Morgunblaðið - 23.11.2001, Page 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
LÍFEYRISSKULDBINDINGAR
ríkissjóðs jukust um rúma 68 millj-
arða kr. á árunum 1997-2000 eða um
72%. Ríkisendurskoðun bendir á
þetta í nýútkominni skýrslu um end-
urskoðun ríkisreiknings ársins 2000.
Stofnunin vekur sérstaka athygli á
stöðugri aukningu skulda ríkisins,
sem námu um 413 milljörðum kr. í lok
síðastliðins árs. Ríkisendurskoðun
segir hækkun lífeyrisskuldbindinga
vega þungt í stöðugri aukningu
skulda ríkisins, sem eigi einkum ræt-
ur að rekja til kjarasamninga þar sem
samið var um að fella yfirvinnu- og
aukagreiðslur inn í dagvinnulaun. Líf-
eyrisskuldbindingar ríkissjóðs námu
samtals 163 milljörðum um síðastliðin
áramót. Í skýrslu sinni lýsir Ríkis-
endurskoðun áhyggjum af því að
þrátt fyrir hagstæð ytri skilyrði und-
anfarin ár hafi skuldir ríkissjóðs hald-
ið áfram að vaxa. Þrátt fyrir að
stjórnvöld hafi notað hluta þess svig-
rúms sem betri afkoma hafi skapað til
að greiða niður skuldir hafi það ekki
nægt til að vega upp á móti mikilli
hækkun lífeyrisskuldbindinga.
,,Gríðarleg hækkun varð á lífeyr-
isskuldbindingum á árinu 1998, aðal-
lega vegna breytinga á launakerfi rík-
isins sem fólu í sér að fastar
aukagreiðslur af ýmsu tagi voru felld-
ar inn í föst mánaðarlaun. Reglur um
lífeyrisgreiðslur meirihluta ríkis-
starfsmanna kveða á um að lífeyrir
skuli reiknast sem ákveðið hlutfall
fastra launa og því hafði þessi breyt-
ing víðtækar afleiðingar fyrir skulda-
stöðu ríkissjóðs þar sem lífeyris-
skuldbindingar hækkuðu um 30,2
[milljarða króna] á milli ára eða nær-
fellt 32%. Til samanburðar má geta
þess að launagjöld ríkisins hækkuðu á
sama tíma um 9,4 [milljarða króna]
sem svarar til 23,2% hækkunar frá
árinu áður. Breytingar á kjarasamn-
ingum ríkisstarfsmanna fólu því í sér
nálægt 40 [milljarða króna] áhrif á
ríkisfjármálin á árinu 1998,“ segir í
skýrslunni. Einnig kemur fram að
langtímaskuldir ríkissjóðs hafa
hækkað um 91 milljarð kr. frá 1995
eða um 33%.
Ríkisendurskoðun lýsir áhyggjum
af skuldasöfnun ríkisins
Lífeyrisskuldbind-
ingar jukust um 68
milljarða á 3 árum
Dæmi um stofnanir/6
ÍSFÉLAG Vestmannaeyja hf. hefur
tekið í notkun nýja og fullkomna
vinnslulínu til pökkunar og fryst-
ingar á uppsjávarfiski. Í gær land-
aði Gullberg VE um 280 tonnum af
vænni síld, sem veiddist í Héraðs-
flóa. Var síldin ýmist flökuð eða
heilfryst og unnin í nýju vinnslulín-
unni.
Framleiðslulínan er smíðuð af
Skaganum á Akranesi, vogir eru
frá Marel og frystiskápar koma frá
Ítalíu. Áætlað er að afkastageta
vinnslulínunnar verði um 350 tonn
á sólarhring, þegar búið verður að
fínstilla búnaðinn. Mikilli sjálf-
virkni er beitt, m.a. sér sjálfvirkur
búnaður um að fylla og tæma frysti-
skápana.
Tæpt ár er liðið síðan frystihús
Ísfélagsins eyðilagðist í eldsvoða.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra skoðaði nýju vinnslulínuna.
F.v.: Hörður Óskarsson fjármálastjóri, Kristinn Sigurðsson, Ægir Páll
Friðbertsson framkvæmdastjóri og sjávarútvegsráðherra.
Fullkomin vinnslulína
í notkun hjá Ísfélaginu
LÖGREGLAN á Akureyri handtók í
gærmorgun lettneskan ríkisborgara
sem grunaður er um aðild að tveim-
ur morðum í Lettlandi. Handtakan
fór fram á Dalvík og var gerð að ósk
alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra.
Þangað barst beiðni í fyrrakvöld frá
skrifstofu alþjóðalögreglunnar Int-
erpol í Riga, höfuðborg Lettlands,
um að handtaka manninn, væri hann
á landinu.
Ríkislögreglustjóri bíður frekari
upplýsinga um málavexti en í gögn-
unum sem bárust frá Lettlandi kem-
ur fram að annað morðið var framið í
ágúst síðastliðnum. Sá sem var
myrtur mun hafa verið skotinn þeg-
ar hann kom að manninum við inn-
brot og lést hann nokkru síðar af
sárum sínum. Ekki er vitað með
vissu hvenær hitt morðið var framið
en lík manns, sem hafði horfið
nokkru áður, fannst grafið í skóg-
lendi.
Að sögn Þóris Oddssonar vararík-
islögreglustjóra var farið fram á
tveggja vikna gæsluvarðhald yfir
manninum í gærkvöldi en dómari
tók sér frest til morguns til að kveða
upp úrskurð.
Lögreglumenn frá alþjóðadeild
ríkislögreglustjóra fluttu manninn
til Reykjavíkur í gær og var hann
yfirheyrður fram á kvöld með aðstoð
túlks. Maðurinn, sem er fæddur árið
1976, hafði tilskilin atvinnu- og dval-
arleyfi og vann hjá fiskvinnslufyr-
irtæki á Dalvík. Hann mun hafa
dvalið fremur stutt hér á landi.
Smári Sigurðsson, yfirmaður al-
þjóðadeildar ríkislögreglustjóra,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að lettnesk lögregluyfirvöld
hefðu haft upplýsingar um að mað-
urinn væri hugsanlega staddur hér á
landi. Í framhaldinu hefði verið beð-
ið um að hann yrði handtekinn enda
hefði verið gefin út handtökuskipun
á hendur manninum í Lettlandi.
Smári segir að miðað við þær upp-
lýsingar sem liggja fyrir um mann-
inn sé ljóst að hann sé hættulegur.
Lettnesk yfirvöld hafa þegar lýst
því yfir að farið verði fram á að mað-
urinn verði framseldur. Smári segir
reyndar ekki víst að til framsals
þurfi að koma. Reynist rökstuddur
grunur um að hann hafi gerst sekur
um ofangreind afbrot hefur hann
brotið gegn lögum um útlendinga.
Þar með sé kominn grundvöllur fyr-
ir því að vísa honum einfaldlega úr
landi.
Lettneskur karlmaður handtekinn á Dalvík eftir að
beiðni barst frá Interpol
Grunaður um aðild að
morðum í Lettlandi
EIN umtalaðasta neðanjarðarrokk-
sveit síðustu ára, hin kanadíska God-
speed you black emperor!, er vænt-
anleg til landsins á næsta ári til
hljómleikahalds. Íslenska sveitin
Sigur Rós hitaði upp fyrir Godspeed
í fyrra en sveitirnar þykja um margt
leika áþekka tónlist.
Tónleikarnir verða 13. marz og er
það Hljómalind sem hefur veg og
vanda af þessum viðburði.
Vinsæl neð-
anjarðarsveit
til Íslands
Fremsta/59
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
átti óformlegan fund með Grétari
Þorsteinssyni, forseta Alþýðusam-
bands Íslands, og Gylfa Arnbjörns-
syni, framkvæmdastjóra ASÍ, í húsa-
kynnum stjórnarráðsins í gær og var
þar farið yfir þróun og stöðu efna-
hagsmála.
Grétar Þorsteinsson sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi að for-
ysta ASÍ hefði haft frumkvæði að
fundinum. „Við lítum svo á að þessi
fundur hafi verið úrslitatilraun okkar
til að láta á það reyna hvort stjórnvöld
væru til í að taka á verðbólgunni og
orsökum hennar með afdráttarlaus-
um hætti,“ sagði Grétar. „Við teljum
að verðbólgan sé á það alvarlegu stigi
að það verði að freista þess að ná
henni niður á sem skemmstum tíma.“
Grétar sagði að tilgangur fundarins
hefði ekki síst verið sá að tala beint og
milliliðalaust við ráðherra. „Við vilj-
um fá það á hreint hvort stjórnvöld
eiga samleið með okkur í þessum mál-
um eða ekki.“ Grétar sagði að forysta
ASÍ byggist við að heyra mjög fljót-
lega frá forsætisráðherra. „Við bú-
umst við afdráttarlausum svörum
mjög fljótlega,“ sagði hann.
Fundur for-
sætisráð-
herra með
forystu ASÍ
♦ ♦ ♦
LÖGREGLAN á Fáskrúðsfirði hef-
ur til rannsóknar árekstur hafrann-
sóknaskipsins Drafnar og trillubáts-
ins Narfa SU 68 sem varð á
miðunum út af Breiðdalsvík síðdegis
í gær. Engin slys urðu á mönnum og
skemmdir á bátum ekki miklar.
Skipstjóri Drafnar vildi ekki tjá
sig um atvikið í gær en að sögn
Gunnsteins Þrastarsonar, skipstjóra
Narfa, reyndi hann ásamt skips-
félaga sínum að bakka undan skip-
inu. „Það dugði ekki til, en það hefði
getað farið verr ef við hefðum ekki
sett í bakkgírinn,“ sagði Gunnsteinn.
Árekstur út af
Breiðdalsvík
LÖGREGLUMAÐUR í Keflavík
sýndi snarræði í gærkvöld þegar
hann kom í veg fyrir að fiskiskipið
Stokksey ÁR 40 slitnaði frá bryggju
og ræki upp í fjöru við Njarðvík-
urhöfn. Skipið var slitið frá að aft-
anverðu og vantaði lítið upp á að
það losnaði að framan. Mjög hvasst
var þegar lögreglan kom að skipinu
og mikið vatnsveður.
Lögreglumaðurinn, Hörður Ósk-
arsson, komst um borð í skipið og
naut síðan aðstoðar félaga síns og
hafnarvarðar við að koma land-
festum frá Stokksey yfir í annað
skip sem var bundið í höfninni.
Hörður sagðist í samtali við Morg-
unblaðið ekki telja að um mikið af-
rek hefði verið að ræða, menn væru
bara að vinna vinnuna sína.
Eigendum skipsins var þegar
gert viðvart og kom flokkur manna
snarlega á staðinn og kom böndum
á skipið auk þess sem hafnarverðir
aðgættu festingar á öðrum skipum í
höfninni.
Sýndi snar-
ræði í Njarð-
víkurhöfn
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Hörður Óskarsson og Ibsen
Angantýsson hafnarvörður.