Morgunblaðið - 23.11.2001, Page 21

Morgunblaðið - 23.11.2001, Page 21
Bræðraborgarstíg 7 101 Reykjavík Sími 575 5600 jpv@jpv.is www.jpv.is Dómarnir segja allt sem þarf um þessa mögnuðu ævisögu „Einstök saga kjarkmikillar konu“ Auður Styrkársdóttir/Morgunblaðið „Sigríður Dúna hefur með þessari bók skipað sér í fremstu röð íslenskra ævisagnaritara. Bókin er mjög vel skrifuð og hér er fyrst og fremst um persónulega sögu mikillar merkiskonu að ræða – sögu braut- ryðjanda sem vann ýmsa góða sigra en varð að gjalda fyrir það mjög dýru verði. Frásögnin af síðustu tólf árunum í lífi Bjargar, þegar hún glímdi við óskapleg veikindi, jafnt andleg sem líkamleg, er átakanleg, dramatísk og sögð af mikilli samúð en þó ekkert dregið undan og hvað sem sigrum Bjargar leið er þetta ekki síst persónuleg harmsaga og Sigríður Dúna segir hana þannig að fáa getur látið ósnortna.“ Hrafn Jökulsson strik.is „Mikil og áleitin örlagasaga af konu sem skóp sig sjálf í baráttu við fálæti, þrengingar og erfiðan geðsjúkdóm.“ Matthías Viðar Sæmundsson/ kistan.is „Ég gat ekki lagt hana frá mér og sat uppi heila nótt við að klára hana.“ Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur/Í viðtali í Vikunni „Afar áhugaverð bók.“ Gunnþóra Gunnarsdóttir/DV Björg C. Þorláksson fæddist árið 1874 og braust til mennta af ótrúlegum dugnaði og varð fyrsta íslenska konan til að ljúka doktorsprófi. Hér er greint frá störfum Bjargar og þátttöku hennar í kvennabaráttunni á fyrstu áratugum tuttugustu aldar, veru hennar í Þýskalandi og Frakklandi og baráttu hennar við illvíga sjúkdóma. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir sviptir hér hulunni af óvenjulegri og stórbrotinni konu. JP V /B /2 0 .1 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.