Morgunblaðið - 06.12.2001, Blaðsíða 16
STARFSEMI Fasteignamats ríkis-
ins á Akureyri verður efld með því að
skrifað hefur verið undir samning
milli þess, fjármálaráðuneytisins og
Anza.
Anza mun sjá um rekstur á gagna-
grunnsþjóni fyrir Landsskrá fast-
eigna og allt sem að honum snýr.
Tölvukerfið vegna landsskrárinn-
ar verður á Akureyri og einnig
stendur til að byggja þar upp sér-
þekkingu Fasteignamats ríkisins í
landsupplýsingum sem tengjast
gerð landeignaskrár og notkun land-
upplýsinga við ákvörðun fasteigna-
mats auk þess sem verið er að
byggja upp á Akureyri hluta af upp-
lýsingaþjónustu stofnunarinnar.
Anza varð til við samruna fjögurra
fyrirtækja, Miðheima, Álits, Vef-
torgs og Nett 1. júlí síðastliðinn. Eitt
af markaðssviðum Anza er á Akur-
eyri, en það er svið sveitarfélaga- og
svæðisbundinnar þjónustu, en það
sérhæfir sig í þjónustu við sveitar-
félög og byggir m.a. á þekkingu og
reynslu sem skapast hefur af kerf-
isrekstri tölvukerfa fyrir Akureyr-
arbæ. Annað af tveimur kerfisrým-
um Anza er rekið á Akureyri og þar
mun tölvurekstur vegna Landsskrár
fasteigna fara fram. Kerfisrýmið er
búð öflugum öryggis- og tölvubúnaði
sem gerir fyrirtækinu kleift að
standast þær öryggiskröfur sem
Fasteignamat ríkisins gerir um hýs-
ingu og rekstur Landsskrár fast-
eigna.
Fasteignamat ríkisins á Akureyri
Starfsemin efld
með tilkomu Lands-
skrár fasteigna
Morgunblaðið/Kristján
Guðni B. Guðnason, framkvæmdastjóri Anza, Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra og Haukur Ingibergsson, forstjóri Fasteignamats ríkisins.
Erna Gunnarsdóttir söng af mikilli innlifun á tón-
leikum til styrktar barnadeild FSA.
TVENNIR jólatónleikar voru
haldnir á Akureyri á svipuðum tíma
á sunnudag og sótti þá mikið fjöl-
menni. Karlakór Akureyrar-Geysir
reið á vaðið og bauð upp á fjöl-
breytta efnisskrá með innlendum
og erlendum jólalögum. Með kórn-
um söng Þórhildur Örvarsdóttir, en
að tónleikunum loknum stóð gest-
um til boða að setjast að kaffihlað-
borði.
Síðar um daginn voru jóla-
tónleikar í Íþróttahöllinni í tilefni af
útkomu geisladisksins „Á jólunum“
en hann er gefinn út til styrktar
barnadeild Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri. Fjölmargir lands-
þekktir listamenn stigu þar á svið
og fluttu lög sín auk þess sem góðir
gestir komu fram, m.a. barnastjarn-
an Jóhanna Guðrún.
Fjölsóttir jólatónleikar
Morgunblaðið/Kristján
Gestir, ungir sem aldnir, fylgdust spenntir með tónleikunum.
Þórhildur Örvarsdóttir söng einsöng á tónleikum
Karlakórs Akureyrar-Geysis.
AKUREYRI
16 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÁMSKEIÐ í krullu (curl-
ing) verður haldið í skauta-
höllinni á Akureyri í næstu
viku, eða dagana 11. til 14.
desember og stendur það frá
kl. 13 til 15 og 19 til 21.
Hjónin Ian og Dolores Cor-
dner, margfaldir bandarískir
meistarar munu sjá um nám-
skeiðið, en þau hafa unnið
titla bæði í keppni kvennaliða
og keppni blandaðra liða af
báðum kynjum.
Krulla er leikur fyrir alla
aldurshópa af báðum kynjum.
Um er að ræða hópíþrótt, þar
sem fjórir eru í liði. Leik-
urinn felst í því að renna
granítsteinum eftir ísnum í
heimahöfn á hinum enda
brautarinnar og skiptast þátt-
takendur á að renna steini,
sópa og stjórna.
Bandarískir
meistarar
kenna
FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson og heitkona hans, Dorrit
Moussaieff voru heiðursgestir á
árshátíð Menntaskólans á Akureyri
sem fram fór í Íþróttahöllinni síð-
astliðið föstudagskvöld.
Árshátíð MA er ævinlega haldin
um þetta leyti og er jafnframt full-
veldishátíð, kennd við 1. desember.
Á áttunda hundrað manna sótti
hátíðina, nemendur, kennarar og
starfsfólk skólans. Íþróttahöllin var
skreytt í anda bændasamfélagsins.
Hálfdán Pétursson, inspector
scholae, flutti ávarp, Kór MA söng
nokkur lög, þá flutti Tinna Mjöll
Karlsdóttir minni karla og Ketill
Kristinsson minni kvenna. Þá var
kvartettsöngur og danssýning. For-
setinn ávarpaði samkomuna sem og
Tryggvi Gíslason skólameistari.
Síðast á dagskránni var leikverk
Stefáns Þórs Sæmundssonar kenn-
ara, Ek em maðr íslenskr, sem fé-
lagar úr Leikfélagi MA fluttu undir
stjórn Hrafnhildar Hafberg. Dans-
Stærsta vímulausa
hátíð ungs fólks
Ljósmynd/Birkir Baldvinsson
Helgi Hrafn Halldórsson yfir-
þjónn og Guðmundur Óli, stjórn-
andi kórs MA, leggja á ráðin.
Hálfdán Pétursson, formaður skólafélagsins Hugins, og Lára Kristín
Unnarsdóttir, ritari Hugins, í fararbroddi fjórðubekkinga.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, ásamt skólameistarahjónun-
um,Tryggva Gíslasyni og Margréti Eggertsdóttur.
Forseti Íslands heiðursgestur á árshátíð MA
leikir voru svo að lokum í tveimur
sölum, gömlu dansarnir voru stign-
ir á efri hæð en í aðalsalnum lék
hljómsveitin Sóldögg.
Árshátíð MA er og hefur um ára-
bil verið stærsta vímulausa hátíð
ungs fólks á Íslandi. Það er helsta
ástæða þess að forseti Íslands, Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, þáði boð
skólafélagsins Hugins um að vera
gestur á árshátíðinni og heiðra
skólann og nemendur hans með
nærveru sinni.
Námskeið í krullu
í skautahöllinni
SJÖFN hf. á Akureyri hefur selt
gólfefni í yfir 30 ár og þjónusta,
sala og lagning á gólfefnum fyr-
irtækisins verið bæði hérlendis og
erlendis. Um þessar mundir eru
starfsmenn Sjafnar að leggja gólf-
efni á Kanaríeyjum, í togarann
Heinaste, sem gerður er út af
Sjólaskipum í Hafnarfirði.
Togarinn er gerður út frá Kan-
aríeyjum og hefur verið þar í
rekstri undanfarin ár en hann var
áður gerður út frá Íslandi. Baldur
Guðnason framkvæmdastjóri
Sjafnar sagði að varðandi gólfefnin
hefðu helstu verkefnin utan Ís-
lands verið í Færeyjum, Kanada,
Grænlandi, Póllandi, Noregi og nú
á Kanaríeyjum. „Þá er verið að
vinna í stóru verkefni í Bandaríkj-
unum sem kæmi til framkvæmda á
næsta ári, auk þess sem við erum
að vinna á öðrum áhugaverðum
mörkuðum.“
Baldur sagði að helsti markaður
fyrir gólfefni væri í matvælaiðnaði,
eins og sjávarútvegs- og kjöt-
vinnslufyrirtækjum og landbúnaði,
almennu iðnaðarhúsnæði, íþrótta-
húsum og sundlaugum svo eitt-
hvað sé nefnt. Um er að ræða
uretan og epoxy kvars gólfefni.
Leitað eftir enn
frekari tækifærum
„Sjöfn hefur lagt gólfefni í
meirihluta íslenska fiskiskipaflot-
ans og hafa starfsmenn fyrirtæk-
isins mikla reynslu og þekkingu
sem nýtist okkur í framtíðinni til
að þjónusta íslensk fyrirtæki og
leita eftir tækifærum á nýjum
mörkuðum erlendis. Markmið
Sjafnar er að efla og styrkja þenn-
an þátt starfseminnar nánar í
framtíðinni með enn frekari út-
rás,“ sagði Baldur.
Gólfefnaþjónusta Sjafnar er
hluti af starfsemi fyrirtækisins
sem tekið hefur breytingum á
þessu ári, samhliða umfangsmikl-
um sameiningum í málningariðn-
aðinum þar sem Sjöfn á 45% hlut í
Hörpu Sjöfn hf. og hreinlætisvöru-
markaðnum þar sem Sjöfn á 60%
hlut í Mjöll hf.
Gólfefni frá Sjöfn
fara víða um heim