Morgunblaðið - 27.10.2001, Blaðsíða 16
Morgunblaðið/Benjamín
HAUSTIÐ hefur farið mildum
höndum um Norðlendinga og á síð-
asta degi sumarsins skörtuðu þau
sínu fegursta sumarblómin á um-
ferðareyjunni í Glerárgötu á Ak-
ureyri.
Blómin skörtuðu
sínu fegursta
AKUREYRI
16 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Bingó hjá
Baldursbrá
KVENFÉLAGIÐ Baldursbrá verð-
ur með fjölskyldubingó sunnudaginn
28. október kl. 15:00. Fjöldi góðra
vinninga. Allur ágóði rennur í söfnun
fyrir steindum glugga í Glerár-
kirkju. Allir hjartanlega velkomnir.
GLERÁRKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11 á morgun, sunnudag. Barna-
kór kirkjunnar syngur. Kyrrðar- og til-
beiðslustund kl. 18.10 á þriðjudag,
fyrirbænir. Hádegissamvera kl. 12 til 13
á miðvikudag. Opið hús fyrir foreldra og
börn á fimmtudag frá kl. 10 til 12.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Fjölskyldusam-
koma kl. 11 á morgun, sunnudag. Börn
og unglingar syngja, sýna leikþátt og
brúðuleikhús. Kynning á barna- og ung-
lingastarfi Hjálpræðishersins. Heimila-
sambandið kl. 15 á mánudag. Fundur
fyrir konur á öllum aldri. Örkin hans Nóa,
fyrir krakka í 1. og 2. bekk kl. 17 á
mánudag. Biblíufræðsla kl. 19 á þriðju-
dag. Boðið verður upp á léttan málsverð.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bænastund
verður í kvöld, laugardag kl. 20. Sunnu-
dagaskóli fjölskyldunnar á morgun,
sunnudag kl. 11.30. Kennsla fyrir alla
aldurshópa. Pétur Ingimar Reynisson
sér um kennslu fullorðinna. Pétur predik-
ar einnig á vakningasamkomu kl. 16.30
sama dag. Fjölbreytt lofgjörðartónlist og
fyrirbænaþjónusta, barnapössun.
KFUM og K: Biblíu- og bænastund kl. 17
á morgun, sunnudag. Fundur í yngri
deild, fyrir drengi og stúlkur, 10 til 12
ára á mánudag kl. 17.
LAUGALANDSPRESTAKALL: Messa kl.
11 á morgun í Kaupvangskirkju. Messa
sama dag kl. 13.30 í Hólakirkju. Predik-
unarefni:Tollheimtumenn og skækjur.
MÖÐRUVALLAPRESTAKALL: Messa
verður fyrir allt prestakallið í Möðruvalla-
kirkju á morgun, sunnudag, 28. október
kl. 14:00. Sr. Gylfi Jónsson predikar.
Sóknarprestur þjónar fyrir altari.
Messukaffi á prestssetrinu eftir messu.
Kirkjustarf
Hlátur
fyrir alla
HUGRÚN Lilja Hörn hlátursleið-
beinandi kynnir hlátursnámskeið í
dag, laugardag kl. 16, í Glerárgötu
32, 3. hæð, gengið inn að austan.
Kynning á námi
GUNNAR Gunnarsson sálfræðing-
ur og höfuðbeina- og spjaldhryggs-
jafnari kynnir þriggja ára heildar-
nám í Cranio-Sacral meðferð. Hún
fer fram að Glerárgötu 32, 3. hæð,
gengið inn að austan í dag, laugar-
dag kl. 14. Meðferð kynnt og sýnd á
staðnum.
Töluvert af
loðnu við
Kolbeinsey
NÓTASKIPIÐ Súlan EA landaði 32
tonnum af loðnu í Krossanesi í vik-
unni, eftir um viku loðnuleitartúr
fyrir norðan land. Bjarni Bjarnason
skipstjóri sagðist hafa orðið var við
töluvert af loðnu vestan við Kol-
beinsey en að hún hefði verið dreifð
og óveiðanleg. Einnig varð vart við
eitthvað af loðnu austan við Kol-
beinseyjarhrygginn, þar sem Súlan
fékk þessi 32 tonn af mjög góðri
loðnu. Bjarni sagði þó ljóst að skip-
verjar myndu ekki sprengja neina
launaskala í þessum túr.
Súlan leitaði á svæðinu frá Hala og
austur fyrir Sléttu og keyrði um
1.100 sjómílur í túrnum. „Við vorum
bara einir að flækjast þarna, hafið er
stórt og það skiptir máli að vera fleiri
við að leita.“
Bjarni sagði að sjórinn fyrir norð-
an land væri enn hlýr en hann taldi
það aðeins tímaspursmál hvenær
loðnan myndi gefa sig.
ÞRÍR fulltrúar rússneska álfélagsins
Russian Aluminium voru á Akureyri í
fyrradag og áttu þar fund með Val-
gerði Sverrisdóttur iðnaðar- og við-
skiptaráðherra.
„Þeir lýstu yfir áhuga sínum á að
skoða uppbyggingu álframleiðslu á
vegum fyrirtækisins hér á landi,“
sagði Valgerður.
Russian Aluminium er annað
stærsta álframleiðslufyrirtæki heims
en höfuðstöðvar þess eru á Péturs-
borgarsvæðinu í Rússlandi. Fram-
leiðsla þess á síðasta ári nam tveimur
milljónum tonna af áli.
Fulltrúar Atvinnuþróunarfélags
Eyjafjarðar fóru með Rússunum og
skoðuðu aðstæður á Dysnesi í Arn-
arneshreppi, en það svæði hefur verið
tekið frá í skipulagi undir stóriðju.
„Það sem mér fannst athyglisverð-
ast er að þeir hafa áhuga á að kanna
hvort grundvöllur er fyrir framleiðslu
súráls, en slík framleiðsla er ekki fyrir
hendi hér á landi. Jarðhitinn sem við
búum við hér á landi er lykillinn að því
að svo geti orðið,“ sagði Valgerður.
Hún sagði að Rússarnir hefðu vitað af
uppbyggingu á þessu sviði hér á landi
sem og af hreinni orku og jarðhita og
því hefðu þeir sýnt því áhuga að
byggja upp hér.
Valgerður sagði málið á algjöru
byrjunarstigi.
Morgunblaðið/Hólmar Svansson
Lóðin á Dysnesi í Eyjafirði sem ætluð er undir stóriðju.
Fulltrúar Russian Aluminium skoðuðu aðstæður á Dysnesi við Eyjafjörð
Möguleiki á súr-
álsframleiðslu
ÞINGMENN Norðurlandskjör-
dæmis eystra voru á yfirreið um
kjördæmið í vikunni og áttu fundi
með fjölda fólks á svæðinu.
Þingmennirnir hittu fyrir sveit-
arstjórnarfólk, fulltrúa stofnana,
fyrirtækja og einstaklinga í sér-
stökum viðtalstímum á þriggja
daga ferð um Þórshöfn, Raufar-
höfn, Mývatnssveit, Laugar,
Húsavík og Akureyri.
Að sögn Halldórs Blöndals for-
seta Alþingis og fyrsta þingmanns
kjördæmisins eru fundir sem
þessir mjög mikilvægir. Hann
sagði að samgöngu- og atvinnumál
hefðu verið ofarlega í huga sveit-
arstjórnarmanna á svæðinu. Hall-
dór sagði að Norður-Þingeyingar
hefðu miklar áhyggjur af fólks-
fækkun á svæðinu og þá sérstak-
lega Raufarhafnarbúar, þar sem
hafi orðið ógnvænleg fækkun á
síðustu árum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Hagstofunni voru íbúar
Raufarhafnarhrepps þann 1. des-
ember sl. 341 en fyrstu 9 mánuði
þessa árs fækkaði íbúum hrepps-
ins um rúmlega 50 og er íbúatalan
því komin niður fyrir 300 manns.
Árið 1998 voru íbúar hreppsins
407 talsins. Halldór sagði að menn
hefðu einnig haft áhyggjur af
framtíð rækjuverksmiðjunnar á
Kópaskeri þar sem ekki væri nein
innfjarðarrækjuveiði í Öxarfirði.
Morgunblaðið/Kristján
Árni Steinar Jóhannsson, Einar Már Sigurðsson, Valgerður Sverr-
isdóttir, Halldór Blöndal, Tómas Ingi Olrich og Steingrímur J. Sig-
fússon tóku á móti viðmælendum sínum á Hótel KEA á Akureyri.
Einar Már sat fundinn í forföllum Svanfríðar Jónasdóttur.
Þingmenn á ferð um
Norðurlandskjördæmi eystra
Ógnvænleg
fólksfækkun á
Raufarhöfn
BARNASKÓLINN í Ólafsfirði fékk á
dögunum tólf nýjar tölvur til
kennslu fyrir nemendur skólans. Um
er að ræða Dell tölvur sem tengdar
eru netþjóni hjá Nett / Anza á Ak-
ureyri. Vinna nemendur á tölvurnar
sem eru beintengdar við
Nett; hýsing gagna er með öðrum
orðum á Akureyri. Enginn hugbún-
aður er á harðdiskum tölvanna
sjálfra, en þó er hægt að breyta þeim
í venjulegu einmenningstölvu.
Tölvurnar eru keyptar á kaup-
leigu til fjögurra ára, og segir Guð-
björn Arngrímsson að eini munurinn
á þessu fyrirkomulagi og öðrum
tölvuverum sé sá að snúran lengist
um 64 kílómetra!
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Guðbjörn Arngrímsson og Hild-
ur A. Ólafsdóttir, skólastjóri
barnaskóla Ólafsfjarðar.
Nýjar tölvur
Barnaskólinn í Ólafsfirði
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦