Morgunblaðið - 23.11.2001, Page 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2001 53
fiú safnar hjá okkur...
Nánari uppl‡singar áwww.frikort.is
Ef flú notar
Fríkorti›
ver›ur nafni› flitt
kannski dregi› út
á fiorláksmessu.
FUGLAVERNDARFÉLAG Íslands
hefur gefið út tvö ný jóla- og
tækifæriskort með ljósmyndum af
álftum á flugi og rjúpu í snjó eftir
Jóhann Óla Hilmarsson, fugla-
ljósmyndara og félaga í Fugla-
verndarfélaginu. Kortin eru
12x17 cm að stærð og prentuð hjá
Grafík.
Hægt er að panta þau hjá fé-
laginu með tölvupósti: fugla-
vernd@fuglavernd.is, á heima-
síðu félagsins:
www.fuglavernd.is, með símbréfi,
með því að leggja inn skilaboð á
talhólf félagsins eða senda pöntun
í pósthólf. Kortin eru einnig til
sölu í afgreiðslu Náttúrufræði-
stofnunar við Hlemm, þriðju hæð
til vinstri. Kortin kosta 150 krón-
ur með umslagi.
Sum eldri kort félagsins eru fá-
anleg, og eru þau seld á hag-
stæðu verði. Afsláttur af stórum
pöntunum á nýju kortunum, segir
í fréttatilkynningu.
Fuglaverndarfélag
Íslands með nýtt kort
ELSTA félagið innan Sambands ís-
lenskra kristniboðsfélaga, Kristni-
boðsfélag kvenna í Reykjavík, stend-
ur á laugardaginn fyrir árlegum
basar sínum. Hefst hann kl. 14 og
verður í Kristniboðssalnum við Háa-
leitisbraut 58.
Boðinn verður til sölu margs kon-
ar varningur sem konurnar hafa
unnið sjálfar eða aflað til fjáröflunar,
jólakort og jólagjafir. Einnig verða
seldar kökur og efnt verður til
skyndihappdrættis þar sem málverk
og matarkörfur eru meðal vinninga.
Kristniboðsfélag kvenna var
stofnað árið 1904 og er formaður nú
Kjellrun Langdal hjúkrunarfræð-
ingur sem starfað hefur sem kristni-
boði í Eþíópíu og Kenýju. SÍK á nú
fulltrúa sína í þessum löndum og
styrkir einnig útvarpskristniboð sem
beint er til Kína.
Kristniboðs-
basar á
laugardag
MG-félag Íslands heldur fund
24. nóvember kl. 14, í kaffisal
ÖBÍ Hátúni 10. Guðrún K. Þórs-
dóttir, djákni Öryrkjabanda-
lagsins, mætir á fundinn. Ólafur
Stephensen og Vigdís Sif Hrafn-
kelsdóttir segja frá norrænum
fundi NRMG, 5.-7.október sl.
MG-félag Íslands fer með for-
mennsku í NRMG-ráðinu næstu
tvö árin. NRMG er skamstöfun
fyrir Norrænt MG-ráð. Kynnt
verður danska bókin „Det
myasteniske puslespil“, útg.
MG-félag Danmerkur.
MG-félag Íslands er félag
fólks með sjúkdóminn Myasth-
enia Gravis (vöðvaslensfár) og
aðstandenda þeirra, segir í
fréttatilkynningu.
Fundur hjá MG-
félagi Íslands
ÁRLEGUR basar heimilisfólksins á
Hrafnistu í Reykjavík verður hald-
inn laugardaginn 24. nóvember kl. 13
– 17 og mánudaginn 26. nóvember kl.
10 – 16. Á basarnum verður til sölu
og sýnis handavinna heimilisfólks-
ins. Fær hver og einn andvirði þeirra
muna sem hann hefur unnið.
Ættingjabandið, ættingja og vina-
samband heimilisfólks á Hrafnistu í
Reykjavík, mun standa fyrir sölu á
súkkulaði og vöfflum á laugardag í
samkomusalnum Helgafelli, segir í
fréttatilkynningu.
Basar á Hrafnistu
í Reykjavík
OPINBER fundur undir yfirskrift-
inni „Heimsvaldastríðið í Afganist-
an, andspyrna vinnandi fólks á Ís-
landi og uppbygging kommúnískrar
hreyfingar“, verður haldinn laugar-
daginn 24. nóvember kl. 16.15, í sal
Félags bókagerðarmanna á Hverfis-
götu 21, Reykjavík.
Aðalræðumaður er Mary-Alice
Waters frá Sósíalíska verkamanna-
flokknum í Bandaríkjunum. Pall-
borðsumræður með þátttakendum
frá Svíþjóð, Bretlandi, Kanada og Ís-
landi. Fundurinn er á vegum að-
standenda vikublaðsins Militant og
Ungra sósíalista.
Fundur um stríðið
í Afganistan
Í SMÁRALIND hefur verið komið
upp sýningarbás þar sem viðskipta-
vinum Smáralindar gefst kostur á að
kynna sér ævintýri Haraldar Arnar
Ólafssonar og atlögu hans að hæsta
tindi hverrar heimsálfu.
Á básnum eru myndir og frásagnir
af klifri hans á þá þrjá tinda sem
hann hefur þegar náð, en þeir eru
Denali (Mt. McKinley), hæsta fjall
Norður-Ameríku, Elbrus, hæsta
fjall Evrópu, og Kilimanjaro, hæsta
fjall Afríku.
Myndir af klifri
Haraldar Arnar
í Smáralind
LANDSRÁÐSTEFNA Samtaka
herstöðvaandstæðinga verður haldin
í Þinghóli, Hamraborg 11, Kópavogi,
laugardaginn 24. október, kl. 10.
Framsögufólk: Eiríkur Jónsson,
Grímur Hákonarson, Katrín Jakobs-
dóttir, Ólafía Erla Svansdóttir og
Sigurður Harðarson.
Ráðstefna Sam-
taka herstöðva-
andstæðinga