Morgunblaðið - 27.10.2001, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 27.10.2001, Blaðsíða 52
  (!1!7! ! !(8  ( !1!$! ! !'   (/!1!  ! ! !(5   (-!1!$5! ! !'   (+!1!((! ! !(8   (8!1!$(+! ! !'   (7!1! (8! ! !(5      ! .   $  !(-&(5   "      1  1&    !2   !('&(5  !"##$%&& FÓLK Í FRÉTTUM 52 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SNILLDIN er til í takmörkuðu upplagi, jafnt andlega og í þessu til- felli líkast til efnislega líka. Hinir hugsjónamiklu Undirtónamenn, sem standa á bak við samnefnt blað, svo og tónleikaröðina Stefnumót, hrundu af stað geisladiskaröðinni Stefnumót ekki alls fyrir löngu og eru fyrstu fimm diskarnir nú þegar komnir út. Um er að ræða látlausa útgáfu í takmörkuðu upp- lagi, sem hægt er að nálgast í betri plötubúðum á 750 kr. stk. Umslögin eru hvítur pappi, með ástimpluðum, takmörkuðum upplýs- ingum og diskarnir pressaðir í því upplagi sem eftirspurnin segir til um. Miðað við það sem maður heyrir á þessum diski hér þakkar maður öllu heilögu fyrir bætt aðgengi í útgáfu á tónverkum. Því hér er sannarlega um frábæra tónlist að ræða, tónlist sem kannski aldrei hefði náð eyrum fleiri manna en höfunda, ef ekki væri notendavænni og handhægari tækni í útgáfumálum fyrir að fara. Höfundarnir að Leðurstræti, bræðurnir Sigurður og Arnar, hafa komið víða við í tónlist á ferli sínum. Allt síðan Sigurður kom fram sem Kallinn á kassanum hefur verið ljóst að þar færi glúrinn tónsmiður. Sig- urður sást fyrst í dauðarokkssveit- inni Cranium en hefur síðan starfað með Kópavogssveitinni Fallegu gul- rótinni af og til ásamt því að sinna eigin tónlist. Arnar er líklega þekkt- astur sem gítarleikari Vynilistics, eða Výnils, en starfaði hér áður fyrr með dauðarokkssveitum eins og Condemned og Sororicide. Það hefur sýnt sig að dauðarokkið hefur fóstrað margan tónlistarjöfurinn, og er hæg- ast að benda á Hlyn Aðils, liðsmann Strigaskóa nr. 42 og nýsígilda hóps- ins Atonal Future í því sambandi. Leðurstræti hljómar líkt og hér sé komin tónlist við ímyndaða hryll- ingsmynd. Um er að ræða níu ósung- in verk, sem saman mynda afar dul- magnaða heild. Þeir bræður nýta sér hér allan skalann, fara úr myrkum og myndrænum stemmum yfir í ofur- falleg og melódísk píanóstef. Notast er við hefðbundin hljóðfæri; raftakta og ýmislega hljóðbúta við smíði heildarmyndarinnar sem er að sönnu tilkomumikil. Sígild minni skjóta upp kolli; þá helst frá Wagner og Jóni Leifs (sem fær þakkir í umslagi disksins). Hljómur og slíkt hefur vissulega ekki verið settur í stafræna flauels- yfirhalningu. Áferðin er skítug, köld og stingandi og áran sem umlykur verkið er undarlega heillandi. Síð- asta stefið deyr svo út með fjögurra mínútna löngum, smálegum klukknahljómi. Fjögurra mínútna andakt sem lokar verkinu með til- þrifum. Snilld! Hér er á ferðinni merkilega þrosk- að og heildstætt verk, sérstaklega ef miðað er við að þeir bræður eru óþekkt nöfn í þessum fræðum. Einn- ig átti maður síst von á slíku frá út- gáfu sem lætur jafn lítið yfir sér og Stefnumótaröðin. Kennir manni að vera vakandi fyrir snilldinni á öllum stöðvum, hún lætur blessunarlega á sér kræla er minnst varir. Svo sann- arlega ein af gleðilegri uppgötvunum ársins. Sigurður Guðjónsson/ Arnar Guðjónsson Leðurstræti Stefnumót/Undirtónar ehf. Leðurstræti, plata þeirra Sigurðar og Arn- ars Guðjónssona. Fimmti diskurinn í Stefnumótaröð Undirtóna, merktur CD 005. Þeir bræður semja alla tónlist. 35.37 mínútur. Arnar Eggert Thoroddsen Súrefnisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi olía BLÍÐFINNUR e. Þorvald Þorsteinsson í leikgerð Hörpu Arnardóttur Í dag kl. 14 - UPPSELT Su 28. okt. kl. 14 - ÖRFÁ SÆTI Lau 3. nóv kl. 14 - UPPSELT Su 4. nóv kl. 14 - NOKKUR SÆTI KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI e. Halldór Laxness Í kvöld kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Su 28. okt kl. 20 - NOKKUR SÆTI Fi 1. nóv kl. 20 - NOKKUR SÆTI Fö 2. nóv kl. 20 - NOKKUR SÆTI Lau 10. nóv kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Lau 3. nov kl. 20 - UPPSELT Su. 11. nóv. kl. 20 - NOKKUR SÆTI Fi. 15. nóv. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Fö 16. nóv kl. 20 - LAUS SÆT ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN HAUST 2001 - 3 NÝ ÍSLENSK VERK "Da", eftir Láru Stefánsdóttur Milli heima, eftir Katrínu Hall Plan B, eftir Ólöfu Ingólfsdóttur Fö 2. nóv kl. 20 - NOKKUR SÆTI Lau 3. nóv kl. 20 - LAUS SÆTI BEÐIÐ EFTIR GODOT e. Samuel Beckett Í kvöld kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI Su 28. okt. kl. 20 - NOKKUR SÆTI Su 4. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler Í kvöld í Fjölbrautarskólanum á Sauðár- króki kl. 21 Su 28. okt. á Blönduósi kl. 17 Fi 1. nóv kl. 20 - NOKKUR SÆTI Fö 2. nóv kl. 20 - UPPSELT Lau 3. nóv kl. 20 UPPSELT DAUÐADANSINN eftir August Strindberg í samvinnu við Strindberghópinn Frumsýning í kvöld kl. 20 - UPPSELT 2. sýn fi 1. nóv. kl. 20 - NOKKUR SÆTI 3. sýn lau 3. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI Stóra svið 3. hæðin Nýja sviðið Litla sviðið Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is   Í HLAÐVARPANUM Veröldin er vasaklútur ICELANDIC TAKE AWAY THEATRE Leikstjóri: Neil Haigh, Leikmynd og búninga- hönnun Katrín Þorvaldsdóttir. 5. sýn. þri. 30. okt. kl. 21 Tveir fyrir einn - örfá sæti laus 6. sýn. lau. 3. nóv. kl. 21 örfá sæti 7. sýn. þri. 6. nóv. kl. 21 Tveir fyrir einn Tónleikar mið. 31. okt. kl. 21 Stórsveit Reykjavíkur undir stjórn Greg Hopkins              Wim Wenders hátíð Laugardaginn 27. október kl. 16:00 Í tímans rás kl. 19:00 Alabama 2000 Light Years kl. 19:30 Ameríski vinurinn kl. 22:00 Buena Vista Social Club www.kvikmyndasafn.is '()*(+ ,-( !/! ! !(/  !+! ! !(/(..+   '()*( !(,,-( !7! ! !(/ !5! ! !((!(- ( ! ' (..  ! (! ! !( ! ' (8(..+ ! ! ! !(/(..+  !8! ! !('(..+ !((! ! !(/00(1+ (  !( ! ! !(/(..+  2- +,34 !7! ! !(+ 5 6!+7+ ,  888+ , 9!+ Laugardagur 27.10 Laugardagskvöld á Gili. Sungið inn í skammdegið með Jóhönnu V. Þórhallsdóttur. 4 klassískar, Léttsveitin, Harmonikusveitin. Stormurinn og félagar úr Fóstbræðrum Miðaverð kr. 1.200. Húsið opnað kl. 22:00 Sunnudags-matinée með Hans Zomer og Gerrit Schuil, sem vera átti kl. 16:00, hefur verið frestað til sunnud. 10. 2. 2002, kl. 16:00 Sunnudagur 28.10       9$  !8! ! !'(..+ 1!$!! ! ' 1! ! !  !':41 1!!/! ! !' ()40 ;3  0 :$      -;  !"  " " )  + . ++ <0 ,  0+#=>#? ! )(;  ,   !$@%#$&& 888+0+                                      !    "#$%&'(&$)*%%+,)*#%+- Morðsaga - enginn má fara úr húsinu! Sunnudag 28. okt. kl. 20.00 Fimmtudag 1. nóv. kl. 20.00 Miðapantanir: s. 554 1985 eða midasala@kopleik.is Leikfélag Kópavogs e. Tom Stoppard NÚ ER ekki óhugsandi að listir og menning geti skipt sköpum fyrir fram- tíð mannkyns. Það er þó synd þegar mikilmennskubrjálæði grípur lista- menn og þeir taka að þjást af þeirri grillu að þeir geti bjargað veröldinni með verkum sínum. Mikilmennsku- brjálæðis söngkonu og lagasmiðs The Cranberries, Dolores O’Riordan, gætti fyrst á þriðju plötu sveitarinnar, To The Faithful Departed. Þegar tónlist- armenn velja að koma á framfæri pólitískum skilaboðum verða textarnir nefnilega að vera þeim mun snjall- ari. Því var ekki að heilsa þar og það er jafnpínlegt að hlýða á titillag þessarar nýjustu plötu, textinn einfaldlega vondur. Kannski er meinið að söngspíran ofmetnaðist við velgengni lagsins „Zombie“ af annarri breiðskífu sveitarinnar, No Need to Argue, snilldarverkinu frá árinu 1994. „Zombie“, sem fjallaði um átökin á N- Írlandi, slapp nefnilega fyrir horn og vel það. Á nýjustu plötunni er fátt að finna sem jafnast á við fyrstu plöt- urnar tvær, sem gerðu hljómsveitina fræga. Þau hafa að vísu hóað í Steph- en Street, sem stjórnaði einmitt upp- tökum á meistaraverkunum tveimur en hann nær ekki að bjarga þessu fyr- ir horn. Dolores hefur tapað andagift- inni. Angan kaffisins vitnar um það. Tónlist Angan kaffisins The Cranberries Wake Up and Smell the Coffee MCA Wake Up and Smell the Coffee, fimmti diskur Íranna í The Cranberries. Davíð Logi Sigurðsson Í draumi sérhvers manns …
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.