Morgunblaðið - 23.11.2001, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2001 57
DAGBÓK
Útsölumarkaður
á Langholtsvegi 130
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 12.00-18.00
Jólakorta-
myndatökur
Innifalið: Myndataka af börnum þínum
og 40 jólakort. Verð kr. 8.000.
Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207.
Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020.
Ath.
þetta!
Gleraugnaumgjörð og gler
fyrir vinnu, lestur og tölvu
frá kr. 11.600
Ennfremur frábært verð á
progressiv/margskiptugleri
Laugavegi 36
Til sölu glæsilegur 62 fm sumarbústaður, byggður 2000, í
landi Vatnsendahlíðar í Skorradal. Í húsinu eru 3 svefnher-
bergi, baðherbergi og samliggjandi eldhús og stofa. 5 fm
gestahús fylgir. U.þ.b. 90 fm verönd umhverfis húsið, að hluta
yfirbyggð. Skógi vaxin lóð. Áhugasömum velkomið að kíkja við
sunnudaginn 24. nóvember nk. frá kl. 13-16. Nánari upplýs-
ingar hjá eiganda í síma 690 2510 og á mbl.is.
Fasteignamiðlun Vesturlands — sími 431 4144
Skorradalur
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert mikill einstaklings-
hyggjumaður, en kannt
þó vel að semja þig að
samstarfi við aðra.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gættu þess að gera ekki
meiri kröfur til samstarfs-
manna þinna en réttlátt getur
talist, því annars áttu á hættu
að spilla verkinu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að hafa vakandi auga
á því hvernig verk þín koma
öðrum fyrir sjónir. Það gerir
þú með miklum kröfum til
sjálfs þín, smekkvísi og aga.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Rætur sumra mála geta legið
langt í burtu. Þú skalt samt
ekki unna þér hvíldar fyrr en
þú veist hverjir það eru sem
reyna að koma óorði á þig.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu það ekki koma þér á
óvart þótt orsakir deilu þinn-
ar og vinar þíns séu aðrar en
fram kemur á yfirborðinu.
Sýndu skilning og þolinmæði.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er ekki þitt hlutverk að
hafa alla ánægða og þú átt að
hrista af þér kröfur um slíkt.
Sjáðu um sjálfan þig og láttu
aðra um slíkt hið sama.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þolinmæði er lykilorð þitt í
dag, hvort sem um er að ræða
samskipti við vinnufélaga eða
vandamenn. Vertu vinnusam-
ur og umfram allt hreinskipt-
inn.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hugsaðu þig tvisvar um áður
en þú grípur til aðgerða, sér-
staklega sem kosta einhver
fjárútlát. Málið er að sinna
aðeins raunverulegum þörf-
um.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ringulreið á heimilinu setur
allt á annan endann. Áður en
þú ferð að æsa þig yfir hlut-
unum skaltu íhuga að sjaldan
veldur einn, þá tveir deila.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þótt þér sé mikið í mun að
koma skoðunum þínum á
framfæri máttu ekki láta
kappið leiða þig í gönur. Öllu
skiptir að tala ljóst og skipu-
lega.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Farðu þér hægt í að dæma
aðra. Kynntu þér menn og
málefni áður en þú myndar
þér skoðanir. Svaraðu bréf-
um strax, hvort sem þér er
það ljúft eða létt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þótt aðrir séu ekki á sama
máli og þú er ástæðulaust að
fara í fýlu. Reyndu heldur að
vinna hina á þitt band með
rökföstum málflutningi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þótt allt virðist á lygnum sjó,
er hyggilegt að vera við öllu
búinn, því ekkert er eins pirr-
andi og atburðir, sem setja
óvænt allt á annan endann.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Ámorgun, laugardag-
inn 24. nóvember, verður
áttræð Sigurbjörg Sigur-
jónsdóttir, Garðarsbraut
55, Húsavík. Sigurbjörg
verður heima á afmælisdag-
inn og tekur á móti vinum og
ættingjum frá kl. 16.
LJÓÐABROT
BRÁÐUM KOMA
BLESSUÐ JÓLIN
Bráðum koma blessuð jólin,
börnin fara að hlakka til.
Allir fá þá eitthvað fallegt,
í það minnsta kerti og spil.
Hvað það verður, veit nú enginn.
Vandi er um slíkt að spá.
Eitt er víst, að alltaf verður
ákaflega gaman þá.
Jóhannes úr Kötlum
1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5
4. d4 Rf6 5. Rf3 Bg4 6. Be2 e6
7. h3 Bh5 8. O-O Rc6 9. Ra3
cxd4 10. Rb5 Hc8 11. Rfxd4
Bxe2 12. Dxe2 Rxd4 13.
Rxd4 Be7 14. Hd1 a6 15. Rf3
De4 16. Dxe4 Rxe4 17. Be3 f6
18. Hd4 Rd6 19. He1 Kf7 20.
Hf4 Ke8 21. Ha4 e5 22. Rd2
Hc6 23. Ha5 Kf7 24. Hc5
Hhc8 25. Hxc6 Hxc6 26. g4
g6 27. f3 f5 28. Kf1 h5 29. Ke2
Re8 30. Hd1 Rc7 31. Rb3 b6
32. a4 Ke6 33. gxf5+ gxf5 34.
f4 Rd5 35. fxe5 Kxe5 36. Rd4
Hd6 37. Rf3+ Ke6 38. Rd4+
Kf6 39. Bf2 Rf4+
40. Kf3 Rg6 41.
He1 f4.
Staðan kom upp
í Evrópukeppni
landsliða í Leon á
Spáni. Hróksmað-
urinn, Jan Votova
(2.503), sýndi og
sannaði að þótt
hann sé í sam-
nefndu taflfélagi þá
geti hann fórnað
hróki, en hann
hafði hvítt gegn
ísraelska stór-
meistaranum Boris
Avrukh (2.606). 42.
Hxe7! Rxe7 42...Kxe7 var
ekki heldur fýsilegt vegna 43.
Rf5+ Ke6 44. Rxd6 og hvítur
verður peði yfir. 43. Bh4+
Kf7 44. Bxe7 Hg6 45. Bh4
Hg1 46. Bf2 Hb1 47. b4 Ha1
48. Rc6 Hh1 49. h4 Hh3+ 50.
Kxf4 Hxc3 51. Re5+ Ke6 52.
Bxb6 Kd5 53. a5 Hb3 54. Bc5
Hb2 55. Rg6 Hg2 56. Kf5
Kc4 57. Rf4 Hg4 58. Be7 Hg7
59. Ke6 og svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
HVAR liggur sökin? Í
þætti gærdagsins var tekið
dæmi um þá skiljanlegu til-
hneigingu spilara að ein-
blína á síðustu ákvörðun
þegar mistök eiga sér stað.
Hér er annað dæmi frá Ís-
landsmótinu í tvímenningi:
Vestur gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ DG862
♥ D4
♦ G10932
♣3
Vestur Austur
♠ Á109 ♠ 543
♥ ÁG109653 ♥ K8
♦ 87 ♦ KD4
♣7 ♣G10986
Suður
♠ K7
♥ 72
♦ Á65
♣ÁKD542
Á sumum borðum vakti
vestur á fjórum hjörtum í
upphafi og það varð oft til
þess að NS lentu í fimm
laufum dobluðum:
Vestur Norður Austur Suður
4 hjörtu Pass Pass 5 lauf
Dobl Pass Pass Pass
Þetta var ein sagnröðin,
en sumir dobluðu fjögur
hjörtu og breyttu svo fjór-
um spöðum makkers í
fimm lauf. En sagnir eru
ekki viðfangsefnið nú,
heldur vörnin. Vestur kom
út með hjartaás og spilaði
aftur hjarta á kóng makk-
ers. Austur átti slaginn og
sá fyrir sér stórveislu.
Hann spilaði laufgosa.
Sagnhafi drap með ás og
tók laufkóng. Spilaði svo
spaðakóng.
Vestur leit á sagnhafa og
sá engin svipbrigði. Suður
hafði sagt fimm lauf á
hættunni, gegn andstæð-
ingum sem voru utan
hættu. Það var því ekki úti-
lokað að hann væri með
kólgu eins og blankan
spaðakóng, tvo hunda í
hjarta, ÁK í tígli og þéttan
áttlit í laufi. Að minnsta
kosti var ekki ljóst hver
spaðalengd suðurs var og
vestur ætlaði ekki að
brenna inni með spaðaás –
svo hann tók slaginn eftir
nokkra umhugsun.
Austur merkti þrílit í
spaða og vestur sá að hann
hafði tekið ranga ákvörð-
un. Og spilaði tígli. Sagn-
hafi drap drottningu aust-
urs, spilaði spaða og henti
tveimur tíglum niður.
Fimm lauf fóru því „að-
eins“ þrjá niður, sem gaf
AV góða skor, en 1100
hefði verið mun betra.
„Ég gaf víst slag,“ sagði
vestur eftir spilið.
„Minnst einn,“ svaraði
austur.
En svo kveikti vestur á
perunni: „Þú áttir að spila
spaða í þriðja slag og gefa
mér talningu!“
„Það er rétt,“ viður-
kenndi austur, „eða bara
tígulkóng. En úr því sem
komið var hefðir þú bjarg-
að slag með því að spila
hjarta eftir að hafa tekið á
spaðaásinn, sem hefði gert
mér kleift að henda spaða.“
Þessi síðasta athuga-
semd leiðir hugann að öðru
varnarstefi, sem Bob
Hamman hefur fjallað um
á prenti. Hamman setur
niðurstöðu sína fram í eft-
irfarandi heilræði: „Ekki
fara á taugum þótt makker
fari ekki beinu leiðina í
vörninni – kannski er hans
leið jafn góð.“ Við skulum
taka upp þráðinn á þessum
stað á morgun.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
95 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 23. nóv-
ember, er níutíu og fimm ára
Jensína Sveinsdóttir, Aust-
urbrún 6, frá Gillastöðum í
Reykhólasveit. Hún tekur á
móti vinum og vandamönn-
um í safnaðarsal Áskirkju v/
Vesturbrún laugardaginn
24. nóvember kl. 16.30.
75 ÁRA afmæli. Nk.þriðjudag, 27. nóv-
ember, er 75 ára Sigurður
Jóhann Stefánsson, bóndi
frá Stærra-Árskógi, Ár-
skógsströnd, nú til heimilis
í Vanabyggð 7, Akureyri.
Hann tekur á móti gestum
laugardaginn 24. nóvember
frá kl. 15 á Mímisbrunni,
Mímisvegi 6, Dalvík.
50 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 26. nóv. nk.
verður 50 ára Guðmundur
Vignir Óskarsson, formað-
ur og framkvæmdastjóri
Landssambands slökkvi-
liðs- og sjúkraflutninga-
manna. Af því tilefni tekur
hann á móti vinum, vanda-
mönnum og samstarfsfólki
laugardaginn 24. nóvember,
frá kl. 18–20, í félagsheimili
Þróttar í Laugardal.
FRÉTTIR
HAFIN er fjársöfnun fyrir nýju org-
eli í Laugarneskirkju. Núverandi
orgel kirkjunnar er frá árinu 1956,
elsta orgel í sóknarkirkju í Reykja-
vík. Það er orðið afar illa farið og að
mati sérfræðinga er ekki talið ráð-
legt að reyna á því frekari viðgerðir.
Sóknarnefnd Laugarneskirkju
hefur samið við Björgvin Tómasson
orgelsmið úr Mosfellsbæ um smíði
nýs orgels. Verða pípur og aðrir nýt-
anlegir hlutir úr gamla orgelinu not-
uð í nýja orgelið.
Orgelið mun afhendast fullbúið í
kirkjuna á aðventu 2001. Heildar-
kostnaður verkefnisins er um 16
milljónir króna. Tónlistarlíf í Laug-
arneskirkju hefur verið mikið í gegn-
um árin.
Verið er að bera út bréf til íbúa
Laugarneshverfis þar sem leitað er
eftir stuðningi sóknarbarna og ann-
arra velviljaðra við orgelkaupin.
Gíróseðlar munu liggja frammi í
kirkjunni á aðventunni og eitthvað
fram eftir næsta ári, segir í frétta-
tilkynningu frá sóknarnefnd Laug-
arneskirkju.
Safnað fyrir orgeli
í Laugarneskirkju