Morgunblaðið - 23.11.2001, Blaðsíða 22
LANDIÐ
22 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SÓKNARNEFND Selfosskirkju
hélt hjónunum Karli Eiríkssyni
kirkjuverði og Guðfinnu Sig-
urdórsdóttur kaffisamsæti í safn-
aðarheimili Selfosskirkju sunnu-
daginn 11. nóvember. Karl hefur
starfað við flestöll þau störf sem
að kirkjunni snúa frá upphafi
starfs í Selfosskirkju, en þar var
fyrsta messan haldin 30. ágúst
1953.
Karl var þá búinn að starfa
nokkuð lengur að undirbúningi og
var einn af 26 stofnendum Kirkju-
kórs Selfoss sem var stofnaður 19.
mars 1946 og var í stjórn hans, þá
sem ritari. Hann söng með kórn-
um í hartnær fimmtíu ár og var
þar ötull í félagsmálum. Hann átti
sæti í sóknarnefnd Selfosskirkju
frá upphafi fram á mitt ár 1997
og sá um fjármál bæði kirkju og
kórs meirihluta starfstíma síns.
Karl tók 1978 við starfi kirkju-
varðar, sem þá var hlutastarf, og
gegndi því starfi einn til 1995 að
ráðinn var kirkjuvörður í fullt
starf, enda starfsemin orðin all-
viðamikil bæði við kirkju og garð.
Hann starfaði áfram fram yfir
aldamótin og því ekki hægt að
segja annað en að hér sé um
óvenju langan og farsælan starfs-
feril að ræða.
Í fréttatilkynningu sem sókn-
arnefndin gaf út af þessu tilefni
segir meðal annars: „Eflaust geta
fáir, ef nokkrir, söfnuðir státað af
því að hafa haft slíkan gæða-
starfsmann við sína kirkju í hálfa
öld. Það var því mikil ánægja fyr-
ir samstarfsmenn í Selfosskirkju
að koma saman með þeim hjónum
í safnaðarheimilinu þar sem Kven-
félag Selfosskirkju sá um glæsi-
legar kaffiveitingar og kirkjukór-
inn söng nokkur lög þeim til
heiðurs og félagar minntust fyrri
tíma með nokkrum orðum.“
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Hjónin Guðfinna Sigurdórsdóttir og Karl Eiríksson kirkjuvörður ásamt
séra Gunnari Björnssyni, Eysteini Ó. Jónassyni, formanni sóknarnefnd-
ar, og Glúmi Gylfasyni, organista Selfosskirkju.
Selfoss
Kirkju-
verði
þökkuð
áratuga
störf
BLÓMUM skrýddur
matsalur Garðyrkjuskól-
ans skreyttur af nemend-
um bauð gesti velkomna
til að vera við undirritun
samnings milli Garð-
yrkjuskólans og Land-
græðslu ríkisins.
Skólameistari Garð-
yrkjuskólans Sveinn Að-
alsteinsson bauð gesti
velkomna og þá sérstak-
lega landbúnaðarráð-
herra Guðna Ágústsson,
þar sem báðar stofnan-
irnar heyra undir hans ráðuneyti.
Samningurinn hljóðar upp á sam-
eiginlega fjármögnun einnar dokt-
orsnemastöðu á sviði plöntulíf-
fræðirannsókna. Sveinn sagði
starfssvið stofnananna tengt og
vonaðist til að samstarfið yxi og
dafnaði á komandi tímum. Sameig-
inlegt markmið væri að byggja upp
mannauð því stofnun væri lítils
virði ef ekki nyti við hins góða
starfsfólks. Hann þakkaði starfs-
fólki beggja stofnana skemmtilegt
og gott starf.
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri sagði að ástæða væri til að
fagna þessum tímamótum, þegar
kíkja ætti undir pilsfald móður
náttúru til að auka skilning okkar
og þekkingu. Hann sagði að starfs-
fólk beggja stofnana hefði unnið að
undirbúningi þessa verkefnis, auk
þess sem það ynni náið að endur-
menntun. Gæfa hverrar stofnunar
væri vel menntað starfsfólk.
Landbúnaðarráðherra Guðni
Ágústsson fagnaði eflingu skóla og
stofnana. Hann sagði margt hafa
áhrif á íslenskan landbúnað og ekk-
ert væri mikilvægara en að efla
þekkingu. Hér í Garðyrkjuskólan-
um væru menn að gera tilraunir og
ná árangri sem skilaði neytendum
miklu.
Að loknum ávörpum skrifuðu
þeir nafnar Aðalsteinsson og Run-
ólfsson undir samninginn og veit-
ingar voru fram bornar.
Hveragerði
Sveinn Aðalsteinsson og Sveinn Runólfs-
son undirrita samninginn.
Samningur Garð-
yrkuskólans og
Landgræðslu ríkisins
Morgunblaðið/Margrét
UNDANFARNAR vikur hefur
verið unnið að lagningu hita-
veitu til nýrra notenda hér í
hreppnum og er heita vatnið
leitt frá Flúðum þar sem gnægð
er af heitu vatni. Um er að ræða
22 notendur, þ.e. nokkra bæi
sem ekki hafa haft hitaveitu áð-
ur, svokallaða austurbæi frá
Galtafelli að Hólakoti.
Hitaveitulögnin er lögð um
væntanlega sumarhúsabyggð
sem hefur verið skipulögð í landi
jarðarinnar Götu og var nýlega keypt
af Ólafi Jóhanni Ólafssyni rithöfundi
og fleirum. Um er að ræða 9,5 km
langa lögn í einangruðum járnrörum
og Pex-heimtaugum.
Verkið hefur gengið fremur vel og
vonast Hannibal Kjartansson veitu-
stjóri eftir að því verði lokið innan
nokkurra vikna. Unnið er í kapp við
veturinn, eins og hann orðar það. Það
er fyrirtækið Gröfutækni ehf. á Flúð-
um sem annast verkið. Auk starfs-
manna fyrirtækisins eru 2-4 menn
Miklar veitu-
framkvæmdir
Hrunamannahreppur
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
sem annast málmsuðu undir verk-
stjórn Finns Níelssonar verktaka.
Þegar þessum framkvæmdum er
lokið njóta 98% íbúa Hrunamanna-
hrepps hitaveitu.
Þá verður einnig leitt kalt vatn frá
stórum vatnstanki á Flúðum til fjölda
notenda og allt til syðstu bæja sveit-
arinnar um 13 km leið. Margir fá af-
not af því vatni nú fyrir áramót en lok-
ið verður við að leggja þessa
umfangsmiklu kaldavatnslögn næsta
vor.
Kenna íslenskum börn-
um teiknimyndagerð
Hvolsvöllur
TVEIR Danir, þau Sanne Linde-
kilde og Lars Olsson Kristensen,
hafa dvalið á Íslandi í nokkrar vik-
ur og kennt íslenskum börnum að
vinna teiknimyndir. Þau koma frá
skóla i Viborg sem kallast „Anima-
tions Værkstedet“ en bæði búa þau
í Skive á Jótlandi.
Fréttaritara Morgunblaðsins lék
forvitni á að vita hvers vegna þau
væru á Íslandi og hvaða skóla þau
hefðu heimsótt. „Við komum hing-
að fyrir þremur vikum og höfum nú
verið eina viku í Hólmavík og eina
viku í Árnesi. Nú erum við hér í
Hvolsskóla en förum síðan til Hofs-
óss,“ sagði Lars sem var mjög nið-
ursokkinn við hljóðsetningu mynd-
ar sem nokkrar stúlkur í Hvols-
skóla höfðu gert.
„Þetta er svona „Scary movie“
sögðu stelpurnar. „Myndin fjallar
um konu sem á heima uppi á fjalli.
Hún er ein heima þegar draugur-
inn kemur. Hún hleypur út og verð-
ur fyrir bíl.“
Stelpurnar kváðu teiknimynda-
gerðina mjög skemmtilega, en
þetta væri mikil handavinna, þetta
væru svona klippimyndir.
Um ástæðu komu þeirra Sanne
til Íslands sagði Lars að skólinn
vildi reyna að fara sem oftast í
skóla og kenna grunnskólabörnum
teiknimyndagerð. „Þessi skóli sem
við vinnum hjá er sá eini á Norð-
urlöndunum sem kennir þessi
fræði. Í honum geta menn lært að
gera klippimyndir, teiknimyndir,
brúðumyndir og einnig þrívíddar-
myndir í tölvum. Í fyrra fórum við
til Færeyja og núna erum við á Ís-
landi. Við höfum getað þetta því
skólinn hefur fengið styrki frá ýms-
um aðilum s.s. Norðurlandaráði,
Norræna húsinu og einnig frá
sveitarfélaginu Viborg og fleiri að-
ilum.“
Þau voru spurð að því hvernig
væri að vinna með íslenskum börn-
um. „Það er mjög gaman. Dönsk og
íslensk börn eru að mörgu leyti lík
en að einu leyti er gjörólíkt að
vinna með íslenskum börnum, þau
eru svo miklu lágværari, í það
minnsta þau sem við höfum
kynnst.“ Lars sagði að skemmtileg-
ast væri að vinna með börnum á
aldrinum 11 til 12 ára. Þau væru
óheft og skemmtilega skapandi.
Oftast ynnu þau með einn bekk í
einu en í Hvolsskóla ynnu þau með
hóp nemenda úr 7.–10. bekk.
Tækjabúnaðurinn sem notaður
er við teiknimyndagerðina er mik-
ill, samanstendur af fullkomnum
tölvubúnaði, myndavél, teikniborð-
um og fleiru og kostar yfir eina
milljón íslenskra króna.
Aðstoðarskólastjóri Hvolsskóla,
Halldóra Magnúsdóttir, hvað ómet-
anlegt að fá svona fagfólk til að
koma í skólann og kenna nemend-
um hluti sem þau hefðu enga mögu-
leika til að kenna og að þetta yrði
nemendunum vafalaust skemmti-
leg og eftirminnileg reynsla. Í lokin
fengju öll börnin svo eintak af
myndunum sem gerðar yrðu.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
Sanne og Lars vinna við hljóðsetningu teiknimyndar ásamt nemendum.
Hluti hópsins í Hvolsskóla sem gerði draugamyndina. Frá vinstri Svan-
dís, Kimberley, Helga Kristín og Telma.
1. vinningur
G. Anna Benediktsdóttir
Hamrahlíð 10, 690 Vopnafjörður
2. vinningur
Nína Jónsdóttir
Hömrum 2, 765 Djúpivogur
3. vinningur
Margrét Thorsteinsson
Garðatorgi 7, 210 Garðabær
4. vinningur
Bára Kjartansdóttir
Iðufelli 8, 111 Reykjavík
5. vinningur
Hjörtur Herbertsson
Skarðshlíð 13d, 603 Akureyri
Vinningshafar í krossgátu Blindravinnustofunnar.
Dregið var 14. nóvember 2001
6. vinningur
Harpa Jónsdóttir
Ránargötu 21, 600 Akureyri
7. vinningur
Elín Björg Jóhannsdóttir
Tungusíðu 5, 603 Akureyri
8. Vinningur
Ingibjörg B. Árnadóttir
Víkurási 4, 110 Reykjavík
9. vinningur
Sunna Karen Jónsdóttir
Einholti, 755 Stöðvafjörður
10. vinningur
Soffía Pétursdóttir
Klapparstíg 14, 260 Njarðvík