Morgunblaðið - 06.12.2001, Síða 57

Morgunblaðið - 06.12.2001, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 57 MIKIÐ lifandis ósköp erum við Ís- lendingar farnir að byrja snemma á jólaundirbúningnum. Verslanir eru farnar að taka upp jólaskrautið um miðjan október og jafnvel skreyta utanhúss með nýfelldum jólatrjám. Ég bíð bara eftir að jó- laumræðan hefjist strax að lokinni verslunarmanna- helgi. Við sem höld- um á penna hjá Blómi vikunnar meg- um alls ekki vera eft- irbátar annarra og tökum því þátt í dansinum í kringum jólatréð. Já, dansinum í kringum jólatréð, vel á minnst. Mín kyn- slóð gekk í kringum jólatréð og söng: Göngum við í kring- um einiberjarunn. Mín kynslóð las líka ævintýri H.C. Ander- sen á bernskuárun- um og bæði hló og grét yfir sögum hans. Ein hugljúf- asta sagan fannst mér ætíð vera sagan um litlu stúlkuna og eldspýt- urnar, ég klökknaði í hvert skipti, sem ég las hana. Eitt af undrunum, sem litla stúlkan sá, þegar hún kveikti á eldspýtunum sínum, var fagurlega skreytt jólatré. Ég man að ég hugsaði einhvern tímann: „Skyldi tréð hennar hafa verið eins fallegt og tréð okkar er?“ Hvað sem því líður er næsta víst að jólatré er skreytt á flestum heimilum og okkur finnst það alveg sjálfsagt. En siðurinn sá er ekki nema um aldargamall hérlendis og hann lærðum við af Dönum. Danir eru þó alls ekki upphafsmenn að skreytta jólatrénu í húsum inni, siðurinn er langt að kominn, jafn- vel frá Austurlöndum nær. Ítalir skreyttu jólatré á 16. öld og Sviss- lendingar gerðu það um svipað leyti. Þaðan barst leikurinn norður á bóginn til Þjóðverja, sem skreyttu trén á fjölbreyttan hátt. Tré sem reist voru á torgum bæja báru oft ýmislegt góðgæti, sem gefið var fátækum á jóladag, en það var um 1800 sem Þjóðverjar fóru að hafa ljós á jólatrjám innan- húss og um 1820 er siðurinn kom- inn til Jótlands. Dönsku kaupmennirnir voru okkur svo fyrirmyndin og fyrst í stað voru jólatré Íslendinga heima- gerð, á tréstaur voru festir nokkrir kransar af láréttum spýtum, sem síðan voru vafðar með mosa eða lyngi eða jafnvel pappír. Og svo var það jólaskrautið. Þegar ég man fyrst eftir jólatré var það gervitré, reyndar ekki heimasmíðað, en eitt helsta skraut- ið auk mislitra kúlna voru kramarhúsin, bréfpokar, fléttaðir úr mislitum pappír, og gjarnan sælgætis- moli ofan í. Nú eru lifandi, réttara afhöggvin, jólatré algengust en þá er vandinn sá að tréð haldi barrinu yf- ir jólin. Auðvitað má kaupa barrheldnar tegundir, svo sem stafafuru eða þin, sem er oft- ast innfluttur, en mörgum finnst rauðgreni eina rétta jólatréð. Best er að geyma tréð á köldum stað, gjarnan úti, þar til það er skreytt. Margir setja tréð í jólabað, eða jólasturtu, áður en það fer inn í stofu. Það er þó ekki nóg, til að tréð haldi barrinu þarf það að ná í vatn. Því þarf að saga 1–2 cm neðan af trénu og tálga gjarnan vandlega 3–4 cm af berki utan af. Við erum búin að prófa marga jólatrésfætur, en nú erum við búin að finna óbrigðulan. Við eigum 50 l dökk- græna plastfötu, sem við nær fyll- um af sandi og skorðum svo tréð vel í og fyllum loks af vatni. Þá þarf ekki að skríða undir tréð oft á dag og rembast við að hella vatni í alltof lítinn fót og hafa síðan hrúgur af nálum undir trénu síðustu daga jóla. Þetta verður síðasta greinin sem birtist af Blómi vikunnar þetta ár- ið, það er hefð fyrir vetrarhvíld þáttarins. Eins er hefð fyrir að birta lista yfir greinar ársins. Við óskum lesendum gleðilegra jóla. Hittumst með vorinu. Ungt blágreni – er þetta framtíðar jólatré? JÓLA-JÓLA JÓLATRÉ – JÓLALISTI VIKUNNAR BLÓM Um s j ó n S i g r í ð u r H j a r t a r Greinar sem birst hafa á árinu nr dags titill höfundur 451 10.4. Páskaliljur Sigríður Hjartar 452 4.5. Dvergliljur – Crocus Sigríður Hjartar 453 12.5. Dvergliljur (crocus – annað vers) Sigríður Hjartar 454 2.6. Alaskaösp – Populus trichocarpa Guðríður Helgad. 455 21.6. Algjör kálhaus Sigríður Hjartar 456 4.7. Garðahlynur (Acer pseudoplatanus) Guðríður Helgad. 457 12.7. Gullregn – Labrunum Guðríður Helgad. 458 21.7. Klifurplöntur – vafningsjurtir Sigríður Hjartar 459 2.8. Askur (Fraxinus excelsior) Sigríður Hjartar 460 8.8. Klifurplöntur – vafningsjurtir Sigríður Hjartar 461 1.9. Álmur – Ulmus glabra Guðríður Helgad. 462 18.9. Einir Sigríður Hjartar 463 12.10. Ilmreynir – Sorbus aucuparia Guðríður Helgad. 464 7.11. Íslenskar trjátegundir? Sigríður Hjartar 465 24.11 Námsferð Garðyrkjuskólans til Hollands Guðríður Helgad. 466 6.12. Jóla-jóla, jólatré – jólalisti Sigríður Hjartar 466. þáttur FRÉTTIR BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Félag eldri borgara í Kópavogi Þriðjudaginn 27. nóvember mættu 22 pör í Mitchell-tvímenninginn og urðu úrslit þessi í N/S: Jón Pálmason – Ólafur Ingimundars. 252 Sigríður Pálsd. – Eyvindur Valdimarss. 251 Jóhanna Gunnlaugsd. – Garðar Sigurðss.244 Hæsta skor í A/V: Eysteinn Einarss. – Kristján Ólafss. 272 Gróa Guðnad. – Sigríður Karvelsd. 243 Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 242 Sl. föstudag mættu einnig 22 pör og þá urðu úrslit þessi í N/S: Guðjón Kristjánss. – Magnús Oddsson 250 Lárus Hermannss. – Sigurður Karlss. 241 Jóhanna Gunnlaugsd. – Garðar Sigurðss.232 Hæsta skor í A/V: Eysteinn Einarss. – Jón Stefánsson 284 Anna Jónsd. – Sigurrós Sigurðard. 264 Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 234 Meðalskor báða dagana var 216. Bridsfélagið Muninn Sandgerði Miðvikudaginn 28. nóvember byrjaði tveggja kvölda board-a- match sveitakeppni hjá bridsfélag- inu Muninn úr Sandgerði. Alls eru 6 sveitir skráðar í keppninni, og er spilað með monrad-fyrirkomulagi 2 14 spila leikir á kvöldi. Dregið var í fyrstu umferð, og síðan raðast sveitir saman eftir stöðu, þ.e. tvær efstu spila saman, svo 3. og 4. sætið o.s.frv. Í efsta sæti er sveit Karls G. Karls- sonar með 36 stig en auk hans- spiluðu Gísli Torfason, Guðjón Svav- ar Jensen, Jóhannes Sigurðsson og Birkir Jónsson. Önnur úrslit urðu sem hér segir : Sveit Lilju Guðjónsdóttur 29 Sveit Trausta Þórðarsonar 28 En stutt er í næstu sveitir sem eru með 26, 25 og 24 stig. Áhorfendur eru velkomnir og munið að það er alltaf heitt kaffi á könnunni. stretch- gallabuxur Kringlunni, sími 588 1680 v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680. iðunn tískuverslun 3 skálmalengdir SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 5  1821268  M.A.* Landsst. 6001120619 VIII I.O.O.F. 11  1821268½  Bk. Kl. 20 Ljósvaka, umsjón Hjálp- arflokksins, Kåre Morken talar. Veitingar og happdrætti. Föstu- dag kl. 20 bænastund. Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 20.00. Mikill söngur og vitnisburðir. Ræðumaður Vörður Traustason. Allir hjartanlega velkomnir. www.samhjalp.is . Aðaldeild KFUM Holtavegi 28 Fundur í kvöld kl. 20:00. Dr. Árni Árnason læknir — Rannsóknir á alvarlegum heilasjúkdómi. Efni: Dr. Leifur D. Þorsteinsson. Upphafsorð: Sigurgeir Gíslason. Hugleiðing: Sr. Ingólfur Guð- mundsson. Allir karlmenn velkomnir. Ráðherrafundur ÖSE í Búkarest RÁÐHERRAFUNDUR Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE, var haldinn í Búkarest, 3.–4. desember 2001 og var meginefni fundarins barátta gegn hryðju- verkastarfsemi. Á fundinum samþykktu ráðherrar aðildarríkjanna 55 sérstaka yfirlýs- ingu og aðgerðaáætlun til að stemma stigu við hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi. Að- gerðaáætlunin gerir ráð fyrir nánu samstarfi og samráði ÖSE við Sam- einuðu þjóðirnar, Atlantshafsbanda- lagið, Evrópusambandið og Evrópu- ráðið. Þórður Ægir Óskarsson, fasta- fulltrui Íslands hjá ÖSE, sat fund- inn fyrir hönd utanríkisráðherra. Fastafulltrúi lýsti yfir ánægju með samþykkt aðgerðaáætlunar ÖSE gegn hryðjuverkastarfsemi, en með henni væri lagður grunnur að efl- ingu starfs ÖSE gegn hryðjuverk- um og skipulagðri glæpastarfsemi, ekki síst fíkniefnasmygli og mansali. Þá áréttaði fastafulltrúi Íslands mikilvægi starfsemi ÖSE á sviði mannréttinda, átakavarna og efling- ar lýðræðis. Með margþættu fram- lagi á ofangreindum sviðum, ekki síst með starfi sendinefnda á vett- vangi, gegndi ÖSE þýðingarmiklu hlutverki við að tryggja stöðugleika og festa lýðræði í sessi í aðildarríkj- unum. Loks lagði fastafulltrúi sérstaka áherslu á eflingu starfa ÖSE í bar- áttunni gegn mansali og kynlífs- þrælkun. Einnig þyrfti ÖSE að gæta í ríkara mæli að mannrétt- indum barna, ekki síst á átakasvæð- um í aðildarríkjunum. Shimon Peres, utanríkisráðherra Ísrael, var sérstakur gestur ráð- herrafundarins. Tourette með opið hús TOURETTE-samtökin á Íslandi hafa opið hús fyrir foreldra barna með Tourette-heilkenni í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30 í Hátúni 10b, 9. hæð. Þessi opnu hús eru mánaðarlega, fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, segir í fréttatilkynningu. Jólatrés- ferðir í desember JÓLASVEINN.is og Hópferðabíl- ar Vestfjarðaleiðar hafa tekið upp samvinnu með ferðir þar sem farið er í Skorradal og jafnvel aðra staði. Farið er með rútum Vest- fjarðaleiðar en í skóginum taka jólasveinar á móti hópnum, syngja og sprella. Fjölskyldan getur valið sér jólatré saman og borgar fyrir það eftir stærð. Ekki er skilyrði að ná sér í jólatré en þeir sem það gera geta notið aðstoðar starfs- manns Skógræktarfélagsins, sem ferðirnar eru í samstarfi við. Auk þessa eru möguleikar á annars konar ferðum, m.a. jólasveinaferð- um í næsta nágrenni höfuðborg- arinnar, t.d. í Heiðmörk. Vestfjarðaleið er rótgróið rútu- fyrirtæki sem sér um hópferðir hvert sem er á landinu og allar rútur eru búnar öryggisbeltum. Nánari upplýsingar er að fá hjá Vestfjarðaleið og einnig má skoða heimasíðu jólasveinsins, jola- sveinn.is, segir í frétt frá jóla- sveinn.is og Hópferðabílum Vest- fjarðaleiðar. Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi Ný stjórn kjörin AÐALFUNDUR félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi var haldinn fyrir skömmu. Fráfarandi formaður flutti skýrslu um störf félagsins sem síðan var rædd. Reikningar félagsins fyrir árin 1999 og 2000 voru samþykktir samhljóða. Í stjórn voru eftirfarandi kjörnir: Formaður: Kristín Jónasdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. Meðstjórnendur: Anna Ólafsdóttir blaðafulltrúi, Hannes B. Hjálmars- son markaðsstjóri, Ingibjörg Ás- geirsdóttir námsgagnastjóri og Val- ur Ingimundarson lektor. Varastjórn: Haukur Ólafsson sendi- fulltrúi, Jóhann R. Benediktsson sýslumaður og Margrét Heinreks- dóttir framkvæmdastjóri. Endur- skoðendur: Björn L. Halldórsson lögfræðingur og Gunnar Helgason hæstaréttarlögmaður. Spáðu í framtíðina – nýtt spil ÚT eru komin Íslensku spádómsspil- in. Útgefandi spilanna er Ingunn ehf. Spilin verða til að byrja með í sölu hjá Esso, bókabúðum Máls og menn- ingar og versluninni Hjá Magna, segir í fréttatilkynningu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.