Morgunblaðið - 27.10.2001, Blaðsíða 42
MINNINGAR
42 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Trausti Aðal-steinsson fæddist
í Hrísey 12. mars
1936. Hann lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri 19.
október síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Kristbjörg Pálsdóttir
og Aðalsteinn Jóns-
son. Trausti var
yngstur þriggja
bræðra sem nú eru
allir látnir. Þeir voru
Þorvaldur Stein-
grímsson, f. 1924, d.
1994, og Steingrímur
Aðalsteinsson, f. 1927, d. 1982.
Árið 1957 gekk Trausti að eiga
eftirlifandi eiginkonu sína, Þórdísi
Árnadóttur frá Ólafsfirði. Þau
hófu búskap á Akureyri en árið
1960 fluttust þau til Ólafsjarðar
þar sem þau hafa alið allan sinn
aldur síðan. Þau eignuðust tvær
dætur sem báðar búa á Ólafsfirði.
Þær eru: 1) Björg Traustadóttir, f.
1965, gift Rögnvaldi Karli Jóns-
syni, f. 1961. Börn þeirra eru Þór-
dís Ellen, f. 1987, Heiðar Karl, f.
1995, og Trausti
Karl, f. 1995. 2) Mar-
grét Traustadóttir, f.
1970, í sambúð með
Borgari Frey Jónas-
syni, f. 1970. Sonur
þeirra er Baldvin
Már, f. 1996.
Trausti ólst upp í
Hrísey en faðir hans
lést af slysförum þeg-
ar hann var aðeins
sex ára. Kristbjörgu
móður hans tókst að
halda fjölskyldunni
saman en Trausti fór
ungur að vinna. Hug-
ur hans stefndi snemma út á sjóinn
og starfaði hann við sjómennsku
nánast allan sinn starfsaldur.
Fyrstu árin á Ólafsfirði var hann í
útgerð með tengdaföður sínum.
Seinna eignaðist hann Arnar ÓF 3
við þriðja mann. Síðustu sjómanns-
árin starfaði hann í góðra vina
hópi á Ólafsfjarðartogurunum Sól-
bergi og síðar Mánabergi.
Útför Trausta Aðalsteinssonar
fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju í
dag og hefst athöfnin klukkan 14.
„Odda mín, hann Trausti minn er
dáinn.“ Þessi orð Dísu systur minnar
hljóma aftur og aftur í huga mér en
eru einhvern veginn óskiljanleg.
Þessi maður, sem aldrei varð mis-
dægurt um sína daga og maður hafði
á tilfinningunni að væri ódrepandi, er
nú fallinn frá á besta aldri.
Trausti var eitthvert mesta
hreystimenni sem ég hef nokkru
sinni hitt og kallaði hann ekki allt
ömmu sína. Laglínan „hann var sjó-
maður dáðadrengur“ kemur upp í
hugann þegar maður hugsar um
Trausta. Eins og títt er um hrausta
menn var sjómennskan honum svo í
blóð borin að maður hefði getað trúað
því að sjór streymdi um æðar hans.
Jafnvel þegar hann var hættur á sjó
(að nafninu til) varð hann að eiga litla
trillu til að geta róið til fiskjar.
Þar sem ég er yngst átta systkina
og Dísa elst er heil kynslóð á milli
okkar. Ég man aldrei annað en
Trausti hafi verið hluti af fjölskyld-
unni enda þau búin að vera gift í
fimm ár þegar ég fæddist. Það kom af
sjálfu sér að þau fóstruðu mig þegar
svo bar undir og hin síðari ár hef ég
orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að
tengjast þeim enn betur og kynnast
Trausta almennilega. Það sem stend-
ur upp úr í huga mér eftir fráfall hans
er hversu mikill fjölskyldumaður
hann var. Hann lifði fyrir Dísu sína
og dæturnar og ekki síður fyrir
barnabörnin þegar þau fóru að koma
og telst dóttir mín ein af þeim. Hún
kallaði hann alltaf Trausta afa og
honum þótti vænt um það, enda hefði
hann viljað eiga fullt hús af börnum
og barnabörnum.
Það var í lok júlí í sumar sem fjöl-
skyldan fékk staðfestingu á þeim ótta
sem farinn var að hrjá okkur. Trausti
greindist með illkynja krabbamein
og ljóst að aðeins væri tímaspursmál
hvenær maðurinn með ljáinn kveddi
dyra. Engan grunaði þó hversu stutt-
ur tími væri til stefnu. Það var til
marks um hvern mann Trausti hafði
að geyma að aldrei lét hann bugast
þrátt fyrir vonlausa baráttu og enda-
lausar kvalir. Hann tók þessu, eins og
öðrum áföllum í lífinu, með sínu al-
kunna æðruleysi en hafði þó áhyggj-
ur af því hvernig Dísu sinni mundi
reiða af.
Elsku Dísa, Björg og Maddý. Þau
verða þung sporin ykkar og okkar
allra í dag, en minningin um góðan
dreng lifir með okkur. Við Guðmar
biðjum algóðan Guð að vaka yfir ykk-
ur og veita ykkur styrk í sorginni.
Oddný Árnadóttir.
Jæja, þá er stríðinu hans Trausta
lokið. Mikið var þetta stutt stríð.
Ljúfur og góður maður er farinn frá
okkur langt um aldur fram og enn
einu sinni var það krabbinn sem hafði
yfirhöndina.
Þegar ég frétti að Trausti væri
orðinn veikur þá rifjuðust upp allar
minningarnar vegna pabba og þegar
hann var veikur og ég vonaði svo inni-
lega að Trausti fengi að lifa lengur en
pabbi gerði, en maður ræður greini-
lega litlu um það. Báðir urðu þeir að-
eins 65 ára.
Ég á margar góðar minningar um
hann Trausta. Ég minnist m.a. gömlu
góðu daganna þegar við Maddý
frænka vorum alltaf að leika okkur
saman heima hjá þeim hjónum og svo
fékk ég oft að fara með þeim í útilegu
af því að þau áttu svo stóran og fínan
tjaldvagn. Mér fannst eiginlega eins
og þau hjónin væru hálfgerðir fóstur-
foreldrar mínir þegar ég var yngri,
svo mikið var ég hjá þeim. Svo seinna
flutti ég suður en alltaf þegar ég kom
norður þá fórum við mamma í heim-
sókn til þeirra því það var einn af
stöðunum sem maður fór alltaf á. Og
alltaf var gott að koma til Trausta og
Dísu, en nú er Dísa allt í einu orðin
ein og það verður skrýtið að heim-
sækja hana og eiga ekki von á að
hitta Trausta í eldhúsinu yfir pott-
unum.
Elsku besta Dísa frænka, Maddý,
Björg og makar. Mínar innilegustu
samúðarkveðjur til ykkar allra. Guð
styrki ykkur í sorginni.
Kærar kveðjur.
Lísbet Kristinsdóttir.
TRAUSTI
AÐALSTEINSSON
✝ Hálfdan Auðuns-son fæddist í
Dalsseli í Eyjafjalla-
sveit hinn 30. apríl
1911. Hann lést á
Heilsugæslustöðinni
á Hvolsvelli 19. októ-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
hjónin Guðlaug
Helga Hafliðadóttir
húsmóðir, f. 17.1.
1877, d. 28.12. 1941,
og Auðunn Ingvars-
son, kaupmaður og
bóndi, lengi í Dals-
seli, en síðast á Leifs-
stöðum, f. 6.8. 1867, d. 10.5. 1961.
Hálfdan ólst upp hjá foreldrum sín-
um í Dalsseli ásamt ellefu systkin-
um. Elstur var Markús, f. 16.11.
1898, d. 22.6. 1926, sonur Auðuns
og fyrri konu hans er lést frá syni
sínum ársgömlum, hann ólst upp
hjá föður sínum og seinni konu
hans, Guðlaugu. Alsystkini Hálf-
danar eru Guðrún, f. 23.9. 1903, d.
26.10. 1994; Ólafur Helgi, f. 31.
desember 1905, d. 20. 10. 2000;
Leifur, f. 26.2. 1907, d. 9.11. 1978;
Hafsteinn, sem einn lifir systkini
sín, f. 29.9. 1908; Ingigerður Anna,
f. 17.9. 1909, d. 16.9. 1987; Mar-
grét, f. 28.5. 1912, d. 12.2. 1972;
Sighvatur, f. 1.7. 1913, d. 6.8. 1914;
Valdimar, f. 11.12. 1914, d. 23.1.
1990; Konráð, f. 26.9. 1916, d. 28.4.
1999; Guðrún Ingibjörg, f. 2.6.
1918, d. 1.5. 1987. Hálfdan kvænt-
ist hinn 23. desember 1944 Sigríði
Kristjánsdóttur, f. á Seljalandi
undir Eyjafjöllum 1.5. 1920, d. 12.4.
2000, dóttur hjónanna Kristjáns
Ólafssonar, f. 15.4. 1890, d. 6.4.
1945, og Arnlaugar Samúelsdótt-
ur, f. 27.9. 1887, d. 11.12. 1968, er
þar bjuggu. Sigríður var þriðja í
röð sex barna þeirra hjóna er náðu
fullorðinsaldri: Ólafur, f. 21.9.
1915, d. 6.4. 1981; Magnús, f. 30.1.
1918, d. 9.2. 1987; Aðalbjörg, f.
25.10. 1923; Þuríður, f. 16.7. 1926;
Marta, f. 6.11. 1929. Uppeldissystir
Sigríðar er Svanlaug Sigurjóns-
dóttir, f. 4.7. 1937. Tvö systkini Sig-
ríðar dóu í æsku, þau Högni, tví-
burabróðir Aðalbjargar, d. 2.7.
1924, og Þuríður eldri, f. 13.10.
1921, d. 30.8. 1924. Hálfdan átti
með Aðalbjörgu Skæringsdóttur, f.
23.3. 1911, d. 28.5. 1997, Sigurð
Sveinsson Hálfdanarson, f. 28.6.
1935, maki Theodóra Sveinsdóttir,
f. 15.3. 1936. Börn þeirra: Áslaug
Adda, f. 7.1. 1958, maki Smári
Jónsson, f. 30.8. 1958, dóttir þeirra
Áslaug Theodóra, f. 25.12. 1991, en
sonur Áslaugar og Guðjóns Guð-
jónssonar er Guðjón, f. 3.3. 1980;
Helga Hanna, f. 5.3. 1962, maki
Ægir Steinn Sveinþórsson, f. 25.7.
1964. Börn þeirra: Ásta, f. 21.1.
Þormar Harri, f. 7.6. 1994, faðir
Þröstur Unnar Guðlaugsson. 9)
Sigríður Hrund, f. 21.11 1963, sam-
býlismaður Hafþór Jakobsson, f.
3.8. 1964. Þeirra börn: Ísak Jakob,
f. 16.3. 1993, Áki Freyr, f. 31.7.
1996 og Eva Huld, f. 18.10. 1999.
Hálfdan sinnti almennum bú-
störfum á æskuheimili sínu og
stundaði hefðbundið barnaskóla-
nám þeirra tíma, en einnig naut
hann tilsagnar einkakennara sem
faðir hans, Auðunn í Dalsseli, réð
til að kenna þeim systkinum erlend
tungumál. Auðunn var stórhuga
maður og tók vel móti nýrri tækni-
öld og fékk til dæmis fyrsta bíl sinn
heim í hlað á Dalsseli árið 1928.
Hálfdan og bræður hans stunduðu
akstur um leið og þeir höfðu aldur
til og sú grein varð ævistarf
margra þeirra, ásamt ýmsu öðru.
Hann fór á vetrarvertíð, sem og
margir aðrir Eyfellingar þess tíma,
til Keflavíkur og Vestmannaeyja,
en þar ók hann einnig fiskafla af
bryggjum. Árið 1926 fékk Auðunn
í Dalsseli fyrsta útvarpstækið í sína
sveit og Hálfdan fékk áhuga á þess-
ari nýju tækni og sótti á fjórða ára-
tugnum námskeið hjá Viðgerðar-
stofu Ríkisútvarpsins undir
handleiðslu Jóns Alexanderssonar
rafvirkja. Eftir það annaðist Hálf-
dan uppsetningu á viðtækjum vítt
um Rangárþing í umboði Viðtækja-
verslunar ríkisins, og stundaði
jafnframt akstur. Hálfdan og Sig-
ríður fengu til ábúðar þriðjung af
Seljalandi, jörðinni sem foreldrar
hennar sátu, og stofnuðu þar ný-
býli 1944. Þau reistu nýjar bygg-
ingar hverja af annarri: íbúðarhús,
fjárhús, fjós og hlöður og öll bú-
störf voru unnin með hjálp tækn-
innar, eftir því sem unnt var, en
Hálfdan var mjög tæknisinnaður
líkt og faðir hans hafði verið. Fljót-
lega var fallorka Hofsárinnar
eystri í hlíðinni austur af bæjunum
á Seljalandi beisluð og henni breytt
í birtu og yl og hún notuð til að
létta störfin. Gripum fjölgaði og
land var brotið til ræktunar, bæði
uppi til heiða og á söndunum þar
sem Markarfljótinu hafði verið
bægt frá með varnargörðum. Sam-
hliða þessu stundaði Hálfdan akst-
ur vörubíla, bæði hjá Vegagerðinni
og fyrir bændur í nágrenninu, en
einnig um tíma á Vörubifreiðastöð-
inni Þrótti í Reykjavík. Rekstur
búsins var þá einkum á herðum
Sigríðar og barnanna, og þegar
mest lá við voru ráðnir vinnumenn
til starfa við búið.
Hálfdan var starfandi bóndi til
dauðadags, þótt bústofninn minnk-
aði eftir því sem árunum fjölgaði,
og hann ók bíl sínum til hins síð-
asta. Hann hafði nýlega fengið
íbúð á Kirkjuhvoli, dvalarheimili
aldraðra á Hvolsvelli, naut þar frá-
bærrar umönnunar og undi hag
sínum vel.
Útför Hálfdanar fer fram frá
Stóradalskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
1991 og Silja, f. 25.1.
1993. Theodóra átti
fyrir Ástu Huldu
Kristinsdóttur, f. 30.4.
1953, maki Ögmundur
Kristinsson, f. 23.12.
1953. Sonur þeirra:
Sveinn Kristinn, f. 8.2.
1975, maki Halla
Árnadóttir, f. 22.9.
1977. Börn þeirra
Hálfdanar og Sigríðar
eru: 1) Kristján, f. 9.6.
1945, maki Sigurveig
Jóna Þorbergsdóttir,
f. 23.12. 1945. Börn
þeirra eru Hálfdan
Örn, f. 8.10. 1969, og Þóra Marta, f.
9.8. 1975, maki hennar Gunnar
Már Guðnason, f. 24.11. 1974, og
eiga þau eina dóttur, Jónu Vigdísi.
2) Auðunn Hlynur, f. 17.8. 1946,
maki Berta Sveinbjarnardóttir, f.
7.7. 1952. Þeirra börn: Sigríður
Dögg, f. 28.9. 1972, maki Edward
Williams. Sigríður á dótturina
Diljá með Stefáni Einarssyni; Hlyn-
ur Þór, f. 17.1. 1975, sambýliskona
hans Petra Vilhjálmsdóttir; Helga
Kristín, f. 2.8. 1980. 3) Guðlaug
Helga, f. 20.5. 1948, maki Ásbjörn
Þorvarðarson, f. 11.9. 1950. Þeirra
synir: Darri, f. 7.9. 1972, maki
Petra Björk Arnardóttir, f. 28.8.
1966, og eiga þau soninn Oliver og
dótturina Emilíu; Orri Þór, f. 5.8.
1977; Þórhallur, f. 25.9. 1980, unn-
usta hans Andrea Ósk Jónsdóttir.
4) Hálfdan Ómar, f. 3.12. 1949,
maki Þuríður Þorbjarnardóttir, f.
29.11. 1954. Dóttir þeirra: Anna
Þyrí, f. 31.8. 1990, en dætur hans
og Kolbrúnar Engilbertsdóttur af
fyrra hjónabandi: Guðríður Dröfn,
f. 5.8. 1973, sambýlismaður hennar
Jón Ingi Dardi, og Sara Hlín, f.
29.7. 1976, sambýlismaður hennar
Davíð Guðjónsson. Börn Þuríðar
frá fyrra hjónabandi með Sigurði
Indriðasyni: Svala f. 10.3. 1978,
sambýlismaður Róbert Gunnars-
son, hennar dóttir Hulda Bjark-
lind, og Indriði, f. 12.10. 1981. 5)
Markús, f. 4.2. 1951, maki Inga
Lára Pétursdóttir, f. 28.6. 1963.
Þeirra börn: Erla María, f. 31.12.
1989, og Pétur Dan, f. 2.4. 1992, en
synir hans og fyrri konu hans, Guð-
rúnar Ingibjargar Ólafsdóttur:
Hrafnkell, f. 15.4. 1977, sambýlis-
kona María Katrín Jónsdóttir, og
Ólafur Örn, f. 12.5. 1985. 6) Arn-
laug Björg, f. 15.10. 1952. Sonur
hennar og fyrrverandi sambýlis-
manns, Ole Leif Olsen: Arne Vagn,
f. 17.6. 1972, maki Dagný Þóra
Baldursdóttir, f. 6.9. 1975. Dóttir
þeirra: Snædís Sara. 7) Heimir
Freyr, f. 21.2. 1958. 8) Guðrún Ingi-
björg f. 19.6. 1960. Synir hennar:
Daði Hrannar, f. 23.7. 1981, faðir
Aðalsteinn Már Aðalsteinsson, og
Fyrr eða síðar kemur að kveðju-
stund. Þær fréttir að tengdafaðir
minn, Hálfdan Auðunsson bóndi að
Ytra-Seljalandi, hefði kvatt þessa
jarðvist voru þó fréttir sem við bjugg-
umst ekki við. Fáeinum dögum áður
en við fórum utan dvöldum við dag-
stund með honum á Seljalandi og
kvöddum hann hressan og ánægðan.
Hann hafði nýverið flutt sig á Hvols-
völl þar sem hann fékk íbúð á dval-
arheimili aldraðra.
Fyrir nærri 43 árum kynntist ég
þeim hjónum á Seljalandi. Ég var
strax boðin velkomin og sú gestrisni
og hlýja entist ævilangt. Lífið er svo
undarlegt, fyrir einu og hálfu ári lést
Sigríður kona hans, yndisleg mann-
eskja. Þá hittist eins á að við hjónin
vorum á Flórída. Það er eins og okkur
sé ekki ætlað að vera heima þegar
kveðja skal fólk sem okkur þykir
vænt um. Hann tengdafaðir minn var
ekki allra en hann var höfðingi heim
að sækja. Hann fylgdist vel með
skógræktinni í Melaseli sem við Siggi
komum af stað niðri á Markarfljót-
saurum. Það verður tómlegt að koma
heim að Seljalandi þegar hjónin eru
farin en minningarnar lifa með okkur
og dætrum okkar. Ég bið Hálfdani og
göngu hans í ljósinu Guðs blessunar
þar sem Sigríður mun taka á móti
honum. Ég þakka þessum heiðurs-
manni fyrir það sem hann var mér og
mínum. Öllum börnum hans, tengda-
börnum og barnabörnum sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðjur,
við Siggi verðum hjá ykkur í hugan-
um. Guð blessi ykkur og minningarn-
ar okkar um hann tengdaföður minn.
Theodóra Sveinsdóttir.
Í meira en hálfa öld bjuggu að
Dalsseli í Vestur-Eyjafjallahreppi
heiðurshjónin Guðlaug Helga Haf-
liðadóttir frá Fjósum í Mýrdal sem
fædd var árið 1877 og eiginmaður
hennar Auðunn Ingvarsson, kaup-
maður frá Neðra-Dal í Vestur-Eyja-
fjallahreppi. Auðunn fékk verslunar-
leyfi árið 1906 sem gefið var út af
Einari Benediktssyni skáldi, sem þá
var sýslumaður Rangæinga. Tíu börn
hjónanna í Dalsseli komust til fullorð-
insára, en tvö dóu í æsku. Heimilið
var alla tíð mannmargt. Þar var oftast
vinnufólk og mikil gestakoma. Dalsel
var, á fyrri hluta aldarinnar, kaup-
staður í sveit, stórt menningarheimili,
þar sem margskyns hljóðfæri skip-
uðu veglegan sess. Að Dalsseli kom
fyrsta píanóið í Rangárvallasýslu. Í
Dalsseli var einnig orgel og fleiri en
ein harmonikka. En harmonikku-
hljómarnir fylltu stofuna svellandi
tónum. Kaupmaðurinn í Dalsseli var
langt á undan sinni samtíð, t.d. hafði
hann á eigin kostnað lagt síma frá
Miðey að Dalsseli nokkuð langa leið.
Á þeim árum var Miðey ein fremsta
símstöð á Suðurlandi. Þess má geta
að í Dalsseli var til þýskt nuddtæki
sem margir trúðu á að hefði lækn-
ingamátt. Þar var líka komið útvarps-
tæki fjórum árum áður en ríkisút-
varpið tók til starfa. Því Ottó B.
Arnar hóf útvarpsrekstur í gamla
Búnaðarfélagshúsinu við Reykjavík-
urtjörn árið 1926. Þetta framtak mun
hafa kveikt í Hálfdani Auðunssyni til
að fara til Reykjavíkur til að læra og
setja upp útvarpstæki og gera við
þau. Hálfdan ferðaðist síðar um
Rangárþing þegar Ríkisútvarpið hóf
útsendingar. Hann var með litla
svarta kassa sem var sjálft útvarps-
tækið af Philips- eða Telefunken-
gerð, stóra hátalara, háspennuraf-
hlöður og sýrugeyma. Hann setti upp
löng loftnet með tilheyrandi þrumu-
leiðurum. Svo liðu dýrðarstundir upp
í litlu baðstofunum þjóðhátíðarárið.
Auðunn kaupmaður var einn af
brautryðjendum í bílaútgerð í Rang-
árvallasýslu. Hann eignaðist fyrsta
bílinn árið 1928, árið eftir rann spán-
nýr fólksbíll heim traðirnar í Dalsseli,
HÁLFDAN
AUÐUNSSON
MORGUNBLAÐIÐ tekur minningargreinar til birtingar endurgjalds-
laust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1,
Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er
enn fremur unnt að senda greinar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti
(minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda
fylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali
eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Word-
perfect einnig auðveld í úrvinnslu.
Birting minningargreina