Morgunblaðið - 27.10.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001 11
Lagersala á Laugavegi 67
70% afsláttur af samkvæmisfatnaði
Kápur
Úlpur
Dragtir
Kjólar
Buxur
Pils
Toppar
Skór
MARKÚS Örn Antonsson, útvarps-
stjóri Ríkisútvarpsins, lagði fram á
fundi framkvæmdastjórnar stofnun-
arinnar á fimmtudag bókun sem felur
í sér tillögur eða hugmyndir um
hvernig bregðast skuli við fjárhags-
vanda Ríkisútvarpsins. En tillögurn-
ar eru m.a. settar fram í ljósi þess að
fyrstu níu mánuði ársins var 190 millj-
óna króna halli á rekstri Sjónvarpsins
og 48 milljóna króna halli af rekstri
Útvarpsins.
Um er að ræða frumtillögur sem
fela m.a. í sér að útsending sjónvarps-
ins verði stytt umtalsvert, verði frá
klukkan 18:30-22:30 á virkum dögum
og ekki lengur en til miðnættis um
helgar. Þá leggur útvarpsstjóri fram
tillögu þess efnis að tíufréttir verði
lagðar niður og mjög dregið úr sýn-
ingum frá íþróttaviðburðum sem hafa
hækkað mikið í innkaupum að und-
anförnu. Lagt er til að rekstur texta-
varps og vefjar Ríkisútvarpsins verði
einfaldaður og að dagskrá Rásar 1
verði gerð eins einföld og ódýr og
mögulegt er. Samkvæmt tillögunum
skal halda Rás 2 í samkeppnishæfu
ástandi. Einnig leggur útvarpsstjóri
til að tímabundnir ráðningarsamning-
ar sem renna út á næstunni verði al-
mennt ekki endurnýjaðir og að hefja
þurfi undirbúning að því að losa um
aðra samninga.
Tillögur enn á umræðustigi
Bjarni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsins og stað-
gengill útvarpsstjóra, segir að tillög-
urnar séu enn á umræðustigi og að
samkvæmt beiðni útvarpsstjóra hafi
framkvæmdastjórar og forstöðu-
menn rekstrarsviða þegar hafið vinnu
að drögum að rekstraráætlun sinna
sviða fyrir næsta ár og að meta áhrif
þessara aðgerða á reksturinn. Drögin
verða lögð fyrir næsta fund fram-
kvæmdastjórnar 5. nóvember nk.
„Miðað við fyrstu drög að fjárhags-
áætlun fyrir árið 2002 og miðað við
óbreytt umfang rekstrar og óbreytt
afnotagjald, er fyrirsjáanlegur 300–
400 milljóna króna rekstrarhalli hjá
Ríkisútvarpinu á næsta ári,“ segir
Bjarni. „Tillögur útvarpsstjóra miða
að því að lækka rekstrarkostnað eins
og mögulegt er. En þetta eru frum-
tillögur sem eftir er að vinna nánar.“
Bjarni segir að ekki hafi verið ráðið
að nýju í lausar stöður frá því í vor
nema til að leysa úr brýnustu verk-
efnum. „Á vormánuðum styttum við
erlendu dagskrána á virkum dögum
sem nemur tveimur og hálfri klukku-
stund á viku. Einnig vorum við með
töluvert af endursýningum í kvöld-
dagskránni í sumar. Þetta eru allt lið-
ir í sparnaðar- og aðhaldsaðgerðum
sem gripið var til.“ Bjarni segir að í
sumar hafi þessu til viðbótar verið
teknar ákvarðanir um sparnað upp á
um 90 milljónir króna til áramóta. Til-
lögur útvarpsstjóra sem lagðar voru
fram á fimmtudag eru síðan viðbót við
þau áform.
„Á næsta fundi verður fjallað nánar
um alla liði tillagna útvarpsstjóra og
að sjálfsögðu verða aðrar aðgerðir til
hagræðingar, sem kunna að koma
fram, einnig skoðaðar.“
Ríkisútvarpið hefur óskað eftir því
við menntamálaráðherra að afnota-
gjöld verði hækkuð um rúm 11%, sem
gæfi um 200 milljónir í tekjur á ári og
myndi því bæta stöðuna töluvert.
Skýrsla vinnuhóps gæti
breytt forsendum
Þá skipaði menntamálaráðuneytið
vinnuhóp í sumar sem ætlað er að
fjalla um fjárhag og rekstur Ríkisút-
varpsins. Meðal þess sem hópurinn á
að skoða eru áhrif lífeyrisskuldbind-
inga á rekstur Ríkisútvarpsins og
áhrif lagaskyldna við Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands. Lífeyrissjóðsskuldbind-
ingar kosta stofnunina um 200 millj-
ónir króna á ári með vöxtum og
afborgunum og Sinfóníuhljómsveitin
um 100 milljónir, að sögn Bjarna.
Vinnuhópurinn á að skila skýrslu 15.
nóvember og segir Bjarni að ef breyt-
ingar verði gerðar á þessum þáttum
myndi það lækka áætlaðan rekstrar-
halla Ríkisútvarpsins sem því næmi.
„Þá væri ástandið orðið allt annað en
nú um ræðir. En miðað við núverandi
stöðu er það ábyrg afstaða stjórnenda
að undirbúa aðgerðir til að endar nái
saman.“
RÚV stefnir í 300–400 milljóna
króna rekstrarhalla á næsta ári
Niðurskurður á dagskrá er
óhjákvæmilegur að mati stjórnenda
BÍLADAGAR standa í dag og á
morgun og sýna bílaumboðin 12 yfir
170 gerðir bíla frá 30 framleiðend-
um. Er þetta í fyrsta sinn sem um-
boðin hafa samstarf um samstillta
bílasýningu. Þá verður sérsýning á
aldrifsbílum í Vetrargarði Smára-
lindar um helgina og víða um landið
sýna umboðsmenn umboðanna einn-
ig.
Í samanburði Bílgreinasambands-
ins á útsöluverði nokkurra algengra
bíla á Íslandi og fimm öðrum löndum
í Evrópu kemur fram að bílverð á Ís-
landi er í mörgum tilfellum lægra en
þar. „Þessi niðurstaða kemur á
óvart, ekki síst í ljósi þess að opin-
berar álögur á innflutta bíla eru
hærri hér á landi en í flestum Evr-
ópulöndum,“ segir í frétt frá Vinum
bílsins, regnhlífarsamtökum Bíl-
greinasambandsins, umboðanna,
tryggingafélaga og lánafyrirtækja
en þau standa fyrir átakinu Bíladag-
ar. Opinberar álögur á innflutnings-
verð bíla eru hérlendis 70%, 93% í
Finnlandi, 218% í Danmörku, 16% í
Austurríki, 50% í Hollandi og 17,5% í
Bretlandi. Í frétt frá Vinum bílsins
segir að skýring á lægra bílverði hér-
lendis en sums staðar erlendis sé að
kostnaður við sölu bíla sé lægri og að
innflutningsverð þeirra sé hagstætt.
Í flestum Evrópulöndum annast
tveir aðilar söluna, innflytjandi og
söluumboð en hér sé þetta á höndum
sama aðila. Þá segir að álagning sé
lægri hér og samkeppni mikil og
bent er á að oft sé í bílum hér auka-
búnaður sem innifalinn sé í verðinu
en oft þurfi að greiða fyrir hann sér-
staklega víða erlendis.
Þá benda Vinir bílsins á þá bylt-
ingu sem þeir segja að hafi orðið í
nýjum bílum hvað varði öryggi og
mengunarvarnir. Sýningar umboð-
anna eru opnar í dag milli kl. 12 og 17
og á morgun frá 13 til 17. Sýningin í
Smáralind er opin lengur. Gestir
bílaumboðanna geta unnið til verð-
launa með því að fá stimpil fyrir að
sækja þrjár sýninganna og veitir
hvert umboð verðlaun.
Yfir 170 bílagerðir
sýndar á bíladögum
Morgunblaðið/Golli
Auk sýninga allra bílaumboð-
anna er sérsýning í Vetrargarði
Smáralindar á aldrifsbílum.
!
) !01 (
,20)& !0/ ! 0 (
34 01 5$0' &
60'07 8
- !0 09( :
!0( $0' !0 4
; 0'
0-(
< & (0/=
5!, 808!
' 8 -+$+! > #% *
'(*
! "
#$
! %
&# %
'
(&) '
*+
,
-
( %* ?@
+($# $%*?B
' $%* ,!$%* / ADEAD@
' $%* '*.*?0*
-($ BA0) F
;> G0 F
'. %( ' AD
) #A0 F
Í GÆR boðaði Bjarni Guðmunds-
son, starfandi útvarpsstjóri, til
fundar með starfsmönnum Rík-
isútvarpsins þar sem bókun út-
varpsstjóra var kynnt.
Jón Ásgeir Sigurðsson, formaður
starfsmannasamtaka Ríkisútvarps-
ins, sat fundinn, sem hann segir
hafa verið þarfan þar sem töluverð
óvissa hafi ríkt meðal starfsfólks
stofnunarinnar við að heyra um til-
lögurnar í fjölmiðlum. „Menn eru
auðvitað felmtri slegnir yfir þess-
um hugmyndum, en við gerum okk-
ur grein fyrir að þetta eru aðeins
tillögur og hugmyndir. Ef heldur
áfram að þrengja að fjárhag Rík-
isútvarpsins verður að skera niður
þjónustuna, það er löngu ljóst.“
Jón Ásgeir segir að á fundinum
hafi verið ítrekað að aðeins væri
um hugmyndir að ræða, en í kjölfar
niðurskurðar og samdráttar hjá
stofnuninni hafi starfsandinn ekki
verið góður og fundurinn því þarf-
ur. Starfsmannaþing Ríkisútvarps-
ins sendi frá sér ályktun í gær þar
sem m.a. áformum um samvinnu
fulltrúa starfsmanna og stjórnenda
við stefnumótum í starfsmanna-
málum er fagnað. Í ályktuninni
kemur einnig fram að næstu þrjá
mánuði muni starfshópar vinna að
stefnumótun viðvíkjandi samfélags-
hlutverki, markaðsstöðu og stoð-
deildum Ríkisútvarpsins. Í kjölfarið
verður gerð skoðanakönnum meðal
starfsmanna og þeir inntir eftir við-
horfum til rekstrarþátta og rekstr-
arbreytinga sem ætlunin er að gera
í samræmi við vilja starfsmanna.
Jón Ásgeir segir að vonir séu
einnig bundnar við að niðurstöður
vinnuhóps menntamálaráðuneyt-
isins muni breyta stöðu mála svo
ekki þurfi að grípa til jafnharðra
aðgerða og tillögur eru um í beiðni
útvarpsstjóra.
Starfsandi kannaður
Á FUNDI stjórnar Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins, SHS, í gær,
þar sem brunaöryggismál í Hval-
fjarðargöngunum voru m.a. til um-
ræðu, var ákveðið að taka bruna-
eftirlits- og viðbragðsþátt vegna
brunavarna upp við Brunamála-
stofnun.
Leitað verður m.a. eftir því
hvort Slökkvilið Akraness eða
SHS eigi að fara með lögsögu í
göngunum. SHS hefur nú lögsögu
út að miðju ganganna, en ekki hef-
ur verið gengið frá samkomulagi
slökkviliðanna tveggja hvort fari
með alla lögsöguna, þrátt fyrir að
lögreglustjórinn í Reykjavík fari
með lögreglulögsögu í göngunum.
Brunamálastjóri hefur tilkynnt
að vinna eigi brátt að hefjast til að
koma brunaöryggismálum í göng-
unum í skýran farveg og stefnt er
að æfingu í göngunum innan 3–4
mánaða.
Brunavarnir í Hval-
fjarðargöngum
Brunamála-
stofnun
skoðar málið
STARFSFÓLKI Íslenska álfélags-
ins í Straumsvík á að fækka um 4%
á næstu mánuðum fram til 1. apríl í
vor vegna fyrirmæla frá móðurfyr-
irtækinu ALCAN, sem hefur
ákveðið að ná fram sparnaði í
rekstri fyrirtækisins vegna dökkra
horfa á álmörkuðum meðal annars
með fækkun starfa hjá fyrirtækinu
um 7%.
Hrannar Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi ÍSAL, sagði að ALCAN
hefði boðað fækkun um 3.600 störf,
sem væru um 7% af vinnuaflinu hjá
fyrirtækinu. Íslenska álfélagið
þyrfti að leggja eitthvað af mörk-
um í þessum aðgerðum og þyrfti að
fækka um tuttugu manns sem væri
um 4% af starfsmönnum. Það yrði
gert með þeim hætti að það yrði
ekki ráðið fyrir þá sem hættu
störfum. Fækkun starfsmanna ætti
að vera lokið á fyrsta fjórðungi
næsta árs, sem þýddi að henni ætti
að vera lokið fyrir 1. apríl. Þannig
gæfust fimm mánuðir til að hrinda
þessu í framkvæmd, sem gerði það
vonandi að verkum að hægt yrði að
gera þetta með sem minnstum
óþægindum fyrir starfsfólk fyrir-
tækisins. Í einhverjum tilfellum
gæti einnig þurft að framlengja
ekki tímabundna ráðningarsamn-
inga.
Norðurál fækkar ekki
Hrannar sagði móðurfyrirtækið
vera að bregðast við minni eftir-
spurn á álmarkaði, en hún hefði
dregist saman um tæp 5% á þessu
ári frá því í fyrra, sem væri mesta
minnkun milli ára í tuttugu ár.
Hjá Norðuráli fengust þær upp-
lýsingar að ekki stæði til nein
fækkun á starfsmönnum fyrirtæk-
isins.
Starfsfólki
ÍSAL fækk-
ar um 20 á
næstunni
♦ ♦ ♦