Morgunblaðið - 06.12.2001, Blaðsíða 1
280. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 6. DESEMBER 2001
HRÁOLÍUVERÐ hækkaði í gær
eftir að Rússar tilkynntu, að þeir
hygðust draga allmikið úr olíufram-
leiðslunni. Bendir nú flest til, að
áætlun OPEC, Samtaka olíuútflutn-
ingsríkja, um að koma böndum á
framboðið muni takast.
Brent-olía úr Norðursjó fór um
stund í gær yfir 20 dollara fatið en
var í lok dagsins í 19,55 dollurum.
Var hækkunin 26 sent. Í New York
hækkaði olíufatið um 25 sent og fór í
19,90 dollara.
OPEC-ríkin hafa lagt hart að
Rússum að draga úr framleiðslunni
og fögnuðu því tilkynningu þeirra
um samdráttinn. Það gerðu Norð-
menn einnig en þeir ætla að draga úr
sinni framleiðslu um 100.000 til
200.000 olíuföt á dag. Nú má heita
víst, að OPEC-ríkin láti verða af
fyrri samþykktum um að draga úr
sinni framleiðslu um 1,5 milljónir
fata daglega.
Olíuverð hækkar
London. AFP.
BONO, aðalsöngvari írsku hljóm-
sveitarinnar U2, hefur verið út-
nefndur „Evrópumaður ársins“
fyrir baráttu sína fyrir því, að
skuldir fátækra ríkja verði afskrif-
aðar. Var það niðurstaðan í at-
kvæðagreiðslu, sem vikuritið
European Voice gekkst fyrir.
Af öðrum sigurvegurum í at-
kvæðagreiðslunni má nefna Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands,
sem var kjörinn „leiðtogi ársins“ og
George W. Bush Bandaríkjaforseta
en hann var kosinn „utanhéraðs-
maður ársins“, það er að segja sá
maður utan Evrópusambandsins,
sem hefði haft mest áhrif innan
þess. Breski kaupmaðurinn Steve
Thoburn var valinn „baráttumaður
ársins“, en hann hlaut dóm í apríl
sl. fyrir að selja banana eftir gam-
alli vog í breskum pundum og
únsum, en ekki samkvæmt kílóum
eins og bresk lög gera nú ráð fyrir.
Sigurvegararnir í kjörinu fá að
launum 5.000 evrur, eða tæplega
hálfa milljón ísl. króna, sem þeir
geta ánafnað góðgerðarstofnun að
eigin vali.
Bono kjör-
inn „Evr-
ópumaður
ársins“
ÞJÓÐARLEIÐTOGAR víða um heim hafa fagn-
að samkomulagi sem fulltrúar fjögurra helstu
þjóðarbrotanna í Afganistan náðu um stjórn
landsins og undirritað var í Bonn í Þýskalandi í
gær.
Samkvæmt samkomulaginu mun bráðabirgða-
stjórn taka við völdum í Afganistan 22. desem-
ber og er hún skipuð til sex mánaða. Að þeim
tíma liðnum er gert ráð fyrir að þjóðfundur, eða
loya jirga, komi saman og skipi stjórn til allt að
tveggja ára, en þá eiga kosningar að fara fram í
landinu.
Bráðabirgðastjórnin er skipuð 30 mönnum; ell-
efu af þjóð Pastúna, átta Tadsjikum, fimm
Hasörum, þremur Úsbekum og þremur full-
trúum annarra þjóðarbrota. Pastúnaleiðtoginn
Hamid Karzai fer fyrir stjórninni, en í henni
sitja tvær konur.
Samkomulagið gerir ráð fyrir veru fjölþjóðlegs
friðargæsluliðs á vegum Sameinuðu þjóðanna í
Afganistan, en ekki er búist við að ákvarðanir
verði teknar um fyrirkomulag friðargæslunnar
fyrr en í lok þessa mánaðar.
Bush segir betri tíma í vændum
fyrir íbúa Afganistans
Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, lýsti yfir mikilli ánægju með samkomulag-
ið og lauk einnig lofsorði á þýsk stjórnvöld fyrir
þátt þeirra í að miðla málum. Powell minnti þó á
að mikið verk væri óunnið. Lagði hann áherslu á
að taka þyrfti tillit til sjónarmiða allra þjóðar-
brota á væntanlegum þjóðfundi og við samningu
nýrrar stjórnarskrár. Powell kvað Bandaríkja-
stjórn jafnframt reiðubúna að veita nýjum
stjórnvöldum í Afganistan umfangsmikla aðstoð.
Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins, sagði
George W. Bush Bandaríkjaforseta jafnframt
„afar ánægðan“ með samkomulagið, sem „boðaði
betri tíma fyrir þjóðir Afganistans“.
Aðrir vestrænir þjóðarleiðtogar fögnuðu
einnig undirritun samkomulagsins, sem og Kofi
Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.
Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, sagði
að það vekti nýja von fyrir íbúa Afganistans eftir
áralöng stríðsátök og þjáningar. Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, sagði samkomulagið
„mikinn áfanga“ og kvaðst vona að það myndi
slá á efasemdir um réttmæti hernaðaraðgerða
bandamanna í Afganistan. Í yfirlýsingu frá Kofi
Annan kom meðal annars fram að Sameinuðu
þjóðirnar munu leggja sitt af mörkum til þess að
tryggja „frið, stöðugleika og hagsæld“ í landinu.
Rússar, Pakistanar, Íranar og fleiri þjóðir
lýstu einnig yfir ánægju með samkomulagið.
Fyrrverandi sendiherra talibana í Pakistan,
Abdul Salam Zaeef, fordæmdi það aftur á móti
og sagði bráðabirgðastjórnina vera „leppstjórn“
sem mynduð hefði verið undir þrýstingi frá
erlendum ríkjum.
Samkomulagi um fram-
tíð Afganistans fagnað
Bonn, Königswinter, Washington. AFP, AP.
Reuters
Pacha Khan Dzadran, einn fulltrúanna á
fundinum í Bonn, undirritar samkomulagið.
Bráðabirgðastjórn/26
ÍSRAELSKA varnarmálaráðuneytið
tilkynnti síðdegis í gær að hlé yrði
gert á árásum á sjálfstjórnarsvæði
Palestínumanna til að gefa Yasser
Arafat tækifæri til að efna loforð sín
um að handtaka hryðjuverkamenn.
Palestínska öryggislögreglan til-
kynnti síðan í gærkvöld að leiðtogi
Hamas-samtakanna hefði verið
hnepptur í stofufangelsi.
Ísraelsher hafði haldið uppi
árásum á skotmörk á Vesturbakkan-
um og Gaza-svæðinu í tvo daga, í
hefndarskyni fyrir sprengjuárásirnar
um síðustu helgi, sem urðu 25
óbreyttum ísraelskum borgurum að
bana. Yasser Arafat fór í gær fram á
meiri tíma til að hafa hendur í hári
hermdarverkamanna og nokkrum
stundum eftir að Ísraelsstjórn til-
kynnti að hlé yrði gert á árásum á
sjálfstjórnarsvæðin var Sheikh
Ahmed Yassin, leiðtogi hernaðar-
arms Hamas-samtakanna, hnepptur í
stofufangelsi á heimili sínu í Gaza-
borg. Hamas-samtökin lýstu tilræð-
unum um helgina á hendur sér.
Embættismenn sjálfstjórnarinnar
sögðu í gær að palestínska öryggis-
lögreglan hefði á síðustu dögum
handtekið um 150 menn, sem grun-
aðir eru um aðild að hryðjuverka-
starfsemi, þar á meðal liðsmenn
Hamas, Jihad og annarra herskárra
samtaka.
Ráðherrar Verkamannaflokksins
ákváðu á fundi sínum í gær að halda
áfram setu í ríkisstjórn, en forystu-
menn í flokknum höfðu gefið í skyn á
mánudag að hann kynni að slíta
stjórnarsamstarfinu. Ráðherrar
Verkamannaflokksins gengu þá út af
ríkisstjórnarfundi í mótmælaskyni
við útgáfu yfirlýsingar um að Yasser
Arafat og aðrir embættismenn pal-
estínsku sjálfstjórnarinnar styddu
hryðjuverkamenn.
Sjálfsmorðsárás í Jerúsalem
Jihad-samtökin lýstu á hendur sér
sprengjutilræði í miðborg Jerúsalem
í gærmorgun. Meðlimur samtakanna
sprengdi sjálfan sig í loft upp fyrir
utan Hilton-hótelið í borginni, en varð
engum öðrum að bana. Þrír vegfar-
endur slösuðust lítillega.
Verkamannaflokkurinn áfram í stjórn
Ísraelar gera
hlé á árásum
Gaza-borg, Jerúsalem. AFP, AP.
Leiðtogi Hamas-samtakanna
hnepptur í stofufangelsi
ÞÝSK skólabörn sjást á
myndinni leika sér að tættum
þýskum peningaseðlum í
húsakynnum opinberu mynt-
sláttunnar í Berlín í gær.
Þar fer nú fram sýning í
tilefni þess að þýska markið
verður lagt af um áramótin,
þegar evran verður tekin upp
sem gjaldmiðill í tólf aðildar-
ríkjum Evrópusambandsins.
Reuters
Þýsku
mörkin tætt