstefnan á Íslandi verður í Skála á Hótel Sögu miðvikudaginn 31. október nk. og er haldin í sam- starfi við Útflutningsráð og Euro Infó-skrifstofuna á Íslandi, auk þess sem Samtök iðnaðarins munu bjóða upp á léttar veitingar í ráð- stefnulok. Að undanförnu, og fram að ára- mótum, hefur evran aðeins verið til „óhlutbundið“, sem þýðir að hún hefur ekki verið áþreifanleg en fólk hefur þó getað fengið ávís- anahefti og átt bankainnistæður í evrum. En evran er nú þegar orð- in áberandi í ríkisfjár- málum og mörg stór fyrirtæki færa bók- hald í evrum og eigin gjaldmiðli eða ein- göngu í evrum. Upptaka evrunnar í flestum ríkjum ESB er í raun rökrétt þró- un á hinum innri markaði Evrópusam- bandsins en mynt- samstarfið mun leiða til meiri stöðugleika á svæðinu og auka at- vinnu. Auk hins efna- hagslega ávinnings er myntsamstarfið ekki síður pólitísk aðgerð til að stuðla að samvinnuþróun Evrópu, en margir líta svo á að með tilkomu evrunnar verði full- komlega sameiginlegur innri markaður loks að veruleika. Sameiginlegur gjaldmiðill í Evr- ópu hefur jafnframt í för með sér töluvert hagræði fyrir almenning. Þannig verður allur verðsaman- burður milli evrulandanna mun auðveldari og gegnsærri og ferða- menn munu spara bæði tíma og fyrirhöfn með því að notast aðeins við einn gjaldmiðil. Þannig getur ferðamaðurinn til að mynda greitt aðgangseyrinn að safni á Ítalíu með afganginum frá dvölinni í Grikklandi, og borgað kvöldverð- inn í Frakklandi með seðlum úr hraðbanka á Spáni. Brýnt að skipta gjaldeyrinum sem fyrst Eftir meira en 10 ára undirbún- ing munu 12 Evrópuríki leggja niður gjaldmiðil þjóðar sinnar og taka upp hinn sameiginlega gjald- miðil; evruna. Á nokkrum dögum munu yfir 14 milljarðar evruseðla og 50 milljarðar evrumyntar líta dagsins ljós, en frá fyrsta degi munu peningaseðlar og mynt í evr- um verða til reiðu sem virkur gjaldmiðill í öllum bönkum, hrað- bönkum, pósthúsum og verslunum á evrusvæðinu. Nú eru ekki margir dagar fram til þessara stærstu gjaldmiðils- skipta sögunnar þegar 300 millj- ónir Evrópubúa fá nýjan gjald- miðil. Íslenskir ferðamenn sem ferðast um evrusvæðið fram að áramótum ættu því að gæta þess sérstaklega að nota alla seðla og mynt fyrir heimferð eða skipta þeim yfir í evrur eða krónur fyrir árslok áður en gjaldmiðill hinna 12 Evrópuríkja fellur úr gildi. Evru- seðlar og mynt líta fyrst dagsins ljós 1. janúar 2002 og flest evru- landanna munu taka gamla gjald- miðilinn að fullu úr umferð aðeins tveimur mánuðum síðar en í nokkrum þeirra verður gamli gjaldmiðillinn ógildur fyrir þann tíma. Á þeim tíma þegar tveir gjaldmiðlar eru í umferð munu þeir sem greiða með gömlum gjaldmiðli fá til baka í evrum. Um miðjan janúar ætti einungis að nota evrur í verslun og viðskipt- um. Frá 28. febrúar á næsta ári verður ekki lengur hægt að nota gamla gjaldmiðil evruríkjanna 12 sem greiðslumiðil. Í sumum ríkjanna hafa viðskiptabankar komið sér saman um fast tímabil þar sem mögulegt verður að skipta gamla gjaldmiðlinum í evrur. Á Spáni, svo dæmi sé tekið, verður hægt að skipta pesetum í evrur fram til 30. júní 2002. Seðlabank- arnir í aðildarríkjunum munu halda áfram að taka við gamla gjaldmiðlinum, sumir í ótakmark- aðan tíma en aðrir í 2–10 ár. Þann- ig mun t.d. Seðlabanki Grikklands skipta drökmuseðlum í 10 ár en mynt þarf að skipta innan tveggja ára. Líklega er þó skynsamlegast að skipta gamalli mynt sem ein- hverjir kunna að eiga heima frá gamalli tíð, fyrir árslok 2001. Seðlabankar evruríkjanna munu ekki krefjast þóknunar fyrir að skipta gömlum gjaldmiðli í evrur. Þar sem skiptin fara fram í við- skiptabönkum utan evrusvæðisins er ekki óeðlilegt að bankarnir krefjist einhverrar þóknunar fyrir sína þjónustu. Seðlabanki Evrópu og framkvæmdastjórn ESB biður seðlabanka að þrýsta á viðskipta- banka í sínu ríki til að þeir gæti hófs við ákvörðun þóknunar. Hefur evran áhrif á Íslandi? Gerhard Sabathil Gjaldmiðlar Frá 28. febrúar á næsta ári, segir Gerhard Sab- athil, verður ekki leng- ur hægt að nota gamla gjaldmiðil evruríkjanna. Höfundur er sendiherra fasta- nefndar framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.