Morgunblaðið - 27.10.2001, Page 9

Morgunblaðið - 27.10.2001, Page 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2001 9 SKIPULAGSSTOFNUN hefur í úr- skurði sínum um mat á umhverfis- áhrifum fallist á fyrirhuguð jarðgöng á norðanverðum Tröllaskaga milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar og skoð- að bæði svonefnda Héðinsfjarðarleið annars vegar og Fljótaleið hins vegar. Telur Skipulagsstofnun að þessi framkvæmd, miðað við framlögð gögn, muni ekki hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og þau megi fyrirbyggja. Frestur til að kæra þennan úr- skurð til umhverfisráðherra rennur út 23. nóvember næstkomandi. Á Héðinsfjarðarleið er gert ráð fyr- ir að jarðgöng milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar verði um 3,6 km löng og um 6,9 km löng milli Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar. Leggja þarf um 2 km langan veg í Siglufirði inn Skútudal og um 0,6 km langa vegi í Héðinsfirði og Ólafsfirði. Talið er að Héðinsfjarð- arleiðin, miðað við einbreið göng, geti kostað 4,6 milljarða en milljarði meira ef göngin yrðu tvíbreið. Við valkost framkvæmdaraðila, Vegagerðarinnar, var borin saman Fljótaleið, þ.e. gerð 4,7 km langra jarðganga milli Siglufjarðar og Fljóta og 7,7 km ganga milli Fljóta og Ólafs- fjarðar. Leggja þyrfti um 8 km af nýj- um vegi og endurbyggja um 6 km langan kafla. Fljótaleiðin er talin dýr- ari kostur, eða 5,8 milljarðar miðað við einbreiða brú og kostnaður af tví- breiðum göngum yrði um 7,3 millj- arðar. Í úrskurði Skipulagsstofnunar kemur fram að Vegagerðin hefði mátt gera nánari könnun og samanburð á áhrifum þessara tveggja valkosta. Hins vegar telur stofnunin að jarð- göngin muni hafa varanleg jákvæð áhrif á samgöngur og íbúa- og byggðaþróun á svæðinu. Skipulagsstofnun telur mikilvægt að verði ráðist í framkvæmdir sam- kvæmt Héðinsfjarðarleið verði inn- streymi sjávar inn í Ólafsfjarðarvatn tryggt og vandað til verka þar og við brúargerð yfir Héðinsfjarðará. Stofn- unin telur umfjöllun um áhrif Fljóta- leiðar á lífríki í fersku vatni fullnægj- andi en ef sú leið verði valin þurfi að hafa strangt eftirlit með vegagerð um fjar- og grannsvæði vatnsbóls Sigl- firðinga. Fallist á jarðgöng á Tröllaskaga Fínar pilsdragtir og toppar                15% afsláttur af öllum síðbuxum, peysum og bolum Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. Opið í dag kl. 10-14 NÝ SENDING FRÁ Neðst við Dunhaga sími 562 2230 Lagersala 2 fyrir 1 Opið laugardag og sunnudag frá kl. 15-18 Ath. Hér eftir verður opið á virkum dögum eftir samkomulagi. Ljósakrónur Kertastjakar Íkonar Skápar www.simnet.is/antikmunir Mahogny borðstofusett Opið til kl. 16.00 Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977. Allra síðasta útsöluvika Handskorin roccoco húsgögn 40%—50% afsláttur. Ljós, styttur, klukkur 20% afsláttur. Handofnir dagdúkar og rúmteppi 20% afsláttur. Ekta pelsar 50% afsláttur- tilvalin jólagjöf. Verið velkomin. Opið virka daga frá kl. 11—18 og laugard. frá kl. 11-16. Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545. LAGERSALAN TUNGUHÁLSI 7 HELDUR ÁFRAM Opið er virka daga frá kl. 13 til 18 en 11 til 17 um helgar. Tökum bæði debet- og kreditkort. Tunguháls 7 er fyrir aftan sælgætisgerðina Kólus. Sími okkar er 567 1210 HEILDVERSLUN MEÐ JÓLA- OG GJAFAVÖRUR Í 35 ÁR Ný sending frá Stærðir 40-52 Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.