Morgunblaðið - 06.12.2001, Síða 67
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 67
jakkapeysurnar
komnar aftur í
nýjum litum
LAUGAVEGI KRINGLUNNI SMÁRALIND
ÞAÐ er ekki á þá logið, þá Tví-
höfðabræður, Sigurjón Kjartans-
son og Jón Gnarr. Eins og titillinn
ýjar óbeint að hafa þeir ríkt sem
konungar í ís-
lenskum grín-
heimi undanfarin
ár, bæði í gegnum
frábæran morgun-
þátt sinn Tví-
höfða, svo og sem
hluti af Fóstbræðrum.
Grínplötur Tvíhöfðans hafa þó
verið upp og ofan. Fyrsta platan
er frábær en plötur tvö og þrjú dá-
lítið götóttar.
Á Konunglegri skemmtun er
Tvíhöfðinn hins vegar í fantaformi
og er gripurinn meistaralega sam-
settur. Slær næstum því Hvítu
plötu Bítlanna út hvað innsæi í
uppröðun viðkemur (segi svona).
Tónlist, spunnin atriði, samin at-
riði, símaöt; allt er þetta í nánast
fullkomnu samræmi.
Fyrir það fyrsta ber að fagna
lengdinni, en platan er rúm klst.
Enda ekki hægt að fara fram á
minna í svona tilfellum, þar sem
mikið af efninu er forunnið.
Það sem er samið er virkilega
fyndið og niðurlag brandaranna
gengur vel upp. Áður fyrr hefur
þetta verið nokkuð veikur hlekkur
hjá þeim bræðrum („Andsetin eig-
inkona“, „Lottókynnir“ og „Í
hverju ertu“ eru góð dæmi um vel
heppnaða brandara).
Einnig er hluti spunninna atriða
aukinn sem er mjög vel. Viðtalið
við Suðu-Sigfús er óborganlegt
(„Það er stemmningin maður!“) og
at sem gert er í Þjóðverjum og
CIA er frábært.
Í atriðinu „Offitusjúklingur“ á
Jón Gnarr leik lífs síns, svei mér
þá, og ég er ekki hissa á að hann
hafi verið valinn leikari ársins á
nýafstaðinni Edduhátíð. Hér er
hann í hlutverki dauðadæmds of-
fitusjúklings sem er 256 kíló. Það
er hægt að hlusta á þetta atriði
endalaust án þess að fá leiða á því.
Alger snilld!
Mikið er líka af frábærlega
fyndnum lögum, bæði sérstaklega
sömdum þar sem gert er grín að
heilögum kúm eins og Björk og
Sigur Rós, og Live-skotið er alger
milljón (þ.e. lagið „Dolphins in the
Distance“), og síðan eru lög sem
leikin eru af fingrum fram, eitt-
hvað sem þeir félagar eru orðnir
sérfræðingar í (hið fjöruga þjóðhá-
tíðarlag er ótrúlegt: „Ég er kom-
inn til að skemmta mér/ég vona að
enginn nauðgi mér“ segir þar
m.a.).
Hér eru þó nokkur atriði sem
verða að teljast vafasöm, þar sem
Fóstbræður nálgast smekkleysið
ískyggilega. Á þessu er alltaf
hætta er menn leggja fyrir sig
svarta kímnigáfu, sem er ein grín-
hlið Höfðans. Mamma mín kenndi
mér að það væri ljótt að gera grín
að þroskaheftu fólki og þeirri
speki hef ég jafnan reynt að fylgja.
Hér eru nokkur atriði þar sem er
gert grín að mongólítum, einna
rætnast er „Snjalli mongólítinn“.
Og ég hlæ þó eins og vitlaus; og er
farinn að efast um eigin siðferð-
iskennd fyrir vikið! Hef meira að
segja leikið atriðið nokkrum sinn-
um fyrir starfsfélagana. Þetta er
umhugsunarvert, þá fyrir okkur
öll, Tvíhöfðann líka.
Konungleg skemmtun er stút-
fullur af gamanefni, sem er bæði
fjölbreytt og í nær öllum tilfellum
bráðfyndið. Á sinni fjórðu plötu er
Tvíhöfðinn á hátindinum, ekkert
minna. Þetta er frábær plata sem
stendur algerlega undir nafni.
Tónlist
„Hvað ertu
að suða,
mamma
mín?“
TVÍHÖFÐI
Konungleg skemmtun
DENNIS/SKÍFAN
Konungleg skemmtun, fjórða plata grín-
istanna Sigurjóns Kjartanssonar og Jóns
Gnarr í Tvíhöfða.
Efnið er tekið úr útvarpsþættinum Tví-
höfða frá árunum 1996–2001. Efni samið
af Tvíhöfða. Barði Jóhannsson aðstoðar
við útsetningu og samningu laga og Vé-
dís Hervör kemur að flutningi lagsins
„Let me be your uncle tonight“.
Bjarni Braga sá um hljómjöfnun.
Arnar Eggert Thoroddsen
„Á sinni fjórðu plötu er Tvíhöfð-
inn á hátindinum, ekkert minna.
Þetta er frábær plata sem stend-
ur algerlega undir nafni,“ segir
Arnar Eggert Thoroddsen um
nýja plötu Tvíhöfða.
ASTRÓ: Eldhúspartí FM 957 og
B&L. Fram koma Í svörtum fötum
fimmtudagskvöld kl. 21.
ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Dansleikur
Félags eldri borgara með Capri-
tríóinu sunnudagskvöld kl. 20 til mið-
nættis.
BROADWAY: Jólahlaðborð, Roll-
ing Stones-sýning og dansleikur með
Hljómsveit John Gear föstudags-
kvöld. Jólahlaðborð, Rolling Stones-
sýning og dansleikur með Stjórninni
laugardagskvöld. Jólahlaðborð og
Álftagerðisbræður sunnudagskvöld.
BÚÐARKLETTUR, Borgarnesi:
Andrea Gylfadóttir og Eðvarð Lár-
usson föstudagskvöld kl. 23. Kolbeinn
Þorsteinsson leikur laugardagskvöld.
CLUB 22: Barði úr Bang Gang sér
um tónlistina fram undir morgun.
Frítt inn til kl. 1 en handhafar stúd-
entaskírteina fá frítt inn alla nóttina.
CAFÉ AMSTERDAM: Hin ný-
stofnaða hljómsveit Plast leikur
föstudags- og laugardagskvöld. Plast
skipa þeir Tommi Tomm, Diddi,
Gunni Óla og Jonni. CAFÉ ROM-
ANCE: Liz Gammon fimmtudags-
kvöld. Hjörtur Howser og Sigríður
Guðnadóttir föstudags- og laugar-
dagskvöld.
CATALINA, Hamraborg: Hljóm-
sveitin Gammel dansk leikur og syng-
ur föstudags- og laugardagskvöld.
DUBLINER: Hljómsveitin Spila-
fíklar föstudags- og laugardagskvöld.
EGILSBÚÐ, Neskaupstað: Jóla-
hlaðborð. Einar Bragi og Daníel sjá
um dinnertónlist. Arnar og Siggi
leika fyrir gesti eftir borðhald til kl. 3
laugardagskvöld.
FÉLAGSHEIMILIÐ GRUNDAR-
FIRÐI: Spútnik laugardagskvöld.
FJÖRUKRÁIN: Hljómsveitin KOS
leikur föstudags- og laugardags-
kvöld.
FOSSHÓTEL, Stykkishólmi:
Bítlavinafélagið kemur saman eftir
langt hlé laugardagskvöld.
GRANDROKK: Heiða og heiðingj-
arnir með tónleika föstudagskvöld.
Aðgangseyrir er 500 krónur. Dj Atli
sér um tónlistina laugardagskvöld.
GEYSIR - KAFFIBAR: Föstudags-
bræðingur Hins hússins á morgun.
Harðkjarnasveitirnar Snafu, Klink
og Graveslime leika.Tónleikarnir
hefjast kl. 20 og standa til kl. 22:30 og
er aðgangur ókeypis.16 ára aldurs-
takmark er á Föstudagsbræðingana
og skylda að sýna skilríki við hurð.
GULLÖLDIN: Það eru hinir bráð-
hressu Léttir sprettir sem skemmta
föstudags- og laugardagskvöld.
H-BARINN AKRANESI: Diskó-
rokktekið og plötusnúðurinn Skugga-
Baldur föstudags- og laugardags-
kvöld. 500 krónur inn eftir miðnætti.
HAFNARFJARÐARLEIKHÚSIÐ:
Útgáfutónleikar Kiðlinganna sunnu-
dagskvöld kl. 15. Hljómsveitina skip
þau Ómar Örn, Óskar Steinn, Hrefna
og Þóranna. Miðaverð er 500 krónur.
HÖLLIN, Vestmannaeyjum:
Mannakorn ásamt Ellen Kristjáns
laugardagskvöld.
INGHÓLL, Selfossi: Hljómar laug-
ardagskvöld.
KAFFI REYKJAVÍK: Papar spila
föstudags- og laugardagskvöld.
KRINGLUKRÁIN: Hljómsveitin
Hafrót leikur fyrir dansi föstudags-
og laugardagskvöld. Hafrót skipa
þeir Sigurður Hafsteinsson, Rafn Er-
lendsson og Pétur Hreinsson.
LIONSSALURINN, Kópavogi,
Auðbrekku 25: Áhugahópur um línu-
dansa verður með dansæfingu föstu-
dagskvöld kl. 21:30. Elsa sér um tón-
listina. Allir velkomnir.
ODD-VITINN, Akureyri: Hljóm-
sveit Friðjóns Jóhannssonar
skemmtir föstudags- og laugardags-
kvöld.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópa-
vogi: Hljómar spila í fyrsta sinn í
Kópavogi föstudagskvöld. Snilling-
arnir laugardagskvöld.
RÁIN, Keflavík: 25 ára afmæl-
istónleikar Geimsteins í kvöld. Fram
koma Rúnar Júlíusson, Kalk, Svenni
Björgvins og Bjartmar Guðlaugsson.
Einnig verða Gálan og Fálkarnir á
staðnum. Kvöldið hefst kl. 22 og að
sjálfsögðu er frítt inn.
SJÁVARPERLAN, Grindavík:
Pelican skemmtir laugardagskvöld.
SPOTLIGHT: Boys at the Bar, 3
góðir. Dj Sesar sér um tónlistina
föstudagskvöld. Dj Sesar sér um tón-
listina laugardagskvöld.
VESTURPORT, Vesturgötu 18:
Útgáfutónleikar hljómsveitarinnar
Sofandi sem nýverið gaf frá sér disk-
inn Ugly Demos fimmtudagskvöld kl.
21. Miðaverð er 800 krónur og fer
forsala aðgöngumiða fram í Hljóma-
lind.
VÍDALÍN: Cajun-sveitin Kropp-
arnir leika á hin ýmsu hljóðfæri
fimmtudagskvöld. Kropparnir hafa
ekki mokið saman lengi en hljóm-
sveitin var sett saman úr hljómsveit-
um á borð við Sóldögg og Papana.
Hljómsveitin Buff föstudags- og laug-
ardagskvöld.
FráAtilÖ
Hljómar spila í Kópavogi um helgina.
Kiðlingarnir halda útgáfutón-
leika um helgina.
Sofandi kynnir nýútkomna
plötu sína Ugly Demos í Vest-
urportinu í kvöld.