Morgunblaðið - 23.11.2001, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2001 35
Vert að skoða möguleika
Ólafur Hjálmarsson, hljóðverk-
fræðingur hjá Línuhönnun, ræddi
í kjölfarið þá möguleika sem hann
hafði athugað með að rúma starf-
semi sinfóníuhljómsveitar og
óperustarfsemi í stórum tónleika-
sal hússins. Taldi hann slíkt vel
gerlegt, og væri lykillinn að því
m.a. stillanleg sviðsmynd og
gryfju. Nauðsynlegt yrði að leggja
áherslu á fullkominn tæknibúnað í
slíkri framkvæmd og ítrekaði
Ólafur að vert væri að skoða þá
möguleika sem fyrir hendi væru
áður en ráðist yrði í svo afdrifaríka
ákvörðun að byggja tónlistarhús,
sem ekki rúmaði óperustarfsemi.
„Því hvaða líkur eru á því að byggt
verði annað slíkt hús fyrir óperu-
starfsemi í nánustu framtíð,“ sagði
Ólafur og taldi þær litlar.
Síðasti frummælandi þingsins,
Jóann Smári Sævarsson, óperu-
söngvari og listrænn stjórnandi
Norðuróps, ræddi samskipti Ís-
lensku óperunnar og annarra óp-
eruflytjenda í landinu. Benti hann
á að hópar og stofnanir á borð við
Óperustúdíó Austurlands, Leik-
hússkór Norðurlands, Norðuróp
og Sinfóníuhljómsveit Íslands
gegndu allir ákveðnu hlutverki við
að sinna ólíkum formum og stílum
ópera og væri gott samstarf við Ís-
lensku óperuna því mikilvægt.
Fjölmörg sjónarmið
Að loknu hléi fóru fram mál-
efnalegar umræður meðal gesta
málþingsins og mátti greina af
þeim ólíku sjónarmiðum sem þar
komu fram að vandlega ber að
skoða hin ólíkustu álitamál varð-
andi fyrirkomulag og smíði veg-
legs tónlistarhúss á Íslandi. Í um-
ræðum tóku m.a. til máls fulltrúar
Sinfóníuhljómsveitar Íslands,
Borgarleikhúss og ýmissa geira
listalífsins.
Finnur F. Hannesson kom með
áhugavert innlegg, þegar hann
lýsti reynslu sinni af hljómsveit-
arstjórn í húsi sem byggðist á
samnýtingu ólíkrar listastarfsemi
og ráðstefnuhalds í Svíþjóð. Sagði
hann slíku samstarfi ávallt fylgja
ákveðinn skerfur af málamiðlun-
um og framsali á listrænu frelsi.
Ráðlagði hann stjórn Íslensku óp-
erunnar að greina markmið sín og
stefnu skýrt með hliðsjón af slík-
um forsendum. Þorkell Helgason,
stjórnarformaður Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands, lét í ljós áhyggjur
sínar í garð umræðunnar um að
Óperan kæmi að byggingu hins
fyrirhugaða tónlistarhúss. Sagði
hann óttast, í ljósi þess hversu
langan tíma hefði tekið að koma
byggingarmálunum á skrið, að slík
umbylting umræðunnar myndi
leiða til þess að framkvæmdir
frestuðust mjög, jafnvel um fjölda
ára. Í eftirfarandi umræðum komu
fram ýmis sjónarhorn á þrjú ofan-
greind sjónarmið. Kolbrún Hall-
dórsdóttir, þingmaður og leik-
stjóri,sagði að hér væri á ferðinni
umræða sem yrði að eiga sér stað
og ekki mætti loka dyrunum of
snemma í svo mikivægu máli. Yrði
sú umræða ekki síst að fara fram
milli listamanna og stjórnvalda og
lýsti Kolbrún sig reiðubúna til
þátttöku í henni. Guðjón Pedersen
gerði lítið úr sambýlisvanda lista-
starfsemi í ljósi reynslu sinnar
sem leikhússtjóri Borgarleikhúss,
og ítrekaði þá möguleika að Óper-
an kæmi til samstarfs við annað
stóru leikhúsanna, Sigfríður
Björnsdóttir, forstöðumaður Ís-
lenskrar tónverkamið-
stöðvar, varaði við að
rekstri svo umfangs-
mikillar miðstöðvar
gæti haft í för með sér
fastakostnað sem
drægi á möguleikum Óperunnar
til áhættusamra og nýskapandi
verkefna. Einnig var í umræðum
bent á að forsendur í hótelrekstri
og tónlistaraðstöðu hefðu ger-
breyst og væri því hvort eð er
ástæða til að fara vel ofan í kjölinn
á byggingaráformum. Var bent á
að Salurinn í Kópavogi þjónaði nú
vel hlutverki kammertónleikasal-
ar og væri slík aðstaða í nýju tón-
listarhúsi e.t.v. óþörf.
fið og
lmars-
Lands-
darson,
y á Ís-
í for-
lífs og
Þor-
eg fyr-
il með-
sam-
nna við
þeirra
á mik-
rfsemi
við Ís-
n verði
í raun
amída“
sturinn
mark-
már og
uga að
ði í
til að
ndur.
ttu er-
beint
Hélt
ðingur
maður
ggingu
numið-
ferlið
húss á
rög að
ægi fyr-
rmetra
hljóm-
myndi
hótel-
annars
æri að
hönnun
003 og
Sagði
ð væri
brýnt
a á að
u fyrir
ar yrði
æðu.
r-
á
m
gær
m um
yrir-
var
r var
ð/RAX
sku óp-
nnar.
Markaðurinn
er og verður
örsmár
heida@mbl.is
BARÁTTA gegn eiturlyfjasmygli, skipu-lögðum ólöglegum innflutningi á fólki,mannsali, hryðjuverkum og peningaföls-un eru á meðal helstu verkefna Europol,
löggæslustofnunar aðildarríkja Evrópusambands-
ins.
Manfred Seitner stjórnar þeirri deild Europol
sem fer með samvinnu við svokölluð þriðju ríki, þ.e.
ríki sem eru utan Evrópusambandsins. Hann er
staddur hér á landi til að viðræðna við embætti rík-
islögreglustjóra um samstarfssamning Europol og
Íslands sem undirritaður var í sumar og til að
ganga frá ýmsum tæknilegum atriðum. Hann mun
einnig flytja erindi á málþingi dómsmálaráðuneyt-
isins um bætta lögreglusamvinnu sem haldið er á
Grand Hótel í Reykjavík í dag.
Seitner segir engan vafa leika á því að umsvif al-
þjóðlegra skipulagðra glæpasamtaka fari vaxandi.
„Europol gaf nýlega út skýrslu um stöðu skipu-
lagðrar glæpastarfsemi í Evrópu sem byggð var á
gögnum frá lögregluyfirvöldum í löndum Evrópu-
sambandsins. Í hverju einasta landi var talið að slík
glæpastarfsemi væri vaxandi vandamál.“
Um áramótin taka ellefu aðildarríki ESB upp
nýjan gjaldmiðil, þ.e. evru. Europol hefur talsverð-
ar áhyggjur af því að glæpamenn muni reyna að
falsa evru-seðlana, enda hafi fæstir íbúar landanna
séð þá áður. Því hugsi glæpamenn sér líklega gott
til glóðarinnar.
Sorglegt og alvarlegt vandamál
Seitner nefnir einnig að smygl á fólki sem vill
komast til Vestur-Evrópu til að vinna færist sífellt í
vöxt. Hið sama megi segja um smygl á konum sem
þvingaðar eru í vændi. „Þetta er sorglegt og alvar-
legt vandamál sem verður ekki leyst með öðrum
hætti en alþjóðlegri samvinnu lögreglu.“
Skipulögð glæpastarfsemi er alþjóðleg í eðli sínu
og hún fer fram þar sem ágóða er að vænta. Í Evr-
ópu er mesta ágóðans að vænta í vesturhluta álf-
unnar og glæpamenn sækja því þangað. „Og þeir
virða engin landamæri, því þeir þurfa þess ekki.
Það sem við erum að búa til í Evrópusambandinu er
eitt stórt opið svæði þar sem í raun eru engar tak-
markanir á ferðum venjulegra borgara frekar en á
ferðum glæpamanna,“ segir Seitner.
Þegar starfsemi glæpasamtaka teygja sig yfir
landamæri hlýtur lögreglan að þurfa að bregðast
við því með því að auka alþjóðlega samvinnu. Þann-
ig fáist betri þekking á starfsemi glæpasamtak-
anna, rannsóknir verða markvissari og auðveldara
verði að fylgjast með ferðum glæpamannanna.
Aðspurður um hvort e.k. Evrópulögregla muni
leysa lögregluembætti aðildarríkja ESB af hólmi
segist Seitner ekki sjá það fyrir sér eða að þróun
verði í þá átt næstu árin. Lögreglumál séu og verði
áfram á ábyrgð aðildarríkjanna.
Margt sem gerir
samskiptin erfið
Seitner segir að hlutverk Europol sé að greiða
fyrir samvinnu milli lögregluembætta í löndum
Evrópusambandsins og víðar og draga eftir mætti
úr erfiðleikum í samskiptum þeirra á milli. Nær-
tækasta vandamálið sé líklega tungumálaörðug-
leikar en einnig geti mismunandi skipulag lögregl-
unnar gert samvinnu erfiða. „Ísland hefur til dæmis
ýmis samskipti við Portúgal. Hvað gerist ef Íslend-
ingar þurfa að ræða við portúgölsku lögregluna?
Það eru um 18 stjórnsýslueiningar innan portú-
gölsku lögreglunnar sem tengjast baráttunni gegn
skipulagðri glæpastarfsemi og í hvern á að hringja?
Og jafnvel þó þú náir í réttan aðila er ekkert víst að
hann tali annað en portúgölsku,“ segir Seitner.
Hann var spurður hvort Schengen-samstarfið hafi
gert baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi erf-
iðari eins og stundum hefði verið haldið fram.
„Það tel ég alls ekki og raunar þvert á móti. Það
skiptir engu hvers konar viðbúnaður er á landa-
mærum, það er ómögulegt að koma í veg fyrir að
glæpamenn ferðist á milli landa. Hin gamla hug-
mynd um löggæslu, þar sem hvert land, hérað eða
borg hugðist gæta laganna upp á eigin spýtur er úr-
elt. Alþjóðavæðingin á alveg eins við um glæpi og
annað. Það er blekking að halda að hægt sé að
stöðva alþjóðlega glæpastarfsemi með því að herða
landamæraeftirlit. Það verður að beita öðrum ráð-
um. Eitt þeirra er alþjóðleg samvinna lögregluemb-
ætta og hana verður að efla,“ segir Seitner.
Hér kemur Europol að gagni. Hugmyndin er sú
að sem flest aðildarríki samtakanna hafi fulltrúa
hjá stofnuninni. Vanti lögregluna á Íslandi t.a.m.
upplýsingar frá portúgölsku lögreglunni geti
fulltrúi Íslands hjá Europol einfaldlega rætt við
starfsbróður sinn frá Portúgal og þeir unnið að því
að koma á samskiptum.
Miklar breytingar
í Austur-Evrópu
Seitner átti langan feril að baki innan dönsku lög-
reglunnar þegar hann tók við stjórn dönsku leyni-
þjónustunnar árið 1996. Ári síðar var hann skipaður
yfirmaður alþjóðalögreglusveita Sameinuðu þjóð-
anna í Bosníu og hefur frá árinu 1999 starfað hjá
Europol.
Meðal helstu verkefna Seitner nú er að koma á
samvinnu við þau lönd Austur-Evrópu sem sótt
hafa um aðild að Evrópusambandinu. Seitner segir
þetta fremur flókið verkefni, m.a. sökum þess að
innan ESB er mikil áhersla lögð á að vernda þær
upplýsingar sem lögregla hefur yfir að ráða. Í lönd-
um Austur-Evrópu séu reglur um slíkt sjaldnast til.
„Það væri til lítils fyrir okkur að gæta vel að alls-
konar gögnum ef hægt er að nálgast þau hjá sam-
starfslöndum okkar í Austur-Evrópu.“ Verið sé að
vinna að samkomulagi við þessi lönd um vinnulag í
þessum efnum og gengur sú vinna vel. Seitner segir
að frá því hann hóf störf hjá Europol árið 1999 hafi
orðið gríðarmiklar breytingar til batnaðar hjá þess-
um löndum. Öll hafi þau verið að breyta löggjöf
sinni til samræmis við löggjöf í Evrópusambandi,
auðvitað ekki eingöngu til þess að geta átt sam-
vinnu við Europol, heldur sökum þess að þau
hyggja á inngöngu í ESB.
Aukið streymi heróíns í kjölfar
átakanna í Afganistan
Seitner segir að enginn vafi leiki á því að stríðið í
Afganistan hafi komið af stað auknum innflutningi
á heróíni til Vestur-Evrópu. Um leið hafi verð hríð-
lækkað. Seitner segir að jafnt talibanar sem liðs-
menn Norðurbandalagsins hafi aukið útflutning
sinn. Tilgangur beggja sé að græða en Bandaríkja-
menn telji að talibanar vilji með þessu einnig stuðla
að upplausn í Vestur-Evrópu. „En ef eiturlyfjasal-
arnir hafa átt miklar birgðir af heróíni er líklegt að
þeir hafi viljað losa sig við þær eins fljótt og auðið
var þegar Bandaríkjamenn hófu hernað í Afganist-
an,“ segir Seitner.
Þessi starfsemi er afar vel skipulögð, að hans
sögn. Helstu smyglleiðirnar liggja í gegnum Rúss-
land og fyrrverandi sovétlýðveldin og þaðan í gegn-
um Austur-Evrópu. Eiturlyfin eru ýmist flutt með
vörubílum eða lestum og borist hafa fregnir af því
að komið hafi verið upp vöruhúsum í Rússlandi þar
sem fíkniefnin eru geymd áður en þeim er dreift til
Vestur-Evrópu.
Seitner segir að fyrir hryðjuverkin í Bandaríkj-
unum 11. september hafi menn ekki fyllilega gert
sér grein fyrir því hversu umfangsmikil tengsl eru á
milli skipulagðrar glæpastarfsemi og hryðjuverka-
samtaka. Unnið sé að því af fullum krafti, jafnt hjá
Bandaríkjamönnum, Rússum og hjá Europol, að
leggja mat á hvernig ágóði af glæpastarfsemi nýtist
hryðjuverkamönnum. Hann minnir á að í fjölda
landa, þ.m.t. mörgum innan ESB, sé búið að leggja
hald á gríðarlegar fjárhæðir sem taldar eru tengj-
ast skipulögðum glæpasamtökum og hryðjuverka-
mönnum. Baráttan gegn hryðjuverkamönnum sé
nú efst á baugi hjá Europol eins og víðar.
Skipulögð glæpastarf-
semi alþjóðleg í eðli sínu
Skipulögð glæpastarfsemi er sífellt að aukast í Evrópu,
segir Manfred Seitner hjá Europol í samtali við Rúnar
Pálmason. Til að bregðast við þessu hljóta lögregluemb-
ætti að leggja aukna áherslu á alþjóðlega samvinnu.
Morgunblaðið/Sverrir
Manfred Seitner er yfirmaður þeirrar deildar
Europol sem fer með samskipti við ríki sem
eru ekki í Evrópusambandinu.
runarp@mbl.is
HARALDUR Johannessen ríkis-
lögreglustjóri segir að erfitt sé að
átta sig á því hvort erlend glæpa-
samtök teygi í auknum mæli anga
sína til Íslands. Eftir því sem sam-
vinna Íslands við erlendar lög-
reglustofnanir eins og Europol og
Interpol hefur aukist hafi Íslend-
ingar í auknum mæli orðið varir við
alþjóðlega glæpastarfsemi.
„Það má segja að á síðustu árum
höfum við upplýst afbrot sem ekki
voru upplýst hér áður fyrr, eins og
peningaþvætti, fjársvik sem tengj-
Íslands af því þeir halda að við
séum ekki á varðbergi, sem er al-
rangt.“
Haraldur bendir á að glæpa-
starfsemi sé alþjóðavædd og snúist
m.a. um fíkniefnasmygl, vændi og
vopnasölu sem tengist hryðju-
verkasamtökum eins og dæmin
sanna. Lögreglan á Íslandi leggi nú
aukna áherslu á að upplýsa stærri
og umfangsmeiri afbrot s.s. stór-
felld fíkniefnasmygl, peninga-
þvætti, umfangsmikil fjársvik og
brot sem beinast gegn bankakerf-
inu eða að efnahagslífi landsins.
„Lögreglan á kannski ekki að
vera að beina kröftum sínum að
verkefnum sem hægt er að leysa
með öðrum úrræðum. Kannski er
kominn tími til þess að huga að því í
fullri alvöru að forgangsraða verk-
efnum lögreglu frekar með tilliti til
alvöru afbrotanna,“ segir Harald-
ur. Þá þurfi jafnvel að hætta að
telja ákveðin brot refsiverð. Hann
vill þó ekki nefna ákveðna brota-
flokka en tekur þó skýrt fram að
hann eigi ekki við fíkniefnabrot.
ast alþjóðlegum glæpahringum og
fíkniefnamál sem teygja anga sína
víða,“ segir Haraldur. Það sé ekki
þar með sagt að afbrotin hafi auk-
ist þó sú sé sennilega raunin.
Haraldur segir að Íslendingar
verði eins og aðrar þjóðir fyrir
barðinu á flestöllum þáttum alþjóð-
legrar glæpastarfsemi, þó í minna
mæli en víðast hvar annars staðar.
Þetta sé nýtt fyrir Íslendinga sem
hingað til hafi talið sig standa utan
við þennan heim. „Kannski koma
alþjóðlegir afbrotamenn einnig til
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri
Verða í auknum mæli varir
við alþjóðlega glæpastarfsemi