Morgunblaðið - 06.12.2001, Blaðsíða 15
Ljósmynd/Víkurfréttir
Friðrik og Sigurður Guðmundssynir með gjafabréfið.
LIONSKLÚBBARNIR í Reykja-
nesbæ færðu bræðrunum Friðriki
og Sigurði Guðmundssonum, sem
búsettir eru í Njarðvík, andvirði
575 þúsund króna í ferðasjóð.
Bræðurnir eru báðir bundnir í
hjólastól en sjá nú fram á að komast
til Disney World í Flórída í Banda-
ríkjunum með vorinu.
Friðrik er tólf ára og Sigurður
átján. Þeir fæddust báðir með sjald-
gæfan en alvarlegan vöðvarýrn-
unarsjúkdóm. Bræðurnir hafa átt
sér þann draum að komast til Disn-
ey World og glæddust vonir þeirra í
haust þegar Sjóvá-Almennar gáfu
þeim andvirði tjónabíls sem boðinn
var upp. Fleiri hafa bætt við og nú
hafa Lionsklúbbarnir í Reykja-
nesbæ gefið andvirði 575 þús. kr.
Við athöfn í veitingastaðnum
Matarlyst færði Lionsklúbbur
Njarðvíkur þeim 200 þúsund, Lion-
essuklúbburinn Æsur í Njarðvík
jafn háa fjárhæð, Lionessuklúbbur
Keflavíkur 75 þúsund og Lions-
klúbbur Keflavíkur perur að and-
virði 100 þúsund kr.
Ólafur Thordersen, formaður
Lionsklúbbs Njarðvíkur, lætur þess
getið að afar ánægjulegt hafi verið
að færa drengjunum þessa gjöf, eitt
það ánægjulegasta sem hann hafi
tekið þátt í.
Bætist í ferðasjóð
hjá bræðrunum
Njarðvík
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 15
FULLTRÚAR Samfylkingarinnar í
bæjarstjórn Reykjanesbæjar vilja að
fyrirhugaður stuðningur bæjarins
við greiðslu launa íþróttaþjálfara
barna verði skilyrtur því að þjálfar-
arnir hafi réttindi og að styrkirnir
komi til lækkunar á æfingagjöldum
barnanna. Málið er áfram til með-
ferðar hjá bæjaryfirvöldum.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar
samþykkti í vor tillögu meirihluta
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks
um að fela Tómstunda- og íþrótta-
ráði (TÍR) að undirbúa viðmiðunar-
reglur til úthlutunar fjárframlags til
greiðslu þjálfaralauna barna, 12 ára
og yngri. TÍR hefur lagt til að gengið
verði til samninga við Íþróttabanda-
lag Reykjanesbæjar (ÍRB) um málið
enda sé best að ÍRB sjái um úthlutun
fjármagnsins til félaga og deilda,
samkvæmt þeim kröfum sem gerðar
verða í samningi bæjaryfirvalda og
íþróttabandalagsins. Jafnframt er
lagt til að veitt verði 7 milljónum kr.
til þessa verkefnis á árinu 2002.
Kemur fram í greinargerð með til-
lögunni að þessi fjárhæð nálgist það
að vera helmingur þeirrar fjárhæðar
sem íþróttahreyfingin í bænum
greiðir þjálfurum þessa aldurshóps.
Sammála um markmiðin
Samþykkt Tómstunda- og íþrótta-
ráðs var til umræðu á bæjarstjórn-
arfundi í fyrrakvöld. Samþykkt var
að vísa henni til skoðunar í bæjar-
ráði. Fulltrúar Samfylkingarinnar
lögðu áherslu á að fjárveitingarnar
yrðu skilyrtar. Annars vegar að
greiðslurnar færu til íþróttaþjálfara
með réttindi og hins vegar að þær
kæmu til niðurfellingar á æfinga-
gjöldum barnanna.
Fram kom hjá bæjarfulltrúum
meirihlutans að tilgangur tillögunn-
ar væri að bæta þjálfun barna með
ráðningu hæfra og menntaðra þjálf-
ara og var vakin athygli á því að í til-
lögu TÍR væri lögð áhersla á þann
þátt. Það gæti hins vegar verið erfitt
að setja bein skilyrði um menntun og
réttindi þjálfaranna því reynsla
góðra þjálfara og menntun væri með
mismunandi hætti.
Þá höfnuðu fulltrúar meirihlutans
algerlega þeim sjónarmiðum minni-
hlutans að bæjarstjórn færi að
skipta sér af rekstri íþróttafélaganna
með því að hlutast til um innheimtu
þeirra á æfingagjöldum. Skúli Skúla-
son, forseti bæjarstjórnar, sagði að
félögin gætu ekki innheimt of há æf-
ingagjöld, miðað við annað sem í boði
væri fyrir börnin, því með því væru
þau að verðleggja sig út af borðinu.
Jóhann Geirdal, oddviti Samfylk-
ingarinnar, sagði að flest íþrótta-
félögin ættu í fjárhagserfiðleikum og
lagði áherslu á að stuðningur við
íþróttaþjálfun barna ætti að vera til
þess að hjálpa börnunum við fyrstu
skrefin í íþróttum en mætti ekki vera
dulbúinn stuðningur við félögin
vegna almenns fjárhagsvanda. Því
væri út í hött að deildirnar gætu inn-
heimt aftur æfingagjöld sem bærinn
hefði þegar greitt.
Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, sagðist ekki
geta verið sammála þeirri skoðun
fulltrúa minnihlutans að takmarka
skyldi möguleika félaganna til að
innheimta æfingagjöld. Tillaga
þeirra væri dæmigerð kommúnísk
tillaga sem fæli í sér að bæjaryfir-
völd hefðu áhrif á það hvernig fyr-
irtæki eða félög rækju starfsemi
sína.
Upphafleg tillaga forseta bæjar-
stjórnar um að vísa tillögu Tóm-
stunda- og íþróttaráðs til skoðunar í
bæjarráði var samþykkt af öllum
bæjarfulltrúum.
Tillaga um að veita sjö milljónum til íþróttaþjálfunar barna
Minnihlutinn vill skilyrða styrki
Reykjanesbær
VEGAGERÐIN stendur fyrir opnu
húsi í dag, fimmtudag, kl. 16 til 19, til
kynningar á mati á umhverfisáhrif-
um breikkunar Reykjanesbrautar
milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur.
Kynningin verður haldin í fundar-
sal bæjarstjórnar Reykjanesbæjar
að Tjarnargötu 12 í Keflavík. Á
staðnum verða fulltrúar frá Vega-
gerðinni, Hönnun hf. og Skipulags-
stofnun.
Áhrif breikk-
unar kynnt
Reykjanesbraut
JÓLAFRIÐUR er yfirskrift tvennra
jólatónleika Söngseturs Estherar
Helgu. Fyrri tónleikarnir verða í
Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld
klukkan 20.30 og þeir seinni í
Grindavíkurkirkju næstkomandi
laugardag kl. 17.
Á dagskrá tónleikanna verður úr-
val af jólatónlist frá öllum heims-
hornum. Flytjendur eru Englakór-
inn, Sólskinskórinn, Regnboga-
kórinn, Kammerhópur Regnboga-
kórsins, Brimkórinn, Kammerhópur
Brimkórsins og Brimlingarnir, auk
Kirkjukórs Grindavíkur, sem verður
sérstakur gestur tónleikanna.
Stjórnandi er Esther Helga Guð-
mundsdóttir, söngkennari.
Jólatónleikar
Söngseturs
Estherar
Helgu
Grindavík FÓLK sem kemur í verslunarferð
til Reykjanesbæjar getur fengið fría
gistingu á Hótel Keflavík með því að
kaupa inn í verslunum og þjónustu-
fyrirtækjum bæjarins fyrir andvirði
gistingarinnar. Hótelið leggur fram
20 gistiherbergi á dag í þessu skyni,
allt að 400 herbergi fram til jóla, og
getur heildarandvirði framlagsins
orðið sem nemur rúmum fjórum
milljónum kr., verði það að fullu
nýtt.
„Við viljum sýna bænum okkar
þakklæti fyrir stuðning í gegn um
árin og leggja okkar af mörkum til
að gera góðan bæ betri,“ segir
Steinþór Jónsson, hótelstjóri á Hót-
el Keflavík, og bætir við: „Góð versl-
unargata í næsta nágrenninu skiptir
okkur miklu máli. Því betri sem hún
er þeim mun betra er það fyrir hót-
elið og gesti okkar. Við erum til
dæmis með mikið af ráðstefnu- og
árshátíðarhópum sem nota ýmsa
þjónustu og verslun í bæjarfélag-
inu.“ Steinþór segir að árið hafi ver-
ið gott hjá Hótel Keflavík og nýting
með besta móti. Í desember sé
venjulegra rólegra yfir, þó fyrstu
dagarnir í mánuðinum hafi verið
fullbókaðir að þessu sinni, og því
auðveldara að gera versluninni í
bænum þennan greiða.
Gefa gistingu í 400 nætur
Steinþór segir að Hótel Keflavík
muni gefa gistingu í allt að 20 her-
bergjum á dag fram til 23. desem-
ber, eða samtals 400 gistiherbergi
Bjóða fría gistingu
í verslunarferðum
Keflavík
með morgunmat. Hugmyndin geng-
ur út á það að gestir frá öðrum bæj-
arfélögum sem koma í verslunarferð
fyrir jólin geti notað kvittanir eða
reikninga fyrir kaupum á þjónustu
eða vörum í Reykjanesbæ sem
greiðslu fyrir gistinguna. Miðað er
við að fólk kaupi fyrir 10.800 krónur
sem er andvirði gistingar á hótelinu.
Bóka þarf fyrirfram.
Hótel Keflavík stendur sjálft fyrir
þessu framtaki og tekur Steinþór
fram að verslunareigendur standi
ekki straum af kostnaðinum á neinn
hátt. „Við vonum aftur á móti að
verslanir og þjónustufyrirtæki og
starfsfólk þeirra komi til móts við
verkefnið með stærra brosi og betri
þjónustu við viðskiptavini sína. Auk
þess vonumst við til þess að vekja
bæjarbúa til umhugsunar um mik-
ilvægi þess að versla í heimabyggð,“
segir Steinþór.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Steinþór Jónsson, hótelstjóri á
Hótel Keflavík.
ÁRLEGT Bókakonfekt verður haldið
á Bókasafni Reykjanesbæjar næst-
komandi laugardag klukkan 16.
Nokkrir rithöfundar koma í safnið og
lesa upp úr og kynna nýjustu verk sín.
Þeir höfundar sem taka að þessu
sinni þátt í bókakynningunni eru Arn-
aldur Indriðason, Hallgrímur Helga-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir og
Steinunn Jóhannesdóttir. Við þetta
tækifæri mun Rúnar Júlíusson einnig
kynna nýjan geisladisk sem hann er
að gefa út. Bókabúð Keflavíkur verð-
ur með sölubás á staðnum og getur
fólk því keypt bækur þessara höfunda
og fengið þær áritaðar.
Allir eru velkomnir svo lengi sem
húsrúm leyfir og bókasafnið býður
uppá kaffi og konfekt. Auk bóka-
safnsins standa fyrir uppákomunni
menningarfulltrúi Reykjanesbæjar
og Miðstöð símenntunar á Suðurnesj-
um.
Bókakonfekt á
bókasafninu
Reykjanesbær
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦