Morgunblaðið - 23.11.2001, Side 60
FÓLK Í FRÉTTUM
60 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Moulin Rouge
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Baz
Luhrman. Aðalleikendur: Nicole Kidman, Ew-
an McGregor, Jim Broadbent. Sannkölluð
himnasending í skammdeginu. Stórfengleg
afþreying sem er allt í senn: Söng- og dans-
amynd, poppópera, gleðileikur, harmleikur,
nefndu það. Baz Luhrman er einn athygl-
isverðasti kvikmyndagerðarmaður samtím-
ans sem sættir sig ekki við neinar málamiðl-
anir og uppsker einsog hann sáir; fullt hús
stiga. Smárabíó, Regnboginn.
Requiem for a Dream/
Sálumessa draums
Bandarísk. 2000. Leikstjórn: Darren Aro-
nofsky. Aðalleikendur: Ellen Burstyn, Jared
Leto, Jennifer Connelly. Áhrifaríkasta mynd
ársins til þessa. Aronofsky galdrar fram frá-
bært samspil mynda og tóna um leið og
hann segir átakanlega sögu með frábærum
leikurum. Sambíóin.
The Others
Spænsk/frönsk/bandarísk. 2001. Leikstjórn
og handrit: Alejandro Amenábar. Nicole Kid-
man, Fionula Flanagan, Christopher Eccle-
ston, Alakina Mann, Eric Sykes. Meistara-
lega gerð hrollvekja sem þarf á engum
milljóndalabrellum að halda, en styðst við
einfalt, magnað handrit, styrkan leik, kvik-
myndatöku og leikstjórn. Umgerðin afskekkt-
ur herragarður, persónurnar dularfullar, efnið
pottþétt, gamaldags draugasaga með nýju,
snjöllu ívafi. Háskólabíó, Sambíóin.
Italiensk for begyndere /
Ítalska fyrir byrjendur
Dönsk. 2001. Leikstjórn og handrit: Lone
Scherfig. Aðalleikendur: Anders W. Berthel-
sen, Anette Stövebæk, Ann Eleonora Jörg-
ensen. Ný kvikmynd unnin eftir Dogme 95
forskriftinni, frá dönsku leikstýrunni Scherfig.
Frábær saga, rómantísk og alvöruþrungin í
senn, sem framreidd er af dönskum úrvals-
leikurum. Regnboginn.
Monsoon Wedding/Storma-
samt brúðkaup
Indversk/bandarísk. 2001. Leikstjóri: Mira
Nair. Aðalleikendur: Naseenruddin Shah,
Vijay Raaz. Angurvær og ljóðræn mynd sem
öll gerist í kringum brúðkaup einkadótturinn-
ar í miðstéttarfjölskyldu í Delhi. Falleg og
fyndin mynd þar sem misnotkun bregður
skugga á gleðina. Laugarásbíó.
Shadow of the Vampire/
Skuggi vampírunnar
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: E. Elias Mer-
hinge. Aðalleikendur: John Malkovich, Wil-
lem Dafoe, Udo Kier. Bráðsnjöll, hrollvekj-
andi og fyndinn útúrsnúningur á klassíkinni
Nosferatu eftir Murnau. Var Max Schreck
raunveruleg blóðsuga? Sambíóin.
Brauð og túlípanar /Pane e
Tulipani
Ítölsk. 2000. Leikstjóri: Silvio Soldini. Aðal-
leikendur: Lisia Maglietta, Bruno Ganz. Líf
ítalskrar húsmóður tekur stakkaskiptum þeg-
ar hún stendur uppi ein í Feneyjum. Fyndin
og hjartnæm mynd með dásamlegri aðalleik-
onu. Háskólabíó
Elling
Noregur. 2001. Leikstjóri: Peter Næss. Aðal-
leikendur: Per Christan Ellefsen, Sven Nor-
din, Pia Jacobsen. Norsk mynd um tvo létt-
geðfatlaða náunga sem fá íbúð saman og
þurfa að læra að bjarga sér. Bráðfyndin og
skemmtileg mynd með fullri virðingu fyrir að-
alpersónunum. Háskólabíó.
Mávahlátur
Tilkomumikil kvikmynd Ágústs Guðmunds-
sonar byggð á samnefndri skáldsögu Krist-
ínar Marju Baldursdóttur. Þar skapar leik-
stjórinn söguheim sem er lifandi og heillandi,
og hefur náð sterkum tökum á kvikmynda-
legum frásagnarmáta. Frammistaða Mar-
grétar Vilhjálmsdóttur og Uglu Egilsdóttur er
frábær. Háskólabíó, Sambíóin.
Og mamma þín líka/Y Tu
Mama Tambien
Mexíkósk. Leikstjórn og handrit: Alfonso
Cuarón. Aðalleikendur: Maribel Verdú, Diego
Luna. Kröftug kvikmynd mexíkóska leikstjór-
ans Alfonso Cuarón, sem vann tilverðskuld-
aðra verðlauna á Feneyjahátíðinni fyrir stór-
merkilegt handrit. Regnboginn.
America’s Sweethearts / Ást-
sælu turtildúfurnar
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Joe Roth. Hand-
rit: Billy Crystal. Aðalleikendur: Julia Roberts,
Billy Crystal, Catherine Zeta-Jones. Bráð-
skemmtileg ádeila á ímyndamótun og fjöl-
miðlasýki í Hollywood-bransanum, skrifuð og
leikstýrt af mönnum sem vita hvað þeir eru
að tala um. Frábærum leikurum er raðað af
kostgæfni allt niður í smæstu hlutverk.
Laugarásbíó, Stjörnubíó.
American Pie 2
Bandarísk. 2001. Leikstjóri J.B. Rodgers.
Handrit: Adam Herz. Aðalleikendur: Jason
Biggs, Shannon Elizabeth, Chris Klein. Beint
framhald á kynórum menntaskólanema er
fyrri myndinni sleppir. Græskulaus aula- og
neðanmittisfyndni flutt af sama, góða ung-
leikaragenginu. Sambíóin.
Angel Eyes/Vökul augu
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Luis Mandoki.
Aðalleikendur: Jennifer Lopez, Jim Caviezel,
Sonia Braga. Hér er ekki á ferðinni spennu-
mynd, heldur dramatísk sálarlífsstúdía, þar
sem harður veruleiki glæpaborgarinnar Chi-
cago liggur í bakgrunni. Jennifer Lopez á
sterkan leik. Sambíóin.
Bridget Jones Diary
Bresk. 2001. Leikstjóri: Sharom Maguire.
Handrit: Helen Fielding. Aðalhlutverk: Renée
Zellweger, Hugh Grant, Colin Firth, Jim
Broadbent. Sagan um ástamál Bridget verð-
ur að hæfilega fyndinni, rómantískri gam-
anmynd. Zellweger gerir margt gott í titilhlut-
verkinu. Háskólabíó.
Joy Ride
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: John Dahl.
Handrit: Clay Tarver. Aðalleikendur: Steve
Zahn, Paul Walker, Leele Sobieski. Spennu-
mynd um þrjá félaga á ferðalagi. Ágætir leik-
arar, frekar metnaðarlaus, en virkar þó sem
spennumynd. Regnboginn.
Pétur og kötturinn Brandur
Sænsk. 2000. Leikstjóri: Albert Hanan Kam-
insky. Handrit: Torbjörn Janson. Teiknimynd.
Aðalraddir: Guðmundur Ólafsson, Arngunnur
Árnadóttir, Sigurður Sigurjónsson, Sigrún
Waage. Ekkert stórvirki en ágætis skemmtun
fyrir litla krakka. Pétur og Brandur eru við-
kunnanlegir og uppátektarsamir. Smárabíó, Laugarásbíó.
Rugrats in Paris
Bandarísk. 2000. Leikstjórn: Stig Bergquist,
Paul Demyer. Handrit: J. David Stem. Ísl.
leikraddir: Edda Heiðrún Backmann, Inga
María Valdimarsdóttir, Rósa Guðný Þórsdótt-
ir, Dofri Hermannsson o.fl. Skemmtileg en
fullfyrirsjáanleg mynd um káta krakkaorma í
leit að mömmu handa vini sínum. Sambíóin, Háskólabíó.
Yamakasi
Frönsk. 2001. Aðalleikendur: Charles Per-
riere, Laurent Piemontesi. Ungir, franskir
slæpingjar og húsaklifrarar gerast innbrots-
þjófar til bjargar mannslífi. Lágkúra að und-
anskildum vel útfærðum áhættu- og átakaat-
riðum.
Regnboginn.
Lucky Numbers
Bresk. 2001. Leikstjórn: Nora Ephron. Hand-
rit: Adam Resnick. Aðalleikendur: John Tra-
volta, Lisa Kudrow. Svört grínmynd sem
gengur ekki upp; lélegir brandarar, morð og
græðgi. Travolta og Kudrow skiljanlega ekki
nógu skemmtileg. Háskólabíó.
Evil Woman
Bandarísk. 2001. Aðalleikarar: Amanda
Peet, Steve Zahn, Jason Biggs, Jack Black.
Lapþunn aulamynd um þrjá bjálfa og kven-
skratta. Af myndinni að dæma stefna aula-
brandarabankar í gjaldþrot.
Stjörnubíó.
The Musketeer
Bandarísk. Leikstjórn: Peter Hyams. Aðalleik-
endur: Justin Chambers, Tim, Roth, Stephen
Rea, Catherine Deneuve. Þessi enn ein út-
gáfan af sögunni um Skytturnar þrjár eftir
Dumas er flöt, fyrirsjáanleg og hreinlega leið-
inleg. Ágætis leikarar fá engu áorkað.
Laugarásbíó.
BÍÓIN Í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Requiem for a Dream þykir „áhrifa-
ríkasta mynd ársins til þessa,“ að
mati kvikmyndagagnrýnenda
Morgunblaðsins.
– Oddný Kristín Guðmundsdótt-
ir?
„Já.“
– Þú ert aðalleikkonan í Gæsa-
partíi?
„Já.“
– Og leikur gæsina Freyju?
„Já.“
– Ég heiti Hildur Loftsdóttir og
er að hringja í þig frá Morgun-
blaðinu. Má ég taka viðtal við þig?
„Ja, ég er nú að vinna verkefni
hér í skólanum.“
– Í hvað skóla ertu?
„Ég er að læra viðskiptafræði á
Bifröst. Jú, jú, þú getur alveg tekið
viðtalið.“
– Flott. Ertu farin að kvíða frum-
sýningunni í kvöld?
„Svolítið, en hlakka líka til.“
– Ertu leikkona, hvernig er það?
„Nei, ég er ekki leikkona. Við er-
um allar ólærðar sem leikum í
myndinni. Ég hef einu sinni tekið
þátt í uppsetningu hjá áhugaleik-
félaginu heima í sveitinni. Það var
eina reynslan sem ég hafði. Ég er
frá Hvanneyri en hinar eru allar úr
Borgarnesi eða frá Akranesi.“
– En hvernig kom þetta til?
„Það var hringt í mig og margar
aðrar stelpur og konur hér á svæð-
inu, og við vorum beðnar um að
koma á fund því það átti að fara að
taka upp mynd. Við héldum að það
væri verið að leita að aukaleikurum
í eitt lítið hópatriði og við þyrftum
ekki að segja neitt, en svo kom allt
annað í ljós.“
– Og leikstjórinn Böðvar Bjarki
Pétursson valdi þig í aðalhlutverk-
ið?
„Já,“ svarar Oddný og hlær.
– Hvernig fannst þér það?
„Ég varð rosalega hissa á þessu
og er það ennþá,“ segir hún, enn
hlæjandi.
Svakalegt ævintýri
– Hvenær var myndin tekin upp?
„Hún var tekin upp í júlí, á einni
viku.“
– Var þetta skemmtilegt?
„Já, rosalega gaman. Þegar mað-
ur hefur aldrei komið nálægt kvik-
myndagerð þá er svakalegt ævin-
týri að sjá hvernig bíómynd verður
til.“
– Og ekki verra að vera í aðal-
hlutverkinu um leið...
„Nei. Það var mjög skrýtið.“
– Þú hefur aldrei efast um
frammistöðu þína?
„Jú, jú. Ég er ennþá taugaveikl-
uð yfir því. Maður bara gerði sitt
besta og þeir hjálpuðu manni í
gegnum myndina og þetta var mjög
gaman.“
– Þú leikur á móti einum lærðum
leikara.
„Já, Magnús Jónsson leikur bróð-
ur hennar Freyju sem ég leik, og
hann var eini atvinnuleikarinn í
myndinni. Það var gaman að leika á
móti honum, og reyndar öllum hin-
um stelpunum líka en þrjár þeirra
voru einnig í mjög stórum hlut-
verkum.“
– Þekktust þið stelpurnar eitt-
hvað fyrir?
„Ég kannaðist við þær allar. Við
vorum sextán og flestar stelpurnar
þekktust á einn eða annan hátt. En
núna er ég búin að kynnast þeim
mjög vel og við ætlum að halda
hópinn. Við tölum alltaf saman og
ætlum að hittast reglulega og halda
partí.“
Svolítið gróft gæsapartí
– Finnst þér sagan vera góð?
„Já, og mér finnst mjög gaman
að einhverjum hafi dottið í hug að
gera mynd um gæsapartí. Þetta
verður fróðlegt fyrir aðra að sjá.“
– Finnst þér persónurnar vera
raunverulegar?
„Já, ég held að þetta verði rosa-
lega raunverulegt, því við vorum
látnar læra texta, en stór hluti af
þessu er bara spuni. Þannig að með
spunanum verður það mjög eðlilegt.
Eða ég held það.“
– Er þá smá Oddný Kristín í
Freyju?
„Nei, þetta er ekki ég sem ég er
að leika. Það voru ýmsir hlutir sem
maður gat sótt í sjálfan sig, en
maður var að leika aðra manneskju,
svo þetta er ekki ég.“
– Lýsir myndin dæmigerðu ís-
lensku gæsapartíi vel?
„Ja, það eiga nú
áreiðanlega eftir að
vera skiptar skoðanir á
því, en ég held það.
Þetta er svolítið gróft
gæsapartí, en íslenskar
stelpur geta verið svo-
lítið grófar. Og það er
svaka mikið stuð, eins-
og er í íslenskum
kvennapartíum og ég
held að þetta sé góð lýsing á því.“
– Ertu nokkuð orðin afhuga gæ-
sapartíum eftir þessa reynslu?
„Það er spurning... Annars var
ég að segja við stelpurnar að ef ég
gifti mig einhvern tímann þá yrðu
þær að gjöra svo vel að gæsa mig.
Það var svo mikið fjör hjá okkur.
Það verður áreiðanlega líka rosa-
lega gaman hjá okkur í frumsýning-
arpartíinu í kvöld.“
– Góða skemmtun!
„Takk.“
Rosalega raunverulegt
Geðveikt stuð í Gæsapartíi. Bróðir Freyju er
ekki alveg sáttur við
veisluhöldin. Magn-
ús og Oddný Kristín.
Oddný Kristín og Berglind Bára Bjarna-
dóttir í hlutverkum sínum.
Ýmsilegt gengur á í ís-
lenskum gæsapartíum
og nú fær lýðurinn inn-
sýn í það. Hildur Lofts-
dóttir hringdi í Freyju
sem er rækilega gæsuð.
hilo@mbl.is
Kvikmyndin Gæsapartí frumsýndi i rtí fr